Morgunblaðið - 13.01.2005, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. JANÚAR 2005 33
MINNINGAR
og gætir mín. Takk fyrir allt, elsku
afi minn.
Elsku afi.
Góðar minningar skal varðveita.
Allir ættu að eiga sérstaka mann-
eskju sem þeir virða og dá, einhverja
sem þeir læra af, einhverja sem þeir
elska.
Þess vegna ættu allir að eiga afa
eins og þig.
Guð geymi þig, afi minn.
Karen Sif.
Nú hefur það miður gerst
að vond frétt til manns berst.
Kær vinur er horfinn okkur frá
því lífsklukkan hans hætti að slá.
Rita vil ég niður, hvað hann var mér kær,
afi minn góði, sem guð nú fær.
Hann gerði svo mikið, hann gerði svo margt
og því miður get ég ekki nefnt það allt.
Að tala við hann var svo gaman
á þeim stundum sem við eyddum saman.
Hann var svo góður, hann var svo klár
æ, hvað þessi söknuður er sár.
(Rut.)
Elsku afi, mig langaði að segja við
þig nokkur orð: Guð geymi þig, afi
minn.
Elva Dröfn.
Mig langar með nokkrum orðum
að minnast Óla Jóhannesar Ragn-
arssonar sem lést að morgni 6. jan-
úar á gjörgæsludeild Landspítalans í
Fossvogi.
Það var fyrir rétt tæpum 10 árum
að ég kynntist honum Óla er ég fór
að vera með Óla Hjörvari elsta
barnabarni hans, við vorum að koma
suður í helgarferð þegar Óli Hjörvar
vildi endilega kynna mig fyrir afa
sínum og fara þangað í heimsókn. Ég
kveið aðeins fyrir að hitta hann en sá
kvíði var algjörlega að ástæðulausu
því hann tók þétt í hönd mína og
bauð mig velkomna í fjölskylduna.
Ég sá strax að þarna var á ferðinni
kall sem var mjög hress og skemmti-
legur, það kom mér líka á óvart
hversu snöggur og fimur hann var í
hreyfingum, síminn hringdi til að
mynda þegar við vorum hjá honum
og hann spratt á fætur og hljóp af
stað ég vissi ekki hvaðan á mig stóð
veðrið eða hvað var að gerast horfði
á alveg hissa. Seinna meir sá ég að
svona voru hreyfingar hans og svona
lét hann alla tíð, allt sem hann tók
sér fyrir hendur var drifið af í einum
grænum þó svo að hann væri lafmóð-
ur á eftir, ég brosti nú stundum þeg-
ar kallinn stökk af stað ef dyrabjall-
an hringdi og þá var eins gott að vera
ekki fyrir.
Alltaf var gott að koma til Óla og
meðan við bjuggum fyrir norðan
fengum við stundum næturgistingu
hjá honum, haustið 1998 þegar við
fluttum suður varð sambandið meira
á milli okkar, hann bauð okkur oft í
mat og við buðum honum með okkur
í bíltúra niður í bæ og kíktum við í
Kolaportinu, en honum fannst mjög
gaman að labba þar um. Óli var mik-
ið jólabarn í sér og það var þvílík un-
un að fara með hann í búðir á þessum
árstíma, hann gjörsamlega ljómaði
þegar hann sá allt jólaskrautið og
jólaljósin. Hann skreytti mikið hjá
sér og það var orðinn siður hjá hon-
um að taka ljósin ekki úr glugganum
fyrr en í lok febrúar, þennan sið fór
ég svo að taka upp eftir honum og
finnst hann alveg stórsniðugur,
þetta lífgar svo upp á skammdegið
eins og hann sagði. Hjálpsemin sem
hann sýndi okkur Óla Hjörvari var
einstök, þegar við keyptum íbúðina
okkar í Breiðholtinu 1999 þurfti Óli
Hjörvar að fara norður að vinna, ég
skrapp til Óla afa til að fá lánaða
tröppu, hann spurði mig hvað ég ætl-
aði að fara að gera einsömul með
tröppuna og ég sagði honum að ég
ætlaði að fara að byrja á því að mála
íbúðina. Nei hann sagði að ég fengi
ekki tröppuna þar sem ég væri ófrísk
en hann skyldi koma og mála fyrir
mig og fara sjálfur upp í tröppuna en
í tröppuna færi ég ekki og við það
stóð því honum varð ekki haggað ef
hann tók eitthvað í sig, hann kom svo
til mín og málaði en ég fékk aldrei að
fara í tröppuna. Eftir að Daníel Týr
fæddist þá passaði Óli alltaf fyrir
okkur á kvöldin og var mjög gott að
leita til hans í barnapíustörfin, en
báðir höfðu þeir mjög gaman af hvor
öðrum. Spennan var mikil þegar
Daníel Týr vissi að afi ætti að koma
og passa sig, en þá fékk hann leik-
félaga og að vaka lengur því Óli bað
okkur alltaf að vera ekkert að svæfa
strákinn, hann skyldi sjá um það,
hann mundi svo aldrei hvenær Dan-
íel Týr sofnaði þegar við vorum að
spyrja hann að því eða kannski vildi
ekki segja okkur frá því, því oft svaf
strákurinn vel út morguninn eftir að
afi hafði verið að passa.
Margar góðar minningar rifjast
upp í huga um Óla, sérstaklega þeg-
ar hann ákvað að kaupa sér sjálf-
skiptan bíl árið 1999 þá orðin 69 ára
gamall og hafði aldrei keyrt sjálf-
skiptan bíl, þeir nafnar fóru því af
stað að leita að bíl og fundu þennan
fína Lancer svo kom að því að sá
gamli átti að prufukeyra hann, og
sagði Óli Hjörvar honum að hann
ætti bara að nota vinstri fótinn. Ein-
hverjar vöflur komu á karlinn en
hann sagði ekki orð heldur fór að
reyna að basla við að keyra þannig
en illa gekk, áttaði þá Óli Hjörvar sig
á því að hann hafði sagt honum rangt
til og hann ætti að nota hægri löpp-
ina, þeir hlógu nú báðir mikið er þeir
áttuðu sig á þessum mistökum og
gekk allt mun betur er hann fór að
nota hægri löppina. Óli var duglegur
að koma í heimsókn til okkar og með-
an ég var að vinna í bakaríinu kom
hann oft til mín að kaupa brauð eða
bara til að spjalla og fannst mér
mjög vænt um það.
Ég vil að endingu þakka Óla fyrir
góð kynni og alla þá umhyggju og
hjálpsemi sem hann sýndi mér, Óla
Hjörvari og ekki síst Daníel Tý.
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinirnir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(Vald. Briem.)
Elsku Tóta, systkini og fjölskyld-
ur ég bið Guð að styrkja ykkur á
þessum erfiðu tímum.
Megi Guð geyma þig, elsku Óli
minn.
Hvíl í friði.
Auður Sandra.
Kristur minn ég kalla á þig,
komdu að rúmi mínu.
Gjörðu svo vel og geymdu mig,
Guð, í skjóli þínu.
(Höf. ók.)
Hvíldu í friði, elsku afi minn.
Friðvin Ingi.
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Símar 581 3300 - 896 8242
Allan sólarhringinn - Áratuga reynsla
Suðurhlíð 35 — Fossvogi — www.utforin.is
Sverrir Olsen,
útfararstjóri.
Sverrir Einarsson,
útfararstjóri.
Kistur - Krossar
Prestur - Kirkja
Kistulagning
Blóm - Fáni
Val á sálmum
Tónlistarfólk
Sálmaskrá
Tilk. í fjölmiðla
Erfisdrykkja
Gestabók
Legstaður
Flutningur kistu á
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
Bryndís Valbjarnardóttir,
útfararstjóri.
milli landa og
landshluta
Landsbyggðar-
þjónusta
Baldur Frederiksen,
útfararstjóri.
Guðmundur
Þór Gíslason,
útfararstjóri.
Elskulegur eiginmaður minn, stjúpfaðir, bróðir
og mágur,
JÓHANN ÁSMUNDSSON
safnstjóri Minjasafns Egils Ólafssonar,
Hnjóti, Örlygshöfn,
sem andaðist á líknardeild LSH í Kópavogi
föstudaginn 31. desember sl., verður jarðsung-
inn frá Grafarvogskirkju föstudaginn 14. janúar
kl. 15.00.
Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir, en þeim, sem vilja minnast
hans, er bent á safnreikning Minjasafns Egils Ólafssonar, Hnjóti, í Sparisjóði
Vestfirðinga nr. 1118-05-402255, kt. 560184 0269.
Magnea Einarsdóttir,
Árni Klemensson,
Einar Dagfinnur Klemensson, Hildur Sonja Guðmundsdóttir,
Jenný Ásmundsdóttir, Guðmundur Benediktsson,
Hildur Hanna Ásmundsdóttir, Gylfi Jónsson,
Benedikt Grétar Ásmundsson, Kristín Jóhannesdóttir.
Elskulegur faðir minn, tengdafaðir og afi,
JÓHANN ODDSSON,
Hríseyjargötu 15,
Akureyri,
andaðist miðvikudaginn 5. janúar.
Útför hans fer fram frá Höfðakapellu mánudaginn 17. janúar kl. 13:30.
Margrét Jóhannsdóttir, Gunnar Guðbrandsson,
Álfhildur Gunnarsdóttir,
Gauti Gunnarsson,
Haukur Gunnarsson.
Ástkær vinur okkar,
RAGNAR ÖRN,
Fellsmúla 11,
lést á Landspítalanum í Fossvogi þriðju-
daginn 11. janúar.
Aðstandendur.
Elskulegur faðir minn,
SVEINN CECIL JÓNSSON,
andaðist á dvalarheimilinu Hornbrekku, Ólafsfirði, þriðjudaginn 11. janúar.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Héðinn Sveinsson.
Elskuleg eiginkona mín, móðir mín, dóttir,
systir og mágkona,
KRISTRÚN SIGURVINSDÓTTIR
GEORGES,
Mentor, Ohio, USA,
Vesturbraut 11, Keflavík,
lést á Landspítalanum Fossvogi sunnudaginn
9. janúar.
Jarðarförin fer fram frá Keflavíkurkirkju föstu-
daginn 14. janúar kl. 11.00.
Leo Georges,
Christopher Georges,
Jóhanna Karlsdóttir,
systkini og makar.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og lang-
afi,
ÓLAFUR TRYGGVASON
fyrrv. bóndi og organisti
á Ytra-Hvarfi,
sem lést á heimili sínu Dalbæ fimmtudaginn
6. janúar sl., verður jarðsunginn frá Dalvíkur-
kirkju laugardaginn 15. janúar kl 13.30.
Jarðsett verður að Völlum.
Ævarr Hjartarson, Freydís Laxdal,
Kristín Ólafsdóttir,
Jóhann Ólafsson, Herdís Geirsdóttir
og fjölskyldur.
Ástkær móðir okkar og systir,
JÓRUNN KARLSDÓTTIR,
til heimilis á Brúarási 7,
Reykjavík,
lést á Landspítala, Fossvogi, að kvöldi þriðju-
dagsins 11. janúar.
Jarðarförin auglýst síðar.
Inger Steinsson,
Helga M. Steinsson,
Jóhann T. Steinsson,
Unnur Steinsson,
Ásdís Sigurðardóttir
og fjölskyldur.