Morgunblaðið - 06.04.2005, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. APRÍL 2005 23
UMRÆÐAN
H
rin
gb
ro
t
BRAUÐBÆR - SÍMI 511 6200 - FAX 511 6201
ODINSVE@ODINSVE.IS - WWW.ODINSVE.IS
MATARSNEIÐAR Á FUNDINN
fyrir fundvíst fólk
ÚTSÖLUMARKAÐUR
Verðlistans er á Suðurlandsbraut 8 (Fálkahúsinu)
Opið 12-18
mán.-föstud.
Morgunverðarfundur á Nordica hótel kl. 8:15-10:00 H - salur
08:15-08:30 Morgunkaffi
Dagskrá hefst kl 8:30
08:30-08.35 Ávarp
Sigurður Guðmundsson, landlæknir
08:35-08:50 Heilsa mæðra og barna í alþjóðlegu samhengi
Geir Gunnlaugsson, barnalæknir og forstöðumaður,
Miðstöð heilsuverndar barna
08:50-09:05 Félagslegir áhrifaþættir - af hverju eru sumir
heilbrigðari en aðrir?
Anna Björg Aradóttir,
hjúkrunarfræðingur Landlæknisembættinu
09:05-09:15 Mæðravernd á Íslandi
Hildur Kristjánsdóttir,
ljósmóðir Heilsugæslustöðinni Sólvangi
09:15-09:25 Ung- og smábarnavernd fyrir sérhvert barn
Sesselía Guðmundsdóttir,
sviðsstjóri Miðstöð heilsuverndar barna
09:25-10:00 Pallborðsumræður og fyrirspurnir
Þátttakendur Lára Björnsdóttir, sviðsstjóri velferðarsviðs Reykjavíkurborgar, Unnur
Stefánsdóttir, leikskólastjóri Urðarhóli, Guðrún Guðmundsdóttir,
hjúkrunarfræðingur, verkefnisstjóri Geðræktar Lýðheilsustöð, Geir Gunnlaugsson,
barnalæknir og forstöðumaður Miðstöð heilsuverndar barna, Anna Björg Aradóttir,
hjúkrunarfræðingur Landlæknisembættinu, Sigríður Sía Jónsdóttir, yfirljósmóðir
Miðstöð mæðraverndar, Margrét I. Hallgrímsson, sviðsstjóri hjúkrunar/yfirljósmóðir,
Landspítala-háskólasjúkrahúsi
Fundarstjóri Margrét Björnsdóttir, deildarstjóri í heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneyti
Enginn aðgangseyrir eða skráning á fundinn
Heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytið
Landlæknisembættið
Sérhver móðir
- sérhvert barn
M a k e e v e r y m o t h e r a n d c h i l d c o u n t
Alþjóða
heilbrigðis-
dagurinn
7. apríl
YFIRTAKA samgönguyfirvalda
á Reykjavíkurflugvelli 06.07.1946
jafngildir valdaráni. Allt skipulags-
vald, sem máli skiptir, var þá tekið
af Reykvíkingum.
Frá þeirri stundu hefur sam-
gönguráðherra beitt mikilli og vax-
andi hörku gegn höfuðborginni.
Samgönguráðherra ræður loft-
helgi í 45 m hæð yfir 30 km² á Sel-
tjarnarnesi, í vesturbæ Kópavogs
og vesturborg Reykjavíkur.
Hann ræður útfærslu, tímasetn-
ingu og fjármögnun stofnbrauta-
framkvæmda í borginni.
Samgönguráðherra getur bæði
beitt valdi í borgarstjórn og veitt
áhrifum sínum um boðleiðir rík-
isvaldsins, td.
Flugmálastjórn, Vegagerð,
Ferðamálaráð, Samgöngunefnd,
Fjárlaganefnd, umhverfisráðuneyti
og heilbrigðisráðuneyti.
Í tæp 60 ár hefur hann ráðið
skipulagsstefnu Reykjavíkurborgar
með atbeina D- og B-lista, sem
tryggja framgang byggðastefn-
unnar, þvert gegn hagsmunum
borgarbúa.
Þannig er knúinn fram vilji ráð-
herrans, sem mótar allt skipulag
borgarinnar sbr. gildandi Aðal- og
Svæðisskipulag.
Með illa fengnu valdi hamlar
samgönguráðherra þróun borg-
armenningarinnar, magnar fjand-
skap á landsbyggðinni, sóar landi í
miðborginni fyrir milljarða króna
og byggir óþarfan flugvöll, flug-
stöð og Hringbraut fyrir 5 millj-
arða króna.
Hann vinnur að því að borgin
verði ekki of góð og til að festa
Reykjavíkurflugvöll í sessi beitir
hann m.a. ríkisreknu innanlands-
flugfélagi, hollvinasamtökum flug-
vallar, röngum upplýsingum, af-
bökuðum vísinda-
gögnum og Samgöngu-
áætlun til 2014, sem
byggir á að flugvöllur
sé í Vatnsmýri.
Samgönguráðherra
beitir víðtæku við-
horfsneti þrælsótta,
skoðanakúgunar og
undirlægjuháttar með-
al fjölmennra hópa
embættismanna, verk-
fræðinga, arkitekta,
hagfræðinga og verk-
taka, sem eiga allt
undir velvild sam-
gönguyfirvalda, sem
árlega útdeila mestöllu
framkvæmdafé lýðveld-
isins.
Tjónið af flugvell-
inum er ólýsanlegt. Gamli mið-
bærinn er kominn að fótum fram,
nærþjónusta og grunnur almenn-
ingssamgangna eru brostin og
byggðin þekur landflæmi á við
evrópska stórborg.
Með 42.000 íbúum
og störfum í stað
flugvallar væri
verðmæti Vatns-
mýrarsvæðisins
200.000.000.000 kr.,
daglegur sparnaður
af akstri bíla til 2024
um 255.000.000 kr.
og uppsafnaður
sparnaður
1.860.000.000.000 kr.
Með 55 – 70 þúsund
íbúum og störfum
væri verðmæti lands-
ins og sparnaður af
akstri hlutfallslega
meiri.
Áhrif þessa skil-
virka borgarskipulags
á þjóðarhag eru á við mörg álver,
stofnkostnaður og áhætta eru hins
vegar engin og umhverfisáhrif
mjög jákvæð. Í tillögu samgöngu-
ráðherra um stytta NS flugbraut
og 5–9.000 íbúa er verðmætið 22 –
36 milljarðar króna og sparnaður
af akstri nær enginn.
Frá 1946 mótuðu landsbyggð-
arforkólfar borgina í skugga at-
kvæðamisvægis, með byggðastefnu
að vopni, í gegnum nefndir Alþing-
is, með beinum þrýstingi á kjós-
endur og kjörna fulltrúa í Reykja-
vík og undir framkvæmdastjórn
samgönguráðherra.
En Reykvíkingar höfðu engin
áhrif. Skipulagið var aldrei á dag-
skrá í kosningum og kjörnir
fulltrúar í borgarstjórn og á Al-
þingi beittu rangfærslum og þögn í
samskiptum við kjósendur.
Vatnsmýrarkosningin 2001 var
strax gerð ógild.
Í áratugi hafa reykvískir ráða-
menn varið völd sín með takmörk-
un á fjölda borgarfulltrúa.
Nú eru þeir 15 eins og 1908, þó
íbúar séu 16 sinnum fleiri. Sam-
kvæmt evrópskum og bandarískum
stöðlum ættu þeir að vera 45–60.
Lýðræðisþröskuldurinn í
Reykjavík er óbærilega hár eins
og best sést af fráleitri valdaklíku
R-lista.
Höfuðborg í herkví
Örn Sigurðsson skrifar
um skipulagsmál
’Tjónið af flug-vellinum er
ólýsanlegt.‘
Örn
Sigurðsson
Höfundur er arkitekt.
Pétur Steinn Guðmundsson:
„Þær hömlur sem settar eru á
bílaleigur eru ekki í neinu sam-
ræmi við áður gefnar yfirlýsingar
framkvæmdavaldsins, um að
skapa betra umhverfi fyrir bíla-
leigurnar.“
Guðmundur Hafsteinsson:
„Langbesti kosturinn í stöðunni
er að láta TR ganga inn í LHÍ og
þar verði höfuðstaður framhalds-
og háskólanáms í tónlist í land-
inu.“
Hjördís Ásgeirsdóttir: „Ég er
ein af þeim sem heyrðu ekki
bankið þegar vágesturinn kom í
heimsókn.“
Vilhjálmur Eyþórsson: „For-
ystumennirnir eru undantekning-
arlítið menntamenn og af góðu
fólki komnir eins og allir þeir,
sem gerast fjöldamorðingjar af
hugsjón. Afleiðingar þessarar
auglýsingar gætu því komið á
óvart.“
Jakob Björnsson: „Mannkynið
þarf fremur á leiðsögn að halda í
þeirri list að þola góða daga en á
helvítisprédikunum á valdi óttans
eins og á galdrabrennuöldinni.“
Jakob Björnsson: „Það á að fella
niður með öllu aðkomu forsetans
að löggjafarstarfi.“
Ólafur F. Magnússon: „Ljóst er
að án þeirrar hörðu rimmu og víð-
tæku umræðu í þjóðfélaginu sem
varð kringum undirskriftasöfnun
Umhverfisvina hefði Eyjabökkum
verið sökkt.“
Ásthildur Lóa Þórsdóttir: „Vilj-
um við að áherslan sé á „gömlu og
góðu“ kennsluaðferðirnar? Eða
viljum við að námið reyni á og
þjálfi sjálfstæð vinnubrögð og
sjálfstæða hugsun?“
Bergþór Gunnlaugsson: „Ég
hvet alla sjómenn og útgerðar-
menn til að lesa sjómannalögin,
vinnulöggjöfina og kjarasamn-
ingana.“
Aðsendar greinar á mbl.is
www.mbl.is/greinar
Fyrir flottar konur
Bankastræti 11 • sími 551 3930