Morgunblaðið - 21.12.2004, Síða 6

Morgunblaðið - 21.12.2004, Síða 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 21. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR „Já, ég man eftir Árna Johnsen, hann var svo skrítinn.“ Gísli á Uppsölum „Þættir þeir, sem Árni skrifar um vini sína, eru gagnorðir, minna á stuttar gamansögur ... mergjuð tilsvör“ Erlendur Jónsson, Mbl. 1. prentun uppseld 2. prentun komin í verslanir Félagsvísindastofnun 7. – 13. des. 6. Ævisögur og endurminningar NEYTENDASAMTÖKIN hafa í bréfi til Landsvirkjunar (LV) óskað eftir upplýsingum um hvort uppi séu áform um verðbreytingar hjá fyrirtækinu um næstu áramót. Sé það reyndin óska samtökin eftir rökstuðningi vegna hækkunarinnar og upplýsingum um hver hækkunin verði í prósentum til dreifiveitna á afhendingarstað (það er á sölu til annarra en stóriðjuvera). Neytendasamtökin segja í bréf- inu að ástæða þessa sé að að und- anförnu hafi fjölmiðlar fjallað um ætlaðar rafvorkuverðshækkanir um næstu áramót vegna breytinga sem ný raforkulög hafa í för með sér. Fullyrt hafi verið að hækkanir geti numið allt að 10% og því óski Neytendasamtökin eftir umrædd- um upplýsingum frá Landsvirkjun. Vilja vita hvort LV hækki ÓLAFUR Ó. Guðmundsson, yfir- læknir á Barna- og unglingageðdeild Landspítala – háskólasjúkrahúss, segir aukningu umönnunarbóta Tryggingastofnunar ríkisins til for- eldra barna með geðraskanir að vissu leyti áhyggjuefni. Hann segir dæmi um að foreldrar reyni að við- halda sjúkdómseinkennum barna sinna til þess að halda bótunum. Það hafi slæm áhrif á börnin. Hann legg- ur áherslu á að dæmin séu undan- tekningar fremur en regla. Þau gefi þó tilefni til þess að gera athuga- semdir við uppbyggingu trygginga- kerfisins. Í frétt Morgunblaðsins í síðustu viku kom fram að fjöldi barna með margs konar hegðunar- og geðrask- anir, sem fá umönnunarmat frá Tryggingastofnun ríkisins, hafi meira en tvöfaldast undanfarin fimm ár. Ólafur segir að bætur til foreldra barna með geðraskanir fari fyrst og fremst eftir því hvernig börnin hafi verið greind. Í flokki fimm fái for- eldrar t.d. svokölluð umönnunarkort sem niðurgreiði þjónustu og lyf. Í flokki fjögur fái foreldrar um tutt- ugu þúsund kr. umönnunarbætur á mánuði og í flokki þrjú fái foreldrar enn hærri bætur. „Bæturnar eru að sjálfsögðu hugsaðar þannig að eftir því sem ein- kennin eru meira íþyngjandi, þeim mun meiri kostnað þurfa foreldrarn- ir að bera vegna einkenna barnsins,“ útskýrir hann. Getur haft slæm áhrif á bata „Efnaminni foreldra getur þó munað um umönnunarbætur. Þeir geta því lent í klemmu þegar dregur úr íþyngjandi einkennum barnsins og það fellur um umönnunarflokka, þ.e. úr flokki sem greiðir umönnun- arbætur í flokk sem niðurgreiðir lyf og þjónustu. Þetta getur hvatt til neikvæðni foreldris gagnvart stöðu barnsins og getur haft slæm áhrif á bata þess.“ Af þessum ástæðum, segir Ólafur, á að byggja tryggingakerfið upp á annan hátt. „Það á ekki að koma til móts við aukinn umönnunarkostnað foreldra út frá læknisfræðilegri greiningu heldur út frá félagslegri greiningu,“ segir hann. Umönnunar- bætur Tryggingastofnunar eigi skv. þessu einungis að vera beinar nið- urgreiðslur á þjónustu, s.s. sálfræði- þjónustu „en ekki óskilgreindur styrkur til foreldra,“ segir hann. Ólafur Ó. Guðmundsson yfirlæknir á Landspítala Aukning umönnunar- bóta áhyggjuefni VÍÐIR EA, frystitogari Samherja, hefur verið á veiðum fyrir austan land frá 19. nóvember sl. en skipið er væntanlegt til hafnar á Akureyri í dag með fullfermi, eftir 32 daga veiði- ferð. Páll Steingrímsson, skipstjóri í þessum túr, sagði að aflabrögð hefðu verið alveg ágæt. „Það hefur verið fínasta kropp í þorski, ufsa og ýsu en veðrið hefur verið frekar rysjótt, sem er ekki al- gengt á Austfjarðamiðum og veðrið í síðustu viku var sérlega leiðinlegt. Við höfum verið nánast á sama svæð- inu, frá Rifsbanka og suður í Beru- fjarðarál. Við erum komnir með full- fermi, um 390 tonn af frystum afurðum, aflaverðmæti upp á ríflega 100 milljónir króna og verðum í landi tveimur sólarhringum á undan upp- haflegri áætlun.“ Páll sagði það ekki algengt að menn væru að sjá þriggja stafa tölur í aflaverðmæti innan ís- lensku landhelginnar. Spurður um stemninguna um borð á aðventunni, sagði Páll að búið væri að skreyta borðsalinn og að vissulega væru menn orðnir spenntir fyrir því að komast í faðm fjölskyldna sinna. Hins vegar hefðu þeir verið nokkuð uppteknir af því að fylgjast með millublaðinu og á þar við yfirlitið um aflaverðmætið um borð. „Og ef þeim fannst tölurnar á blaðinu ekki þokast nógu hratt upp, fékk ég alveg að vita af því, enda þurfa þeir líka að kaupa jólagjafir.“ Páll sagði að árið í heild hefði verið nokkuð gott en það væri þó ekkert leyndarmál að sterk staða krónunnar væri þeirra versti óvinur. „Við erum búnir að horfa upp á það í þessum túr að aflaverðmætið hefur lækkað um milljónir króna út af sterku gengi.“ Þá sagði Páll að stéttarfélag háset- anna um borð, Sjómannafélag Eyja- fjarðar, hefði verið að gera strákun- um lífið leitt í þessari veiðiferð. „Við fórum inn á Norðfjörð hinn 6. desem- ber til að taka olíu og óskuðum þá eft- ir því að fá að landa um leið 3.000 kössum eða um 80 tonnum, til að rýma til í lestinni og auðvelda strák- unum að vinna þarna niðri en sjó- mannafélagið bannaði það af því að við höfðum millilandað tvisvar á árinu.“ Páll sagði að Helgi Laxdal, formað- ur Vélstjórafélags Íslands, og Árni Bjarnason, forseti Farmanna- og fiskimannasambandsins, hefðu ekki viljað koma í veg fyrir löndun úr skip- inu en að Konráð Alfreðsson, formað- ur Sjómannafélags Eyjafjarðar, hefði þvertekið fyrir það. „Með þessari ákvörðun er stéttarfélagið að hafa þrjár milljónir króna af áhöfninni, upp undir 100 þúsund krónur af hverju háseta og 200 þúsund af mér, miðað að við hefðum verið á veiðum fram á síðustu stundu samkvæmt kjarasamningum. Ég get engan veg- inn séð að það sé hlutverk stéttar- félaga að halda niðri launum,“ sagði Páll og bætti viðað það væri venja, þegar væri millilandað að setja ekki síðustu 1.000 kassana í skipið. Jólastemning um borð í Víði EA á miðunum fyrir austan „Verið fínasta kropp í þorski, ufsa og ýsu“ Morgunblaðið/Kristján Víðir EA, frystitogari Samherja hf., á leið til hafnar á Akureyri. UM 50 bændur hafa skráð sig á hina árlega Agrómek-landbúnaðarsýn- inguna í Danmörku sem farin verð- ur seinnipartinn í janúar nk. Þetta er áttunda ferðin á sýninguna. Fram kemur á heimasíðu Lands- sambands kúabænda að þessi mikli fjöldi komi á óvart þar sem önnur fagferð bænda verði farin um miðj- an febrúar. Sú ferð verður til Nýja- Sjálands, en í hana eru skráðir um 60 þátttakendur, þannig að samtals verða á annað hundrað bændur á faraldsfæti í byrjun næsta árs. Margir bændur á faraldsfæti ÖRYGGISVÖRÐUR sem starfar hjá öryggisgæslufyrirtæki er grunaður um að hafa kveikt í lyftara sem stóð við Rúmfatalagerinn við Smáratorg í Kópavogi. Maðurinn tilkynnti um brunann og slökkti eldinn. Upp- tökur úr eftirlitsmyndavél urðu til þess að grunur féll á manninn. Öryggisvörðurinn tilkynnti um brunann á aðfaranótt laugardags. Grunur féll á manninn þegar upp- tökur úr eftirlitsmyndavélakerfi voru skoðaðar um morguninn. Ekki var upplýst um hvort maðurinn sæ- ist beinlínis bera eld að lyftaranum. Öryggisvörður grunaður um íkveikju ÍSLENSKAR rjúpur fengust í gær á 1.300 krónur stykkið en margir veiði- menn setja upp mun hærra verð fyrir þennan vinsæla jólamat. Þó að veiðar á rjúpu hafi verið bannaðar frá haust- inu 2003 virðist enn vera nokkurt framboð á íslenskum rjúpum. Það er a.m.k. reynsla Óla H. Garðarssonar sem auglýsti eftir rjúpum í jólamat- inn í Fréttablaðinu í gær. „Vantar jólamat. Óska eftir að kaupa 20 íslenskar rjúpur.“ Þannig hljóðaði auglýsingin sem Óli setti í blaðið. Undir hádegi hafði hann heyrt í mörgum veiðimönnum sem buðu rjúpur á frá 1.300 krónur fyrir stykk- ið upp í fleiri þúsund. „Ég veit um einn sem átti níu rjúpur og vildi selja þær á 50.000 kall. Svo var hringt í hann og þá var hann víst búinn að selja þær og hefði getað selt þær mörgum sinnum,“ sagði Óli í samtali við Morgunblaðið í gær. Óli hafði engar áhyggjur af lögum um bann við rjúpnaveiðum enda hefðu rjúpurnar verið skotnar áður en bannið var sett á. „Þær eru nú reyndar ekki dagsettar en mér er sagt að þetta séu rjúpur sem voru skotnar fyrir bannið og ég dreg það ekkert í efa,“ sagði hann. Rjúpurnar sem hann hafði fengið voru allar frosnar. Óli sagðist verða að fá rjúpur í jóla- matinn og sagðist ekki „taka sénsinn“ á skosku rjúpunum sem fluttar hafa verið inn. Tíu manns munu skipta með sér rjúpunum 20 sem dugar varla, a.m.k. ekki ef sæmilegir mat- menn eru í boðinu. Óli gerir ráð fyrir að bjóða einnig upp á hamborgar- hrygg á aðfangadag og bætti því við að um áramótin væri smyglaður kalkúnn á boðstólum. Í júlí 2003 bannaði Siv Friðleifs- dóttir, þáverandi umhverfisráðherra, veiðar á rjúpu frá haustinu 2003 til haustsins 2006. Veiðibannið er enn í gildi en ekkert stendur í vegi fyrir viðskiptum með rjúpur, að því gefnu að þær hafi verið skotnar fyrir þann tíma, þ.e. haustið 2002. „Eru nú reyndar ekki dagsettar“ Enn nokkurt framboð á íslenskum rjúpum þrátt fyrir veiðibann frá hausti 2003 TIL að mæta kröfum um notk- un skjaldarmerkis Íslands í nú- tíma prent- og skjámiðlum fól forsætisráðuneyti grafíska hönnuðinum Ólöfu Árna- dóttur, mynd- listarmann- inum Pétri Halldórssyni og auglýs- ingastofunni P & Ó að hrein- teikna og stílfæra skjald- armerkið. Var þess gætt í hví- vetna að varðveita upprunalega teikningu Tryggva Magnússonar, skv. upplýsingum forsætisráðu- neytisins. Reglubók um rétta notkun Í framhaldinu hefur ráðu- neytið svo gefið út nýja reglu- bók um skjaldarmerkið og end- urbætt vefsíður um það, sem ætlað er að vera til leiðbein- ingar um rétta notkun skjald- armerkisins. Hefur þess verið farið á leit við ráðuneyti og rík- isstofnanir að þau sjái til þess að hið hreinteiknaða skjaldar- merki sé notað við allar út- gáfur þar sem skjaldarmerkið er sett á rit. „Auk þess er farið fram á að virtar séu reglur um bakgrunn og grunnflöt fyrir skjaldar- merkið. Ennfremur er þess óskað að hið hreinteiknaða skjaldarmerki verði notað á öll pappírsföng, skilti og aðrar merkingar hið fyrsta og eigi síðar en í ársbyrjun 2006. Þetta á jafnframt við um aðra notkun skjaldarmerkisins,“ segir í frétt frá forsætisráðuneytinu. Skjaldar- merki Íslands hreinteiknað

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.