Morgunblaðið - 13.01.2005, Síða 48

Morgunblaðið - 13.01.2005, Síða 48
48 FIMMTUDAGUR 13. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ Stóra svið Nýja svið og Litla svið HÍBÝLI VINDANNA leikgerð Bjarna Jónssonar eftir vesturfarasögu Böðvars Guðmundssonar Lau 15/1 kl 20 - RAUÐ KORT - UPPSELT Su 16/1 kl 20 - GRÆN KORT - UPPSELT Fö 21/1 kl 20 - BLÁ KORT - UPPSELT Lau 22/1 kl 20, - UPPSELT Fim 27/1 kl 20, - AUKASÝNING Lau 29/1 kl 20, - UPPSELT Su 30/1 kl 20, Fim 3/2 kl 20 - UPPSELT, Lau 5/2 kl 20, Su 6/2 kl 20, Fö 11/2 kl 20, Lau 12/2 kl 20 Miðasalan er opin: Mánud. og þriðjud.:10:00-18:00, mið-, fim- og föstudaga: 10:00-20:00, laugar- og sunnudaga: 12:00-20:00 Miðasölusími 568 8000 - miðasala á netinu: www.borgarleikhus.is LÍNA LANGSOKKUR e. Astrid Lindgren Su 16/1 kl 14, Su 23/1 kl 14, Su 30/1 kl 14, Su 6/2 kl 14, Su 13/2 kl 14, SÍÐUSTU SÝNINGAR HÉRI HÉRASON e. Coline Serreau Fö 14/1 kl 20, Su 23/1 kl 20, Fö 28/1 kl 20 SVIK eftir Harold Pinter Samstarf: Á SENUNNI, Sögn ehf og LA. Fö 14/1 kl 20, Fi 20/1 kl 20, Fö 4/2 kl 20 AUSA eftir Lee Hall og STÓLARNIR eftir Ionesco - Í samstarfi við LA Í kvöld kl 20, Lau 15/1 kl 20 SÍÐUSTU SÝNINGAR Á STÓLUNUM HÉRI HÉRASON Fyndið - ferskt - fjörugt - farsakennt LEIKHÚSVEISLA FYRIR HÓPA - UPPSKRIFT AÐ SKEMMTILEGU KVÖLDI NÆRING FYRIR SÁL OG LÍKAMA - BÓKIÐ Í TÍMA Kl 18:00 Gleðistund í forsal - veitingasalan opin Kl 18:30 Kynnisferð um leikhúsið - kynning á verki kvöldsins Kl 19:00 Matseðill kvöldsins Kl 20:00 Leiksýning kvöldsins SAUMASTOFAN 30 ÁRUM SÍÐAR eftir Agnar Jón Egilsson, Í samstarfi við TÓBÍAS Frumsýning su 16/1 kl 20 - UPPSELT Lau 22/1 kl 20, Fi 27/1 kl 20, Su 30/1 kl 20 ATH: Bönnuð yngri en 12 ára ÍSLENSKI DANSFLOKKURINN: FJÖLSKYLDUSÝNING The Match, Æfing í Paradís, Bolti Lau 15/1 kl 14, Lau 22/1 kl 14 BÖRN 12 ÁRA OG YNGRI FÁ FRÍTT Í BORGARLEIKHÚSIÐ Í FYLGD FULLORÐINNA BELGÍSKA KONGÓ e. Braga Ólafsson Gríman fyrir besta leik í aðalhlutverki Fö 14/1 kl 20 - UPPSELT, Su 16/1 kl 20, Fi 20/1 kl 20, Su 23/1 kl 20, Su 30/1 kl 20 SÝNINGUM LÝKUR Í FEBRÚAR 4 600 200 leikfelag.is Miðasölusími „Fjarskalega leiftrandi og skemmtileg sýning.“ H.Ö.B. RÚV Óliver! Eftir Lionel Bart Fim. 13.1 kl 20 Örfá sæti Lau. 15.1 kl 14 aukasýn. UPPSELT Lau. 15.1 kl 20 UPPSELT Fös. 21.1 kl 20 Örfá sæti Lau. 22.01 kl 20 Örfá sæti Fös. 28.01 kl 20 Örfá sæti Sun. 30.01 kl 14 aukasýn. Ath: Ósóttar pantanir seldar daglega! Munið VISA tilboð í janúar Sýnt í Reykjavík: Eldað með Elvis, Svik og Ausa og stólarnir NÆSTU SÝNINGAR Í KVÖLD. 13. JAN. KL. 20 FÖSTUD. 21. JAN. KL. 20 LAUGARD. 29. JAN. KL. 20 Rauð tónleikaröð #3 HÁSKÓLABÍÓI Í KVÖLD, FIMMTUDAGSKVÖLD KL. 19.30 György Ligeti ::: San Francisco Polyphony Joseph Haydn ::: Sjö síðustu orð Krists Hljómsveitarstjóri ::: Ilan Volkov Upplestur ::: Pétur Gunnarsson Háskólabíó vi› Hagatorg I Sími 545 2500 I sinfonia@sinfonia.is I www.sinfonia.is Tvö ólík og afar spennandi verk „Volkov færði sig yfir í aðra vídd og tók hljómsveitina með sér. Hann mótaði einhvern magnaðasta tónlistarviðburð sem ég hef upplifað.“ (the herald í glasgow). Betri umsögn getur stjórnandi vart óskað sér. Volkov heimsækir Íslendinga í annað sinn, nú með tvö spennandi en ólík verk í farteskinu. Pétur Gunnarsson rithöfundur les valda kafla úr Passíusálmum Hallgríms Péturssonar á milli þátta Miðasalan er opin kl. 13-18 mán. og þri. Aðra daga kl. 13-20. Símapantanir frá kl. 10 virka daga. www.leikhusid.is • midasala@leikhusid.is Þjóðleikhúsið sími 551 1200 • Stóra sviðið kl. 20:00 ÖXIN OG JÖRÐIN – Ólafur Gunnarsson/leikgerð Hilmar Jónsson 5. sýn. í kvöld fim. 13/1 örfá sæti laus, 6. sýn. fös. 21/1 örfá sæti laus, 7. sýn. fös. 28/1 örfá sæti laus, 8. sýn. lau. 5/2 nokkur sæti laus, 9. sýn. lau. 12/2. ÞETTA ER ALLT AÐ KOMA – Hallgrímur Helgason /leikgerð Baltasar Kormákur Fös. 14/1 örfá sæti laus, fim. 20/1 nokkur sæti laus, lau. 29/1 nokkur sæti laus. Aðeins þessar þrjár sýningar eftir. EDITH PIAF – Sigurður Pálsson Lau. 15/1 uppselt, sun. 16/1 örfá sæti laus, lau. 22/1 uppselt, sun. 23/1 örfá sæti laus, fös. 4/2 örfá sæti laus, sun. 13/2, lau. 19/2 DÝRIN Í HÁLSASKÓGI – Thorbjörn Egner Sun. 16/1 kl.14:00 örfá sæti laus, sun. 23/1 kl. 14:00 nokkur sæti laus, sun. 30/1 kl. 14:00. Fáar sýningar eftir. • Smíðaverkstæðið kl. 20:00 NÍTJÁNHUNDRUÐ - KAFFILEIKHÚS – Alessandro Baricco Lau. 15/1 nokkur sæti laus, lau. 22/1. Ekki er hægt að hleypa inn í salinn eftir að sýning er hafin. • Litla sviðið kl. 20:00 BÖNDIN Á MILLI OKKAR – Kristján Þórður Hrafnsson Fös. 14/1 nokkur sæti laus, fim. 20/1 örfá sæti laus, fim. 27/1, lau. 29/1. Ekki er hægt að hleypa inn í salinn eftir að sýning er hafin. ÖXIN OG JÖRÐIN ÖRFÁ SÆTI LAUS Í KVÖLD! ☎ 552 3000 ALLRA SÍÐASTA SÝNING • Laugardag 15. janúar kl 20 eftir LEE HALL Loftkastalinn ✦ Seljavegi 2 ✦ 101 Reykjavík ✦ Miðasalan er opin frá 11-18 ÖRFÁ SÆTI LAUS! í samstarfi við LEIKFÉLAG AKUREYRAR www.loftkastalinn.is Frumsýning 11. feb. kl.20.00 – UPPSELT – 2. sýning 13.feb. kl. 19.00 3. sýning 18.feb. kl 20.00 – 4. sýning 20. feb. kl. 19.00 – FÁAR SÝNINGAR Námskeið um Toscu og Puccini hjá Endurmenntun Háskóla Íslands Skráning í síma: 525 4444 – endurmenntun@hi.is Miðasala á netinu: www. opera.is Miðasalan er opin kl. 14-18 virka daga, kl. 13-18 lau. og sun. og fram að sýningu sýningardaga. Símasala kl. 10-18 virka daga. Banki allra landsmanna HLYNUR Helgason hefur í list sinni jafnan leitast við að skil- greina myndlistina, umhverfi hennar og veruleikann. Þetta gerir hann einnig nú, með verkinu Gengið niður Klapparstíg sem hann sýnir í Nýlistasafninu út jan- úarmánuð. Þema sýningarinnar er ekki nýtt fyrir Hlyni, td. hlaut hann fyrir nokkrum árum starfs- styrk í Þýskalandi fyrir götu- myndir frá Akureyri og í Lista- safni ASÍ árið 2001 sýndi hann kvikmyndir af ferðalögum í Reykjavík og á landsbyggðinni. Hversdagslegt umhverfi birtist einnig á myndbandi á sýningu hans og nafna hans Hallssonar í Galleríi Sævars Karls 1999, en þá sýndu þeir myndbrot úr eigin lífi, eina mínútu á hverjum klukkutíma í einn sólarhring, þá búsettir hvor í sinni borginni og landinu. Þessi myndbrot má líta á sem hugs- anlega fyrirrennara nýjasta verks Birgis Arnar Thoroddsen sem hann sýnir nú í beinni á Netinu og er hluti af sýningunni Ný íslensk myndlist í Listasafni Íslands. Þar sýnir Birgir eigið líf í íbúð sinni 24 tíma í beinni. Verk hans hefur þó meiri tengsl við raunveruleika- sjónvarp en verk þeirra nafna á sínum tíma. Í umfjöllun Halldórs Björns Runólfssonar um sýningu Hlyn- anna kom fram að ekki virtist mikill munur á lífinu í þessum borgum, Reykjavík og Hannover, en báðir lifðu listamennirnir er- ilsömu fjölskyldulífi. Uppvaskið er alls staðar eins, tölvan líka. Það er einmitt þetta sem Hlyn- ur Helgason gerir að viðfangsefni sínu í verkinu í Nýlistasafninu núna, hið dæmigerða, það sem ekki sker sig úr, það sem er alls staðar eins. Hann skrifar flotta grein með innsetningu sinni sem hefði verið mun fátækari hefði hennar ekki notið við. Þar fjallar hann meðal annars um það hversu tamt okkur er að túlka veru- leikann í gegnum hið dæmigerða. Hann gerir greinarmun á hálist og hinu dæmigerða þar sem hálistin er eitthvað einstakt en hið dæmi- gerða – dæmigert! Enn fremur segir hann að listin að baki hinu dæmigerða byggi á því hversu gott dæmið er um þann raunveru- leika sem verið er að skoða. Hlyn- ur lýkur grein sinni með því að segja að fagurfræðin einbeiti sér að hinu einstaka en menningar- fræðin að hinu dæmigerða. Og spyr sig með léttri íróníu að því hvort innsetning hans falli frekar undir menningarfræði en mynd- list. Spurningin er vissulega áleitin því Hlyni tekst nefnilega svo vel að höndla hið dæmigerða að fátt er eftirminnilegt á sýningu hans, engin mynd sker sig sérstaklega úr, ekkert sjónarhorn er eft- irminnilegt, fátt kveikir í ímynd- unaraflinu. Helst að ljósið hjá Gvendi dúllara sé eilítið æv- intýralegt. Sama má segja um myndbandið, en einsleitni þess er þó rofin af einu og aðeins einu bíl- hljóði og það er spurning hvort Hlynur hafi hér látið freistast ein- um of og gefið eftir fyrir tvíhyggj- unni og skapað of dramatískt og áreitið augnablik! En kannski er einmitt þetta eina einmana bílhljóð dæmigert fyrir sumarnóttina. Vangaveltur Hlyns eru bráð- skemmtilegar og sérstaklega þarft innlegg í íslenskan listheim. Með spurningunni um það hvort hér sé um list að ræða fetar Hlynur í fót- spor ýmissa listamanna sem að- hlynntust hugmyndafræðilega list og komu fram með spurningar um stöðu og hlutverk listamannsins. Þannig vildi Joseph Kosuth t.d. líta á listamanninn sem mannfræð- ing, Marcel Broodthaers sagði sig félagsfræðing, Art&Language sögðust vera listfræðingar o.s.frv. þegar fyrir um fjórum áratugum. En spurningin um hlutverk og eðli listarinnar er eilíf og alltaf ný og hver kynslóð þarf að spyrja sig að henni upp á nýtt. Hlynur Helga- son er virkur á þessu sviði og má þar nefna m.a. nýstofnað félag FUGL – Félag um gagnrýna list sem brátt opnar nýtt sýningar- húsnæði á Skólavörðustíg, framtak sem lofar góðu. „Vangaveltur Hlyns eru bráðskemmtilegar og sérstaklega þarft innlegg í íslenskan listheim.“ Mörk listarinnar MYNDLIST Nýlistasafnið Til 30. janúar. Nýlistasafnið er opið mið- vikudaga til sunnudaga frá kl. 13–17. Gengið niður Klapparstíg. Ljósmyndir og myndband, Hlynur Helgason Ragna Sigurðardóttir ER NEFIÐ STÍFLAÐ? Fæst í apótekum og lyfjaverslunum STERIMAR Skemmir ekki slímhimnu er náttúrulegur nefúði sem losar stíflur og léttir öndun. Fyrir 0-99 ára. AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.