Morgunblaðið - 13.01.2005, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 13.01.2005, Blaðsíða 36
36 FIMMTUDAGUR 13. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR Það er skrítið að hugsa til þess að eiga ekki eftir að hitta þig oftar elsku Lauga og grunaði mig ekki að það væri í síðasta sinn sem ég kveddi þig, þann þriðja í jólum, síðastliðinn, þú varst eins og ætíð skemmtileg og jákvæð, sýndir mér jólagjafirnar og hvað Eiríkur hefði verið duglegur að skreyta húsið. Allt frá því að ég kom fyrst til Reykjavíkur þá hef ég notið þess að fá að vera eins og heima hjá mér á heimili ykkar Eiríks frænda míns á Borgarholtsbrautinni og fyr- ir það get ég víst seint þakkað. Minningarnar eru óteljandi, við Oddný heitin dóttir ykkar að búa okkur til að fara út á lífið, og þú að leggja okkur lífsreglurnar og ekki veitti nú af, eins þegar mörg af okk- ur frændsystkinunum sem komu bæði frá Breiðdalsvík og Höfn hitt- umst á Borgarholtsbrautinni þá var nú oft glatt á hjalla, mikið hlegið og grínast og það sem mér finnst merkilegt þegar ég lít til baka er hvað þið Eiríkur hafið verið ótrúlega þolinmóð að hafa allt þetta unga frændfólk ykkar ásamt ykkar eigin börnum í kringum ykkur á öllum mögulegum tímum, við höfum nú stundum hlegið á síðari árum yfir því hvað nágrannarnir hafi eiginlega hugsað um allt þetta lið sem gekk þarna út og inn. Það gerði það hins vegar að verkum að við frændsystk- inin höfum haldið sambandi hvert við annað síðan. Þau voru líka ófá skiptin sem þú hjálpaðir til við pöss- un þegar voru veikindi eða eitthvað annað kom upp á og var það alltaf viss tilhlökkun að fara til Laugu í pössun því þar var spilað, leikið og drukkið kakó með kökum og nammi. Ég hef oft hugsað um hvað það væri góður eiginleiki að vera svona já- kvæð og ánægð með lífið eins og þú varst, sama á hverju gekk, þú sást GUÐLAUG KRISTJÁNSDÓTTIR ✝ Guðlaug Krist-jánsdóttir fædd- ist á Núpi á Beru- fjarðarströnd 30. júní 1917. Hún lést á Landspítala – há- skólasjúkrahúsi í Fossvogi að morgni 30. desember síðast- liðins og fór útför hennar fram frá Kópavogskirkju 7. janúar. alltaf björtu hliðarnar og oftast nær þær skoplegu líka. Það eru líka skemmtilegar minningar sem tengj- ast því hvað þú hafðir gaman af fallegum föt- um, þar höfðum við sameiginlegt áhugamál og nokkrum sinnum fórum við saman að kíkja í búðir og komum nú ekki alltaf tómhent- ar heim. Þó svo að það hafi verið allnokkur aldursmunur á okkur þá fann ég aldrei fyrir honum, þvert á móti fannst mér alltaf eins og ég væri að tala við vinkonu á svipuðum aldri þegar við ræddum saman. Ég er viss um að það verður tekið vel á móti þér alveg eins og þú tókst vel á móti öllum sem komu til þín. Elsku Eiríkur, Kristján, Gunnar, Eiríkur Steinarsson og fjölskyldur, ég samhryggist ykkur innilega. Stefanía Helgadóttir. Þá er hún Guðlaug blessunin fallin frá. Þegar ég hugsa til baka þá eig- um við ekkert nema góðar minning- ar upp um Laugu. Við bjuggum við hliðina á Laugu og Eiríki á Borg- arholtsbrautinni og er ekki hægt að hugsa sér yndislegri nágranna. Við systkinin vorum húsgangar hjá þeim og vorum alltaf velkomin hvenær sem okkur datt í hug að líta við. Lékum okkur við barnabörnin þeirra, spiluðum við Grétu gömlu eða bara kíktum í flatkökur og gott- erí til Laugu. Þau voru nokkurs kon- ar afi og amma okkar krakkanna. Lauga var líka dugleg að kíkja yfir til okkar, skutla í okkur volgum flat- kökum þegar hún var að koma heim úr vinnunni í Ömmubakstri eða setj- ast í kaffi með mömmu. Með árun- um minnkaði sambandið aðeins, en alltaf vorum við velkomin í heim- sókn og þrátt fyrir að veikindi hafi aðeins litað síðustu æviár Laugu þá tók hún alltaf vel á móti okkur. Hug- ur okkar er hjá Eiríki og fjölskyld- unni en við þökkum fyrir að hafa fengið tækifæri til að kynnast þess- ari yndislegu konu. Fjölskyldan Borgarholts- braut 38. Það eru rúmlega 30 ár frá því ég kynntist Guðlaugu Kristjánsdóttur eða Laugu eins og hún var alltaf kölluð. Því er þannig háttað að Bergþóra eldri systir mín giftist Kristjáni elsta barni Laugu og Ei- ríks á Borgarholtsbraut 34 í Kópa- vogi. Það var ekki bara þannig að Bergþóra eignaðist þarna tengda- fjölskyldu, heldur eignaðist ég þá bestu vinkonu sem ég hef átt og fjöl- skylda hennar öll hefur sýnt mér og mínum einstaka hlýju alla tíð. Þau rúmlega 40 ár sem voru á milli okk- ar vinkvennanna skiptu aldrei neinu máli. Það var ekki neitt kynslóðabil hjá okkur. Lauga var alltaf boðin og búin að hjálpa og veita aðstoð með gistingu og ýmsa hagkvæma hluti sem við landsbyggðarfólkið þurftum á að halda þegar komið var til höfuðborg- arinnar. Það skipti ekki máli hvort einhvern vantaði gistingu í lengri eða skemmri tíma eða einhvern vantaði húsnæði eða meðmæli vegna skólavistar, svo eitthvað sé nefnt. Hún var alltaf tilbúin að veita hjálp. Mér finnst það lýsa Laugu best þeg- ar hún tók Grétu systur sína, aldr- aða með „demens“ inn á heimilið. Lauga umgekkst Grétu af einstakri hlýju og eins og færustu sérfræð- ingar í málefnum aldraðra. Gréta fékk þarna öruggt umhverfi út frá sínum sjúkdómi og hæfileg verkefni til að sinna dags daglega og var þetta eins og best verður á kosið fyr- ir aldraða konu í hennar stöðu. Gréta tók á móti gestum og lagaði kaffi og það var ekki lítið hlutverk á Borgarholtsbraut 34, þar sem var stöðugur gestagangur. Þarna kom vel fram hjá Laugu sú mikla virðing sem hún bar fyrir fólki og þeim sem urðu veikir og gátu ekki séð um sig sjálfir. Allt frá því ég kynntist Laugu fyrst var hún mjög upptekin af að hugsa vel um eigin heilsu og þar átt- um við sameiginlegt áhugamál. Við fórum því margar ferðirnar í Sund- laug Kópavogs og Lauga var mjög stolt af þeim breytingum sem hafa orðið á sundlauginni á síðustu árum. Annað áhugamál sem við höfðum sameiginlegt var myndlist og hvers konar hannyrðavinna. Lauga var mjög stolt þegar við áttum saman dagstund í byrjun desember og fór- um á jólabasar Sunnuhlíðar og hún gat sýnt mér allt það sem hún og aðrir aldraðir í Kópavogi höfðu gert. Lauga var alltaf svo jákvæð. Þess vegna var það mér mikil ánægja þegar hún og Eiríkur, Kristján og Bergþóra komu í heimsókn og voru við fermingu sonar míns í Århus í Danmörku vorið 2003. Lauga naut ferðarinnar eins og hver annar unglingur, hafði gaman af öllu og sérstaklega að fá að litast um í stórverslunum. En hún lét samt ekki hjá líða að fara að heim- sækja gamla vinkonu sína Svövu Blöndal á elliheimili í Gillileje. Það var stórkostleg upplifun að vera með Laugu í þessari heimsókn og sjá gleðina í augum Svövu þegar Lauga talaði. Svava Blöndal lést stuttu síð- ar. Í síðasta skipti sem ég hitti Laugu spurði hún mig út í ferm- inguna hjá Páli, næstyngsta syni mínum. Lauga var harðákveðin í að vera við ferminguna í Landakirkju í Vestmannaeyjum hinn 16. apríl nk. Það veit enginn hvenær kallið kem- ur og aldrei erum við undirbúin. Ég vil með þessum orðum votta Eiríki Þorgrímssyni og allri hans fjöl- skyldu mínar dýpstu samúðarkveðj- ur við fráfall þessarar góðu konu. Guðný Anna Annasdóttir og fjölskylda. Flestar fjölskyldur eiga uppá- halds frænkur, Lauga var okkar uppáhalds frænka. Þó var hún svo sem ekki frænka okkar í þessari venjulegu merkingu, heldur gift Ei- ríki móðurbróður mínum. En Lauga var límið í okkar fjölskyldu, þangað komu allir, skyldir sem óskyldir, og öllum var tekið sem sjaldséðum höfðingjum. Á Borgarholtsbraut- inni, sem oft hefur verið eins og um- ferðarmiðstöð stórfjölskyldunnar, fengum við fréttir hvert af öðru og þangað komu allir, nutu þess að setj- ast niður í erli dagsins og láta sér líða vel. Þau Eiríkur voru bæði samtaka um að skapa þetta notalega and- rúmsloft og Laugu fannst við allt frábært fólk. Það var sannarlega ekki verið að velta því upp sem mið- ur fór heldur spjallað um það sem gott var og vel var gert. Lauga var glæsileg kona sem hafði alla tíð gaman af því að halda sér vel til og á sínum yngri árum hafa þau Eiríkur sannarlega verið glæsilegt par. Hún var einnig mjög félagslynd sem líka skýrir þann mikla gestagang sem ávallt var hjá þeim og ef einhver dagur leið svo að einhver liti ekki inn, var hún vís til að hringja í ættingjana og segja þeim endilega að líta inn, hún hefði bara ekki séð nokkurn mann allan daginn. Hún var líka mikill höfðingi í sér og þegar krakkarnir mínir voru yngri höfðu þau mestar áhyggjur af því að Lauga yrði gjaldþrota því hún vildi alltaf vera að gefa þeim eitt- hvað. Það var líka gaman að gleðja Laugu og það þurfti ekki mikið til, en henni fannst það allt óveðskuldað af sinni hálfu og aðal gallinn var að hún vildi endurgjalda það margfalt. Lauga var alltaf kát og hress og sannarlega ekki fyrir að barma sér að óþörfu þó spítalavistir nú seinni árin hafi verið ófáar, enda búin að vera heilsutæp í mörg ár. Fjölskyld- an trúði því að hún lifði á lífsgleð- inni. Það var þó ekki svo að hún þekkti ekki mótlæti og sorg því hún missti einkadóttur sína í blóma lífs- ins sem auðvitað hefur verið óbæri- leg sorg fyrir þau Eirík, en þau studdu hvort annað og tókst að vinna sig út úr því. Lauga var farin að stunda dagvist fyrir aldraða í Kópavogi, en sá mest eftir að hafa ekki byrjað fyrr, því það fannst henni algjört himnaríki eins og hún sagði. Fólkið og við- mótið var svo gott og allt svo skemmtilegt. Sé himnaríki líka til á öðrum til- verusviðum er alveg öruggt að þar er hún núna og nýtur tilverunnar sem fyrr. Hún vissi að kallið gæti komið hvenær sem er og var sátt við allt og alla. Við þökkum þér sam- fylgdina Lauga mín og munum minnst þín með gleði í hjarta. Vilborg Ámundadóttir og fjölskylda. Látin er eftir alllöng veikindi hjartkær vinkona mín, Guðlaug Kristjánsdóttir. Kynni okkar Laugu hófust árið 1944 er hún kom austur á Breiðdalsvík ásamt Guðnýju systur sinni og þær gistu hjá móður minni í Hamri. Síðar það ár hagaði svo til að ég var að vinna í Reykjavík, en átti frí yfir jólin. Guðný og Lauga máttu ekki til þess hugsa að ég yrði ein yfir jóladagana og komu þær því og sóttu mig, og kröfðust þess að ég væri um jólin hjá þeim, ásamt fleira fólki á Þórsgötunni. Hlógum við Lauga oft að því síðar á ævinni, að eina svefnplássið sem fannst fyrir mig var uppi í hjónarúmi hjá Guð- nýju og Vilhjálmi eiginmanni henn- ar, og ekki var tekið annað í mál en að ég þægi það um hátíðarnar. Slík var gestrisnin. Mikill samgangur var alla tíð á milli okkar Laugu og ekki minnkaði hann eftir að hún giftist eftirlifandi eiginmanni sínum, heiðursmannin- um Eiríki Þorgrímssyni frá Selnesi í Breiðdal. Heimili þeirra Laugu og Eiríks stóð mér og mínum alltaf opið og ekki var það til sem hún ekki vildi fyrir mig gera. Enginn greiði var of stór, hún þekkti ekki orðið fyrirhöfn og alltaf var allt svo innilega sjálf- sagt. Lauga reyndist mér því sem hin besta systir, ef ekki hreinlega móðir, þegar á þurfti að halda. Börn mín minnast einnig heimilis þeirra Laugu og Eiríks á Borgar- holtsbrautinni með mikilli hlýju. Þau segja það reyndar oftast hafa verið eins konar umferðarmiðstöð; einatt virtist einhver vera annaðhvort að koma eða fara, hvort sem um var að ræða sveitunga úr Breiðdalnum í kaupstaðarferð eða kunningja barna þeirra hjóna. Alltaf var hjartarúm og húspláss fyrir alla hjá þeim Laugu, og borð svignuðu undan heimalöguðum kræsingum húsmóð- urinnar. Áberandi var líka hlýjan og ástríkið á milli þeirra hjóna alla tíð. Lauga talaði síðast við mig fyrir nokkrum dögum og rifjuðum við þá upp gamla tíma. Við leiðarlok vil ég þakka af heilu hjarta allar góðu stundirnar, elskusemina og vinátt- una við mig og fjölskyldu mína í gegnum árin. Stefanía Magnúsdóttir frá Breiðdalsvík. Í dag kveðjum við Guðlaugu Kristjánsdóttur sem fæddist á Núpi á Berufjarðarströnd. Kynni okkar hófust fyrir um 30 árum þegar Bergþóra systir mín giftist Kristjáni Eiríkssyni, eldri syni Laugu, eins og hún var ætíð kölluð. Hún bjó ásamt eiginmanni sínum Eiríki Þorgríms- syni á Borgarholtsbraut 34 í Kópa- vogi ásamt börnum sínum þremur, Kristjáni, Oddnýju og Gunnari Má, í húsi sem þau byggðu fyrir um 50 ár- um. Þessi kynni urðu löng og dýr- mæt og færðu mér margar ljúfar og eftirminnilegar stundir. Lauga var afar merkileg og skemmtileg kona, sem ávallt sá það jákvæða og fallega í samferðafólki sínu. Hún bjó yfir mikilvægum dyggðum sem skipta okkur miklu máli í hinu daglega lífi. Það viðhorf færði henni vinsældir og gestagangur var mikill á heimili þeirra hjóna. Hún var falleg, glaðleg og frískleg kona sem hafði góða nærveru, nærveru sem veitti okkur gleði til að fást við viðfangsefni líð- andi stundar. Hún var félagslynd og hafði gaman af fólki enda oft fjör- legar og skemmtilegar umræður við eldhúsborðið á Borgarholtsbraut- inni. Hún var einstaklega gestrisin manneskja sem elskaði að gera fólki greiða og naut ég góðs af því. Ég verð ævinlega þakklát Laugu fyrir það sem hún gerði fyrir mig. Hún tók að sér að passa dóttur mína í nokkra daga þannig að ég náði að klára námið mitt á tilsettum tíma. Það má með sanni segja að þennan eiginleika hafi Kristján mágur minn og afkomendur hennar hlotið í vöggugjöf svo eftir er tekið. Hún var kona sem tók mótbárum í lífinu af æðruleysi og hélt áfram ótrauð. Líf- ið tók sinn skammt frá þeim hjón- um. Þau misstu einkadótturina Odd- nýju Eiríksdóttur úr hvítblæði aðeins 26 ára gamla, frá ungum syni Eiríki Steinarssyni og eiginmanni Steinari Viggóssyni sem síðar lést af slysförum árið 2001. Hún bar sorgir sínar ekki á torg, enda ekki um áfallahjálp að ræða á þeim tíma. Hún studdi litla Eirík og Steinar eft- ir fremsta megni, enda stolt af þeim feðgum. Það var þungt högg fyrir Laugu og Eirík eiginmann hennar að sjá Kristján son þeirra fá heila- blæðingu fyrr á þessu ári. Það er hverju foreldi þungbært að takast á við veikindi barna sinni og lifa með því. Hún reyndi eftir fremsta megni að styðja og styrkja Kristján, Berg- þóru og fjölskyldu þeirra til að tak- ast á við afleiðingar þess. Í dag kveðjum við góða og kjarkmikla konu sem mun halda áfram að lifa í minningu okkar um ókomna tíð. Elsku Lauga, ég þakka þér fyrir ánægjulegar stundir á heimili okkar beggja. Það var gaman að hitta þig í Þorláksmessuskötunni hjá Kristjáni og Bergþóru núna fyrir jólin, þar kvaddir þú okkur hress og glöð að vanda. Í lokin vil ég votta Eiríki Þor- grímssyni, Kristjáni, Bergþóru, Gunnari Má, Guðlaugu Benediks- dóttur, barnabörnum og barna- barnabörnum mína dýpstu samúð. Dagný Annasdóttir. Látin er heiðurskonan Guðlaug Kristjánsdóttir. Laugu Kristjáns, eins og hún var oftast nefnd, kynntist ég ekkert að ráði fyrr en ég gerðist nemandi í Kennaraskólanum haustið 1950. Þá bjuggu þau hjónin, hún og Eiríkur frændi minn, í risíbúð á Bergþóru- götu. Með hverri nýrri heimsókn þarna í risíbúðina, uppgötvaði ég alltaf betur og betur, hvað svona tímatöf gaf mikið í aðra hönd. Það var ekki aðeins það að sísoltinn strákurinn gæti gengið út frá því vísu að fá þarna kviðfylli af súkku- laði og sætabrauði eða einhverju kannski enn staðbetra, heldur naut hann einnig skemmtilegra sam- skipta við þessi ágætu hjón, sem eft- ir á að hyggja, entust margfalt leng- Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, HULDU VALDIMARSDÓTTUR, Húsavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks á öldrunardeild Heilbrigðisstofnunar Þingeyinga fyrir frábæra umönnun. Valdimar Ingólfsson, Erla Sigurjónsdóttir, Jón Ingólfsson, Lára Benediktsdóttir, Dagný Ingólfsdóttir, Tryggvi E. Geirsson, Guðrún Svavarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Útför frænku okkar, SIGRÍÐAR BERGSTEINSDÓTTUR, áður til heimilis á Hringbraut 28, Reykjavík, fer fram frá Dómkirkjunni föstudaginn 14. janúar kl. 13:00. Blóm vinsamlegast afþökkuð, en þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna. Fyrir hönd fjölskyldunnar og annarra aðstandenda, Steinunn Georgsdóttir og fjölskylda, Edda R. Níels og fjölskylda.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.