Morgunblaðið - 20.02.2005, Qupperneq 34
34 SUNNUDAGUR 20. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Í UMRÆÐUM um niðurrif gam-
alla húsa við Laugaveg takast á tvö
sjónarmið og hafa
bæði nokkuð til síns
ágætis.
Fyrra sjónarmiðið
er að við eigum að
varðveita bárujárns-
húsin vegna þess þau
eru merkar minjar um
húsagerðarlist sem er
einstök. Útlit báru-
járnshúsanna er það
sem gerir Laugaveg-
inn aðlaðandi og frá-
brugðinn öllum versl-
unargötum og
verslunarmiðstöðvum
heimsins. Ef við fjarlægjum báru-
járnshúsin og setjum venjuleg hús
í staðinn verður Laugavegurinn
nákvæmlega eins og milljónir ann-
arra verslunargatna um allan heim.
Sérstaða hans og aðdráttarafl
hverfur.
Seinna sjónarmiðið
er að til að verslun fái
þrifist við Laugaveg
er nauðsynlegt að
byggja ný hús sem
hönnuð eru fyrir slíka
starfsemi. Það er al-
menn sátt um að
Laugavegurinn eigi að
vera verslunargata og
því nauðsynlegt að
húsin þar uppfylli þær
kröfur sem gerðar eru
til slíks húsnæðis. Auk
þess eru sum báru-
járnshúsanna illa farin
og ódýrara er að byggja ný en
halda þeim við.
Þessi sjónarmið vegast á og
flestir taka afstöðu með öðru
þeirra og þá á móti hinu.
Spurningin er sú hvort ekki sé
hægt að sameina þessi tvö sjón-
armið; að byggja ný hús en halda
bárujárnsstílnum sem er sérkenni
Laugavegarins (og næsta nágrenn-
is). Svarið er að vel er hægt að
sameina þetta tvennt.
Reykjavíkurborg á að gera þá
kröfu að öll ný hús við Laugaveg
verði byggð í stíl bárujárnshús-
anna. Kaupmenn fá þá ný hús til að
höndla í og Laugavegurinn fær að
halda sérkennum sínum. Þótt jarð-
hæð flestra þessara húsa verði
sjálfsagt aðallega gluggar mun
heildarsvipur götunnar halda sér.
Ágætt fordæmi þessa má sjá við
Aðalstræti þar sem risið er nýtísku
hótel með öllum þeim nútímaþæg-
indum sem slík starfsemi þarf á að
halda, en ytra útlit þess er í anda
bárujárnshúsanna sem einkenna
byggðina í Grjótaþorpinu. Hér er
auðvelt að sjá hversu gífurleg áhrif
þessi lausn hefur á allt umhvefi
sitt; Aðalstræti, Túngötu, Suð-
urgötu, Fógetagarðinn og Aust-
urvöll. Ef hér stæði hótel sem liti
út eins og aðrar nýbyggingar í Að-
alstræti væri svipur miðbæjarins
miklu síðri en hann er.
Borgin hefur íhlutunarrétt um
útlit þeirra húsa sem byggð verða
við Laugaveg svo hugmyndin er vel
framkvæmanleg. Það væri mjög
spennandi að sjá íslenska arkitekta
vinna með og þróa þennan sér-
íslenska húsagerðarstíl áfram. Sér-
stöku útliti Laugavegiarins væri
ekki bara borgið – hann myndi
ganga í endurnýjun lífdaga öllum
borgarbúum (og gestum þeirra) til
ómældrar ánægju.
Borgin getur bjargað
Laugaveginum
Björn Brynjúlfur Björnsson
fjallar um skipulagsmál ’Spurningin er sú hvortekki sé hægt að sameina
þessi tvö sjónarmið; að
byggja ný hús en halda
bárujárnsstílnum sem
er sérkenni Laugaveg-
arins.‘
Björn Br. Björnsson
Höfundur er formaður Félags
kvikmyndagerðarmanna og býr
í Reykjavík.
Burknavellir - Hafnarf. - 4ra herb. m. bílageymslu
Nýkomin í einkasölu mjög falleg ný
102 fermetra 4ra herb. íbúð með
sérinngangi á þriðju hæð í góðu
klæddu lyftuhúsi ásamt stæði í
bílageymslu vel staðsett á Völlum í
Hafnarfirði. Eignin skiptist í for-
stofu, hol, baðherbergi, tvö góð
barnaherbergi, hjónaherbergi,
stofu, eldhús, þvottahús og geymslu. Innréttingar eru allar úr eik og gólf-
efni eru parket og flísar. Verð 20,5 millj. 105375
Hringbraut - 4ra m. bílageymslu – Hafnarfirði
LAUS STRAX
Nýkomin í einkasölu 105,6 fm 4ra her-
bergja íbúð á fyrstu hæð með sér- inn-
gangi og stæði í bílageymslu í suðurbæ
Hafnarfjarðar. Eignin skiptist í forstofu,
hol, tvö barnaherbergi, baðherbergi,
hjónaherbergi, þvottahús og geymslu. Á efri hæð er eldhús, borðstofa og stofa. Stæði
í bílageymslu. Verð 19,9 millj. 50471
www.gimli.is - ww.mbl.is/gimli
Árni Stefánsson viðskiptafræðingur og lögg. fasteignasali
FASTEIGNASALAN
GIMLI GRENSÁSVEGI 13, SÍMI 570 4800 - FAX 570 4810
Traust þjónusta í 20 ár
Nýtt á skrá. Mjög góð 2ja herbergja
íbúð í kjallara, samtals 67,6 fm. Íbúðin
skiptist í gang með holi, í holi er tölvu-
horn, baðherbergi nýlega tekið í gegn,
sturta, handklæðaofn, skápur, hiti í
gólfi. Herbergi með skáp. Eldhúsið er
opið í stofu, nýl. birkiinnrétting og tæki,
eldavél og háfur úr burstuðu stáli, stof-
an og eldhúsið er afar rúmgott. Á gólf-
um er plastparket og flísar. Við hlið
íbúðar er gott sameiginlegt þvottahús, sérgeymsla er einnig í sameign.
Stutt er í sundlaug, skóla og aðra þjónustu. Garður í einstaklega góðri rækt.
Gler íbúðar þarfnast endurnýjunar. Verð 13,7 millj.
Sigurður sýnir eignina frá kl. 14–16 í dag, sunnudag.
OPIÐ HÚS Í DAG MILLI KL. 14 OG 16
BUGÐULÆKUR 8 - KJALLARI
SPENNANDI TÆKIFÆRI
JÖRÐ TIL SÖLU!
BJARNASTAÐIR Í GRÍMSNES- OG GRAFNINGSHREPPI
Jörðin Bjarnastaðir liggur við Biskupstungnabraut og er 257 ha, þar af ræktað land 13,9 ha.
Jörðin, sem er vel staðsett, er að mestu algróin og skiptist í tún, framræstar mýrar og
vallendisholt.
Jörðin er í fallegu umhverfi í þjóðleið á vinsælu sumarbústaðasvæði og er þaðan stutt í þéttbýli
t.d. Selfoss, Hveragerði, Laugarás, Reykholt, Laugarvatn og einnig í ýmsa afþreyingu og útivist,
s.s. golfvelli, sundlaugar og fleira. Heitt og kalt vatn er til staðar frá veitum sveitarfélagsins.
Landið liggur að Biskupstungnabraut og Sólheimavegi. (Sjá meðf. mynd).
Húsakostur á jörðinni er m.a.: Íbúðarhús, fjós, fjárhús, 4 svínahús, fóður- og áburðargeymslur.
Notkunarmöguleikar: Hefðbundinn búskapur, svínarækt, hrossarækt, sumarhúsabyggð o.fl.
Brunabótamat á húsakosti ásamt mati á jörð og ræktun er um kr. 166 milljónir.
Upplýsingar verða gefnar í síma 444 8706 og einnig má senda fyrirspurnir á
henryg@kbbanki.is
Óskað er eftir tilboðum þar sem fram kemur tilboðsverð og greiðsluskilmálar.
Tilboðsfrestur er til 4. mars 2005.
Tilboð sendist til Kaupþings Búnaðarbanka hf., b.t. Henrýs Þórs Rekstrarfélaginu
Viðjum ehf., Borgartúni 19, 105 R.
Kaupþing Búnaðarbanki hf. áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er, eða hafna öllum.
FASTEIGNA
MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17.
Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/
Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteigna- og skipasali.
Garðhús 12 - 5 herb. íbúð
Opið hús frá kl. 15-17
Stórglæsileg 122 fm 5 herb. íbúð
á tveimur hæðum, íbúð 0302, í
góðu fjölbýli. Eignin skiptist m.a. í
eldhús m. sérsmíð. nýlegri inn-
rétt. úr hlyn og góðri borðað-
stöðu, rúmgóða stofu m. útgangi
á stórar flísalagðar suðursvalir og
nýlega endurnýjað flísalagt bað-
herb. m. sérsmíð. innrétt. og 4
herb. auk sjónvarpshols. Flísar og
parket á gólfum. Verð 22,4 millj.
Íbúðin verður til sýnis í dag, sunnudag, frá kl. 15-17.
Verið velkomin.
VOR 2005
Sölustaðir: sjá www.bergis.is