Morgunblaðið - 06.04.2005, Side 32
32 MIÐVIKUDAGUR 6. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
Dúdda frænka, eins
og við kölluðum hana,
var móðursystir mín.
Hún var góð kona og sérstaklega
barngóð og barnabörnum sínum
góð amma. Hún vildi hafa þau sem
oftast hjá sér. En henni var annt
um öll börn sem hún þekkti, vildi
frétta af þeim og helst gefa þeim
eitthvað. Hún var svo gjafmild.
Þegar ég var tíu ára fékk ég að
fara til Reykjavíkur og vera hjá
Dúddu smátíma. Hún var gift
Þórði Kaldalóns. Þau áttu tveggja
ára son, Sigvalda Snæ. Þau áttu
heima í fallegu húsi í Skerjafirði.
Þau leigðu risíbúðina. Það var fal-
legur garður við húsið. Þetta var
skemmtilegur tími. Þau voru búin
að kaupa land í Fossvogi og ætluðu
að byggja hús þar og rækta.
Dúdda var mjög jákvæð.
ARNÞRÚÐUR
KALDALÓNS
✝ Arnþrúður Guð-björg Sigurðar-
dóttir Kaldalóns
fæddist 23. október
1919 á Bæjum á Snæ-
fjallaströnd. Hún lést
aðfaranótt föstu-
dagsins langa 25.
mars á hjúkrunar-
heimilinu Grund og
var útför hennar
gerð frá Fossvogs-
kirkju 1. apríl.
Þegar við spjölluð-
um um börnin sagði
hún oft: „Þetta er nú
þessi aldur!“ eða:
„Þetta gengur yfir.“
Það var oft gest-
kvæmt hjá Dúddu.
Hún var snögg að
baka þessar fínu
pönnukökur. Dúdda
hafði góða nærveru.
Manni leið vel í návist
hennar. Hún talaði
aldrei illa um nokkurn
mann. Blessuð sé
minning hennar.
Ingibjörg
Gunnarsdóttir.
Þegar mér bárust fregnir af and-
láti Dúddu, hvarflaði hugurinn
strax í bakhúsið við Laugaveg 49,
þar sem Dúdda bjó með börnum
sínum þegar ég kom fyrst í heim-
sókn til hennar með móður minni,
sjálfur barn að aldri. Þar var
hvorki hátt til lofts né vítt til
veggja, en það skynjaði ég hvorki
þá né þau ótal skipti sem ég átti
eftir að heimsækja Dúddu og vini
mína syni hennar síðar. Það var
gott að koma til Dúddu, hún tók
ævinlega á móti manni glöð í fasi
og með mikilli hlýju og hennar litla
heimili var höll, ekki síst þegar
Simmi bauð okkur unglingahópn-
um heim, fjöldi fólks fyllti íbúðina
og Dúdda bakaði sínar annáluðu
pönnukökur. Þarna var glatt á
hjalla og þarna leið manni vel.
Í minningunni var þessi litla íbúð
yfirmáta friðsæl en jafnfram svo
full af lífi. Allt við þetta heimili
hafði aðdráttarafl, Simmi og Sig-
valdi að tefla djúpt þenkjandi í
þögn umhverfisins eða Simmi og
Sigvaldi í hryggspennu með því-
líkum tilþrifum og bægslagangi að
ekki bara íbúðin heldur allt húsið
nötraði og Dúdda að skamma þá,
hvöss en þó svo hlý að manni gat
eiginlega bara liðið vel undir slík-
um skömmum. Pönnukökurnar
hennar Dúddu eru samofnar minn-
ingunni um þetta heimili.
Dúdda var einstaklega jarðbund-
in og skynsöm kona en jafnframt
mikil andans manneskja, fljúgandi
hagmælt og talaði fallegt mál. Mér
eru minnisstæðar fallegar, meitl-
aðar og eftir atvikum hvassar setn-
ingar hennar um menn og málefni.
Ég hef aldrei borið gælunafn, en
Dúdda var sú eina sem oftast
ávarpaði mig með gælunafni og
jafnvel viðurnefni ef sá gállinn var
á henni. Mér þótti vænt um þetta,
því það var ávallt svo mikil hlýja
sem fylgdi orðum hennar. Ég hef
verið þeirrar gæfu aðnjótandi að
eiga syni Dúddu fyrir vini, Simmi
var nánari á unglingsárunum en
við Sigvaldi urðum nánir vinir síð-
ar. Oft höfum við Sigvaldi setið og
rætt um æsku, uppvöxt og lífs-
hlaup mæðra okkar, en Dúdda var
jafngömul móður minni svo aðeins
munar fjórum dögum og þótti okk-
ur því forvitnilegt að bera ævi
þeirra saman, önnur sunnan úr álfu
og hin norðan af Snæfjallaströnd.
Sú mynd sem ég hef af Dúddu,
bæði af persónulegum kynnum og
frásögnum Sigvalda, er mynd af
hetju, dugmikilli, yfirvegaðri konu
sem missti manninn sinn ung að
árum frá þremur börnum en vann
úr því á sinn hljóðláta og farsæla
hátt. Heimurinn væri betri staður
ef fleiri fengju slíkt veganesti sem
Dúdda veitti börnum sínum og
miðlaði jafnframt til okkar sem
nutum návista hennar af og til. Ég
kom ævinlega ríkari af hennar
fundi, heimsókn til Dúddu var
mannbætandi.
Börnum Dúddu og barnabörnum
votta ég hluttekningu mína.
Örn Svavarsson.
✝ Þóra Þorkels-dóttir fæddist í
Reykjavík 20. októ-
ber 1906. Hún lést á
Elli- og hjúkrunar-
heimilinu Grund 29.
mars síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru Þorkell Guð-
mundsson og Kristín
Jónsdóttir. Systkini
Þóru sem var næst-
elst, í aldursröð, eru:
Guðrún, Jón, Mar-
grét, Kristín, Ásta
Sigríður, Hjördís,
Áslaug og Guð-
mundur. Ásta og Hjördís eru lif-
andi, hin eru látin.
Þóra giftist Óskari Þórðarsyni,
f. Nú er hún elsku amma okkar og
langamma Þóra Þorkelsdóttir dá-
mat og oftar en ekki var rúg-
brauð með hennar heimsfrægu
kindakæfu á boðstólum. Amma og
afi áttu glæsilegt heimili á Greni-
mel í mörg ár og þar vildi maður
helst alltaf vera því þar var svo
mikil ró yfir öllu og svo garðurinn
og trén til að klifra í að ekki sé
talað um að fá að hjálpa afa að
smíða, það þótti okkur alveg frá-
bært.
Amma var mikil hannyrðakona
og saumaði hún allt á milli himins
og jarðar en sængurnar hennar
voru frábærar, sennilega þótti
okkur svona vænt um þessar
sængur vegna þess að hún gerði
þær en svona var það með allt
sem hún gerði, alltaf þessi hlýja
og góðmennska í öllu.á Stokkseyri
10.6. 1908, d. 19.4. 1994. Þau ólu
upp bróðurson Þóru, Þorkel Guð-
mundsson. Synir hans eru Hjalti
Þór, Óskar, Þorkell Guðmundur
og Marteinn.
Útför Þóru verður gerð frá
Neskirkju í dag og hefst athöfnin
klukkan 15.
in. Hún amma eða
„Dúlla“ eins og hún
var alltaf kölluð var
sú kona sem veitti
okkur alltaf mikla
hlýju og öryggi þegar
eitthvað bjátaði á.
Alltaf var hún boðin
og búin að hjálpa okk-
ur og veita okkur það
skjól með ást og ein-
lægni sem okkur
stundum skorti. Við
bræðurnir vorum allt-
af velkomnir til henn-
ar með okkar fjöl-
skyldur og á
gagnfræðaskólaárunum hjá Þor-
keli og Marteini voru þeir í hálfu
fæði hjá henni þar sem hún bjó
rétt hjá Hagaskóla. Þar mættum
við alltaf í hádeginu og fengum
Sólin er hnigin,
sest bak við skýin.
Og ég hugsa til þín næturlangt.
Baráttuknúin,
boðin og búin.
Tókst mig upp á þína arma á ögurstundu.
Þú varst alltaf þar í blíðu og stríðu
og hjá þér átti ég skjólið mitt.
Alltaf gat ég treyst á þína þýðu.
Og ég þakka þér
alla mína ævidaga.
Hve oft þú huggaðir og þerraðir tárin mín.
Hve oft þau hughreystu mig orðin þín.
Studdir við bakið.
– Stóðst með mér alla leið.
Opnaðir gáttir.
Allt sem þú áttir
léstu mér í té
-og meira til.
Hóf þitt og dugur.
Heill var þinn hugur.
Veittir mér svo oft af þínum viskubrunni.
Kenndir mér og hvattir æ til dáða
og mín kaun græddir þá þurfti við.
Alltaf mátti leita hjá þér ráða.
Og ég eigna þér
svo ótal margt í mínu lífi.
(Stefán Hilmarsson.)
Við kveðjum þig nú í hinsta sinn,
elsku amma, með miklum söknuði.
Farðu í friði og megi guð vaka yfir
þér hinum megin eins og hann gerði í
þínu langa og hamingjusama lífi
hérna megin.
Þess óska litlu barnabörnin þín,
Hjalti Þór, Óskar, Þorkell Guð-
mundur, Marteinn og Þóra Þor-
kelssbörn og fjölskyldur þeirra.
ÞÓRA
ÞORKELSDÓTTIR
Alúðarþakkir fyrir hlýhug og samúð við andlát
og útför ástkærs eiginmanns, föður og afa,
JÓNS SIGTRYGGSSONAR
fyrrv. aðalbókara,
Árskógum 6,
Reykjavík.
Guð blessi ykkur öll.
Halldóra Jónsdóttir,
Sigtryggur Jónsson,
Jón Haukur,
Halldór Emil og Gyða Rós.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý-
hug við andlát móður okkar, tengdamóður,
systur, ömmu og langömmu,
HULDU NORÐDAHL,
Hrafnistu,
Hafnarfirði.
Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki á
deild 3B á Hrafnistu Hafnarfirði.
Halldór Pálsson,
Margrét Pálsdóttir,
Haraldur Magnússon,
Ragna S. G. Norðdahl,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn, sonur, faðir,
tengdafaðir og afi,
BERNHARÐ STEINGRÍMSSON,
Tungusíðu 2,
Akureyri,
verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju föstu-
daginn 8. apríl kl. 13.30.
Sigurbjörg Steindórsdóttir,
Steingrímur Bernharðsson,
Berghildur Erla Bernharðsdóttir, Edvard Börkur Edvardsson,
Bernharð Stefán Bernharðsson,
Björg Maríanna Bernharðsdóttir, Sigurður Blomsterberg,
Steingrímur Magnús Bernharðsson
og afabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý-
hug við andlát og útför elskulegrar eiginkonu
minnar, móður, tengdamóður, ömmu og lang-
ömmu,
LÁRU HANSDÓTTUR
kennara,
Efstaleiti 12.
Gunnar Þ. Gunnarsson,
Ragnheiður Sara Hafsteinsdóttir, Ingvi Hrafn Jónsson,
Kristinn Már Hafsteinsson,
Ólöf Lára Hafsteinsdóttir,
Hafsteinn Orri Ingvason, Kristín Berta Sigurðardóttir,
Ingvi Örn Ingvason,
Ragnheiður Sara Heimisdóttir,
Ingvi Hrafn Hafsteinsson.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og vináttu við andlát og útför okkar
kæru systur og mágkonu,
ÁRNÝJAR HULDU STEINÞÓRSDÓTTUR,
Freyjugötu 30,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á deild A-3 á
elli- og hjúkrunarheimilinu Grund fyrir frábæra
umönnun og hlýju.
Gréta Steinþórsdóttir, Bragi Þorsteinsson,
Hilmar Steinþórsson
og aðrir aðstandendur.
Elskuleg sambýliskona mín, dóttir, móðir og
systir,
JÓNÍNA ÞORBJÖRG SIGNÝ PÁLSDÓTTIR,
Kríuhólum 2,
Reykjavík,
andaðist á heimili sínu þriðjudaginn 8. mars
síðastliðinn.
Útför hennar hefur þegar farið fram í kyrrþey.
Hörður Guðmannsson,
Rannveig Þórðardóttir,
Anna Lísa Sigfúsdóttir,
Erling Páll Karlsson,
Margrét Steinunn Pálsdóttir og fjölskylda.