Morgunblaðið - 06.04.2005, Síða 15
SEAN Brady, erkibiskup af Armagh
og yfirmaður kaþólsku kirkjunnar í
Írlandi, hefur að sögn BBC hvatt til
þess að Jóhannes Páll II páfi verði
tekinn í dýrlingatölu. Telur Brady að
það myndi auka líkur á að stefna hins
látna páfa muni áfram njóta full-
tingis. „Hann var maður sem ávallt
virtist hafa tíma og orku og fólk veitti
honum orku og honum þótti vænt um
það,“ sagði Brady eftir að hafa sungið
messu í dómkirkju heilags Patreks í
Armagh í gær. Sagði erkibiskupinn
að Jóhannes Páll II hefði umbylt
hlutverki páfa í starfi kirkjunnar.
Fjöldi fólks í Írlandi og Norður-
Írlandi hefur ritað nafn sitt í minn-
ingabækur um páfa. Bertie Ahern,
forsætisráðherra Írlands, hefur verið
gagnrýndur fyrir að helga ekki páfa,
sem heimsótti landið 1979, sérstakan
sorgardag. Söngkonan og fyrrver-
andi fulltrúi á Evrópuþinginu Rose-
mary Scallon, öðru nafni Dana, sagði
mikinn fjölda fólks vilja að slíkur
sorgardagur yrði haldinn. „Gefa ætti
þjóðinni tækifæri til að syrgja sem
þjóð mann sem talinn er eitt af mik-
ilmennum tuttugustu aldar,“ sagði
hún.
Rætt hefur verið um að sagan
muni bæta viðurnefninu „hinn mikli“
við heiti páfa. Hann gegndi embætt-
inu í 27 ár, aðeins tveir menn munu
hafa setið lengur á stólnum. Ekki eru
þó til neinar reglur eða lög í Páfa-
garði um slík viðurnefni, að sögn sér-
fræðinga í kirkjurétti. Þau verða að
veruleika ef almennt samkomulag er
um að það eigi við en ljóst er að öflug
hreyfing er að verða til sem setur sér
þetta markmið. „Kveðjustundin
langa fyrir Jóhannes Pál mikla,“ var
fyrirsögn á grein í einu virtasta dag-
blaði Ítalíu, Corriera della Sera, á
mánudag. Opinbert málgagn Páfa-
garðs, L’Osservatore Romano, kall-
aði hann einnig Jóhannes Pál „hinn
mikla“.
Tveir páfar hafa fengið
titilinn „mikli“
Tveir páfar hafa fengið þann heið-
ur að vera kallaðir miklir. Annar var
Leó I sem uppi var á fimmtu öld og
var þekktur fyrir ritstörf sín og rök-
semdir fyrir þeirri kenningu guð-
fræðinnar að eðli Guðs væri af tvenn-
um toga, annars vegar mannlegt og
hins vegar guðlegt. Einnig tókst hon-
um að telja hinn herskáa Atla Húna-
konung á að þyrma Róm og tókst að
koma í veg fyrir að fjöldi borgarbúa
yrði að þola pyntingar af hálfu hinna
germönsku Vandala á tímum þjóð-
flutninganna, segir í frétt AP-
fréttastofunnar.
Gregor I, sem uppi var um 600,
kom á endurbótum á klausturlifnaði
og varði miklu fé úr sjóðum Páfa-
garðs til að hjálpa almenningi í hung-
ursneyð. Einnig ritaði hann um
skyldur klerka og höfðu þau skrif
hans áhrif langt fram eftir miðöldum.
Margir benda á að Jóhannes Páll
II hafi með margvíslegum ritum sín-
um um guðfræði og heimspeki, ferða-
lögum um allan heim og baráttu gegn
kommúnisma haft úrslitaáhrif á
framgang kristninnar. Mestu skiptir
þó hvort næsti páfi notar heitið „hinn
mikli“ um forvera sinn. Segir séra
Joseph Koterski, prófessor í heim-
speki við Fordham-háskólann í New
York, að þá myndu líkurnar aukast
mjög á að páfi fengi titilinn.
„Titillinn verður til ef samkomulag
er um það í kirkjunni. Almenningur
er þegar farinn að nota hann. Nú
verður hann að standast prófraun
sögunnar,“ segir Koterski.
Klukkum verður hringt
Ákveðið hefur verið að í þetta sinn
verði ekki látið nægja að sýna með
hvítum reyk að nýr páfi hafi verið
kjörinn, einnig verður hringt klukk-
um til að enginn á Péturstorginu
velkist í vafa um að kjörið hafi farið
fram. Rúmlega þriðji hver kardináli
er of gamall til að mega taka þátt í
kjörinu en þeir mega ekki hafa náð
áttræðisaldri. Er því ljóst að minnst
117 kardinálar mega kjósa en enginn
efast um að hinir háöldruðu munu
hafa veruleg áhrif á hug hinna yngri á
daglegum fundum þar sem allir kard-
inálar hittast nú áður en sjálf kosn-
ingin hefst sem verður innan 20 daga.
Leynilegur kardináli?
Að sögn talsmanns Páfagarðs,
Joaquin Navarro-Valls, voru í gær 93
kardinálar af alls 183 komnir til Róm-
ar. Eitt af hlutverkum þeirra er að
fara yfir öll skjöl sem hugsanlegt er
að hinn látni páfi hafi skilið eftir
handa þeim. Jóhannes Páll II skýrði
frá því árið 2003 að hann hefði út-
nefnt nýjan kardinála en aldrei hefur
verið skýrt opinberlega frá nafni
mannsins dularfulla. Dæmi eru um
slíka leynilega útnefningu þegar um-
ræddur kardináli er frá landi þar sem
kirkjan er ofsótt.
Vilja taka Jóhannes Pál II í dýrlingatölu
Reuters
Olíulampi við mynd af páfa í kirkju
í Amman í Jórdaníu í gær.
Nokkrir fjölmiðlar á Ítalíu hafa
þegar gefið hinum látna páfa frá
Póllandi viðurnefnið „hinn mikli“
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
!"##$%"&'(%))*&'"
+ %,-
&
./
&
!
!
!
0
/
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. APRÍL 2005 15
ERLENT
Málstofa
um Svalbarðamálið
Háskóla Íslands, Lögbergi, stofu 101,
miðvikudaginn 6. apríl 2005 kl. 12.15-13.45
Dagskrá:
12.15 Inngangur:
Tómas H. Heiðar, þjóðréttarfræðingur í
utanríkisráðuneytinu, forstöðumaður
Hafréttarstofnunar Íslands.
12.30 Fyrirlestur:
Robin Churchill, prófessor við Cardiff Law School,
Bretlandi.
13.15 Fyrirspurnir og umræður.
13.45 Slit.
Málstofan er öllum opin á meðan húsrúm leyfir.
Lagadeild
Riyadh. AFP. | Að minnsta kosti níu
meintir stuðningsmenn hryðjuverka-
samtakanna al-Qaeda hafa fallið í
þriggja daga átökum við öryggissveit-
ir í norðurhluta Sádi-Arabíu, að sögn
þarlendra fjölmiðla í gær. Eru þetta
mannskæðustu átökin í Sádi-Arabíu
frá því að íslamistar hófu þar hrinu
árása fyrir tveimur árum.
Sádi-arabískir fjölmiðlar sögðu að á
meðal hinna föllnu væru tveir meintir
foringjar í al-Qaeda. Þeir væru á lista
yfir 26 menn sem sádi-arabísk yfir-
völd legðu mesta áherslu á að hand-
taka. Mennirnir féllu þegar öryggis-
sveitir sátu um hús í bænum Al-Rass.
Talið er að fimm til tíu vopnaðir menn
séu enn í húsinu.
Að sögn yfirvalda í Sádi-Arabíu
hafa 90 óbreyttir borgarar beðið bana
í árásum stuðningsmanna al-Qaeda í
landinu frá maí 2003. Alls 39 liðsmenn
öryggissveita og 99 meintir hryðju-
verkamenn hafa einnig fallið.
Minnst níu manns
féllu í Sádi-Arabíu