Morgunblaðið - 06.04.2005, Blaðsíða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 6. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
MIKLA mildi má telja að ekki varð
banaslys í baráttu slökkviliðsmanna
við mikinn eldsvoða í íbúðarhúsi við
Rósarima í gærmorgun. Slökkviliðs-
menn lentu í lífsháska í feikiöflugri
gassprengingu og sjö manns í húsinu
voru fluttir á slysadeild með sjúkra-
bifreiðum. Ekki var þó talið að fólkið
hafi verið með alvarlega reykeitrun
en miklar skemmdir urðu á húsinu.
Húsið er tvílyft timburhús og var
tilkynnt um eldinn kl. 9: 33. „Þegar
við komum á staðinn stóð mikill
svartur reykur út um [útidyra]hurð-
ina,“ sagði Höskuldur Einarsson úti-
varðstjóri slökkviliðsins. „Við feng-
um tilkynningu um að fólk væri
innandyra og sendum reykkafara
þeim til bjargar. Það gekk ljómandi
vel að ná fólkinu út. Síðan sendum
við reykkafara inn um dyr [norðan-
megin] til að fást við eldinn en þá log-
aði út um glugga og svalir.“
Þeyttist um koll
Tveir reykkafarar til viðbótar
voru í þessu sendir að svölunum og
voru þeir rétt í þann mund að stíga
inn á lóð hússins yfir grindverk þeg-
ar mikil gassprenging varð. Þar
hafði sprungið gaskútur við gasgrill
á svölunum. „Sprengingin var það
öflug að það hefði kostað mannslíf ef
einhver hefði orðið fyrir,“ segir
Höskuldur. Aðeins nokkrir metrar
skildu að reykkafarana tvo og gas-
kútinn. Sprengjuflísar flugu af gríð-
arlegum krafti aðeins tveimur skref-
um frá öðrum reykkafaranum og
þeyttist hann um koll vegna högg-
bylgjunnar. Sprengjubrot rufu gat á
trégrindverkið og þeyttust í næsta
hús handan bílastæðis milli húsanna.
Þar lentu brotin í svalaundirstöðu úr
tré og spændu upp tréverkið eins og
skotið hefði verið af haglabyssu af
stuttu færi. Réð tilviljun því að tætl-
urnar flugu ekki inn um glugga húss-
ins. Önnur ótrúleg tilviljun réð því
líka að sprengjutætlurnar flugu ekki
nokkrum metrum austar, framhjá
gafli hússins og inn í miðjan hóp 40
barna sem lögreglan hélt í skefjum
þarna skammt frá.
„Við sluppum með skrekkinn sem
betur fer. Það var veruleg hætta á
ferð,“ segir Höskuldur. „Þrátt fyrir
miklar skemmdir á neðri hæð húss-
ins, fór þetta eins vel og hugsast
gat.“
Morgunblaðið/Júlíus
Mikið eignatjón varð í eldsvoðanum í Rósarima í Grafarvogi og íbúar og slökkviliðsmenn voru í hættu.
Röð ótrúlegra tilviljana við eldsvoða í húsi í Grafarvogi
Slökkviliðsmenn og
barnahópur í hættu
Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson
orsi@mbl.is
GASKÚTA ætti fyrir alla muni að
geyma utandyra en t.d. ekki inni í
eldhússkápum líkt og mun vera tals-
vert algengt hér á landi. Gasspreng-
ingin sem varð í Rósarima í gær sýni
fólki vonandi að „litli sæti gaskút-
urinn“ sem er undir gasgrillum geti
verið stórhættulegur í eldsvoða.
Þetta segir Bjarni Kjartansson,
framkvæmdastjóri forvarnardeildar
Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins.
Bjarni tekur fram að íbúarnir í
Rósarima hafi gert hárrétt með því
að hafa gasgrillið úti á svölum, það
hefði ekki verið illa staðsett og öllum
eðlilegum öryggisreglum verið fylgt.
Það dugi hins vegar ekki alltaf til því
þegar eldsvoði verður geti allt gerst
og í þessu tilfelli hefði gríðarmikill
hiti stafað frá íbúðinni og eldtung-
urnar náð að teygja sig í kútinn.
Sprengingin sem varð sýni vel þann
ógnarkraft sem leysist úr læðingi
þegar gaskútur springur. „Ímynd-
aðu þér hvað hefði gerst ef kúturinn
hefði verið í skáp inni í eldhús-
innréttingu og sprungið þar, þá
hefði húsið stórskemmst. Steyptir
veggir hefðu getað laskast illa og
burðarveggir skemmst,“ segir hann.
Bjarni hefur áhyggjur af þeim
fjölmörgu gaskútum af grillum sem
teknir eru inn yfir veturinn. Bjarni
segir að slíkt eigi alls ekki að gera
enda geti slíkt valdið stórhættu og
nefnir sem dæmi að í geymslum
stórs fjölbýlishús geti verið fjöl-
margir slíkir kútar. Hann hvetur
fólk til að geyma kúta alltaf úti, þó
þannig að börn nái ekki til þeirra.
Yfir vetrartímann megi t.d. vefja
kútana í plastdúk til að hlífa þeim.
Gaskútar
séu geymd-
ir utandyra
Morgunblaðið/Júlíus
Leifar af gaskúti í Rósarima.
TÆKNIDEILD lögreglunnar í
Reykjavík var kölluð út vegna brun-
ans í Rósarima í gær til að hefja
vettvangsrannsókn á eldsupptök-
unum. Að sögn lögreglunnar er
rannsóknin á frumstigi og segir lög-
reglan að ekki sé grunur um
íkveikju. Slökkviliðið telur að kvikn-
að hafi í út frá eldamennsku en eld-
urinn átti upptök sín í eldhúsi og
breiddist hann hratt út.
Starfsmenn Löggildingarstofu
fóru einnig á vettvang til að kanna
aðstæður.
Ekki grunur
um íkveikju
SJÖ manns voru fluttir á slysadeild
eftir brunann í Rósarima í gær. Þar
af voru fjórir fullorðnir og þrjú börn,
þar af eitt barn fætt 31. mars síðast-
liðinn. Þá voru tvær óléttar konur
meðal þeirra sem fóru á slysadeild.
Að sögn læknis á Landspítalanum
var ekki um alvarlegar afleiðingar
að ræða og fékk fólkið að fara heim
samdægurs. Þá fór einn reykkafari á
slysadeild með mikið suð fyrir eyr-
um eftir sprenginguna sem varð í
gaskút utan við húsið og hafði næst-
um orðið honum að aldurtila.
Sjö manns á
slysadeild
eftir brunann
ÞAÐ var hrein og klár tilviljun sem
réð því að við fengum ekkert á okk-
ur,“ segir Ari Jóhannes Hauksson,
reykkafari hjá Slökkviliði höfuð-
borgarsvæðisins, sem lenti í stór-
hættu vegna gassprengingar í elds-
voðanum við Rósarima í gær. Við
banaslysi lá þegar gaskútur við úti-
grill sprakk nánast framan í hann og
félaga hans, Guðmund Guðjónsson,
er þeir ætluðu að ráðast að eldinum í
húsinu í gegnum svalir norðanmeg-
in.
Tréverkið tættist í sundur
við sprenginguna
„Þegar ég var að fara yfir
grindverkið varð sprengingin og
brak fór í gegnum girðinguna,“ sagði
Ari. „Báðir fengum við mikla
höggbylgju á okkur en þeir reykkaf-
arar sem þegar voru komnir inn í
húsið fundu ekki fyrir kraftinum þótt
þeir heyrðu sprengignýinn,“ sagði
hann.
Sprengjutætlur rifu í sundur tré-
grindverkið eins og þunna rúðu og
munaði tveimur skrefum að Guð-
mundur lenti í skotlínunni með ófyr-
irséðum afleiðinum. Miðað við kraft
og verksummerki hefði hver sem
hefði staðið í skotlínunni fengið
brakið í gegnum sig og hlotið bráðan
bana. „Það fyrsta sem komst að hjá
okkur eftir sprenginguna var að
kanna ástand félaga okkar inni í hús-
inu,“ sagði hann. „Við heyrðum í
þeim í fjarskiptunum og létti mikið
við að heyra að það væri allt í lagi
með þá.“
Ari bætir því við að ef ekkert svar
hefði borist frá félögunum hefðu þeir
Guðmundur farið inn í húsið sunn-
anmegin þeim til bjargar.
„Þessir gaskútar eru mjög víða
núorðið og það má segja að slökkvi-
liðsstarfið er eitt hættulegasta starf
á friðartímum,“ sagði Ari. „Þessi at-
burður sannar það enn eina ferðina
að starfið er gríðarlega hættulegt.
Sem betur fer höfum við verið lausir
við slys á okkar mannskap. En þetta
minnir okkur á að fara varlega gagn-
vart gaskútum. Við hefðum þess
vegna getað verið komnir inn á sval-
irnar.“
Guðmundur benti á að slökkviliðs-
menn fylgja ströngum reglum um
hvernig sækja skuli að eldi og beita
öllum þeim öryggisaðferðum sem
þeir geta beitt til að draga úr líkum á
slysum. „En sumt verður ekki fyrir-
séð eins og þetta,“ sagði Guðmundur.
Tvö skref skildu að líf og dauða hjá slökkviliðsmanni
„Hættulegasta starf-
ið á friðartímum“
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
dæmdi í gær karlmann á þrítugs-
aldri í hálfs árs fangelsi fyrir tvær
líkamsárásir við veitingastað í
Reykjavík sumarið 2003. Vegna
dráttar á málsmeðferðinni var talið
óhjákvæmilegt að skilorðsbinda
hluta refsingarinnar.
Maðurinn neitaði sök en var sak-
felldur fyrir að hafa annars vegar
slegið mann í höfuðið með flösku
með þeim afleiðingum að hann
hlaut skurð á hnakka. Hins vegar
að hafa stungið annan í aftan-
verðan hálsinn og ofanvert bak með
brotinni flösku með þeim afleið-
ingum að hann hlaut fjóra skurði,
hinn lengsta fjögurra sentimetra
langan.
Nokkrar tafir urðu á að málið
yrði til lykta leitt. Dómurinn segir
að í þeim tilvikum er dráttur hafi
orðið óhæfilegur á meðferð op-
inbers máls hafi Hæstiréttur mark-
að þá reglu að skilorðsbinda refs-
ingar frekar en ella. Með hliðsjón af
því yrði vart hjá því komist að skil-
orðsbinda refsingu í þessu máli að
verulegum hluta, sem ella hefði að
mestu orðið óskilorðsbundinn í ljósi
hinnar hættulegu aðferðar við brot-
in.
Var fullnustu fimm mánaða af
hálfs árs fangelsisdómi frestað um
þrjú ár og fellur sá hluti refsing-
arinnar niður haldi hinn dæmdi al-
mennt skilorð. Ákærði var dæmdur
til að borga fórnarlömbum sínum
um 250 þúsund í miskabætur og 100
þúsund krónur í lögmannskostnað.
Ennfremur var honum gert að
borga allan sakarkostnað.
Hálfs árs fangelsi
fyrir líkamsárás
ÖLL aðildarfélög Mjólkursamsöl-
unnar í Reykjavík (MS) og Mjólk-
urbús Flóamanna (MBF) hafa sam-
þykkt samruna mjólkurfélaganna.
MBF telst deild í MS og varð MBF
síðast til að halda deildarfund um
samrunann á Selfossi í gær. Þar var
samruninn samþykktur einróma.
Sameiningin hafði þegar verið sam-
þykkt af aðalfundi MBF, en forms-
ins vegna þurfti fulltrúafundur
einnig að samþykkja samrunann. Í
fyrradag var haldinn deildarfundur
MS í Búðardal þar sem sameiningin
var samþykkt þar með 24 atkvæð-
um en 6 voru á móti.
Að sögn Magnúsar H. Sigurðs-
sonar, stjórnarformanns MS, lýkur
hinu formlega fundaferli vegna
samrunans nk. þriðjudag þegar
seinni fulltrúafundur MS verður
haldinn. Þar þurfa ¾ atkvæðis-
bærra fundarmanna að styðja sam-
runann til að hann sé í höfn.
Öll aðildarfélög
MS og MBF sam-
þykk samruna
HELGI Ágústsson, sendiherra Ís-
lands í Bandaríkjunum, ritar grein í
Washington Post í gær í tilefni af
leiðaraskrifum blaðsins fyrir
skemmstu undir fyrirsögninni
„Skömm Íslands“. Í stuttri grein
Helga undir nafninu „Leikur Ís-
lands fyrir Bobby Fischer“ kemur
fram að sendiráð Íslands mótmælir
harðlega að gefið skuli í skyn að sú
ákvörðun að veita Fischer íslensk-
an ríkisborgararétt jafngildi stuðn-
ingi við yfirlýsingar hans. „Þvert á
móti, þá gætu Íslendingar, banda-
þjóð Bandaríkjanna til margra ára
og Ísraels, og þjóð með ríka hefð
gagnvart trúarlegu umburð-
arlyndi, varla verið meira ósam-
mála ummælum Fischers,“ segir
Helgi í greininni.
Hann tekur fram að mann-
úðarsjónarmið hafi ráðið ákvörðun
Íslands um að veita Fischer ríkis-
borgararétt og eins og Washington
Post hafi bent á í leiðara sínum
megi líta á mál Fishers með með-
aumkun fremur en hatri.
Mótmælir ásök-
unum í leiðara
blaðsins