Morgunblaðið - 06.04.2005, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. APRÍL 2005 19
MINNSTAÐUR
Reykjanesbær | Hið árlega Erlings-
kvöld Bókasafns Reykjanesbæjar
var haldið í Listasafni Reykjanes-
bæjar sl. fimmtudagskvöld, en þessi
kvöld eru helguð listamanninum
Erlingi Jónssyni. Erlingur fagnaði
nýlega 75 ára afmæli sínu, og ákvað
af því tilefni að vera viðstaddur
Erlingskvöldið þetta árið.
Fjöldi gesta kom til að hlýða á
upplestur og tónlistaratriði, auk af-
mælisávarpa frá vinum Erlings, og
var húsfyllir í Listasafninu þetta
kvöld, að því er fram kemur á vef
Reykjanesbæjar. Einnig var þeim
nemendum í Myllubakkaskóla sem
þóttu skara fram úr í ritgerðar-
samkeppni afhent í fyrsta sinn af-
steypa af Laxnessfjöður Erlings
sem ætlað er að styðja við íslenska
tungu.
Verðlaunahafar voru að þessu
sinni Sædís Hulda Aðalbjörnsdóttir
9. bekk og Davíð Már Gunnarsson
10. bekk en að auki hlaut Myllu-
bakkaskóli viðurkenningu sem
Brynja Árnadóttir skólastjóri veitti
viðtöku. Gert er ráð fyrir að fjöðrin
gangi á milli skóla og hefur verið
ákveðið að speglunarskóli Myllu-
bakkaskóla, Austurbæjarskóli,
muni næst veita nemendum sínum
viðurkenningu fyrir gott vald á ís-
lensku máli.
Að Erlingskvöldi í ár stóðu Bóka-
safn Reykjanesbæjar, menningar-
fulltrúi Reykjanesbæjar og áhuga-
hópur um Listasafn Erlings
Jónssonar.
SUÐURNES
LANDIÐ
Fjöldi góðra gesta Erlingur Jónsson listamaður var hrókur alls fagnaðar á Erlingskvöldinu í Listasafninu.
Húsfyllir á Erlingskvöldi
Vík | Þótt ferðamannatíminn sé ekki
hafinn, og allra veðra von á landinu,
eru erlendir ferðamenn á ferðinni
víða um land. Þessir erlendu gestir
voru að skoða stuðlabergið í Reynis-
fjöru og Reynisdranga í Mýrdal
þegar ljósmyndari átti leið hjá, og
virtust vel búnir, enda kalt þó sól
skini í heiði.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Skoðuðu stuðlabergið
Stykkishólmur | Unnið er að fullum
krafti við stækkun hótelsins í Stykk-
ishólmi. Byggð verður ný þriggja
hæða álma við hótelið með 45 her-
bergjum. Fjölgar herbergjum á hót-
elinu við það um meira en helming.
Herbergin í nýju álmunni eiga að
vera tilbúin í júní, þó ekki líti bein-
línis út fyrir það þegar aðeins eru
komnir útveggir fyrstu hæðarinnar.
Dagbjartur Harðarson, verkstjóri
framkvæmdanna, segir að enn sé
miðað við júní. „Það er góður mögu-
leiki, en það dugar ekkert hangs, því
þegar er farið að bóka gesti í her-
bergi og þeir taka það ekki mál að
bíða lengi eftir okkur.“
Stefnt er á að fyrsta hæðin verði
tilbúin í lok maí og svo næstu hæðir
nokkrum vikum seinna. Dagbjartur
segir að veggir og gólf séu steyptar
einingar frá Loftorku í Borgarnesi
og það sé fljótlegt að raða eining-
unum saman. Baðherbergin eru til-
búnar einingar sem koma frá Sví-
þjóð og eru þau sett strax niður á
sinn stað. „Það vantar bara klósett-
pappírinn og klósettburstann, en að
öðru leyti eru þau tilbúin,“ segir
Dagbjartur um leið og hann opnar
inn á eitt baðherbergið og sýnir
hvernig þar er innanhorfs.
Klárað fyrir golfsumarið
„Ég er búinn að skipuleggja golfið
hjá mér í sumar,“ segir Dagbjartur
„Þar er júlímánuður frátekinn svo
það er pressa á mér að ljúka hót-
elbyggingunni fyrir þann tíma og við
það verður staðið.“
Þeir sem fylgjast með fram-
kvæmdum eiga bágt með að trúa
orðum verkstjórans, en láta þó
fylgja að aldrei skuli maður segja
aldrei. Tíminn leiðir svo sannleikann
í ljós.
Baðherbergin
komu í heilu lagi
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
Stækkun „Gjörðu svo vel, það vantar bara klósettpappírinn,“ segir Dag-
bjartur Harðarson verkstjóri og opnar dyrnar að nýja baðherberginu.
Mývatnssveit | Nú er hafin stækkun
búningsaðstöðu við Jarðböðin. Við-
bótin verður um 200 fermetrar og
áætlaður kostnaður um 20 milljónir
króna. Með þessu er brugðist við
mikilli aðsókn að böðunum.
Fyrstu þrjá mánuði ársins komu
u.þ.b. 6.500 gestir í Jarðböðin og er
það í takt við áætlanir. Í sumar er
gert ráð fyrir að 16–18 starfsmenn
verði við böðin. Það sem nú er mest
aðkallandi að dómi Stefáns Gunnars-
sonar framkvæmdastjóra er að fá
uppbyggðan veg að böðunum, en nú
er þangað aðeins bráðabirgðavegur.
Á dögunum var tekin fyrsta
skóflustungan að stækkun baðanna,
en það var Pétur Snæbjörnsson, for-
seti Baðfélags Mývatnssveitar, sem
brá skóflu í svörð.
Morgunblaðið/BFH
Jarðböðin
bæta við sig
Heimsferðir bjóða beint flug til Bologna alla fimmtudaga í sumar á
hreint frábærum kjörum. Þú getur valið um flugsæti eingöngu, flug og
bíl á frábærum kjörum eða eitt af
okkar vinsælu hótelum á Rimini.
Bókaðu núna og tryggðu þér bestu
kjörin.
Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is
Verð kr. 23.595
Flugsæti með sköttum m.v. hjón með
2 börn, 2-11 ára, 7. júlí. Netverð.
Bílaleigubíll frá kr. 2.400
Netverð á dag m.v. bíl í A-flokki í
7 daga eða meira með ótakmörkuðum
akstri, kaskó- og þjófnaðartryggingu.
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Bologna
Hjarta Ítalíu
frá kr. 23.595
Alla fimmtudaga í sumar