Morgunblaðið - 06.04.2005, Blaðsíða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 6. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Laugavegi 20b • Sími 552 2515 • Auðbrekku 1 • Sími 544 4480
www.1928.is
Stóll Nostalgía
kr. 29.900
Kommóða
kr. 39.000
✃
Falleg húsgögn
í úrvali
Skúffuborð
kr. 19.750
Innskotsborð
kr. 17.250
Spegill kr.
16.900
Stóll
Classic
kr. 32.000
Svona, rólegan æsing, kona. Það er nú fyrsti apríl og þetta er nú bara hægri höndin.
Nýliðinn marsmán-uður var mjöghlýr á landinu,
meðalhiti í Reykjavík nú
var 3,7 stig eða 3,1 stig yf-
ir meðallagi. Ívið hlýrra
var í fyrra og svipað í
mars í hittiðfyrra, en síðan
þarf að fara aftur til ársins
1974 til að finna ámóta
hlýjan marsmánuð. Þetta
kemur fram í tíðarfarsyf-
irliti fyrir marsmánuð hjá
Veðurstofu Íslands. Þar
kemur einnig fram að á
Akureyri hafi meðalhitinn
verið 2,5 stig og það sé 3,7
stigum ofan meðallags. Þar hafi
einnig verið talsvert hlýrra bæði í
mars í fyrra og hittiðfyrra. Að
auki var óvenju snjólétt á landinu.
Í Reykjavík varð jörð aldrei al-
hvít, en slíkt gerðist síðast í mars
árið 1977.
Að sögn Einars Sveinbjörns-
sonar, veðurfræðings hjá Veður-
stofu Íslands, er ávallt farið var-
lega í það að segja til um hvort
veðurfarsbreytingar séu varan-
legar eða hvort þær standi einar
og sér. Slíkt eigi tíminn eftir að
leiða í ljós. Hann segist geta nefnt
önnur dæmi frá liðinni öld þar
sem marsmánuður hefur mælst
vel yfir meðallagi. T.d. var með-
alhitinn í mars árið 1929 6,1 gráða
og 5,8 gráður árið 1964. Nýliðinn
marsmánuður sé því ekki af-
brigðilega hlýr þegar það er skoð-
að nánar. Einar segir það vekja
athygli að kalt tímabil hafi komið
inn í miðjum mánuðinum sem
lækkaði meðalhitann talsvert, en
svo hafi komið óvenjuleg hlýindi. Í
tíðarfarsyfirlitinu kemur fram að
meðalhiti 20. mars hafi verið 9,5
stig. Slíkt sé hærra en gerst hafi í
marsmánuði frá árinu 1948 þegar
hitinn varð lítillega hærri. Hann
segir það hins vegar ljóst að mars-
mánuður síðustu tveggja ára, þ.e.
2003 og 2004, hafi verið hlýir og
það hafi sömuleiðis átt við með-
altal áranna. Þessi síðustu ár hafi
minnt á hitafarið á árunum um og
fyrir síðari heimsstyrjöldina.
Einar segir tíðarfarið á þessu
ári hafa verið nokkuð afbrigðilegt.
Í febrúar hafi verið miklar suð-
vestanáttir með mildu veðri. Það
hafi gert það að verkum að haf-
ísinn hafi breitt úr sér fyrir norð-
an land. Hafísinn hefur kælandi
áhrif á sjóinn við landið sem aftur
á móti hefur áhrif á veðrið á land-
inu næstu vikur og mánuði að
sögn Einars.
Sveiflur á milli tímabila
Margir hafa haft á orði að þeir
hafi fundið fyrir miklum öfgum í
veðrinu, er hægt að tala um slíkt
og hefur það verið mælt?
„Ég er ekki frá því, án þess að
það hafi verið neitt kannað sér-
staklega, að það eru talsvert
greinilegar sveiflur á milli tíma-
bila,“ segir Einar og bætir því við
að það komi vikur eða styttri tíma-
bil með gjörólíku veðurlagi og oft
með snöggum umskiptum. Hann
bendir á að slíkt hafi verið nokkuð
áberandi síðustu árin en segir
jafnframt að það sé ekkert nýtt að
vetrarveðráttan sé sveiflukennd.
Hins vegar gefi þetta tilefni til
frekari rannsókna.
Miklar vangaveltur hafa verið
um áhrif gróðurhúsalofttegunda,
s.s. koltvíoxíðs, á loftlagsbreyting-
ar hérlendis. Í skýrslu frá árinu
2000 sem umhverfisráðuneytið
gaf út kemur m.a. fram að hlýnun
hér á landi á næstu áratugum
kunni að verða um 0,3 gráður á
áratug að jafnaði ef miðað sé við
ákveðnar sviðsmyndir af losun
gróðurhúsalofttegunda og tiltekn-
ar forsendur um eðliseiginleika
andrúmslofts og úthafa og tekið
mið af staðsetningu Íslands. Þá er
búist við að hlýnun verði meiri að
vetrarlagi en að sumarlagi og að
úrkoma muni að öllum líkindum
aukast. Í skýrslunni er þó bent á
að mikil óvissa sé um þróun veð-
urfars vegna skorts á þekkingu
um ýmis grundvallaratriði í við-
brögðum lofthjúps og úthafa við
auknum gróðurhúsaáhrifum og
vegna þess að losun gróðurhúsa-
lofttegunda í framtíðinni er ekki
þekkt. Í samandregnum niður-
stöðum skýrslunnar kemur þó
fram að talið sé líklegt að vaxandi
gróðurhúsaáhrif muni leiða til
breytinga á aðstreymi sjávar úr
norðri og suðri til hafsvæðanna í
grennd við Ísland og að þeirra
verði einkum vart á átakasvæði
milli þessara strauma út af Norð-
ur- og Norðausturlandi.
Ef litið er til þess hvaða áhrif
hlýnunin kæmi til með að hafa á
vatnafar og jökla hérlendis þá
segir í skýrslunni að rennsli
vatnsfalla muni aukast að öllum
líkindum vegna aukinnar úrkomu
og meiri jöklaleysingar. Mestra
breytinga sé að vænta í jökulám.
Talið er að meðalrennsli í mörgum
ám kunni að vaxa um 5–20% á
næstu 30 árum. Þá mun árstíða-
sveifla rennslis og flóð í ám breyt-
ast. Síðast en ekki í síst þá munu
jöklar hopa. Talið er að mikill
hluti jökla utan heimskautasvæða
hverfi að mestu á 100–200 árum,
en að sögn Einars eru svæðin við
norðurheimskautið einna við-
kvæmust fyrir veðurfarsbreyting-
um, þ.e. bæði Íshafið sjálft og
stóru meginlöndin eins og Norð-
ur-Kanada og Síbería. Þar gæti
hlýnun orðið meiri en annars stað-
ar á jörðinni.
Fréttaskýring | Breytingar á íslenskri
veðráttu kalla á frekari rannsóknir
Afbrigðilegt
veðurfar
Miklar sveiflur í veðrinu það sem af er
árinu með snöggum umskiptum
Fljótt skipast veður í lofti á Íslandi.
Meiri skilningur og betri
verkfæri til útreikninga
Að sögn Einars Sveinbjörns-
sonar veðurfræðings er skiln-
ingur veðurfræðinga sífellt að
verða meiri og verkfærin betri.
S.s. betri og öflugri tölvukostur
til útreikninga í líkönum sem
stöðugt taka til fleiri þátta í sam-
spili lofthjúps og sjávar. T.d. veð-
urfarslíkön þar sem reynt er að
líkja eftir veðurfari áratugi eða
árhundruð fram í tímann. Þau
eru gjörólík þeim líkönum sem
notuð eru fyrir daglegar spár.
Eftir Jón Pétur Jónsson
jonpetur@mbl.is
RÍKISLÖGREGLUSTJÓRI segir
reglur um eftirför og stöðvun öku-
tækja skýrar og þær séu m.a. kennd-
ar við Lögregluskóla ríkisins. Því sé
ekki unnt að taka undir þá fullyrð-
ingu að vinnubrögð lögreglu við eft-
irför og stöðvun ökutækja séu í
óvissu.
Ríkislögreglustjórinn lýsir þessu
yfir vegna þeirrar umræðu sem orð-
ið hefur í kjölfar dóms Héraðsdóms
Reykjavíkur frá 31. mars sl. í máli
lögreglumanns sem dæmdur var fyr-
ir brot í opinberu starfi og brot á um-
ferðarlögum svo og vegna yfirlýsing-
ar framkvæmdastjóra Landssam-
bands lögreglumanna og frétta-
tilkynningar sambandsins, eins og
segir í tilkynningu.
„Í gildi er stefnumörkun og verk-
lagsreglur hjá lögreglu um stöðvun
ökutækja og fleira sem ríkislög-
reglustjóri gaf út 14. janúar 2000. Þá
hafa reglur um neyðarakstur verið
endurskoðaðar og gefnar út af sam-
gönguráðherra 1. júlí 2004. Áður
giltu reglur um sama efni sem dóms-
málaráðherra gaf út 26. febrúar
1988.
Verklagsreglur lögreglu á þessu
sviði eru skýrar. Þær eru meðal ann-
ars kenndar við Lögregluskóla rík-
isins. Lögreglan þarf hins vegar í
störfum sínum ætíð að vega og meta
annars vegar hversu brýn sú þörf er
að stemma stigu við ólögmætri hegð-
un og upplýsa afbrot og hins vegar
að meta þá hættu sem skapast getur
af nauðsynlegri lögregluaðgerð eins
og eftirför.
Hér getur verið um erfitt mat að
ræða. Mikilvæg regla í þessu sam-
bandi er að fórna ekki meiri hags-
munum fyrir minni og í þessum
málaflokki þarf að vega hagsmuni þá
sem í húfi eru hverju sinni,“ segir
ríkislögreglustjóri í fréttatilkynn-
ingu.
Skýrar reglur um eftirför
lögreglu og stöðvun
Morgunblaðið/Kristinn
FÉLAGSMENN í SFR, Stéttar-
félagi í almannaþágu, samþykktu ný-
gerðan kjarasamning við ríkið með
miklum meirihluta. Já, sögðu 70% en
nei 28%. Auð og ógild atkvæði voru
2%. Á kjörskrá voru 4.672, þar af
greiddu 1.957 atkvæði eða 42% fé-
lagsmanna.
SFR sam-
þykkti samn-
ing við ríkið
♦♦♦