Morgunblaðið - 13.01.2005, Page 8
8 FIMMTUDAGUR 13. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Íslensk hjálparsamtökhafa, líkt og systur-samtök þeirra erlend-
is, brugðist hratt við hjálp-
arbeiðninni um aðstoð til
handa þeim mikla fjölda
sem varð illa úti í hamför-
unum í Suðaustur-Asíu á
annan í jólum. Þegar hafa
safnast um 250 milljónir
kr. hérlendis til hjálpar-
starfsins úti og fyrr í vik-
unni fór Neyðarhjálp úr
norðri, ein stærsta lands-
söfnun til handa hjálpar-
starfi erlendis, af stað.
Verður söfnunarfénu var-
ið til neyðaraðstoðar og
uppbyggingar á næstu árum á
vegum Barnaheilla – Save the
Children, Hjálparstarfs kirkjunn-
ar, Rauða kross Íslands, SOS
barnaþorpa og UNICEF – Barna-
hjálpar Sameinuðu þjóðanna.
Að sögn Konráðs Kristjánsson-
ar, hjá Rauða krossi Íslands, eru
fimm sendifulltrúar samtakanna
að störfum á flóðasvæðunum um
þessar mundir. „Þrír sendifulltrú-
ar fóru á fyrstu dögunum, þ.e.
Hlér Guðjónsson, sem starfar að
almennum hjálparstörfum á Sri
Lanka, Guðbjörg Sveinsdóttir,
geðhjúkrunarfræðingur sem
kannar þörfina fyrir áfallahjálp í
Indónesíu, og Ómar Valdimarsson
sem er við störf í Jakarta við upp-
byggingu indónesíska Rauða
krossins. Í byrjun árs bættust síð-
an við tveir fulltrúar, þ.e. Birna
Halldórsdóttir og Robin Bovey
sem fóru til Aceh-héraðsins í
Indónesíu þar sem þau vinna að
dreifingu hjálpargagna. Auk þess
er Þórir Guðmundsson, upplýs-
ingafulltrúi Rauða krossins,
staddur í Colombo á Sri Lanka,
ásamt fréttamanni frá Stöð 2 þar
sem þeir fylgjast með dreifingu á
hjálpargögnum sem Atlanta-flaug
með frá Dubai.“
Konráð segir mismunandi eftir
svæðum hversu langt á veg neyð-
araðstoðin er komin. „Á sumum
stöðum er komið töluvert af gögn-
um á staðinn, en í öðrum héruðum,
sérstaklega í Aceh-héraði, hefur
gengið seinlegar að koma hjálpar-
gögnum á staðinn sökum þess hve
samgöngukerfið er lélegt.“ Spurð-
ur hverju þurfi helst að huga að í
uppbyggingu til framtíðar á ham-
farasvæðunum segir Konráð mik-
ilvægt að reyna að koma lífi fólks á
stöðunum í svipað horf áður en
hamfarirnar gengu yfir. „Sem
dæmi má nefna að útvega þarf
fiskimönnum nýja báta og net
þannig að fólkið geti aflað sér lífs-
viðurværis. Í raun hafa allir inn-
viðir þessara samfélaga hrunið og
því þarf að fara að huga að upp-
byggingu þeirra,“ segir Konráð,
en Alþjóða Rauði krossinn er að
vinna að áætlun til tíu ára um
langtímaaðstoð á svæðinu.
Umfangið gríðarlegt
Aðspurður segir Konráð áhrifa-
ríkast að senda fjármagn á neyð-
arsvæðin. „En hins vegar þarf líka
að flytja ákveðinn búnað á þá staði
þar sem neyðaraðstoðin hefur
ekki borist, eins og Atlantsflug
tók að sér að gera. Það þýðir ekki
endilega að flytja þurfi búnaðinn
frá Íslandi. Bæði fæst miklu meira
fyrir peninginn úti auk þess sem
með því að versla úti þá stuðlum
við að því að hjól atvinnulífsins þar
fari að snúa,“ segir Konráð.
Að sögn Önnu M.Þ. Ólafsdótt-
ur, fræðslu- og upplýsingafulltrúa
Hjálparstarfs kirkjunnar, er starf
samtakanna á hamfarasvæðunum
fólgið í tvíhliða samstarfi við tvenn
samtök á Indlandi, bæði í Andhra
Pradesh og Tamil Nadu, sem eru
þau tvö héruð sem verst urðu úti í
hamförunum á Indlandi, auk þess
sem Hjálparstarfið er aðili að Al-
þjóðaneyðarhjálp kirkna (ACT).
Aðspurð segir Anna hjálparstarf-
ið þegar búið að senda út þrjár
milljónir til samtakanna á Ind-
landi, en þau hafa verið að veita
neyðaraðstoð niðri við sjávar-
ströndina þar sem sópuðust burt
þorp stéttlausra Indverja og fá-
tækra. „Í gegnum ACT erum við
að störfum í öllum þeim löndum
sem urðu fyrir hamförunum, en
ACT er með kirkjur og kirkju-
tengdar stofnanir á öllum þessum
stöðum sem hafa brugðist hratt
við aðstæðum og farið að veita
hjálp í sínu nánasta umhverfi.“
Anna bendir á að umfang hjálp-
arstarfsins er gríðarmikið og
margir ACT-aðilar sem koma að
starfinu. „Þeir gæta þess að hafa
góða samvinnu bæði við önnur
samtök og við stjórnvöld á hverj-
um stað til þess að koma í veg fyrir
tvíverknað. Oft sameinast hjálp-
arsamtök í starfi sínu, enda mikill
sveigjanleiki hjá frjálsu félaga-
samtökunum til að beina aðstoð-
inni þangað sem hennar er mest
þörf.“ Að sögn Önnu gerir ACT
ráð fyrir að fyrsti fasinn í hjálp-
arstarfinu nái yfir þrjá mánuði þar
sem verið er að vinna neyðarstarf
og halda fólki á lífi sem lifði ham-
farirnar af. „Smám saman fer að-
stoðin síðan að þróast yfir í lang-
tímaaðstoð. Það þarf að útvega
fólki báta og net til þess að það
geti stundað einhverja atvinnu og
haft tekjur. Sem dæmi má nefna
að kirkjan mun hjálpa til við að
setja af stað samvinnufélög um
fiskveiðar, þar sem fólki er útveg-
að bát, net og búnað sem margir
geta sameinast um, en hvert slíkt
félag kostar um 165 þúsund í upp-
setningu.“
Fréttaskýring | Hjálparstarf Íslendinga
í Suðaustur-Asíu
Hratt brugðist
við neyðinni
Fimm sendifulltrúar Rauða kross
Íslands að störfum á hamfarasvæðum
Flytja þarf allmikið af búnaði á flóðasvæðin.
Góð samvinna hjálpar-
samtaka lykilatriði
Hjálparstarfið sem unnið er í
Suðaustur-Asíu í kjölfar hamfar-
anna í Indlandshafi á annan í jól-
um er gríðarlega umfangsmikið.
Á þeim svæðum sem verst urðu
úti hafa í raun allir innviðir sam-
félaganna hrunið. Fyrsti hluti
hjálparstarfsins snýr að því að
vinna neyðarstarf, en ljóst þykir
að smám saman mun hjálpin
þróast yfir í langtímaaðstoð og
sem dæmi má nefna að Alþjóða
Rauði krossinn vinnur að áætlun
til tíu ára um langtímaaðstoð á
svæðinu.
silja@mbl.is
Emile Henry leirvörur
25% afsláttur
10-20%
15-40%
Tilboðsverð!
Tilboðsverð!
Gerðu góð kaup!
AEG Kaffivél KF 1000 3.990.- 2.690.-
AEG Kaffivél CC 101 5.990.- 4.490.-
AEG Brauðrist AT 260 6.290.- 4.990.-
AEG Brauðrist AT 230 4.290.- 3.490.-
AEG Straujárn DB 4050 3.890.- 2.990.-
AEG Handþeytari Hm 310 3.490.- 2.690.-
AEG Blandari M 2500 5.990.- 4.490.-
AEG Blandari Gler M 2600 8.990.- 6.790.-
AEG Matvinnsluvél Km 850 13.900.- 9.990.-
AEG Hárblásari Figaro 2.790.- 1.990.-
AEG Expresso EA 100 13.579.- 9.990.-
AEG Ryksuga Megapower 9.990.-
Dagana 6.–20
. janúar
A
u
g
lý
si
n
g
as
to
fa
G
u
ð
rú
n
ar
Ö
n
n
u
Heimabíó DCS 222
Kr. 49.900.-
Vaxtalausar greiðslur í allt að 12 mánuði
29”Sjónvarp
50 Hz Kr. 49.900.-
100 Hz Kr. 69.900.-
Þvottavél Lavamat 74639
Með íslensku stjórnborði
1400 snúningar - 24 þvottakerfi
TILBOÐ: Kr. 74.900.-
Þrig
gja
ára
áby
rgð
er á
öllu
m
AEG
þvo
ttav
élu
m
“Gríðarlega góð kaup!”
Ryksuga 1800 W
Kr. 9.990.-
Matvinnsluvél KM 850
(Kr. 13.900.-)
Kr. 9.990.-
Pottar og pönnur
25% afsláttur
Verkfærin fást
aðeins í Lágmúla
ÁSKRIFTARDEILD netfang: askrift@mbl.is, sími 569 1122