Morgunblaðið - 13.01.2005, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. JANÚAR 2005 25
UMRÆÐAN
INNLEGG Andrésar Péturs-
sonar, formanns Evrópusamtak-
anna, í umræðuna um Evrópska
efnahagssvæðið (EES) er að ausa
skömmum yfir mig og mína per-
sónu. Ég er sagður hafa afhjúpað
„ótrúlega yfirgripsmikið þekking-
arleysi“. Ummæli mín eru sögð
„jaðra við fávisku“. Ég er jafnvel
sakaður um „hroka og þjóðern-
isrembing“.
Hvert er tilefnið? Jú, tilefnið er
það að í ýtarlegu viðtali við Við-
skiptablaðið (7. janúar sl.), nefndi ég
að nú væru aðstæður það breyttar.
Verið gæti að hag okkar Íslendinga
væri betur borgið utan EES en inn-
an og stakk upp á því að vandleg út-
tekt yrði gerð á þeim kosti ekki síð-
ur en þeim að ganga í Evrópu-
sambandið (ESB). Með öðrum
orðum; það eitt að gera tillögu um
að við Íslendingar skoðum okkar
helstu valkosti í stöðunni skipulega
og fordómalaust er Andrési Péturs-
syni tilefni til að hella yfir mig
óbótaskömmum.
Hvað er hér um að vera? Hvað er
svona ógnvænlegt við svona úttekt?
Er það ekki einmitt í samræmi við
skynsemi og vísindalega nálgun,
sem Andrés lætur eins og sér sé
annt um en ásakar mig um að van-
virða, að skoða alla kosti stöðunnar?
Er Andrés Pétursson formaður
Evrópusamtakanna á móti því að
þjóðin afli sér upplýsinga um aðra
kosti en þá að hrekjast úr EES í
ESB? Ég vona svo sannarlega að
svo sé ekki.
Það er ekki mín skoðun, þótt
Andrés leyfi sér að fullyrða annað,
að EES sé eða hafi verið gagnslaust
fyrir Íslendinga. Þvert á móti tel ég
að EES-samningurinn hafi veiga-
mikla kosti. Aðild þjóðarinnar að
honum í upphafi hafi sennilega verið
skynsamleg og hann hafi á margan
hátt flýtt fyrir mjög gagnlegum um-
bótum á íslenska hagkerfinu. Allt
þetta kom fram í umræddu viðtali í
Viðskiptablaðinu, en virðist í hama-
ganginum hafa farið fram hjá Andr-
ési.
EES-samningurinn hefur hins
vegar einnig umtalsverða ókosti,
sem oft eru til umræðu hér á landi,
og allir nema e.t.v. Andrés þekkja.
Er við gerðumst aðilar að EES fyrir
meira en áratug var það mat alþing-
is að kostirnir væru veigameiri en
gallarnir. Aðstæður hafa á hinn bóg-
inn breyst. Þær hafa breyst með
þeim hætti að kostirnir hafa minnk-
að og ókostirnir virðast orðnir til-
tölulega veigameiri en áður var.
Fyrir þessu eru ýmsar ástæður:
Í fyrsta lagi hafa tollar og aðrar
viðskiptahindranir almennt farið
lækkandi í heiminum. Sérstök al-
þjóðleg stofnun, Alþjóðavið-
skiptastofnunin (WTO), hefur tekið
til starfa með það að markmiði að
draga úr viðskiptahindrunum milli
landa og orðið vel ágengt. Þessari
stofnun, sem bæði Ísland og ESB
eru aðilar að, ber jafnframt að gæta
þess að viðskiptafrelsi sé ekki skert
frá því sem nú er. Hvað tolla og við-
skiptahindranir snertir, er því nú
mun minni ástæða en áður að vera
aðilar að EES.
Í öðru lagi höfum við þegar fram-
kvæmt margvíslegar og afar mikil-
vægar umbætur á okkar efnahags-
kerfi, ekki síst hvað snertir fjár-
magnsmarkaði, einkavæðingu og
samkeppni. Þessar breytingar hefð-
um við í sjálfu sér getað gert án
EES-samningsins, en þær fylgdu
vissulega með í þeim samningi og í
kjölfarið. Þessar breytingar munu
ugglaust ekki ganga til baka, hvort
sem við verðum innan eða utan EES
í framtíðinni.
Í þriðja lagi hafa hinar fjölmörgu
reglugerðir, takmarkanir og tilskip-
anir, sem frá Evrópusambandinu
berast og við verðum að innleiða á
Íslandi, reynst miklu umfangsmeiri,
meira hamlandi og kostnaðarsamari
en ég held að nokkurn hafi órað fyr-
ir er við gengum í EES. Um þetta
eru fjölmörg dæmi, sem ekki er
unnt að rekja í stuttri
blaðagrein, og ný
koma upp nánast dag-
lega. Kjarni málsins
er sá, að jafnvel þótt
þessar reglugerðir og
tilskipanir kunni að
henta innan vébanda
ESB, sem þó er fyllsta
ástæða til að efast um,
er algerlega ljóst að
margar þeirra eiga
ekki við hér á landi og
eru beinlínis skaðleg-
ar. Kostnaðurinn kann
að vera mjög mikill þegar að er gáð.
Í fjórða lagi má ekki gleyma því
að við greiðum nú þegar talsvert
háa upphæð fyrir aðild okkar að
EES og miklu hærri en við reikn-
uðum með þegar við gegnum í EES
(Þróunarsjóður ESB). Þar að auki
höfum við talsverðan og
vaxandi kostnað af því
að reka samstarfið. Það
sem við fáum til baka í
svokölluðu vísinda-
samstarfi, sem Andrési
verður tíðrætt um, er
hverfandi miðað við þá
upphæð sem við greið-
um.
Af þessum ástæðum
og raunar fleirum virð-
ist fyllilega tímabært að
við skoðum það í fyllstu
alvöru, hver hreinn
hagur þjóðarinnar sé nú af EES-
samstarfinu. Þessar upplýsingar
þurfum við að hafa til að taka skyn-
samlegar ákvarðanir í framtíðinni.
Andrés Pétursson og
Evrópska efnahagssvæðið
Ragnar Árnason svarar
Andrési Péturssyni
Ragnar Árnason
’Hvað er svona ógn-vænlegt við að kanna
kosti og galla EES?‘
Höfundur í prófessor í hagfræði
við Háskóla Íslands.
Aguamarina ****
Vistamar ****
Sunset Beach Club ****
fiegar flú fer› til sólarlanda viljum vi› bjó›a flér fla› besta og Costa del Sol er
enginn venjulegur sumarleyfissta›ur. fiar er hreinlega allt sem fer›ama›ur getur
hugsa› sér: Dásamlegt ver›ur, hreinasta strönd Evrópu, frábærir veitingasta›ir,
spennandi næturlíf, stórkostleg náttúrufegur›, saga, menning og i›andi mannlíf.
Vikulegt leiguflug í allt sumar
Costa del Sol
Fyrsta flokks gistista›ir – bestu íbúðahótel á Costa del Sol:
Camino Real Glæsilegar íbúðir með 1 eða 2 svefnherbergjum við ströndina í Torremolinos.
Frábær valkostur fyrir fjölskyldur.
Aguamarina Eitt vinsælasta íbúðahótelið á Costa del Sol. Frábær staðsetning
í grennd við gamla bæinn í Torremolinos.
Vistamar Nýlegt og sérlega smekklegt íbúðahótel á Benalmadena-ströndinni.
Skemmtidagskrá á kvöldin og örstutt í allra aðra afþreyingu.
Sunset Beach Club Líflegt og skemmtilegt íbúðahótel við Benalmadena-ströndina.
Öll aðstaða er fyrsta flokks og umhverfið glæsilegt.
Nánari upplýsingar um gististaðina og verð er að finna á www.urvalutsyn.is
á mann m.v. tvo fullor›na og 2 börn, 2ja til 11 ára,
í íbúð me› 1 svefnherbergi.
49.900 kr.Ver›:
Aguamarina 23. júní í viku
Verðdæmi
á mann m.v. tvo fullor›na í stúdíói.
59.500 kr.Ver›:
Tryggðu þér bestu kjörin og bókaðu strax!
www.urvalutsyn.is
Lágmúla 4: 585 4000 •
Akureyri: 460 0600 • Vestmannaeyjum: 481 1450
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
U
R
V
2
27
03
6
0
1/
20
05
Camino Real ****
Ver› er netver›. Ef bóka› er símlei›is e›a á skrifstofu
grei›ist bókunar- og fljónustugjald sem er 2000 kr. á mann.
* Innifali›: Flug, gisting í 7 nætur, flugvallarskattar og íslensk fararstjórn,
*
*
Vikulegar brottfarir í allt sumar:
Maí: 19. og 26.
Júní: 2., 9., 16., 23., og 30.
Júlí: 7., 14., 21., og 28.
Ágúst: 4., 11., 18., og 25.
September: 1., 8., 15., og 22.
Fyrsta flokks
gististaðir í hjarta
Costa del Sol