Morgunblaðið - 21.12.2004, Qupperneq 56

Morgunblaðið - 21.12.2004, Qupperneq 56
56 ÞRIÐJUDAGUR 21. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ Jólamyndin 2004 Pólarhraðlestin BEN AFFLECK CHATERINE O´HARA CHRISTINA APPLEGATE JAMES GANDOLFINI ÁLFABAKKI kl. 4, 6 og 8 og 10.30. Jólamyndin 2004 Pólarhraðlestin Kvikmyndir.is kl. 6 og 8. Ísl. tal. H.J. Mbl.  M.M.J. Kvikmyndir.com  "Hrikalega spennandi og skelfilega átakanleg!" - E.Á., Fréttablaðið H.L. Mbl. . . l. Deildu hlýjunni um jólin Með hinum bráðskemmtilega James Gandolfini úr The Sopranos .Kostuleg gamanmynd s emkemur öllum í gott jólaskap. Jólamyndin 2004 Sýnd kl. 6, 8 og 10. B.i. 12 ára. GEORGE CLOONEY BRAD PITT ANDY GARCIA and JULIA ROBERTS BERNIE MAC DON CHEADLE MATT DAMON CATHERINE ZETA-JONES OCEAN´S TWELVE GEORGE CLOONEY BRAD PITT ANDY GARCIA andJULIA ROBERTS BERNIE MAC DON CHEADLE MATT DAMON CATHERINE ZETA-JONES Sýnd kl. 5.40, 8.10 og 10.. KRINGLAN kl. 6, 8 og 10.10. OCEAN´S TWELVE Ein stærsta opnun frá upphafi í des í USA. Jólamyndin 2004 Jólamyndin 2004 kl. 6, 8 og 10. Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. Jólamyndin 2004 OCEAN´S TWELVE EINNIG SÝND Í SELFOSSBÍÓ OCEAN´S TWELVE EINNIG SÝND Í SELFOSSBÍÓ ✯ ✯ HINIR ELLEFU ERU ORÐIN TÓLF. SÝND Í LÚXUS VIP KL. 3.30, 5.45, 8 OG 10.30.  „Algert augnayndi“ Mbl.  Kvikmyndir.com „Hressir ræningjar“ Fréttablaðið  „Algert augnayndi“ Mbl.  Kvikmyndir.com „Hressir ræningjar“ Fréttablaðið HINIR ELLEFU ERU ORÐIN TÓLF. Stórstjörnu þjófagengi aldarinnar er mætt aftur og stillir skotmark sitt að þessu sinni á Evrópu Forsýning á jólamyndinni 2004 JAMIE Kennedy er margt til lista lagt en leið hans á toppinn, sem hann nálgast nú óðfluga, hefur verið allt annað en greið. Kennedy hefur vas- ast í hinu og þessu með það fyrir augum að ná takmarki sínu – að hasla sér völl í bandarískum skemmtanaiðnaði. Í dag sinnir hann kvikmyndaleik, þáttastjórnun og -framleiðslu auk uppistandssýninga. Hérlendis er Kennedy þekktur fyrir þættina Jamie Kennedy Experi- ment sem sýndir eru á Skjá einum og snúast um að gabba fólk fyrir framan myndavélar og liggur oft gríðarlegur undirbúningur að baki hverjum hrekk og virðist Kennedy geta brugðið sér þar í allra kvikinda líki. Tímahrak Kennedy segist hafa heyrt góða hluti um Ísland í gegnum lags- bræður sína í bransanum sem hafa heimsótt Ísland með uppistandssýn- ingar, eins og t.d. Kjánaprikin (Jack- Ass), sem hann nefnir til sögunnar. Enda ætlar hann að dvelja hér eitt- hvað fram yfir áramót. Kennedy hafnar því að það sé of mikið að gera hjá sér en viðurkennir að hann sé á góðu róli. „Ég var t.d. að klára bíómynd, Mask 2, sem verður frumsýnd í febr- úar á næsta ári. Ég er hættur með Jamie Kennedy Experiment og er nýbúinn að gefa út bók þar sem ég rifja upp undangengin ár, hvernig ég laug minn inn í bransann! (Kenn- edy greip til þeirra örþrifaráða eftir áralangt basl að þykjast vera eigin umboðsmaður í því skyni að koma sér á framfæri. Eftir það var leiðin greið.)“ Jamie Kennedy Experiment var sá þáttur sem kom Kennedy á kort- ið. „Já, hiklaust,“ segir hann. „Ég hafði leikið smárullu í Scream- myndunum áður. Ég hafði reynt að koma þessu Experiment-gríni að í Saturday Night Live-þættinum en því var hafnað svo ég ákvað bara að kýla á þetta sjálfur. Og þetta gekk í gegn.“ Blaðamaður spyr hvort sá þáttur hafi ekki reynt á þanþol aðstand- enda, enda lygilegt hversu mikið er stundum lagt í einstök atriði. „Jú, við vorum í stöðugu tíma- hraki en við skemmtum okkur mjög vel við framleiðsluna. En jú, það voru alls kyns staðir sem við gerðum þetta á og alls kyns búningar og förðun. Og peningar voru af skorn- um skammti. Þannig að vissulega tók þetta á … þátturinn var skemmtileg áskorun, einslags fram- sækinn hrekkjalómaháttur.“ Allt að gerast Kennedy er nú að vinna að þætti með Fran Drescher (The Nanny) sem kallast Living with Fran (vinnu- heiti hingað til hefur verið Shacking Up) og verður frumsýndur í mars 2005. Þátturinn fjallar um 45 ára konu sem fer að vera með 25 ára gömlum manni og hvaða áhrif það hefur á fjölskyldu þeirra og vini. Þá er Kennedy að hleypa öðrum nýjum þætti af stokkunum sem kallast Starlet, veruleikaþáttur um vongóð- ar leikkonur sem vilja slá í gegn, svipaður að byggingu og America’s Next Top Model. „Já, það er búið að vera svolítið mikið á seyði að undanförnu,“ við- urkennir Kennedy loksins þegar hann er búinn að telja þetta allt sam- an upp. Sú list sem hann mun bera á borð fyrir Íslendinga hinn 30., uppistand- ið, stendur honum nærri því það hef- ur hann stundað frá því hann hóf störf í skemmtanaiðnaðinum. „Íslendingar eiga örugglega eftir að kannast við einhverjar þær per- sónur sem koma fram í uppistand- inu,“ segir hann að lokum. „Þetta er það sem ég byrjaði í og mér finnst mjög gaman að geta sinnt þessu enn þann dag í dag.“ Um upphitun á sýningu Kennedys hér á landi sér Grindergirl, skemmtikraftur sem vakið hefur at- hygli í þáttum Davids Lettermans að undanförnu, en sýning hennar þykir bæði mögnuð og sérstæð þar sem m.a. glerbrot, risasnákar og fræsivélar koma við sögu. Uppistand | Jamie Kennedy skemmtir í Broadway 30. desember Framsækinn hrekkjalómur Jamie Kennedy hefur siglt á milli skers og báru sem skemmtikraftur. Jamie Kennedy er af mörgum talinn líkleg- asti arftaki Jims Carr- eys í grínfræðunum. Arnar Eggert Thor- oddsen ræddi við þennan hæfileikaríka æringja vegna vænt- anlegrar heimsóknar hans til landsins. Miða á sýningu Jamies Kennedys er hægt að nálgast á vefsíðu Event, í verslunum Skífunnar eða í síma 575-1522. www.event.is arnart@mbl.is ÞAÐ fer alveg einstaklega vel á því að sama ár og Duran gömlu Duran komu allir saman og ollu manni sár- um vonbrigðum með fyrstu plötu sinni í öll þessi ár að til skjalanna sé komin sveit sem hæglega má líta á sem réttmætan arftaka hinnar fornfrægu eitís- sveitar. The Killers er samt ekki þannig séð að búa til neina eitíseft- irhermutónlist, eins og svo margir aðrir. Nei, heldur má líta á þá sem afkomendur Duran í beinan karllegg af þeirri einföldu ástæðu að langt er síðan maður hefur heyrt eins skemmtilegt popp, alveg ekta popp, þar sem ríkjum ráða melódía og kynþokki og nóg af hvoru tveggja. Margir ættu að þekkja „Mr. Brightside“ og „Somebody Told Me“ enda tvö af bestu popplögum ársins. En ólíkt svo mörgum poppsveitum einmitt á 9. áratug síðustu aldar þegar yfirborðsmennskan var alls- ráðandi, þá er nóg af fleiri slíkum lögum á frábærum frumburði þess- arar efnilegu Las Vegas-sveitar. Platan er hreint uppfull af glæsilegu tískupoppi, sem allt í senn minnir á Duran, Pulp og Strokes. Poppplata ársins, og hananú! TÓNLIST Erlendar plötur The Killers – Hot Fuss  Skarphéðinn Guðmundsson Poppplata ársins smáauglýsingar mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.