Morgunblaðið - 06.04.2005, Side 2
2 MIÐVIKUDAGUR 6. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
MILLJÓNIR TIL RÓMAR
Búist er við, að allt að tvær millj-
ónir Pólverja muni fara til Rómar til
að vera við útför Jóhannesar Páls II
páfa. Kom það fram við athugun
pólskra yfirvalda en í kirkjusóknum
um allt landið er verið að útvega
langferðabifreiðar til ferðarinnar.
Þá hefur lestar- og flugferðum verið
fjölgað og anna þær þó hvergi eft-
irspurninni. Páfa var minnst við úti-
messu á Pilsudski-torgi í Varsjá í
gær og voru við hana að minnsta
kosti 200.000 manns. Gísli Gunn-
arsson, prestur í Glaumbæ, er nú í
Róm í námsferð ásamt fleiri prest-
um í Skagafirði. Segir hann að þeir
hafi upplifað þá sérstöku stemningu,
sem nú er í borginni, en andrúms-
loftið sé samt mjög ljúft.
Heimilissímagjöld hækka
Kostnaður vegna heimilissíma
hefur hækkað um 17% á síðustu
þremur árum. Ýmis sérþjónusta
símafyrirtækja hefur einnig hækkað
umtalsvert, eða um 14,4%. Farsíma-
þjónusta hefur hins vegar lækkað
lítillega á sama tímabili eða innan við
1%. Hlutdeild símakostnaðar í heild-
arútgjöldum vísitölufjölskyldunnar
hefur aukist úr 0,9% í 2,8%.
Eldsvoði í Grafarvogi
Mikill eldsvoði varð í íbúðarhúsi
við Rósarima í gærmorgun. Slökkvi-
liðsmenn lentu í lífsháska í öflugri
gassprengingu og sjö manns í hús-
inu voru fluttir á slysadeild. Litlu
mátti muna að illa færi þegar
sprengjutætlur flugu í allar áttir.
Haltur leiðir blindan
Guðbrandur Einarsson, nuddari,
kennari og bóndi, sem er nær blind-
ur, og Bjarki Birgisson, sundþjálfari
og afreksmaður í sundi, sem er
hreyfihamlaður, ætla að ganga í
kringum landið, frá 20. júní til 5.
ágúst í sumar, til að vekja athygli á
málefnum sem eru þeim hugleikin.
Y f i r l i t
Í dag
Sigmund 8 Forystugrein 24
Fréttaskýring 8 Viðhorf 26
Viðskipti 16 Bréf 39
Erlent 14/15 Minningar 30/32
Minn staður 16 Myndasögur 36
Höfuðborgin 17 Dagbók 36/39
Akureyri 18 Staður og stund 38
Suðurnes 19 Leikhús 40
Landið 19 Bíó 42/45
Daglegt líf 20/21 Ljósvakamiðlar 46
Menning 22 Veður 47
Umræðan 23/29 Staksteinar 47
* * *
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi,
orri@mbl.is Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkju-
starf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
!
"
#
$
%&' (
)***
BLINDBYL gerði á vestanverðu
landinu í gær og þurfti að kalla út
björgunarsveitir og lögreglu til þess
að aðstoða vegfarendur sem lentu í
vandræðum, auk þess sem talsvert
var um umferðaróhöpp. „Sann-
kallað páskahret og það af verri
sortinni,“ eins og einn viðmælandi
Morgunblaðsins orðaði það.
Veðrið var lítið fara að ganga nið-
ur seint í gærkvöldi, en hafði þá
fært sig suður og austur á bóginn.
Mikil ofankoma var um vestanvert
landið, en var eitthvað í rénun í
gærkvöldi. Áfram var gert ráð fyrir
hvassviðri í nótt og fram eftir degi
áður en veður gengur niður með
talsverðu frosti um allt land.
Lokað undir Hafnarfjalli
Vegurinn undir Hafnarfjalli var
lokaður í gærkvöldi vegna ófærðar.
Þá var mjög hvasst þar og á Kjal-
arnesi. Meðalvindhraði var yfir 20
metrar á sekúndu og fór yfir 40
metra í hviðum, auk mikillar of-
ankomu. Voru björgunarsveitir
kallaðar út frá Borgarnesi og Akra-
nesi til að aðstoða fólk í vandræðum
vegna ófærðarinnar, en vonir stóðu
til að hægt yrði að opna veginn und-
ir Hafnarfjall er líða tæki á kvöldið.
Slæmt veður var á sunnanverðu
Snæfellsnesi í gær og í gærkvöldi
og mjög blint vegna skafrennings.
Níu bílar fór út af veginum milli
Vegamóta og Heydalsvegar vegna
veðursins. Þá urðu tveir árekstrar
einnig á svæðinu og nokkur slys á
fólki.
Hellisheiði var lokað í gærkvöldi
vegna ofankomu og skafrennings og
þungfært var orðið í uppsveitum
Árnessýslu. Björgunarsveitin í
Hveragerði aðstoðaði fólk sem hafði
fest bíla sína á Hellisheiði.
Veðurstofan spáir 3–10 gráðu
frosti í dag og verður kaldast norð-
anlands. Á morgun hlýnar aftur og
um helgina er spáð lægðagangi og
umhleypingasömu veðri.
Síðbúið páskahret
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Eftir Hjálmar Jónsson
hjalmar@mbl.is
TVEIR fjöldaárekstrar urðu á
hringveginum í gær en ekki urðu
alvarleg slys á fólki. Í Kollafirði
varð þriggja bíla árekstur og í
Kömbunum fimm bíla árekstur.
Þrátt fyrir að fólk hafi sloppið án
alvarlegra meiðsla varð mikið
eignatjón.
Lenti á lögreglubíl
Í Kömbunum voru tildrög
þannig að þrír bílar höfðu lent í
minniháttar árekstri og var lög-
reglan að störfum á vettvangi. Í
þann mund kom stór flutningabíll
með tengivagn sem rann stjórn-
laust niður brekkuna og skall á
lögreglubílnum. Innanborðs voru
þrír ökumenn og ein lög-
reglukona og voru þau öll flutt á
sjúkrahúsið á Selfossi. Mikil
hálka og vont færi var á þessum
slóðum í gær.
Hvetur lögreglan ökumenn
stórra bíla til að setja keðjur á
ökutæki sín við þessar erfiðu að-
stæður.
Fjölda-
árekstrar
á hringveg-
inum
Morgunblaðið/Júlíus
LÖGREGLAN í Hafnarfirði lýsir eft-
ir Áslaugu Eddu Bergsdóttur en
ekki er vitað um ferðir hennar síðan
að kvöldi laugar-
dagsins 2. apríl sl.
Hún sást síðast
við heimili sitt í
Hvammahverfi í
Hafnarfirði. Ás-
laug Edda er 54
ára gömul. Hún
er 170 sentimetr-
ar á hæð, þétt-
vaxin, með stutt
skollitað hár.
Hún notar gleraugu. Ekki liggja fyr-
ir upplýsingar um hvernig hún var
klædd þegar hún sást síðast. Lög-
reglan í Hafnarfirði biður þá sem
hafa upplýsingar um ferðir hennar
að hafa samband í síma 525 3300.
Lýst eftir konu
Áslaug Bergsdóttir
LEIT að Brasilíumanninum Ric-
ardo Correia Dantas sem hefur ver-
ið saknað frá því á laugardag hefur
ekki borið árangur þrátt fyrir víð-
tæka og ítarlega leit björg-
unarsveita af Suðurlandi og af höf-
uðborgarsvæðinu. Í gær voru 150
björgunarsveit-
armenn við leit
og var m.a. kafað
í Stokkseyr-
arhöfn. Þegar
mest var munu
um 180 manns
hafa verið við leit
í einu.
Í fréttatilkynn-
ingu frá Ólafi
Helga Kjart-
anssyni, sýslu-
manni á Selfossi, segir að björg-
unarsveitir Landsbjargar hafi
leitað mjög vel á Stokkseyri og í ná-
grenni, en sem fyrr segir án árang-
urs. Þykir því ekki fært að halda
leit áfram nema nýjar ábendingar
eða upplýsingar komi fram.
Lögregla biður alla sem kunna að
hafa orðið Ricardo Correia Dantas
varir að láta vita í síma lögregl-
unnar á Selfossi, 480 1010. Allar
upplýsingar eru vel þegnar, eink-
um ef fólk telur sig hafa séð hinn
týnda eða telur sig hafa vitneskju
eða grun um hugsanlegan dval-
arstað.
Þrátt fyrir að formlegri leit hafi
nú verið hætt mun lögregla áfram
grennslast fyrir um afdrif Ricardo
og fylgjast með því svæði sem leitað
hefur verið og athuga allar ábend-
ingar.
Lögreglan á Selfossi þakkar öllu
því fjölmarga björgunarfólki sem
að leitinni kom.
Leit að Ricardo
Dantas hætt
Ricardo Correia
Dantas
HALLDÓR Ásgrímsson forsætis-
ráðherra verður viðstaddur útför
Jóhannesar Páls páfa annars sem
fram fer í Róm föstudaginn 8. apríl
nk. Talið er að um 200 þjóðar-
leiðtogar verði viðstaddir útförina.
Sjaldan eða aldrei hafa jafnmargir
þjóðarleiðtogar verið saman komn-
ir við eina athöfn.
Gríðarlegur mannfjöldi er nú
staddur í Róm til að votta páfa virð-
ingu sína. Enn fleiri verða í borg-
inni jarðarfarardaginn.
Halldór viðstadd-
ur útför páfa
OLÍUFÉLÖGIN Esso, Skeljungur og Olís
drógu í gær til baka verðhækkun sína frá því í
fyrradag. Eftir breytinguna kostar bensínlítrinn
98,60 krónur hjá félögunum báðum á höfuðborg-
arsvæðinu í sjálfsafgreiðslu og dísilolía 46,10 kr.
Bensínverði hjá Atlantsolíu verður haldið
óbreyttu að sinni. Þar kostar bensínlítrinn 101,2
kr. og dísilolía kostar 47,7 kr. Hugi Hreiðarsson,
upplýsingafulltrúi Atlantsolíu, segir ljóst að að-
gerðum samkeppnisaðilanna sé ætlað að kæfa
samkeppnina á bensínmarkaði og líkir því við að-
gerðir tryggingafélaganna fyrir fáum árum þeg-
ar nýr aðili reyndi að hasla sér völl á þeim vett-
vangi. Segist hann vonast til þess að neytendur
sjái í gegnum slíkan leik.
Fram kemur á heimasíðu Skeljungs að félagið
hafi breytt eldsneytisverði sex sinnum á síðast-
liðnum fimm vikum.
Samkvæmt upplýsingum frá Esso er verð-
hækkunin frá í gær afturkölluð vegna markaðs-
aðstæðna á Íslandi. Olíufélagið vilji ætíð tryggja
að viðskiptavinir þess njóti eldsneytisverðs sem
er samkeppnisfært á hverju markaðssvæði fyrir
sig. Að auki fái safnkortshafar eina krónu í við-
bótarafslátt á hverjum lítra í formi punkta.
Algengt sjálfsafgreiðsluverð á þjónustustöð-
um Olís er nú 98,6 kr. fyrir bensín.
Eldsneytishækkanir dregnar til baka