Morgunblaðið - 06.04.2005, Side 16
DÖNSK HÚSGAGNAHÖNNUN
Ef þú hefur áhuga á danskri húsgagnahönnun í hæsta gæðaflokki,
skoðaðu þá heimasíðu okkar á www.soeborg-moebler.dk og fáðu
nánari upplýsingar eða bæklinga og tilboð frá fyrirtæki okkar.
Næst þegar þú ert í Kaupmannahöfn, ertu velkomin/n að heimsækja
okkur í sýningarsal okkar (800 m2), sem er í aðeins 6 km fjarlægð
frá miðbænum.
A/S Søborg Møbelfabrik, Gladsaxevej 400, 2860 Søborg,
sími +45 39 69 42 22, www.soeborg-moebler.dk
Opnunartímar: mánudag-þriðjudag 8.30-16.30, föstudag 8.30-15
Landeyjar | Smiðir eru nú í óða
önn að reisa nýja flugstöð á
Bakkaflugvelli í Landeyjum,
sem þjónar flugi til og frá Vest-
mannaeyjum. Smíði hússins
hefur verið lengi í bígerð, en nú
sér fram á að verkið klárist í lok
júní, vel fyrir þjóðhátíð.
Einar Jónsson, umsjónar-
maður flugvallarins, segir að að-
staðan á vellinum sé orðin slæm,
sérstaklega fyrir ferðahópa sem
koma á sumrin, og þurfi fólk
stundum að bíða í rútunum eftir
flugi. Flugturn verður á nýja
húsinu svo flugumsjónarmað-
urinn mun sjá yfir flugbraut-
irnar en hann sér ekki nema
hluta þeirra úr gamla húsinu,
sem verður rifið þegar nýja
flugstöðin kemst í gagnið.
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Ný flugstöð á Bakkaflugvelli
Smíða
Höfuðborgin | Akureyri | Landið | Suðurnes
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi
Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Margrét Þóra Þórsdóttir,
maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís
Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, aust-
urland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is,
sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Úr
bæjarlífinu
Útilistaverk skemmt | Eftir ítrekuð
skemmdarverk á útilistaverkinu Vindspili
eftir Einar Má Guðvarðarson hefur Marín
Hrafnsdóttir, menningar-
og ferðamálafulltrúi Hafn-
arfjarðarbæjar, séð þann
kost vænstan að fjarlægja
verkið af þeim stað sem því
var valinn í Hellisgerði og
koma því fyrir í geymslu til
að það verði ekki fyrir frek-
ari skemmdum.
Marín segir að nú sé verið
að leita að nýjum stað fyrir
verkið, og sé verið að skoða
möguleika nærri Hafn-
arborg og Strandgötunni.
Hún segir að þrátt fyrir að verkið hafi verið
styrkt í samvinnu við listamanninn hafi það
ekki dugað til, of auðvelt hafi verið að hanga í
járnstöngum sem hafi bognað. Marín segir
það greinilegt að ef útilistaverk séu sett á
stað þar sem engin umferð sé og hægt að at-
hafna sig óáreittur sé mjög líklegt að verkin
verði fyrir skemmdarverkum.
Fiskar í fegrunaraðgerð | Uppstoppaðir
fiskar í eigu Byggðasafns Ölfuss eru nú í
sannkallaðri fegrunaraðgerð í Reykjavík,
en þar hefur Steinar Kristjánsson upp-
stoppari tekið þá að sér. Hann ætlar að sjá
til þess að þeir skarti sínu fegursta á sýn-
ingu sem verður opnuð í Ráðhúsi Þorláks-
hafnar á sjómannadaginn.
Í frétt á vef Sveitarfélagsins Ölfuss kem-
ur fram að ástand fiskanna sé mjög mis-
jafnt, og nokkrir hafi jafnvel verið taldir
ónýtir. Steinar lumi þó á ýmsum aðferðum
til að bæta ástand þeirra og hafi hann lofað
fríðum fiskaflokki til baka.
Fimmtán sóttu umtvær stöður sér-fræðinga í Þjóð-
garðinum í Skaftafelli.
Leitað var eftir starfs-
mönnum með prófgráðu í
jarðfræði, reynslu af land-
vörslustörfum og hæfni í
mannlegum samskiptum.
Umsækjendur um störfin á
Höfn og Klaustri voru eft-
irfarandi, samkvæmt upp-
lýsingum frá Umhverfis-
stofnun: Ásdís Ásgeirs-
dóttir, Enok Jóhannsson,
Heiða Björk Halldórs-
dóttir, Helga Davids, Hild-
ur Þórsdóttir, Hrafnhildur
Hannesdóttir, Kári Krist-
jánsson, Magnea Magn-
úsdóttir, Orri Páll Jó-
hannsson, Rannveig
Einarsdóttir, Stella Hrönn
Jóhannsdóttir, Valgerður
Bjarnadóttir, Valgerður
Erlingsdóttir, Viðar Helga-
son og Þorsteinn Hymer.
Fimmtán
sóttu um
Landakot ehf. afhenti nýlega Styrktarfélagikrabbameinssjúkra barna 250 þúsund krónursem er ágóði af sölu jólatrjáa. Undanfarin ár
hefur Landakot ehf. stutt við bakið á félaginu með
slíkri sölu sem farið hefur fram á nokkrum stöðum í
borginni.
Á meðfylgjandi mynd afhenda Þórir Kr. Þórisson og
Baldur Freyr Gústafsson Jóhönnu Valgeirsdóttur, hjá
SKB, ágóðann.
Fá peningagjöf
Davíð Hjálmar Har-aldsson las Morg-unblaðið:
Ef við fyllumst annarlegum
hvötum
óðar fréttamiðlar bæta hag.
„Nakin kona á súlu að fækka
fötum“
fjallar Morgunblaðið um í dag.
Sigrúnu Haraldsdóttur
líkar ekki tilhugsunin:
Þetta er ekki falleg frétt,
fer um hugann andstyggð nett.
Skjátan verður skinni flett,
skrápnum kastað útá stétt.
Kristján Eiríksson yrkir:
Jú, allt er komið undir þrá
og hvötum
og ást sem lyftir þeim á
hærra stig,
víst naktar konur geta fækkað
fötumá flestum sem þær hafa
í kringum sig.
Baldur Garðarsson vill
slást í hópinn:
Á Adams klæðum ætla ég
af mér að dansa kúluna
öll mín klæði af því dreg
og akróbatast við súluna.
Af súludansi
pebl@mbl.is
Samþykktu samning | Starfsmanna-
félag Suðurnesja samþykkti kjarasamning
við ríkið vegna félagsmanna á Heilbrigðis-
stofnun Suðurnesja í atkvæðagreiðslu á
mánudag. Alls greiddu 43% félagsmanna
atkvæði og var kjarasamningurinn sam-
þykktur með 95% greiddra atkvæða.
HÉÐAN OG ÞAÐAN
Sneiðmyndatæki | Kvenfélag Reyðar-
fjarðar hefur gefið Hollvinasamtökum
Fjórðungssjúkrahússins í Neskaupstað
500.000 krónur í söfnun fyrir sneiðmynda-
tæki. Fjárins var aflað með kökubasar og
skeytasölu fyrir fermingar. Sneiðmynda-
tækið kostar um 18 milljónir króna og hefur
um helmingur fjárhæðarinnar þegar safn-
ast.
Ísafjörður | Stjórn kennarafélags Mennta-
skólans á Ísafirði sagði af sér á fundi með
félagsmönnum á mánudag, og segir fyrr-
verandi formaður stjórnarinnar að ástæð-
an sé samstarfserfiðleikar við Ólínu Þor-
varðardóttur skólameistara.
Agnes Karlsdóttir, fyrrverandi formað-
ur stjórnarinnar, segir að félagsmönnum
hafi brugðið illa þegar stjórnin sagði af sér,
enda hafi stjórnin hingað til ekki verið að
ræða samskipti sín og skólameistara við
kennara. Boðaður hefur verið nýr fundur
kennara við skólann næstkomandi föstu-
dag, þar sem til stendur að kjósa nýja
stjórn. Agnes segir að hún fái þó ekki séð
að auðvelt verði að fá fólk til að gegna þess-
um störfum eftir það sem á undan hefur
gengið. Spurð hvað taki við ef enginn fáist í
stjórn segir hún að það verði einfaldlega að
koma í ljós.
Agnes segir að upphaf þessarar
óánægju stjórnarinnar megi rekja til við-
bragða skólameistara við ályktun stjórn-
arinnar 23. mars sl., en þá hafi skólameist-
ari kallað stjórnina á sinn fund til þess að
biðja hana að skýra efni yfirlýsingarinnar
nánar. Agnes líkir þessu við yfirheyrslu
skólameistara yfir trúnaðarmönnum kenn-
ara, og við það verði ekki unað.
Í yfirlýsingunni, sem kom í kjölfar ann-
arrar yfirlýsingar frá skólameistara, árétt-
ar stjórnin að henni sé kunnugt um „nokk-
ur mál frá síðasta skólaári og yfirstandandi
skólaári þar sem aðstoðar lögfræðings KÍ
hefur verið leitað vegna samskipta kenn-
ara og skólameistara“.
„Framkoma skólameistara gagnvart
þessum trúnaðarmönnum er of gróf og
gengur of langt,“ segir Agnes. Hún vill þó
ekki tjá sig um hvað nákvæmlega fór fram
á fundi skólameistara með stjórninni, og
segir þá sem þurfi að vita það; kennara og
þá sem á fundinum voru; vita hvað hafi ver-
ið rætt.
Skólameistara óviðkomandi
Ólína Þorvarðardóttir skólameistari
segir að hún sem skólameistari hafi engin
afskipti af kennarafélagi skólans, sem sé
stéttarfélag og hluti af Félagi framhalds-
skólakennara. „Stjórn kennarafélagsins
verður að eiga það við sitt samstarfsfólk
hvers vegna hún segir af sér trúnaðarstörf-
um við félagið. Þetta er skólameistara óvið-
komandi.“
Ólína bendir á að við skólann hafi verið
gerðar tvær stjórnendakannanir, þar sem
kennarar hafi verið spurðir um samskipti
við skólameistara og yfirstjórn skólans.
Síðasta könnun var gerð í nóvember á síð-
asta ári, og segir Ólína að þessar kannanir
hafi í bæði skiptin komið mjög vel út fyrir
stjórnendur skólans.
Stjórn kenn-
arafélags
segir af sér