Morgunblaðið - 06.04.2005, Qupperneq 18
18 MIÐVIKUDAGUR 6. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
AKUREYRI
AKUREYRSK ungmenni hafa staðið sig af-
burða vel í alpagreinum á skíðamótum vetr-
arins. Þar hafa farið fremst í flokki þau Salome
Tómasdóttir og Þorsteinn Ingason, sem bæði
tóku þátt í Unglingameistaramóti Íslands á
Siglufirði í síðasta mánuði og Skíðamóti Ís-
lands á Sauðárkróki um síðustu helgi. Þor-
steinn sigraði þrefalt í 15–16 ára flokki á Ung-
lingameistaramótinu, í svigi, stórsvigi og
alpatvíkeppni og Salome vann sigur í svigi,
varð önnur í stórsvigi og hún fagnaði sigri í
alpatvíkeppni. Alls tóku 15 ungmenni frá
Skíðafélagi Akureyrar þátt í mótinu á Siglu-
firði og í 13–14 ára flokki sigraði Víkingur Þór
Björnsson í svigi, stórsvigi og alpatvíkeppni.
Hann er búsettur í Noregi en keppir fyrir hönd
Skíðafélags Akureyrar.
Þrátt fyrir ungan aldur voru þau Salome og
Þorsteinn að taka þátt í sínu öðru skíðalands-
móti um síðustu helgi en bæði eru þau á 17. ald-
ursári. Þar gerði Salome sér lítið fyrir og sigr-
aði í stórsvigi og varð í þriðja sæti í svigi, sem
dugði henni til sigurs í alpatvíkeppni. Hún tók
þátt í tveimur FIS-mótum til viðbótar í
tengslum við landsmótið, vann annað þeirra og
varð önnur í hinu mótinu.
Eru ánægð með árangurinn
„Ég hef aldrei verið eins sterk og í ár,“ sagði
Salome, sem tók sér frí frá námi og hefur
stundað æfingar og keppni erlendis und-
anfarna sex mánuði. Hún sagði allt erfiðið hafa
skilað sér og er mjög ánægð með árangurinn í
vetur, þar sem hún hefur einnig tryggt sér sig-
ur í bikarkeppni SKÍ í 15–16 ára flokki og
kvennaflokki.
Þorsteinn, sem stundar nám á 1. ári í
Menntaskólanum á Akureyri, hefur einnig ver-
ið á faraldsfæti erlendis en þó í minna mæli en
Salome og hann er mjög ánægður með árangur
vetrarins. Á skíðalandsmótinu hafnaði Þor-
steinn í 4. sæti í svigi og 5. sæti í stórsvigi og sá
árangur færði honum þriðja sætið í alpatví-
keppninni. „Ég er mjög ánægður með árang-
urinn, sem var mun betri en ég átti von á,“
sagði Þorsteinn. Hann var að etja kappi við
fremstu skíðamenn landsins, sem æfa og keppa
erlendis árið um kring. Það gekk ekki alveg
þrautalaust að halda skíðalandsmótið að þessu
sinni vegna snjóleysis. Upphaflega átti mótið
að fara fram í Fjarðarbyggð, þaðan var mótið
flutt til Reykjavíkur en að lokum var það haldið
á Sauðárkróki. Salome og Þorsteinn voru sam-
mála um að aðstæður þar hefðu verið góðar og
framkvæmd mótsins til fyrirmyndar. Þor-
steinn hefur þegar tryggt sér sigur í bik-
arkeppni SKÍ í 15–16 ára flokki og hann er með
efstu mönnum í karlaflokki þegar eitt mót er
eftir. Þetta er þriðja árið í röð sem Þorsteinn
fagnar sigri í unglingaflokki í bikarkeppninni.
Aðstæður til æfinga hafa verið erfiðar
hér á landi í vetur
Salome er í FIS-liði alþjóða skíðasambands-
ins og það hefur gert henni kleift að stunda æf-
ingar og keppni erlendis í vetur, í Austurríki,
Ítalíu, Þýskalandi og Noregi. Hún þarf sjálf að
standa straum af kostnaði við ferðir á milli
staða en annan kostnað greiðir alþjóða-
sambandið. Þorsteinn fór í mánuð til Noregs
fyrir jól með afrekshópi SKA, einnig æfði hann
í Sviss og Noregi fyrr á þessu ári. Að öðru leyti
stundaði hann æfingar hér heima, „við vægast
sagt erfiðar aðstæður“ eins og hann orðaði það.
Þorsteinn hefur sett stefnuna á að komast í
FIS-liðið fyrir næsta vetur og þarf þá að taka
þátt í úrtökumótum í sumar. Salome hefur sett
stefnuna á skíðamenntaskóla í Noregi næsta
vetur en gangi það ekki eftir, vonast hún til að
geta verið áfram með FIS-liðinu.
Salome og Þorsteinn tóku þátt í Ólympíu-
leikum æskunnar í Sviss seinni partinn í janúar
og náðu þar ágætis árangri, þótt ekki kæmust
þau á verðlaunapall. Einnig kepptu þau á
Heimsmeistaramóti unglinga á Ítalíu seinni
partinn í febrúar. Þar öttu þau kappi við bestu
skíðamenn heims undir tvítugu. Ekki unnu þau
til verðlauna en voru engu að síður ánægð með
árangurinn. Það er enginn uppgjafartónn í
þessu unga skíðafólki, sem ætlar sér enn stærri
hluti í framtíðinni. „Ég á mikið inni,“ sagði Þor-
steinn, „en það er lykilatriði komast utan þar
sem aðstæður eru mun betri en hér á landi.“ Í
sama streng tekur Salome. Þrátt fyrir góðan
árangur akureyrskra skíðakrakka í vetur,
fækkar þeim ár frá ári sem leggja skíðaíþrótt-
ina fyrir sig. Salome sagði að ástæðan væri
fyrst og fremst erfiðar aðstæður. Þorsteinn
sagði að margir hættu að keppa á skíðum eftir
að hafa lokið þátttöku á Andrésar Andar-
leikunum. Bæði Salome og Þorsteinn voru sig-
ursæl á leikunum og unnu m.a. ferð til Ítalíu
með glæstum árangri á síðustu Andrésar And-
ar-leikum sínum.
Keppa á gervisnjó erlendis
Eins og fram hefur komið verður hafist
handa við snjóframleiðslu í Hlíðarfjalli næsta
vetur. Þorsteinn sagði að snjóframleiðslan ætti
eftir að gjörbreyta aðstæðum í fjallinu, hægt
yrði að opna svæðið fyrr og hafa það lengur op-
ið fram á vorið. „Þetta kemur sér vel fyrir okk-
ur, því við erum að æfa og keppa á gervisnjó er-
lendis. En það er ekki allt fengið með
snjóbyssunum en snjóframleiðslan mun hjálpa
mikið til,“ sagði Þorsteinn.
Veturinn hefur vissulega verið viðburðaríkur
hjá skíðafólkinu. „Við höfum verið að æfa og
keppa upp á nánast hvern dag. Nú er aðeins
spennufall og maður veit varla hvað maður á að
gera við allan þennan tíma sem er aflögu,“
sagði Salome. Enn er eitt stórsvigsmót eftir í
bikarkeppni SKÍ ef aðstæður leyfa. Með vorinu
taka svo við þrekæfingar af fullum krafti, fyrir
komandi átök næsta vetur. Það verður því fróð-
legt að fylgjast með þessu unga og efnilega af-
reksfólki í náinni framtíð.
Salome Tómasdóttir og Þorsteinn Ingason hafa staðið sig vel á skíðamótum vetrarins
Ætla sér enn stærri
hluti í framtíðinni
Morgunblaðið/Kristján
Afreksfólk Þorsteinn Ingason og Salome Tómasdóttir hafa staðið sig vel á skíðunum í vetur
og ætla sér enn stærri hluti í framtíðinni. „Ég á mikið inni,“ segir Þorsteinn.
Eftir Kristján Kristjánsson
krkr@mbl.is
ÞAÐ lifnar jafnan yfir hlutunum á
dekkjaverkstæðum bæjarins þegar
sól hækkar á lofti og töluverður
kippur kom í dekkjaskipti í veð-
urblíðunni um páskana. Heldur fór
svo að róast á ný þegar fregnir
bárust af kólnandi veðri fyrir
helgina. Gunnar Kristdórsson í
Dekkjahöllinni og menn hans hafa
þó nóg fyrir stafni flesta daga, því
fyrir utan alhliða dekkjaþjónustu
er einnig boðið upp á smurþjón-
ustu og þrif á bílum hjá fyrirtæk-
inu. Gunnar bendir á að hann reki
í dag stærsta dekkjaverkstæði
landsins og að hann hafi verið
lengi í faginu. Hann byggði undir
starfsemi sína við Draupnisgötu
árið 1984, eftir að hafa verið tvö ár
í bílskúrnum heima hjá sér. Frá
þeim tíma hefur fyrirtækið vaxið
jafnt og þétt. Húsnæðið hefur
einnig stækkað til mikilla muna og
í dag er hann með um 20 dekkja-
vélar inni á gólfi og 17 þjónustudyr
á húsnæðinu. Gunnar hefur verið
að auka við húsakostinn enn frekar
með kaupum á nærliggjandi hús-
næði og þá ætlar hann að byggja 9
metra hátt dekkjahús norðan við
núverandi húsnæði. Gunnar er
mjög stór í sölu á dekkjum af öll-
um stærðum og gerðum og flytur
þau inn sjálfur. „Þannig get ég
boðið dekk á mjög góðu verði. Það
hefur orðið veruleg verðlækkun á
dekkjum, bæði vegna hagstæðs
gengis en ekki síður vegna þess
hversu mikið magn við kaupum inn
í einu. Við eigum nú um 20 gáma
sem við notum sem geymslur en
erum nú þegar búin að láta teikna
hús fyrir þennan lager.“
Gunnar hefur ekki aðeins verið
að auka starfsemina á Akureyri,
því hann rekur einnig starfstöðvar
á Austurlandi, birgðastöð í Fella-
bæ og verkstæði á Egilsstöðum,
þar sem boðið er upp á sömu þjón-
ustu og á Akureyri. Í Fellabæ er
einnig verkstæðisaðstaða, þó ekki
sé verið að nota hana eins og er.
„Þetta er náttúrulega ofvirkni af
verstu gerð. Ég hóf rekstur
dekkjaverkstæðis í Fellabæ fyrir 7
árum. Þá héldu flestir að ég væri
orðinn endanlega vitlaus og sem
dæmi var ég kosinn heimskasti
maður ársins á hátíð í Fellabæ árið
eftir að ég hóf starfsemi þar. Fyrir
rúmum tveimur árum keypti ég
fyrirtækið Sóldekk á Egilsstöðum
og hóf rekstur þess. Þar hefur ver-
ið unnið að miklum endurbótum og
stefnir það hraðbyri í að verða eitt
flottasta verkstæði landsins,“ sagði
Gunnar en á verkstæðunum fyrir
austan eru alls 12 þjónustudyr.
„Ástæðan fyrir því að ég fór út
rekstur fyrir austan var fyrst og
fremst af hrifningu fyrir svæðinu.
Þessi umræða um álver var ekki
mjög hávær á þessum árum.“
Rekstur Dekkjahallarinnar hef-
ur gengið upp og ofan í gegnum
tíðina að sögn Gunnars. „Rekst-
urinn hefur gengið vel síðustu ár.
Hér áður fyrr kom það fyrir að ég
átti ekki fyrir mjólk en ég hef ekki
þurft að hafa slíkar áhyggjur síð-
ustu 8–10 ár.“ Gunnar hefur ávallt
lagt mikla áherslu á að vera með
góðan tækjabúnað á verkstæðum
sínum. „Ég er alveg tækjaóður og
þarf alltaf að vera með það besta
sem til er hverju sinni. Enda tel ég
það vera eitt af lykilatriðum þess
að geta veitt úrvalsþjónustu í
Dekkjahöllinni.“ Gunnar hefur
ekki staðið einn í baráttunni, því
með honum er Fjóla Sigurðardótt-
ir, konan hans og eldri börnin tvö,
Kristdór og Elín, sem vinna hjá
fyrirtækinu, sem og tengdasonur-
inn Arnþór Árnason. Elín vinnur á
skrifstofunni á Akureyri en Krist-
dór sér um reksturinn fyrir aust-
an. Þá vinnur yngri sonurinn Stef-
án á verkstæðinu á Akureyri með
skólanum. Auk fjölskyldunnar,
hafa tveir lykilstarfsmenn, þeir
Þorgeir Jóhannesson og Stefán
Jónsson tekið mikinn þátt í upp-
byggingu fyrirtækisins. Yfir há-
annatímann starfa alls um 50
manns hjá fyrirtækinu og starfs-
menn eru aldrei færri en 20.
Gunnar Kristdórsson í Dekkjahöllinni er með rekstur á þremur stöðum
„Þetta er ofvirkni af verstu gerð“
Morgunblaðið/Kristján
Dekkjahöllin Gunnar fyrir framan fyrirtæki sitt við Draupnisgötu.
Eftir Kristján Kristjánsson
krkr@mbl.is
Vinátta | Elín Þorgeirsdóttir og
Dagný Broddadóttir kynna mentor-
verkefnið Vinátta á félagsvís-
indatorgi í dag, miðvikudaginn 6.
apríl kl. 12 í stofu L103 á Sólborg.
Ofbeldi og aldraðir | Ofbeldi snert-
ir aldraða á margvíslegan hátt, en
að undanförnu hefur mikið verið
rætt um sjálfræði aldraðra, fjár-
hagslega misnotkun og áhrif aukins
ofbeldis í þjóðfélaginu á daglegt líf
þeirra, en ofbeldi gegn öldruðum er
iðulega vel falið. Reynt verður að
varpa ljósi á þessi mál á námsstefnu
sem haldin verður á Hótel Kea á Ak-
ureyri á morgun, fimmtudaginn 7.
apríl, en hún stendur frá kl. 10 til
16.30. Yfirskrift hennar er „Aungvir
gráta jafn sárt – og hverjir hugga“ –
ofbeldi og aldraðir. Sérfræðingar
munu ræða um ofbeldi frá ýmsum
hliðum, öldrunarlæknir, fé-
lagsfræðingur, iðjuþjálfi, fé-
lagsráðgjafar, prestur og heimspek-
ingur eru á meðal fyrirlesara.
Fagna jákvæðum viðhorfum |
Bæjarráð Ólafsfjarðar hefur ítrekað
fyrri afstöðu sína til tillögu til þings-
ályktunar um stofnun framhalds-
skóla við utanverðan Eyjafjörð og
fagnar þeim jákvæðu viðhorfum sem
komu fram í máli þingmanna þegar
hún var til umræðu á Alþingi. Bæj-
arráð hvetur sameiginlega nefnd
fulltrúa frá Siglufirði, Ólafsfirði og
Dalvíkurbyggð til að taka málið aft-
ur til umfjöllunar og kanna m.a.
hvort þetta mikilvæga verkefni eigi
ekki heima í „menntaklasa Vaxta-
samnings Eyjafjarðar“. Bæjarráð
minnir á að í skýrslu starfshóps um
vaxtasamning fyrir Eyjafjörð er lagt
til að unnið verði að stofnun fram-
haldsskóla við utanverðan Eyja-
fjörð.