Morgunblaðið - 01.04.2005, Page 10

Morgunblaðið - 01.04.2005, Page 10
10 FÖSTUDAGUR 1. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir, varaþingmaður og fyrrum borgar- stjóri, segir uppbyggingu í Aðal- stræti dæmi um hvernig hægt sé að tengja saman gamalt og nýtt. Vel hafi tekist til með byggingu nýs hót- els sem þar er risið, og þar fari sam- an glæsilegt útlit og vandaður frá- gangur. Ingibjörg skoðaði hótelið í fylgd minjavarðar, hótelstjóra og fleiri í gær, í tilefni þess að það verð- ur formlega opnað í dag. Fyrir tíu árum óskaði Ingibjörg Sólrún eftir því að borgarlögmaður kannaði hugsanlegt samstarf við Minjavernd um uppbyggingu og verndun hússins á lóðinni nr. 16 við Aðalstræti. „Var hrein hörmung að sjá“ „Þetta var hrein hörmung að sjá, bæði lóð og hús voru draslaraleg og á þessum tímapunkti var ekki mikil ásókn í að byggja upp í miðborg- inni,“ segir Ingibjörg Sólrún. Að sögn hennar voru ýmsir möguleikar kannaðir í samstarfi við ýmsa aðila, m.a. uppbygging á verslunarhús- næði, skrifstofum eða íbúðum. „Það voru ýmsir sem veltu þessu fyrir sér en gátu ekki fengið verk- efnið til að ganga upp fjárhagslega. Það var svo á endanum Þyrping og síðar Stoðir sem ásamt Reykjavík- urborg og Minjavernd komu að því að byggja þarna upp hótel.“ Hún segir að árangurinn sýni að hægt sé að varðveita og byggja upp án þess að í því þurfi að vera fólgnar andstæður. Mikilvægt sé að staðið verði með svipuðum hætti að upp- byggingu á Laugavegi. „Þó að arki- tektúr geti verið með margvíslegum hætti, þá á að vera hægt að lesa sögu borgarinnar í gegnum byggðina. Það á ekki þurfa að „frysta“ hana á ein- hverjum tilteknum tímapukti né heldur ryðja henni burt.“ Ingibjörg Sólrún bendir á að tíma og vinnu hafi tekið að sannfæra fjárfesta og rekstraraðila um að horfa til mið- borgarinnar varðandi uppbyggingu. „Núna er það orðið að veruleika og þá stöndum við kannski andspænis annars konar verkefnum eða vanda- málum, því það má heldur ekki fara offari í uppbyggingu. [...] Ný hús sem koma inn í miðborgina verða að taka mið af því samhengi sem þau eru reist í, þau eiga ekki bara að vera minnisvarði um sérstaka arkitekta heldur verða að taka mið af sam- hengi byggðarinnar, og það finnst mér að hafi tekist í Aðalstræti,“ seg- ir Ingibjörg Sólrún. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi borgarstjóri, segir vel hafa tekist til með endurnýjun Aðalstrætis sem hófst fyrir 10 árum Vill að staðið verði svipað að uppbyggingu Laugavegar Morgunblaðið/Sverrir Ingibjörg Sólrún skoðaði nýja hótelið í gær; Hótel Reykjavík Centrum, ásamt Þorsteini Bergssyni, framkvæmda- stjóra Minjaverndar, Jónasi Þór Þorvaldssyni, framkvæmdastjóra Stoða, og Ómari Sigurðssyni hótelstjóra. Eftir Kristján Geir Pétursson kristjan@mbl.is ræðislega stöðu til þess að taka um- rædda ákvörðun án samráðs við ut- anríkismálanefnd þingsins og eftir atvikum við þingflokka og ríkis- stjórn. Minnihlutinn þakkar fyrir þau gögn sem nefndin aflaði sér erlendis frá en það sama sé ekki hægt að segja um öflun gagna hér á landi. „Skemmst er frá því að segja að engin gögn af neinu tagi né neinar munnlegar upplýsingar eða heimild- ir hafa borist úr stjórnarráði Íslands til utanríkismálanefndar. Þær upp- lýsingar sem nú liggja fyrir í málinu hafa smátt og smátt komið fram í dagsljósið eftir öðrum leiðum en þeim að utanríkismálanefnd hafi sjálf aflað eða fengið í hendur við- komandi upplýsingar. [...] Meira að segja þær upplýsingar að engin skrifleg gögn væri að finna í stjórn- arráðinu um undirbúning þeirrar ákvörðunar íslenskra stjórnvalda að styðja innrásina í Írak, sbr. bréf úr- skurðarnefndar um upplýsingamál frá 9. nóvember 2004, komu til nefndarinnar í gegnum einn af gest- um hennar, Ragnar Aðalsteinsson hæstaréttarlögmann. Því fer fjarri að okkar dómi að utanríkismála- nefnd hafi, þegar ofangreint er haft í huga, sinnt rannsóknar- og upplýs- ingaskyldu sinni.“ mann nefndarinnar, sl. haust, að haldinn yrði fundur í nefndinni til að rannsaka stuðning Íslands við inn- rásina í Írak. Í bókuninni eru síðan talin upp ýmis gögn sem nefndin viðaði að sér vegna málsins, s.s. skýrslur frá bandaríska þinginu og breska þinginu. Auk þess hafi nefnd- in m.a. fengið lögfræðiálit Eiríks Tómassonar prófessors frá 23. jan- úar 2005. Í bókuninni segir einnig að málið hafi verið til ýtarlegrar umræðu á tilgreindum sex fundum nefndarinn- ar, á þessu og síðasta ári. Á þá fundi hafi jafnframt komið þeir gestir sem nefndarmenn óskuðu eftir. „Eftir gaumgæfilega skoðun á þeim gögnum sem fyrir liggja, um- ræðum í utanríkismálanefnd, um- ræðum á Alþingi og opinberum við- tölum við forsætisráðherra og utanríkisráðherra verður að telja að atvik málsins hafi verið leidd í ljós með fullnægjandi hætti,“ segir í bókun meirihlutans. „Þá liggur fyrir lögfræðiálit Eiríks Tómassonar pró- fessors sem staðfestir að ákvörðun sú sem hér um ræðir hafi verið tekin af þar til bærum stjórnvöldum, (þá- verandi forsætis- og utanríkisráð- herra, innsk. blaðamanns).“ Minnihlutinn ítrekar í bókun sinni, frá mars sl., hins vegar þá af- stöðu sína að þáverandi utanríkis- og forsætisráðherra hafi hvorki haft lagalega né þingræðislega og lýð- Sólveig Pétursdóttir, formaður utanríkismálanefndar, segir hins vegar að í tillögunni sé ekki ljóst með hvaða lagaheimild ætti að skipa slíka rannsóknarnefnd. „Þar fyrir utan er meirihlutinn þeirrar skoð- unar að ekki verði séð að slík rann- sóknarnefnd myndi bæta neinu við þá athugun sem utanríkismálanefnd hefur þegar unnið á undanförnum mánuðum,“ segir hún. Ekki sinnt skyldu sinni Í fyrrgreindri bókun meirihlutans er rifjað upp að Steingrímur J. Sig- fússon hafi farið þess á leit við for- MEIRIHLUTI utanríkismálanefnd- ar Alþingis telur að öll atvik Íraks- málsins, þ. á m. ákvörðun íslenskra stjórnvalda um að styðja innrásina í Írak í mars 2003, hafi verið leidd í ljós með fullnægjandi hætti. „Nið- urstaðan er því sú að um sé að ræða pólitíska ákvörðun sem tekin var af þar til bærum aðilum í samræmi við íslensk stjórnlög og telur formaður að málinu sé þar með lokið af hálfu nefndarinnar,“ segir í bókun meiri- hlutans frá því í lok febrúar. Minnihluti nefndarinnar vísar því hins vegar á bug að málinu sé lokið. Hann segir í bókun sinni að meiri- hlutinn sé þvert á móti að reyna að þagga málið niður og svæfa. „Þessi viðbrögð meirihlutans bera keim af því að það sé enn eitthvað óþægilegt í þessu máli, sem menn eru að reyna að fela,“ segir Steingrímur J. Sigfús- son, formaður Vinstrihreyfingarinn- ar – græns framboðs, og einn nefnd- armanna í utanríkismálanefnd. Steingrímur segist einnig ósáttur við þá ákvörðun meirihlutans að hafna því að afgreiða úr nefnd þingsályktunartillögu formanna stjórnarandstöðuflokkanna þriggja um m.a. að nefnd sjö þingmanna rannsaki aðdraganda þess að íslensk stjórnvöld lýstu yfir stuðningi við innrásina í Írak. Meirihluti utanríkismálanefndar Alþingis Telur að öll atvik Íraksmálsins hafi verið til lykta leidd Minnihlutinn telur að ekki séu öll kurl komin til grafar Eftir Örnu Schram arna@mbl.is Morgunblaðið/ÞÖK Meðal fulltrúa í utanríkismálanefnd eru Einar K. Guðfinnsson, Jónína Bjartmarz, Siv Friðleifsdóttir og Sólveig Pétursdóttir. KOSTNAÐUR við vísindaveið- ar á hrefnu nam samtals rúm- um 86 milljónum króna á árun- um 2003 og 2004 að því er kom fram í svari sjávarútvegsráð- herra, Árna M. Mathiesen, við fyrirspurn á Alþingi. Kostnaður Hafrannsókna- stofnunar var 20,7 milljónir króna árið 2003. Auk þess fékk Félag hrefnuveiðimanna greiddar 8,5 milljónir króna. Samtals var kostnaðurinn því 29,2 milljónir króna á árinu 2003. Kostnaður Hafró var 41,8 milljónir króna árið 2004. Auk þess fékk Félag hrefnuveiði- manna 15,1 milljón króna. Sam- tals var kostnaður því 56,9 milljónir króna árið 2004. Vísindaveiðar á hrefnu Kostuðu um 86 milljónir króna MANNANAFNANEFND hefur nokkrum sinnum fjallað um eig- innafnið Blæ (kvk.) eins og fram kom í Morgunblaðinu í gær. Í úr- skurði nefndarinnar í júní 1998, október 2001 og nú síðast í mars 2005 var því hafnað, og má því ekki nefna stúlku þessu nafni. Sam- kvæmt áliti mannanafnanefndar telst nafnið Blær vera karlmanns- nafn með vísan til 2. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn, en þar segir: „Stúlku skal gefa kvenmannsnafn og dreng skal gefa karlmannsnafn.“ Aðalheiður Jóhannsdóttir, for- maður mannanafnanefndar, segir að þau sjónarmið sem fram komu í frétt blaðsins í gær hafi komið til umræðu en álit nefndarinnar var að Blær væri karlmannsnafn, sem fyrr segir. Hún segir hins vegar ekki rétt að talsverður hópur karlmanna hafi Blæ sem millinafn, heldur sem 2. eiginnafn. Þarna sé um algengan misskilning að ræða en skv. lögum um mannanöfn er heimilt að gefa barni allt að þrjú eiginnöfn. Um millinöfn er sérstaklega fjallað í 6. gr. laganna og segir þar að heimilt sé að gefa barni eitt milli- nafn auk eiginnafns eða eiginnafna, en nöfn sem aðeins hafi unnið sér hefð sem annaðhvort eiginnöfn karla eða kvenna séu þó ekki heimil sem millinöfn. Í lögunum segir að millinafn skuli dregið af íslenskum orðstofnum eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli en megi þó ekki hafa nefnifallsend- ingu. Lesendur blaðsins höfðu samband í gær og sögðu að fleiri konur bæru Blær sem eiginnafn. Samkvæmt upplýsingum frá Friðriki Skúlasyni hjá Íslendingabók hafa 80 ein- staklingar borið eiginnafnið Blær á Íslandi, þar af 7 konur og 73 karlar. „Stúlku skal gefa kvenmannsnafn og dreng karl- mannsnafn“

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.