Morgunblaðið - 06.04.2005, Blaðsíða 44
TRYLLINGUR og spilling var yfirskrift tónleika sem haldnir
voru í Klink og Bank sl. laugardagskvöld, en þá léku sex
hljómsveitir sem að mestu eða öllu leyti voru skipaðar konum;
Lazy Housewives, Viðurstyggð, Donna Mess, Brite Light,
Mammút og Brúðarbandið. Hljómsveitirnar eru mislangt
komnar á þróunarbrautinni, Brúðarbandið hefur þannig þeg-
ar sent frá sér breiðskífu, Mammút, sem sigraði í Músíktil-
raunum 2004, tekur plötu upp í sumar, Brite Light hefur til
sölu heimabrenndan disk, en hinar sveitirnar hafa ekkert gef-
ið út enn.
Mæting á tónleikana var prýðileg og skemmtu áheyrendur
sér greinilega hið besta. Mest var hrifning yfir leik Mammúts,
en öllum var vel tekið.
Trylltar
og spilltar
stelpur
Viðurstyggð
Lacy HousewivesDonna Mezz
Brúðarbandið
Brite Light
44 MIÐVIKUDAGUR 6. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Með tónlist eftir Sigur Rós!
Bráðfyndin gamanmynd frá Wes
Anderson, framleiðenda Royal
Tenenbaums með Bill Murray, Owen
Wilson, Cate Blanchett og Anjelicu
Huston í aðalhlutverkum.
i
, l i l
ill ,
il , l j li
í l l .
The Life and Death
of Peter Sellers kl. 5.30 - 8 og 10.30
Mrs. Congeniality 2 kl. 5.40 - 8 og 10.20
Life Aquatic kl. 5.30 - 8 og 10.30 b.i. 12
in a new comedy by
Wes ANDERSON
DV
HJ. MBL
Sandra Bullock mætt aftur
vopnuð og glæsileg
í frábæru framhaldi sem er
drekkhlaðin af spennu og gríni!
Hlaut 2
Golden Globe verðlaun
sem besta
gamanmynd ársins.
Geoffrey Rush
sem besti leikari.
Gerið ykkur klár... ... fyrir pelann!
Óskarsverðlaunahafinn, Geoffrey Rush er frábær sem
Peter Sellers en myndin fjallar um feril og stormasamt
einkalíf eins besta gamanleikara heims.
en m
Phantom of the Opera kl. 8 b.i. 10
Les Choristes (Kórinn) kl. 6
Million Dollar Baby (4 Óskarsv.) kl. 5.30 - 8 og 10.30 b.i. 14
Ray (2 Óskarsv.) kl. 10,30 b.i. 12
Hlaut 2
Golden G
sem best
gamanm
Geoffrey
sem best
Bráðfjörug, spennandi og
sprenghlægileg gamanmynd
með ofurtöffaranum Vin
Diesel í aðalhlutverki!
Kvikmyndir.is
HÉR fer skólabókardæmi um það
að kvikmynd stendur og fellur með
handritinu. Ef sagan, framvindan
og samtölin eru í ólagi þá mengar
það út frá sér eins og versta
krabbamein sem leggst á alla aðra
þætti kvikmyndagerðarinnar, leik-
stjórn sem leikframmistöðu, og
gengur af myndinni dauðri.
Meiningin er góð. Grunninntakið
einnig. Saga af ungum 12 ára
dreng sem flýr þrælkunarbúðir
andófsmanna í Búlgaríu komm-
únismans árið 1952 og þarf að
koma sér á einn eða annan hátt til
Danmerkur, án þess að hann viti
beint ástæðuna fyrir nákvæmlega
þeim áningar-
staðnum. En
strax á fyrstu
metrunum fara
hin illkynja ein-
kenni að koma í
ljós í handritinu.
Stráksa gengur
nánast allt í hag-
inn, flýr fanga-
búðir og yfir þaulvöktuð landa-
mærin eins og ekkert sé
auðveldara, skutlar sér um borð í
næsta skip og getur hæglega gert
sig skiljanlegan við ítalskan háseta
sem hjálpar honum, líkt og allir
aðrir sem verða á vegi hans. Hvort
sem er á Ítalíu eða í Sviss leikur
lánið við hann, hann virðist vera á
réttum tíma á réttum stað, hittir
fólk sem skilur hann fullkomlega,
spyr engra spurning en vill samt
allt fyrir hann gera. Þvílíkt lán í
óláni.
Lán í óláni
KVIKMYNDIR
Myndbönd
Leikstjórn og handrit Paul Feig, byggt á
skáldsögu eftir Anne Holm. Aðalhlutverk
Ben Tibber, James Caviezel, Joan Plow-
right. Bandaríkin 2004. Sam-myndir
VHS. Bönnuð innan 12 ára.
Ég er Davíð (I Am David) Skarphéðinn Guðmundsson
hamingjusömu hjónabandi þá verður
að veita því fulla athygli. Ef þú vilt
vera sjálfstæð, gott og vel. En það er
ekki hægt að fá allt.“
Heilluð af Hugh Grant
Bacall virðist gefnari fyrir karlpen-
inginn. Í það minnsta fer hún fegurri
orðum um karlleikarana. Uppáhalds-
leikara sinn segir hún vera Bretann
Michael Gambon, sem hún lýsir sem
„svívirðilegum og stórkostlegum“.
Hún segir einnig hinn unga Jude Law
góðan og að hann hafi nægan tíma til
að sanna sig og verða ennþá betri.
Hins vegar viðurkennir hún að hún
sé „brjáluð í“ breska leikarann Hugh
Grant. Hún lýsir leikaranum úr Four
Weddings and a Funeral og Notting
Hill sem „sjarmerandi og einstaklega
myndarlegum“.
En ekki gefur hún mikið fyrir leik-
hæfileika hans, nokkuð sem þó komi
ekki að sök. „Hann er ekki frábær
leikari – en hann þarf heldur ekki að
vera það.“
KVIKMYNDAGOÐSÖGIN Lauren
Bacall hefur gagnrýnt kvikmynda-
leikkonur samtímans og segir þær
hafa „takmarkaða hæfileika“ og þær
hugsi bara um frægð og frama og
fórni fyrir það öllum öðrum lífsins
gildum. Í ofanálag séu þær „alltof
horaðar“ og allar eins í útliti. Þetta
segir Bacall í viðtali við breska tíma-
ritið Radio Times en þessi áttræða
leikkona hefur leikið í 55 kvikmynd-
um síðan hún kom fram í sinni fyrstu
mynd árið 1945.
„Ég á voðalega erfitt með að gera
greinarmun á leikkonum í dag. Þær
eru allar með hárið eins og eru alltof
horaðar,“ segir hún. „Sem mér finnst
ekkert sérlega kvenlegt.“
Bacall var gift Humphrey Bogart í
12 ár, eða þar til hann lést úr krabba-
meini.
Hún segist hafa tekið hjónaböndin
sín tvö framyfir leikframann og það
hefði vissulega komið niður á honum.
„Ég sé samt ekki eftir því. Þetta er
spurning um val. Vilji maður vera í
Horaðar og hæfileikalitlar
Reuters
Í fyrra komst það í fréttirnar er
Bacall sagði meðleikkonu sína í Birth,
Nicole Kidman, ofmetna og að ótíma-
bært væri að kalla hana goðsögn.
Kvikmyndir | Lauren Bacall harðorð í garð yngri leikkvenna