Morgunblaðið - 20.02.2005, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. FEBRÚAR 2005 41
MINNINGAR
✝ Stefán BjörgvinGuðmundsson
fæddist á Dratthala-
stöðum í Hjalta-
staðaþinghá 17. júní
árið 1922. Hann lést
á Landspítalanum
við Hringbraut
laugardaginn 12.
febrúar síðstliðinn.
Foreldrar hans voru
Guðrún Sigmunds-
dóttir, f. 14. okt.
1885, d. 13. nóv.
1964, frá Gunnhild-
argerði, og Guð-
mundur Halldórs-
son, f. 20. feb. 1869, d. 17. okt.
1942, frá Sandbrekku. Stefán var
yngstur sex systkina. Hin voru:
Halldór, f. 15. nóv. 1910, d. 18.
maí 1983, Sigmundur, f. 12. jan.
1912, d. 22. apríl 1959, Guðrún
Ingibjörg, f. 22. feb. 1914, d. 3.
jan. 1977, Sigfríð Jóhanna, f. 17.
apríl 1916, og Kristbjörg Málfríð-
ur, f. 24. feb. 1919, d. 15. nóv
1943. Sigfríð Jóhanna er ein eft-
irlifandi úr systkinahópnum.
Stefán kvæntist 1959 Hallveigu
Friðrikku Guðjónsdóttur frá
sept. 1996. 4) Sólveig Heiðrún, f.
23. júní 1966, gift Páli Jóhanni
Kristinssyni, f. 18. des 1965, búa á
Egilsstöðum, börn þeirra eru Jök-
ull Logi, f. 1. okt 1996, og Katrín
Rós, f. 18. júlí 1998, og barn Sól-
veigar úr fyrri sambúð er Stef-
anía Ósk Ómarsdóttir, f. 19. mars
1989. Fóstursonur Stefáns er Jón
Rúnar Sveinsson, f. 15. júlí 1951,
kvæntur Valgerði Árnadóttur, f.
29. ágúst 1951, búa í Kópavogi og
eiga þrjú börn.
Stefán ólst upp hjá foreldrum
sínum á Dratthalastöðum. Auk
venjulegs barnalærdóms stundaði
hann nám við Alþýðuskólann á
Eiðum í tvo vetur eða frá 1940 til
1942. Hann stundaði búskap á
Dratthalastöðum með bræðrum
sínum Halldóri og Sigmundi og
eftir að Sigmundur féll frá 1959
tók Stefán við búinu ásamt móður
sinni og þá um haustið kvæntist
hann Hallveigu og bjuggu þau
þar til 1992 en þá fluttust þau til
Egilsstaða og síðast í íbúð eldri
borgara á Miðvangi 22. Stefán
vann ýmis störf utan búsins í
gegnum árin, m.a. við vegavinnu
sem ungur maður og síðar við
byggingu Lagarfossvirkjunar,
sláturhúsvinnu og frá 1978 var
hann landpóstur í Hjaltastaða- og
Eiðaþinghá til ársins 1992.
Stefán var jarðsunginn frá Eg-
ilsstaðakirkju 19. febrúar.
Heiðarseli á Jökul-
dalsheiði, f. 11. maí
1923. Foreldrar
hennar voru Guðjón
Gíslason, f. 19. jan.
1879, d. 24. des. 1954,
og Guðrún María
Benediksdóttir, f. 24.
ág. 1880, d. 1. apríl
1971. Börn Hallveig-
ar og Stefáns eru: 1)
Sigmundur Kristján,
f. 13. júlí 1960,
kvæntur Sigríði
Ágústu Jónsdóttur, f.
2. ágúst 1964, búa á
Dratthalastöðum og
eiga tvö börn, Ragnheiði Ósk, f.
12.ágúst 1996, og Sigmar Stefán,
f. 21. okt. 1999. 2) Guðrún Svan-
hildur, f. 2. nóv. 1962, gift Emil
H. Ólafssyni, f. 20. sept. 1963, búa
á Vopnafirði, börn þeirra eru
Guðjón Óli, f. 5. sept. 1989, og
Kristín Björg, f. 23. apr. 1991. 3)
Guðmundur Hjalti, f. 26. sept.
1964, sambýliskona Heiður Ósk
Helgadóttir, f. 9. sept. 1963, búa á
Tókastöðum, börn Hjalta af fyrri
sambúð eru Sigvaldi Arnar, f. 27.
ág. 1990, og Jónný Hekla, f. 27.
Nú er pabbi farinn í annan heim og
ég trúi því að nú sé hann laus við öll
meðul og veikleika og að hann heyri
manna best, en heyrnarleysið fór allt-
af illa í hann. Ég vona að það séu til
spil hinum megin svo hann þurfi ekki
að hætta að spila, það var ein af hans
uppáhaldsiðjum. Pabbi var alltaf ró-
legur og þægilegur í umgengni en
auðviðað átti hann skap sem hann
sýndi nú ekki oft og fór hann þá frek-
ar út heldur en að skammast í fólki.
Þegar ég var lítil stelpa á Dratt-
halastöðum fannst mér nú alltaf gam-
an að elta pabba út í fjárhúsið og
hvert sem var til að fylgjast með hvað
hann var þar að gera. Ég var nú ekki
nema svona 11 eða 12 ára þegar ég
fékk þar fyrsta skrifstofustarfið mitt
en ég starfa í dag á skrifstofu, en
starfið sem pabbi réð mig í var að
skrá niður nöfn kindanna og síðan
númerin á lömbunum þegar hann var
að marka, síðan færði ég þetta nátt-
úrulega samviskusamlega inn í fjár-
bókina þegar ég kom heim. Pabbi gat
látið mig hlaupa eins hratt og ég gat,
bara með því að segja: „Solla, þú ert
nú svo fljót að hlaupa, viltu sækja
hamarinn upp á Hraungarð?“ og ég
stökk af stað og hljóp eins hratt og ég
gat og alltaf var hann jafnhissa þegar
ég kom til baka.
Mér þótti allaf afskaplega gaman
að fara í póstferð með honum pabba,
við töluðum svo sem ekki mikið í bíln-
um og við þurftum þess ekki, það var
bara svo gaman að keyra alla sveitina
og hlaupa með póstinn. Ég held nú að
honum hafi alltaf þótt svolítið gaman í
þessu starfi, þá hitti hann svo marga.
Og hann fékk sér oft kaffi hjá Fríðu
systur sinni í Laufási, en þá var þar
póstmóttaka sem Siggi sá um.
En þar sem ég hef búið síðustu 19
árin í Reykjavík hef ég ekki náð eins
mögum samverustundum með pabba
á þeim árum en hann kom oft suður
og 1989 kom hann til lækninga og
dvaldi þá í töluverðan tíma og mér
þótti þá mjög gaman að grafa upp
frændfólk eða gamla kunningja
pabba og við drifum okkur í heim-
sókn, hann var alltaf mjög frændræk-
inn og ég er mjög þakklát fyrir að
hafa farið með honum í þessar heim-
sóknir.
Ég flutti síðan aftur heim á Hér-
aðið í haust og náði þar að hitta for-
eldra mína oftar og var mjög notalegt
að koma til þeirra og pabbi var oft að
segja mér frá gamla tímanum og þeg-
ar hann var ungur. Hann leyfði mér
síðan að fá bók sem hann var búinn að
rita niður ýmsar sögur frá fyrri tím-
um og því sem hann upplifði þá. Það
sem mér þótti skemmtilegast var
þegar hann var að segja mér frá því
hvað unga fólkið þurfti að leggja á sig
til að komast á samkomur. Það var
gengið langar leiðir eða riðið og þess-
ar ferðir tóku langan tíma og ekki sæi
ég unga fólkið í dag leggja í dags-
göngu, dansa síðan alla nóttina og
ganga heim aftur daginn eftir, en tím-
arnir hafa breyst.
Pabbi hafði alltaf gaman af vísum
og kunni þær margar. Hér er kvæði
eftir mömmu, Hugarflug, sem er í
bókinni hennar Stiklað á steinum:
Ég ferðaðist vornótt frjáls um geiminn
á fallegum gæðingi hvítum sem snæ,
langaði að eiga allan heiminn
og yfir fljúga um lönd og sæ.
Döggvotu blómin ég reif með rótum
rétt til að finna ilm þeirra um stund.
Rósanna blöð mér féllu að fótum,
féllu deyjandi í skógarlund.
Fjöllin roðnuðu, í fjallaskarði,
flaut upp sólin við útsýnisrönd.
Þá nótt hafði ég farið að fegursta garði
með föl og deyjandi blóm í hönd.
Rótslitnar jurtir reyndu að lifa.
Það reyndist stundum í heimi kalt.
Um sorgir vill aldrei sólin skrifa,
með samúð blessar hún lífið allt.
Elsku pabbi minn, ég mun alltaf
sakna þín en ég skal hlúa vel að minn-
ingu þinni og líta vel eftir henni
mömmu fyrir þig.
Þín elskandi dóttir
Sólveig Heiðrún Stefánsdóttir.
Fermingar- og skólabróðir, mágur
og vinur, lést á Landspítalanum í
Reykjavík hinn 12. febrúar sl.
Ég vissi að hann var fluttur mikið
veikur frá Sjúkrahúsinu á Egilsstöð-
um á Landspítalann í Reykjavík til
frekari lækninga. Þrátt fyrir þessar
fréttir, kom mér brotthvarf hans út
þessum heimi í opna skjöldu. Þetta
hefur verið vilji almættisins og við
hans dóm verður maður að sætta sig,
hversu sár sem hann er.
Stefán og Hallveig tóku við bú-
skapnum á Dratthalastöðum 1959,
eftir sviplegt fráfall Sigmundar bróð-
ur hans. Áður hafði hann stundað þar
sjálfstæðan búskap á meðan bræður
hans ráku þar félagsbú á árunum
1936–1949 og eftir að Sigmundur
bróðir hans tók þar við. Guðrún móðir
þeirra var bústýra hjá þeim bræðrum
allan þennan tíma og dvaldist hjá
Stefáni og Hallveigu eftir að þau tóku
við, og til dauðadags.
Stefán var prúðmenni í umgengni.
Þótt hann virtist alvörugefinn og fá-
máll, átti hann til kímnigáfu, sem
hann beitti alltof sjaldan. Sérlega var
hann barngóður og nutu barnabörnin
mín þess í ríkum mæli. Stefáni var
margt til lista lagt og hann hafði mikla
ánægju af því að stunda smíðar, þeg-
ar frístundir gáfust. Útskornar hillur,
sannkallaðar listasmíðar, prýða heim-
ili magra vina og vandamanna hans.
Eftirfarandi ljóðlínur segja meira
um hinn framliðna en mörg orð og
leyfi ég mér að birta þær hér til að
túlka mitt viðhorf:
Þú lést þér annt um litla sauðahjörð.
Þú lagðir rækt við býlið þitt og jörð
og blessaðir sem barn þinn græna reit.
Þinn blómavöll, hvert strá, sem augað leit.
Og þótt þú hvíldir sjálfur undir súð,
var seint og snemma vel að öllu hlúð,
og aldrei skyggði ský né hríðarél
á skyldur þínar, tryggð og bróðurþel.
Þú hafðir öllum hreinni reikningsskil.
Í heimi þínum gekk þér allt í vil
Þú hirtir lítt um höfðingsnafn og auð,
því hógværð þinni nægði daglegt brauð.
(Davíð Stef.)
Ég votta hans nánustu mína dýpstu
samúð.
Guð blessi minningu Stefáns Guð-
mundssonar.
Sigurður Karlsson.
STEFÁN BJÖRGVIN
GUÐMUNDSSON
Inger Steinsson,
útfararstjóri,
s. 691 0919
Sími 551 7080
Bárugötu 4, 101 Reykjavík.
Ólafur Örn
útfararstjóri,
s. 896 6544
Inger Rós
útfararþj,
s. 691 0919
Vönduð og persónuleg þjónusta
Við þökkum innilega öllum þeim, sem
auðsýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu við
andlát og útför
GÍSLÍNU LÁRU KRISTJÁNSDÓTTUR.
Sérstakar þakkir til starfsfólks hjúkrunar-
heimilisins Sólvangs Hafnarfirði.
Ólafur Skagvík,
Sölvi P. Ólafsson,
Gísli Þ. Ólafsson,
Ólöf Sigurrós Gestsdóttir og fjölskylda.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
samúð og hlýhug við andlát og útför elsku-
legrar eiginkonu minnar,
RÓSEYJAR S. HELGADÓTTUR,
Dalbraut 14,
Reykjavík.
Rafn Kr. Kristjánsson.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý-
hug við andlát og útför móður okkar, tengda-
móður, ömmu og langömmu,
JÓNÍNU ÞÓRUNNAR JÓNSDÓTTUR
ljósmóður
á Keldum.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á hjúkr-
unar- og dvalarheimilinu Lundi á Hellu fyrir frá-
bæra umönnun.
Svanborg Lýðsdóttir, Erlendur Sigurðsson,
Jóna Þórunn Lýðsdóttir, Árni Ingvarsson,
Skúli Lýðsson, Drífa Hjartardóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý-
hug við andlát og útför móður okkar, tengda-
móður, ömmu og langömmu,
GUÐBJARGAR ÁGÚSTSDÓTTUR,
Hrafnistu, Reykjavík,
áður til heimilis á Jaðri,
Hellissandi.
Kærar þakkir sendum við starfsfólki á Hrafn-
istu í Reykjavík og Landspítala háskólasjúkra-
húss fyrir góða þjónustu í veikindum hennar.
Guð veri með ykkur öllum.
Þórir Ágúst Þorvarðarson, Hjördís Harðardóttir,
Sigríður Þórunn Þorvarðardóttir, Sigurbjörn Ásgeirsson,
Eggert Þorvarðarson, Vilborg Jónsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý-
hug vegna andláts
HARÐAR RUNÓLFSSONAR,
Hrafnistu, Hafnarfirði,
áður til heimilis
í Hraunbæ 103.
Sérstakar þakkir til starfsfólks 3B á Hrafnistu
í Hafnarfirði fyrir góða umönnun.
Hilmar Harðarson, Guðrún Gunnarsdóttir,
Auður Harðardóttir, Eðvarð Benediktsson,
Bergljót Harðardóttir, Halldór Guðmundsson,
Úlfar Örn Harðarson, Helga Magnúsdóttir,
Ingibjörg Lára Harðardóttir, Jóhann Hauksson,
Hörður Þór Harðarson, Guðrún Hrönn Smáradóttir
og fjölskyldur.
Innilegar þakkir færum við öllum þeim, sem
sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu við
andlát og útför elskulegs eiginmanns míns,
föður okkar, fósturföður, tengdaföður, afa,
langafa, bróður og mágs,
BIRGIS VIKTORS HANNESSONAR,
Bjarkargrund 24,
Akranesi.
Hjartans þakkir færum við deild B2, Landspítala Fossvogi fyrir hlýja og
góða umönnun.
Laufey Kristjánsdóttir,
Hannes Viktor Birgisson, Ólafía Harðardóttir,
Marta María Birgisdóttir, Erik Nygren,
Margrét Sigurðardóttir, Guðmundur Rúnar Davíðsson,
Ella Kristín Sigurðardóttir,
Jóhann Þór Sigurðsson, Guðrún Eiríksdóttir,
Jón Kr. Hannesson, Birna Kristjánsdóttir,
Svala Ívarsdóttir,
afabörn og langafabörn.