Morgunblaðið - 01.04.2005, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. APRÍL 2005 41
MINNINGAR
væri dáinn. Við vildum helst ekki
trúa því að þetta gæti verið satt.
Maður sem var í blóma lífsins og
naut þess að vera með fjölskyldu
sinni og vinum, tekinn út úr lífi okk-
ar allra, öllum að óvörum.
Við kynntumst Hákoni fyrir rúm-
um 20 árum sem bróður hennar
Guðrúnar og hann varð strax góður
vinur okkar. Hann var mjög oft hjá
Guðrúnu og Kalla þegar við komum
í heimsókn en þess á milli heyrði
maður af strákapörum hans.
Svo kynntist hann Rósu og þar
var kominn sálufélagi hans. Sam-
rýndari hjón hittir maður yfirleitt
ekki. Við fengum að njóta þess að
sjá sælureitinn sem þau voru að
koma sér upp í sveitinni fyrir austan
og setjast í „Rósulund“ og eiga þar
stund með þeim.
Það er mjög erfitt að hugsa til
þess að við eigum aldrei eftir að sjá
hann aftur, hvorki í sveitinni, í af-
mælum né öðrum uppákomum.
Hans rólega og yfirvegaða lund
og húmor gerði það að verkum að
það var alltaf þægilegt og ánægju-
legt að vera í návist hans og hann
átti það yfirleitt til að koma með svo
skemmtileg skot inn í umræður,
með sínu skemmtilega glotti. Hans
verður ætíð sárt saknað.
Elsku Rósa, Ingvar Andri og Val-
týr Már. Elsku Valli, Sísí og Guð-
rún, Inga og Anna María. Guð blessi
ykkur, veri með ykkur og gefi ykkur
styrk í sorg ykkar.
Sofðu vinur vært og rótt,
verndi þig Drottinn góður.
Dreymi þig vel á dimmri nótt
dýrð þíns Jesú bróður.
(Þorkell G. Sigurbjörnsson.)
Hafdís Inga, Þorvaldur,
Anna Rún og Karl Grétar.
Það er erfitt að lýsa tilfinningum
sínum þegar við fréttum að góður
vinur, hann Hákon, hafi orðið bráð-
kvaddur á föstudaginn langa.
Hvernig getur verið, að á einni svip-
stundu sé þessi glaðværi og síbros-
andi ungi maður í blóma lífsins, far-
inn frá okkur? Af hverju hann? Af
hverju er lífið svona ósanngjarnt?
Þessar og margar fleiri spurningar
vakna sem enginn getur svarað
nema sá sem öllu ræður.
Hugurinn reikar aftur í tímann til
þeirra góðu stunda sem við áttum
með Hákoni, Rósu og drengjunum.
Fyrir aðeins hálfum mánuði áttum
við góða kvöldstund hjá þeim
hjónum, þar sem Hákon bar fram
hvern veisluréttinn á fætur öðrum.
„Skál og velkomin!“ Þetta var kvöld
í yndislegum félagsskap sem
gleymist aldrei. Við kvöddumst með
kossi, þéttu handabandi og orðun-
um: „Takk fyrir kvöldið og allt.“
Hver minning dýrmæt perla að liðnum
lífsins degi,
hin ljúfu og góðu kynni af alhug
þakka hér.
Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem
gleymist eigi,
og gæfa var það öllum, er fengu að
kynnast þér.
(Ingibj. Sig.)
Við kveðjum góðan dreng með
sárum söknuði og fallegum minning-
um sem aldrei dofna.
Elsku Rósa, Ingvar Andri og Val-
týr Már, megi Guð gefa ykkur styrk
í sorginni.
Soffía, Eiður, Ívar og Unnur.
Í dimmum skugga af löngu liðnum vetri
mitt ljóð til þín var árum saman grafið.
Svo ungur varstu, er hvarfstu út á hafið,
hugljúfur, glæstur, öllum drengjum betri.
Og því varð allt svo hljótt við helfregn
þína,
sem hefði klökkur gígjustrengur brostið.
Og enn ég veit margt hjarta, harmi lostið,
sem hugsar til þín alla daga sína.
En meðan árin þreyta hjörtu hinna,
sem horfðu eftir þér í sárum trega,
þá blómgast enn, og blómgast ævinlega,
þitt bjarta vor í hugum vina þinna.
Og skín ei ljúfast ævi þeirri yfir,
sem ung á morgni lífsins staðar nemur,
og eilíflega óháð því, sem kemur,
í æsku sinnar tignu fegurð lifir?
Sem sjálfur Drottinn mildum lófa lyki
um lífsins perlu í gullnu augnabliki –
(Tómas Guðm.)
Elsku Rósa, Ingvar Andri, Valtýr
Már, foreldrar og aðrir ástvinir.
Megi góður Guð vaka yfir ykkur og
gefa ykkur styrk á þessum erfiðu
tímum. Blessuð sé minning Há-
konar.
Guð geymi ykkur.
Ykkar vinir
Valgerður, Ingi,
Tómas og Magni.
Kveðja frá
sumarbústaðagenginu
Sú harmafregn barst okkur sl.
laugardagsmorgun að hann Hákon
vinur okkar væri látinn. Fyrir um
það bil mánuði vorum við vinahóp-
urinn í matarboði hjá þeim Hákoni
og Rósu í Safamýrinni. Ekki óraði
okkur fyrir því að þetta væri í síð-
asta sinn sem við hittumst öll sam-
an. Stórt skarð hefur verið höggvið í
hópinn okkar, alltof snemma. Hákon
fallinn frá í blóma lífsins, okkur sem
fannst hann hraustasti maðurinn í
hópnum. Hann sem alltaf var svo
hress, mikið fyrir útiveru ásamt því
að stunda göngur og lifa heilbrigðu
lífi. Hákon hafði fengið krabbamein
en sigrast á því.
Þessi vinahópur myndaðist í Bún-
aðarbankanum þar sem við konurn-
ar unnum allar á sínum tíma. Hóp-
urinn samanstendur af fimm
hjónum sem höfum haft það fyrir
reglu í næstum 20 ár að fara saman í
sumarbústað, halda matarboð, á
tónleika og farið til útlanda. Margt
hefur verið gert á þessum árum og
ýmislegt brallað.
Betri félaga en Hákon hefðum við
ekki getað óskað okkur. Hann var
skoðanafastur og færði rök fyrir
skoðunum sínum, glettinn og stutt í
húmorinn þótt yfirbragðið væri al-
varlegt oft á tíðum. Barngóður var
hann svo eftir var tekið. Alltaf var
hægt að leita til hans með bílavanda-
málin því hann var lærður bifvéla-
virki og rak eigið verkstæði í Kópa-
vogi. Hann var alltaf tilbúinn að
bæta á sig tímum til að bjarga hlut-
unum. Það hefur eflaust oft bitnað á
fjölskyldunni.
Hákon og Rósa voru að koma sér
upp sælureit á bökkum Ytri-Rangár,
þar voru þau byrjuð að gróðursetja
plöntur. Þar stóð til að byggja sum-
arbústað og stóð hugur Hákons að
setja allan sinn kraft í þá fram-
kvæmd í sumar. Við hittumst þar öll
saman eina helgi í júlí síðastliðið
sumar og áttum þar góða helgi í
yndislegu verðri.
Við hópurinn viljum senda Rósu,
Ingvari Andra og Valtý Má okkar
innilegustu samúðarkveðjur. Megi
Guð styrkja ykkur í þessari miklu
sorg. Blessuð sé minning góðs
drengs.
Anna og Kári,
Guðbjörg og Ragnar,
Jóhanna og Eggert,
Sigríður og Sæmundur.
Elsku Hákon. Við kynntumst þér
á okkar yngri árum, í ferðalögum
með ,,Sumarbústaðagenginu“, sem
mamma og pabbi eru félagar í. Þess-
ar ferðir voru hápunktur sumarsins,
tilhlökkunarefni alla hina daga árs-
ins. Á hverju sumri fór gengið eitt-
hvert út á land til þess að vera sam-
an og viðhalda góðum vinskap.
Stemmningin hjá ykkur fullorðna
fólkinu og öllum börnunum ykkar er
ógleymanleg. Það er svo gaman að
rifja upp gönguferðirnar, boltaleik-
ina og spilamennskuna sem átti sér
stað á daginn. Þegar kvölda tók vild-
uð þið foreldrarnir vaka lengur en
við börnin. Þá lágum við í kojunum
okkar og hlustuðum á hlátrasköll
ykkar vinahópsins. Í augum okkar
allra hlaut þetta að vera besti vina-
hópur í heimi og vonuðumst við til
að verða í framtíðinni þess aðnjót-
andi að eignast vinahóp þínum lík-
um. Sjaldséður er jafntraustur hóp-
ur vina.
Meðlimir gengisins eiga hver og
einn sinn loga sem lýsir í bálinu sem
stendur fyrir vinahópinn. Logi þinn,
Hákon, mun halda áfram að lýsa í
góðum og elskuðum minningum. Við
vitum að þú hefur það gott, því góðir
menn eiga góðan stað hjá Guði.
Háa skilur hnetti
himingeimur,
blað skilur bakka og egg;
en anda sem unnast
fær aldregi
eilífð að skilið.
(Jónas Hallgr.)
Hákon, þú átt góða vini, sem
munu minnast þín að eilífu.
Guð gefi Rósu, Yngvari Andra,
Valtý Má, fjölskyldu Hákonar og
vinum styrk.
Ragna Björg og Ingólfur.
Okkur finnst svo stutt síðan við,
vinnufélagar Rósu, vorum boðin í 40
ára sameiginlegt afmælisboð þeirra
hjóna, Hákons og Rósu. Við höfðum
séð Hákon við ýmis tækifæri áður
en í veislunni gafst gott tækifæri til
að heyra í gegnum ræður, spjall, og
söng hvaða mann hann hafði að
geyma.
Borð voru skreytt skífum, boltum
og róm auk annars og rætt um bíla-
viðgerðir, fjallaferðir og fjölbreyti-
lega bílaeign þeirra hjóna, ferðir og
drauma um sumarbústað nálægt
Hellu og loks tóku þau sporið.
Það var hlegið, sungið og spjallað
og ljóst að þau hjón voru góðir fé-
lagar auk þess að vera hamingju-
samt par.
Hákon kom fyrir sem hlédrægur
og hæglátur, brosið íbyggið. Stutt
var í gamansemina og kímin tilsvör.
Síðast hittumst við öll í febrúar á
árshátíð norður á Akureyri og þá
var hann eins og hann átti að sér að
vera, við eigum bara um hann góðar
minningar. Minningar um sterkan
mann í blóma lífsins og það er erfitt
að skilja að hann sé farinn.
Við sendum Rósu og strákunum
okkar allra bestu samúðarkveðjur.
Þeirra missir er mikill, en minning
um góðan dreng lifir.
Samstarfsfólk í Lagalind ehf.
REYNSLA • UMHYGGJA • TRAUST
Þegar andlát ber að höndum
Önnumst alla þætti útfararinnar
ÚTFARARSTOFA
KIRKJUGARÐANNA
Vesturhlíð 2 • Fossvogi • Sími 551 1266 • www.utfor.is
Innilegar þakkir færum við öllum sem sýndu
okkur hlýhug og vinsemd við andlát og útför
móður okkar, tengdamóður, ömmu, langömmu
og langalangömmu,
GUÐMUNDU JÓHANNSDÓTTUR,
Hlíf 2,
Ísafirði.
Sérstakar þakkir til lækna og starfsfólks Fjórð-
ungssjúkrahússins á Ísafirði og til sambýlisfólksins á Hlíf.
Theódóra Kristjánsdóttir, Elías Ingimarsson,
Ólöf Friðgerður Kristjánsdóttir, Kristján Friðrik Björnsson,
Páll Kristjánsson, Sigríður Sveinsdóttir,
Ósk Sigurborg Kristjánsdóttir,
Guðmundur Þór Kristjánsson, Elenborg Helgadóttir,
Kristján Eyjólfur Kristjánsson, Lára Leifsdóttir,
ömmubörn, langömmubörn
og langalangömmubörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og
amma,
ERNA SIGURÐARDÓTTIR,
Sjávargrund 6a,
Garðabæ,
lést á Landspítalanum við Hringbraut
miðvikudaginn 30. mars.
Hún verður jarðsungin frá Fossvogskirkju
mánudaginn 4. apríl kl. 11.00.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim, sem vilja minnast
hennar, er bent á krabbameinsdeild 11E Landspítala við Hringbraut eða
CP félagið, www.cp.is.
Jón Ívarsson,
Ívar Þór Jónsson, Þóra Sigríður Karlsdóttir,
Eva Rut Jónsdóttir,
Ómar Örn Jónsson, Elfa Dögg S. Leifsdóttir
og ömmubörn.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og bróðir,
ARNAR ÖNFJÖRÐ BJÖRGVINSSON,
Skúlagötu 68,
Reykjavík,
lést á líknardeild Kópavogs sunnudaginn
20. mars.
Útförin fór fram frá Dómkirkjunni í kyrrþey
fimmtudaginn 31. mars.
Okkar innilegustu þakkir færum við læknum
og hjúkrunarfólki á deild 11E Landspítala Hringbraut, hjúkrunarþjónustu
Karitasar og líknardeildarinnar í Kópavogi.
Björgvin Arnarsson,
Kristbjörg Arnarsdóttir,
Sigrún Önfjörð Arnarsdóttir, Benedikt Bogason,
Arnar Jóhann Arnarsson, Kristín Guðbjörnsdóttir,
Jón Arnarsson, Hulda Magnúsdóttir
og afabörn,
Jón Elvar Björgvinsson,
Guðbjörg Björgvinsdóttir,
Ágúst Björgvinsson.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
HÁKON BJARNASON,
lést á gjörgæsludeild Landspítala Hringbraut
miðvikudaginn 30. mars.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Matthildur Sigurðardóttir,
Bjarni Hákonarson,
Hörður Hákonarson, Margrét A. Frederiksen,
Sigurður Jónsson,
Hákon Helgi Bjarnason,
Helga Björt Bjarnadóttir,
Elín Björg Harðardóttir, Jón Þór Ólason,
Auður Sigurðardóttir,
Atli Sigurðsson,
Tryggvi Garðar Jónsson.