Morgunblaðið - 06.04.2005, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 91. TBL. 93. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 6. APRÍL 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
Sviðaveisla
stjarnanna
Hollywood-stjörnur borðuðu svið
og hákarl í boði Eyþórs | 42
Úr verinu | Birgðir af saltfiski Gífurlegur niðurskurður Líf og fjör í
Grindavík Soðningin Íþróttir | Skorar Eiður hjá Kahn? Mourinho
ekki á Stamford Bridge Ítalir sáttir Úrslit DHL-deildarinnar
Úr verinu og Íþróttir í dag
London. AP, AFP. | Ekki verður sagt um þau
skötuhjúin Karl og Kamillu, að lánið hafi
elt þau á röndum. Þau hafa orðið fyrir
hverju óhappinu öðru neyðarlegra og nú
er það orðið að sérstöku veðmálaefni í
Bretlandi hvað hendi þau næst.
„Sjálf hjónavígslan virðist vera að
breytast í einhvern grátbroslegan gam-
anleik og þess vegna datt okkur í hug að
leyfa fólki að veðja um hvað komi næst
upp á,“ sagði veðmangarinn Graham
Sharpe og minnti á, að fyrst hefði Elísabet
drottning ákveðið að vera ekki við gift-
ingu sonar síns og síðan hefði orðið að
hætta við að láta hjónavígsluna fara fram í
Windsor-kastala. Þriðja áfallið var andlát
páfa en vegna þess var athöfninni frestað
fram á laugardag.
Hjá veðmálafyrirtæki Sharpes eru lík-
urnar á því, að Kamilla sé búin að fá nóg af
klúðrinu og mæti ekki í giftinguna 1 á
móti 33. Fyrir Karl eru hlutföllin 1 á móti
40 og líkurnar á því að Vilhjálmur Karls-
son prins missi hringana eru 1 á móti 25.
Ýmislegt annað getur að sjálfsögðu
komið fyrir en líkurnar á blindbyl eða
stórflóði eru þó ekki meiri en 1 á móti 100.
Enn ólíklegra þykir, en þó kannski ekki
útilokað, að geimverur lendi í Windsor á
laugardaginn. Þar eru hlutföllin 1 á móti
10.000.
Reuters
Karl prins og Kamilla er þau komu til
minningarathafnar um páfann í gær.
Veðjað
um Karl
og Kamillu
BLINDBYLUR var á vestan-
verðu landinu í gær og voru
björgunarsveitir kallaðar út til
að aðstoða vegfarendur sem
lentu í vandræðum vegna mik-
illar ofankomu og skafrennings,
en meðalvindhraði var víða yfir
20 metrar á sekúndu og upp
undir 40 metrar í hviðum. Veg-
urinn undir Hafnarfjall var lok-
aður um tíma og illfært um
Hellisheiði, auk þess sem þung-
fært var orðið í uppsveitum Ár-
nessýslu í gærkvöldi.
Veðurstofan spáir að hvasst
verði fram eftir degi í dag og
frost um allt land, 3–10 gráður,
og verður kaldast norðanlands.
Á morgun hlýnar aftur og um
helgina er spáð lægðagangi og
umhleypingasömu veðri.
Morgunblaðið/ÞÖK
Gengið niður Laugaveg í gær. Það verður hvasst fram eftir degi í dag og frost um allt land, 3–10 gráður.
Frost um
allt land
Blindbylur á vestanverðu landinu olli erfiðleikum í umferðinni í gær
BÚIST er við, að allt að tvær milljónir Pól-
verja fari til Rómar vegna útfarar Jóhannesar
Páls II páfa á föstudag. Kom þetta fram í
könnun, sem yfirvöld í Póllandi hafa gert.
Áætlun yfirvalda er byggð á óformlegri at-
hugun hjá pólskum ferðaskrifstofum en auk
þess hefur mikið verið að gera í kirkjusóknum
um landið allt við að útvega langferðabíla. Hef-
ur lestar- og flugferðum til Ítalíu verið fjölgað
eins og unnt er og ferðaskrifstofur í nágranna-
ríkjunum hafa líka hlaupið undir bagga.
„Utanríkisráðuneytið telur, að meira en
milljón manns, jafnvel tvær, muni fara til
Rómar,“ sagði Aleksander Checko, talsmaður
ráðuneytisins, í gær en lagði þó áherslu á, að
um væri að ræða áætlun.
Áður hefur komið fram í fréttum, að búist sé
við allt að tveimur milljónum gesta í Róm
vegna útfararinnar og hafa borgaryfirvöld í
hyggju að koma upp tjaldbúðum til að hýsa
vissulega við þessi sérstaka stemning, sem er
út af útför páfans,“ sagði Gísli en að hans sögn
er andrúmsloftið mjög ljúft þrátt fyrir und-
angengna atburði.
Páfa minnst í Varsjá
„Það var á þessu torgi 2. júní 1979, sem allt
hófst með þessum eftirminnilegu orðum páfa:
„Megi andinn koma yfir okkur og endurnýja
ásýnd þessa lands,““ sagði Jozef Glemp, kard-
ináli og yfirmaður kaþólsku kirkjunnar í Pól-
landi, þegar hann minntist Jóhannesar Páls II
páfa í messu á Pilsudski-torgi í Varsjá í gær. Á
borða, sem fólkið bar, stóðu orðin „Við erum
ekki hrædd“ en þau lét páfi falla í sinni fyrstu
heimsókn til föðurlandsins eftir að hann tók
við embætti. Þá var Pólland enn undir hæl
kommúnista.
fólkið enda öll hótel upppöntuð. Ef Pólverjar
einir ætla að fara langt með að fylla þessa tölu,
er ljóst að grípa verður til róttækra ráða.
„Fáum þetta beint í æð“
Gísli Gunnarsson, sóknarprestur í
Glaumbæ, er nú staddur í Róm ásamt nokkr-
um prestum og mökum þeirra úr Skagafirði.
Eru þeir prestarnir í námsferð um rætur
kirkjunnar, sem hafði verið löngu ákveðin.
„Við fáum þetta beint í æð og förum á alla
þessa staði og upplifum þetta. Svo bætist
Tvær milljónir Pólverja til Rómar?
Vilja taka/15 Milljónir/4
Reuters
Um 200.000 manns að minnsta kosti voru við
messuna á Pilsudski-torgi í Varsjá í gær.
Sérstök stemning segir
Gísli Gunnarsson,
prestur í Glaumbæ,
sem staddur er í Róm
allt er meira eða minna ónýtt nema munir sem
voru í herbergjum sem voru lokuð.
Beint fyrir ofan íbúð Kristins býr Guðlaug
Dröfn Ólafsdóttir söngkona og verðandi móðir.
Eiginmaður hennar, Vignir Þór Stefánsson,
varð fyrst var við eldinn þegar reykjarlykt barst
inn í íbúðina og hann heyrði hróp og köll frá
HEPPNI réði því að ekki varð banaslys þegar
gaskútur sprakk við íbúðarhús við Rósarima í
gærmorgun, í þann mund sem tveir reykkafarar
þustu að húsinu. Sprengingin var feykiöflug og
þeyttust brot úr kútnum af miklu afli frá húsinu.
Sjö manns voru fluttir á slysadeild eftir brun-
ann, fjórir fullorðnir og þrjú börn. Þar af voru
tvær barnshafandi konur sem báðar voru í
miðju atburðarásarinnar.
Tengdadóttir Kristins Halldórssonar var
heima hjá tengdaforeldrum sínum að Rósarima
1 með tvo unga drengi þegar eldur kviknaði út
frá eldavélinni. Í samtali við Morgunblaðið sagði
Kristinn að hún hefði reynt að slökkva eldinn.
„Þegar það gekk ekki hljóp hún út með guttana.
Stuttu síðar er eins og verði eldsprenging inni í
eldhúsinu,“ sagði hann. Tengdadóttir hans er
barnshafandi og komin langt á leið. Hún
brenndist á fingri en að öðru leyti amar ekkert
að henni eða drengjunum tveimur.
Gríðarlegar skemmdir urðu á íbúð Kristins,
íbúa á neðri hæð. Eldurinn magnaðist hratt og
þegar þau fóru út á stigapall mætti þeim kol-
svartur reykjarmökkur. Guðlaug Dröfn byrjaði
á því að vara nágranna sinn á sömu hæð við,
Maríu Þórunni Helgadóttur, sem var í íbúð
sinni með fimm daga gamla dóttur sína og voru
þær lagðar af stað niður þegar lögreglumaður
kom þeim til aðstoðar. Í samtali við Morgun-
blaðið sagði María að ekkert amaði að þeim
mæðgum.
Guðlaug sagði að eldurinn hefði breiðst hratt
út en það hefði ekki verið fyrr en hún var komin
frá húsinu sem hún hefði gert sér grein fyrir
hversu litlu mátti muna að verr færi. „Þegar
maður sá allt utan á húsinu alelda kom sjokkið
og svo þegar sprenging varð komst maður í
hálfgerða geðshræringu,“ sagði hún. Guðlaug
Dröfn, sem er gengin með tæplega sjö mánuði,
fór í ítarlega læknisskoðun og var gengið úr
skugga um að allt væri í lagi með barnið sem
hún ber undir belti.
Tvær barnshafandi konur voru í hættu í eldsvoða í Rósarima
Hljóp út með tvo drengi
Morgunblaðið/Júlíus
Reykkafararnir Guðmundur Guðjónsson og
Ari Jóhannes voru heppnir að þetta brot úr
gaskútnum lenti ekki á þeim.
Eftir Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
Bruni í Rósarima/6