Morgunblaðið - 06.04.2005, Page 20
20 MIÐVIKUDAGUR 6. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ
DAGLEGT LÍF
Þetta er alveg ofboðslegagaman,“ segir tónskáldiðÞóra Marteinsdóttir um
samveruna með íslensku börn-
unum í barnakórnum sem hún
stjórnar í Gautaborg í Svíþjóð.
Þóra hefur stjórnað kórnum á
annað ár en var þar áður undir-
leikari kórsins í tvö ár.
Þóra lýkur námi frá tón-
smíðadeild Tónlistarháskólans í
Gautaborg í vor og söng barna-
kórinn á útskriftartónleikunum 3.
mars verkið Heilræðavísur Bú-
kollu eftir Þóru en þar fléttar hún
saman Heilræðavísur Hallgríms
Péturssonar og þjóðsöguna um
Búkollu. Og krakkarnir skemmta
sér konunglega við að syngja blítt
og skessulega til skiptis.
Sjálf hefur Þóra sungið í kórum,
bæði Skólakór Kársness og í
Hamrahlíðarkórnum. „En ég hef
nú voða lítið lært að stjórna,“ seg-
ir hún hógvær. „Ég er alltaf frek-
ar stressuð þegar kórinn á að
koma fram. Sérstaklega þegar
mamma og pabbi fylgjast með,“
bætir hún brosandi við. Foreldr-
arnir eru sem sagt gamalreyndir
kórstjórar, þau Þórunn Björns-
dóttir, stjórnandi Skólakórs Kárs-
ness, og Marteinn H. Friðriksson,
organisti og stjórnandi Dómkórs-
ins.
Samdi fyrsta lagið átta ára
Þóra hefur því fengið tónlistina
með móðurmjólkinni og samdi
fyrsta lagið sitt í samráði við Hildi
frænku sína átta ára gömul. Þóra
ætlaði samt lengi vel að verða rit-
höfundur en segist nú fá útrás
fyrir þá löngun með bloggsíðunni
sinni sem heitir Lífið í Dúfnaborg-
inni eins og hún nefnir Gautaborg
vegna dúfnanna sem flögra um
allt.
En hún samdi líka barna-
óperuna Larus sem sýnd var
skólabörnum í Gautaborg á vegum
Tónlistarháskólans þar fyrir jólin
2003 við góðar undirtektir. Þar
samdi Þóra bæði tónlistina og sög-
una um tvær nornir sem verða
ástfangnar af sama vonda galdra-
karlinum og verða óvinkonur. Sag-
an endar þó vel eins og öll æv-
intýri og nornirnar urðu bestu
vinkonur. Draumur Þóru er að
óperan verði sett upp á Íslandi
líka en hún segist fyrst þurfa að
láta þýða hana og aðlaga íslenskri
tungu.
Verkefni í Svíþjóð og á Íslandi
Hún hefur haft nóg að gera í
skólanum og við kórstjórnina. Og
Þóra er ánægð með að fleiri en
eitt verkefni bíði hennar eftir út-
skrift. „Já, ég er búin að fá tvö
verkefni frá Íslandi,“ segir hún
ánægð. Annað er að sjá um tón-
listina og semja verk fyrir vígslu
Sólheimakirkju í júlí en Þóra hef-
ur unnið á Sólheimum í fjögur
sumur. Hitt er að semja verk fyrir
tónleika í Skálholtskirkju þar sem
íslensk handrit liggja til grund-
vallar. „Þetta finnst mér mjög
SVÍÞJÓÐ
Tónskáldið í Dúfna
Þóra við píanóið á kóræfingu og í bak-
grunni eru þeir Stefán og Daníel.
Eftir Steingerði Ólafsdóttur
steingerdur@mbl.is
Gömlu fólki, sem er viðgóða heilsu og hreyfir sigdaglega, hæfir yfirleittalmennt fæði, sem tekur
mið af ráðleggingum Manneld-
isráðs um mataræði. Hætta á nær-
ingarskorti eykst hinsvegar ef mat-
arlyst minnkar, hvort heldur er
vegna líkamlegra eða geðrænna
sjúkdóma og þá þarf að gera sér-
stakar einstaklingsbundnar ráðstaf-
anir, að sögn Hólmfríðar Þorgeirs-
dóttur, verkefnisstjóra næringar
hjá Lýðheilsustöð.
Lýðheilsustöð hefur gefið út
fræðsluritið „Matur fyrir aldraða“,
sem ætlað er öllum þeim, sem
vinna við hjúkrun aldraðra eða út-
búa mat fyrir roskið fólk, hvort
heldur sem er á stofnunum eða í
heimahúsum.
Orkuþörf minnkar
með aldrinum
Bæklingurinn var unninn af sam-
starfshópi um öldrunarmál á veg-
um Manneldisráðs, en markmiðið
með útgáfunni var að matur, sem
borinn er fyrir gamalt fólk sé bæði
hollur og lystugur og hæfi gömlu
fólki. „Þarfir aldraðra eru mismun-
andi og í ritinu er gerður skýr
greinarmunur á þeim mat, sem
hæfir fólki við góða heilsu og hin-
um, sem eru orðnir sjúkir og illa á
sig komnir. Orkuþörf minnkar með
aldrinum, aðallega vegna vöðva-
rýrnunar og minni hreyfingar. Þörf
fyrir vítamín, steinefni, prótein og
trefjaefni minnkar hinsvegar ekki
að sama skapi með aldrinum. Því
þarf fæði aldraðra að vera næring-
arríkt eigi það að rúma öll nauð-
synleg næringarefni í minni fæðu-
skömmtum.“
Ofþyngd kallar á sjúkdóma
Að sögn Hólmfríðar er æskilegt
að almennt fæði fyrir aldraðra fylgi
ráðleggingum Manneldisráðs um
mataræði en samkvæmt þeim skal
fitu, einkum harðri fitu, sykri og
salti stillt í hóf, en þess gætt að
fæðið veiti nægan vökva og trefja-
efni auk nauðsynlegra vítamína og
steinefna. „Þar sem orkuþörfin
minnkar með aldri, er hætta á að
fólk fitni sé þess ekki gætt að
minnka neyslu í samræmi við þörf.
Ofþyngd og offita á efri árum auka
mjög líkur á sykursýki, hækkuðum
blóðþrýstingi og stoðkerfis-
sjúkdómum auk annarra fylgikvilla
og því er mikið í húfi að líkams-
þyngd sé haldið í skefjum. Dagleg
hreyfing, t.d. gönguferðir eða leik-
fimi, ásamt hæfilegri fitu og skyn-
samlegu fæðuvali, skipta meginmáli
til að koma í veg fyrir offitu á efri
árum. Á hinn bóginn minnkar oft
matarlyst gamals fólks. Það léttist
meira en góðu hófi gegnir og við
það aukast líkur á mörgum sjúk-
dómum. Starfsfólk og aðrir sem
annast gamalt fólk þurfa því að
vera vel vakandi fyrir hugsanlegum
breytingum á líkamsþyngd og
grípa í taumana til að koma í veg
fyrir að fólk léttist eða þyngist um
of.
Gamalt fólk, sem borðar lítið
vegna sjúkdóma eða greinist í lé-
legu næringarástandi, þarf sérfæði,
sem er næringarþéttara en al-
menna fæðið,“ segir Hólmfríður.
Feitar mjólkurvörur eru þá notaðar
í stað fituskertra, meira er notað af
rjóma og smjöri en heldur minna af
kartöflum og grænmeti.
Í ritinu Matur fyrir aldraða er
einnig fjallað um fæði fyrir syk-
ursjúka, of þunga og fyrir þá, sem
einhverra hluta vegna, eiga erfitt
með að tyggja eða kyngja og þurfa
þá hakkað eða maukað fæði.
HEILSA | Lýðheilsustöð gefur út fræðsluritið Matur fyrir aldraða
Vaka þarf yfir
líkamsþyngd aldraðra
Morgunblaðið/Kristinn.
Rannsóknir hafa sýnt að það er aldrei of seint að byrja að hreyfa sig.
Fræðslurit Lýðheilsustöðvar um
mataræði fyrir aldraða.
Þrátt fyrir að orkuþörf
líkamans minnki með
aldrinum minnkar
ekki þörfin fyrir
næringarefni að sama
skapi, segir Hólmfríður
Þorgeirsdóttir hjá
Lýðheilsustöð.
TENGLAR
.....................................................
www.lydheilsustod.is
join@mbl.is