Morgunblaðið - 06.04.2005, Síða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 6. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Portúgal
Síðustu sætin í apríl
34.900kr. *ÍSLENSKA AUGLÝSINGA
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
U
RV
2
79
26
04
/2
00
5
12. apríl í 8 nætur -
á Paraiso eða Ondamar
á mann m.v. 2 í stúdíói
*Innifalið: Flug, gisting í 8 nætur, flugvallarskattar og íslensk
fararstjórn.
Verð m.v. að bókað sé á netinu, ef bókað er á skrifstofu eða
símleiðis bætist við 2.000 kr bókunar- og þjónustugjald á mann.
Tryggðu þér bestu kjörin og bókaðu strax á www.urvalutsyn.is
Vorsólin
Fleiri eða færri?
Finndu verð á þinni ferð
á www.urvalutsyn.is
Verð frá:
HALTUR leiðir blindan er yfirskrift
göngu umhverfis landið sem farin
verður frá 20. júní til 5. ágúst í sum-
ar. Þeir Guðbrandur Einarsson,
nuddari, kennari og bóndi, sem er
nær blindur, og Bjarki Birgisson,
sundþjálfari og afreksmaður í sundi,
sem er hreyfihamlaður, ætla að
ganga í kringum landið til vekja at-
hygli á málefnum sem eru þeim hug-
leikin.
Annars vegar eru málefni fatlaðra
barna og barna sem eiga við erfið og
langvarandi veikindi að stríða. Hins
vegar ætla þeir að sýna fram á það að
flest sé fötluðum fært. Gangan verð-
ur í samstarfi við Sjónarhól – ráð-
gjafarmiðstöð ses. Verndari göng-
unnar verður Dorrit Mousaieff
forsetafrú og Tómas B. Magnússon
verður göngugörpunum til aðstoðar
við gönguna.
Þeir félagar ætla að ganga rang-
sælis hringinn í kringum landið,
segja að það sé minna á fótinn til að
byrja með. Þeir hyggjast ganga við
stafi, til að létta undir á göngunni, og
leggja leið sína aðallega með þjóð-
vegi 1, en sums staðar er ætlunin að
fara út af þeirri leið og nýta jafnvel
gamla vegi eða gönguleiðir. Tómas
verður í för með þeim og ekur bíl sem
dregur tjaldvagn eða fellihýsi. Það
verður notað til gistingar og hvíldar.
Hugmynd við nuddbekkinn
Guðbrandur er nuddari og nudd-
kennari að atvinnu. „Ég tók að mér
að nudda Bjarka fyrir Íþrótta-
samband fatlaðra, áður en hann fór á
heimsmeistaramót 2002, líkt og ég
hef nuddað fleiri íþróttamenn. Þessi
hugmynd kviknaði við nuddbekkinn,
að gera eitthvað í þessa átt og kalla
það Haltur leiðir blindan,“ sagði
Guðbrandur. Hann er vanur göngu-
maður og fór snemma að eltast við fé
norður í Broddanesi í Kollafirði á
Ströndum. Guðbrandur fékk
mislinga 11 ára gamall og beið skaða
á sjón við það. „Sjónin hefur verið að
smáversna síðan. Í gamla daga var
ég á hlaupum, spilaði fótbolta og
keppti í frjálsum íþróttum. Síðan hef-
ur smáhægt á mér. Ég sneri mér að
almennri líkamsrækt í æfingastöðv-
um, þar sem maður þurfti ekki eins á
sjóninni að halda. Síðari árin hef ég
lagt áherslu á gönguferðir,“ sagði
Guðbrandur. Hann gengur yfirleitt
einn og segir það allt í lagi, ef hann
þekkir leiðina. Á hverjum degi geng-
ur hann eina til þrjár klukkustundir
og lengur um helgar.
Bjarki er afreksmaður í sundi og
starfar sem sundþjálfari. Hann hefur
einnig lagt stund á aðrar íþróttir,
þrátt fyrir að vera hreyfihamlaður.
Hann segist ekki hafa verið mikill
göngumaður til þessa. „Ég er hættur
að keppa í sundi og langar að snúa
mér að öðru. Það hefur þjálfað fæt-
urna að vera í íþróttum. Maður á
ekkert að láta stoppa sig. Ég er fyrr-
verandi Íslandsmeistari í handbolta
og hef unnið til verðlauna fyrir fót-
bolta með HK. Það var bara af því að
ég neitaði að trúa því að ég gæti
þetta ekki. Maður getur allt, hug-
urinn ber mann hálfa leið,“ sagði
Bjarki. Þegar hann var spurður út í
æfingar fyrir gönguna sagðist hann
bera út Fréttablaðið á hverjum degi
og það væri ágætis byrjun. Hann er
líka farinn að æfa stafagöngu.
Áhersla lögð á að
kynna málefnin
Ekki verður safnað áheitum á
genginn kílómetra. Áherslan verður
lögð á að vekja athygli á málefnum
fatlaðra og barna sem eiga við erf-
iðleika að stríða. Einnig verður safn-
að styrkjum frá fyrirtækjum og ein-
staklingum, bæði til að standa
straum af kostnaði við gönguna og
eins til málefnanna sem vakin er at-
hygli á.
Ýmis félög og samtök hafa þegar
lýst yfir stuðningi við gönguna Halt-
ur leiði blindan. Þar má nefna Össur
hf., World Class, ÍSÍ, Íþrótta-
samband fatlaðra og de.is ætlar að
setja upp heimasíðu. Haft verður
samband við íþróttafélög hringinn í
kringum landið um samstarf í sam-
vinnu við verkefnið Ísland á iði. Ætl-
unin er að nota þetta tilefni til að
hvetja til aukinnar hreyfingar. „Það
geta flestir hreyft sig, og þeir sem
eiga bágt með það geta fengið hjálp
til þess,“ sagði Bjarki.
Hjá þeim félögum eru framundan
strangar gönguæfingar og öflun
styrktaraðila áður en haltur fer að
leiða blindan í kringum landið.
Ganga hringinn til að vekja athygli á málefnum fatlaðra og veikra barna
„Hugurinn ber mann hálfa leið“
Morgunblaðið/ÞÖK
Bjarki og Guðbrandur ætla að ganga hringinn í kringum landið í sumar.
Nú taka við stífar æfingar og öflun styrktaraðila áður en gangan hefst. gudni@mbl.is
ÁKVEÐIÐ hefur verið að leigja lax-
og silungsveiðiréttinn í Víðidalsá frá
og með sumrinu 2006, til félagsins
H&S Ísland, sem Stefán Sigurðs-
son, sölustjóri hjá Lax-á, er í for-
svari fyrir. Veiðifélag Víðidalsár tók
þessa ákvörðun eftir að greidd voru
atkvæði um þrjú hæstu tilboðin í
ána á félagsfundi um liðna helgi. Þá
var ákveðið að leigja Pétri Péturs-
syni, leigutaka Vatnsdalsár, veiði-
réttinn í Hópinu.
Að sögn Ragnars Gunnlaugsson-
ar, fráfarandi formanns Veiðifélags
Víðidalsár, munaði litlu á tveimur
efstu tilboðunum, boði Stefáns og
öðru sem Einar Sigfússon stóð að.
Var kosið um það á almenum fé-
lagsfundi hvaða boði skyldi tekið, og
einnig um þriðja tilboðið, en að því
stóðu fráfarandi leigutakar, Brynj-
ólfur Markússon og Gestur Árna-
son. Atkvæði féllu fyrst í stað þann-
ig að tilboð Einars hlaut 17 atkvæði,
tilboð Stefáns 16 og Brynjólfur og
Gestur 6. Var þá aftur kosið á milli
tveggja efstu tilboðanna og greiddu
þá 18 atkvæði með boði Stefáns en
17 með tilboði Einars.
Að sögn Ragnars Gunnlaugssonar
hljóðar tilboð H&S Ísland upp á
tæplega 52,2 milljónir á ári, fyrir
laxa- og silungasvæði árinnar.
Stefán Sigurðsson segir að enn
eigi eftir að ganga frá samningnum
en hugsanlegt sé að Lax-á muni sjá
um sölu á veiðileyfunum.
Pétur Pétursson fær Hópið
Leigja á Pétri Péturssyni veiði-
réttinn í Hópinu. Ragnar segir leig-
una vera kr. 800.000 á ári, auk þess
sem leigutaki reisir þrjú hús sem
veiðifélagið eignast eftir tíu ár.
„Ég veiddi talsvert í Hópinu hér
áður fyrr og það gat verið geysilega
skemmtilegt,“ segir Pétur. „Hug-
myndin er að byggja upp aðstöðu
við vatnið, hvort sem er fyrir útlend-
inga, íslenskar fjölskyldur eða fyr-
irtækjahópa. Vatnið hefur verið
vannýtt af veiðimönnum og fyrst og
fremst vegna þess að aðstöðuna hef-
ur vantað.
Það er geysilega mikið af fiski í
Hópinu, sérstaklega frá því að ísa
leysir og fram í júlí. Eftir það má
samt fá góða veiði, en annars staðar
í vatninu en fyrrihluta sumars.
Þarna er stór urriði, geysiskemmti-
leg sjóbleikja, og svo gengur um
vatnið allur laxinn sem fer í Víði-
dalsá.“
Val á leigutaka Víðidals-
ár réðst á einu atkvæði
Morgunblaðið/Einar Falur
Um 52,2 milljónir kostar á ári að leigja laxa- og silungasvæði Víðidalsár.
GRÍÐARLEGUR mannfjöldi er nú
kominn saman í Róm vegna andláts
páfa og stefnir í að milljónir manna
verði þar á næstu dögum í píla-
grímsferð. Þar á meðal er gert ráð
fyrir um tveimur milljónum Pól-
verja. „Enn sem
komið er hafa
engin vandræði
orðið af mann-
fjöldanum, en ég
veit ekki hvað
verður ef það
bætast við ein-
hverjar milljónir
í viðbót,“ segir
Gísli Gunnars-
son, sóknarprest-
ur í Glaumbæ í Skagafirði, sem
staddur er í Róm ásamt nokkrum
prestum og mökum þeirra úr
Skagafirði og Húnavatnssýslu.
Prestarnir eru í námsferð í Róm
sem var ákveðin löngu áður en
banalega páfa hófst. „Fararstjórinn
okkar er prófessor úr guðfræðideild
HÍ. Við erum hér að rifja upp fyrstu
ár kristninnar og söguna hér í Róm.
Við fáum þetta beint í æð og förum
á alla þessa staði og upplifum þetta.
Svo bætist vissulega við þessi sér-
staka stemning sem er út af útför
páfans,“ segir Gísli, sem segir hóp-
inn munu reyna að komast að lík-
börum páfa til að votta honum virð-
ingu. „Staðurinn verður opinn í nótt
og við ætlum að fara þangað niður
eftir á miðnætti og sjá hvort við get-
um komið að líkbörunum og verið
þarna á svæðinu.“
Trúarleg stemning
Gísli segir stemninguna sem ríkir
í borginni afar sérstaka. „Það er
ekki beinlínis sorg, heldur frekar
nokkuð trúarleg stemning. Hér sér
maður gífurlega mikið af prestum
og nunnum og kaþólsku kirkjufólki
sem er greinilega komið alls staðar
að. Fyrir kaþólikkana er þetta
greinilega mjög mikil upplifun og
skiptir þá mjög miklu máli að vera
hérna.“
Milljónir
manna
stefna til
Rómar
Gísli Gunnarsson