Morgunblaðið - 06.04.2005, Side 34
34 MIÐVIKUDAGUR 6. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn
Félagslíf
Njörður 6005040619 I
HELGAFELL 6005040619 IV/V
GLITNIR 6005040619 I
I.O.O.F. 9 185468½ Fl.
I.O.O.F. 7 185467½
I.O.O.F.18185468
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Bænastund í kvöld kl. 20.00.
Raðauglýsingar 569 1111
Starfsfólk óskast
Starfsfólk, 40 ára og eldra, óskast við ræstingar
í framleiðsludeild Myllunnar í Skeifunni 19,
Reykjavík. Vinnutími eftir samkomulagi. Einnig
vantar fólk til sumarafleysinga í sömu deild.
Starfið hentar jafnt körlum sem konum.
Umsóknum skal skila til Myllunnar, starfs-
mannaþjónustu, eigi síðar en miðvikudaginn
14. apríl nk. Hægt er að nálgast umsóknareyðu-
blöð á skrifstofu Myllunnar.
Myllan,
Skeifunni 19, Reykjavík.
Lagermaður
BM Vallá óskar að ráða lagermann í afgreiðslu
sína í Suðurhrauni 6, Garðabæ. Viðkomandi
þarf að vera með lyftarapróf og helst vanur
á skotbómulyftara, það er þó ekki krafa.
Nánari upplýsingar veitir Leó Jónsson í síma
565 1444 eða á staðnum.
Seyðisfjörður | Á málþingi og sýn-
ingu, sem haldin verða á Seyðisfirði
8. og 9. apríl næstkomandi, verður
fjallað um gömul hús í skipulagi sam-
tímans.
Í fréttatilkynningu frá aðstand-
endum málþingsins segir að Seyðis-
fjarðarkaupstaður og Tækniminja-
safnið hafi um árabil unnið að
varðveislu og nýtingu gamalla húsa á
Seyðisfirði. Sum húsanna hýsi stofn-
anir bæjarins eða tilheyri starfsemi
Tækniminjasafnsins, meðan önnur
séu í eigu einstaklinga, fyrirtækja og
ríkisins.
Áberandi mörg húsanna eru
norskættuð og byggð í kringum
1880–1920. Seyðisfjörður er oft kall-
aður norski bærinn, enda stofnaður
árið 1895 í kjölfar líflegrar starfsemi
norskra athafnamanna á borð við
Ottó Wathne.
Á undanförnum árum hefur verið
vaxandi þörf á ákvörðunartöku um
framtíð gamalla húsa, aðallega timb-
urhúsa. Sumir sjá í húsunum byrði
sem nútímasamfélag væri betur
komið án, meðan aðrir sjá í þeim
verðmætan menningararf og jafnvel
verðmæta félagslega og efnahags-
lega auðlind sem aðeins bíður þess að
vera nýtt.
Meðal fyrirlesara á málþinginu 9.
apríl verða Kolbjörn Nesje Nybö,
Gunnlaugur B. Jónsson, Jón Sigur-
pálsson, Þorsteinn Bergsson, Örlyg-
ur Kristfinnsson, Sigurður Einars-
son, Magnús Skúlason, Björn Hafþór
Guðmundsson og Björn Karlsson.
Valgerður Sverrisdóttir iðnaðar-
og viðskiptaráðherra setur þingið á
laugardag kl. 13:30 í félagsheimilinu
Herðubreið. Sýning á nýjum verk-
efnum og eldri munum og gögnum
tengt byggð á Seyðisfirði opnar hins
vegar í Herðubreið daginn áður kl.
17.
Seyðfirðingar spyrja hvort finna megi framtíð í fortíðinni
Gömul hús í skipulagi samtímans
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Gamalt og glæsilegt Steinholt er eitt margra uppgerðra húsa á Seyðisfirði og var byggt árið 1907.
VERKALÝÐSFÉLAG Húsavíkur
segir að forsendur kjarasamninga á
almennum markaði séu brostnar og
borðliggjandi sé að kjarasamningum
verði sagt upp í haust eða gengið
verði frá samkomulagi við Samtök
atvinnulífsins um leiðréttingu á kjör-
um verkafólks í takt við aðra hópa í
þjóðfélaginu. Ályktun þessa efnis var
samþykkt á stjórnarfundi félagsins.
„Verðbólga ársins 2006 gæti þá
orðið svipuð og hún var á árunum
2001 og 2002 en þá misstu stjórnvöld
tökin á efnahagsstjórninni og fór
verðbólgan hæst í 9,4%. Það verður
því að gera þá sjálfsögðu kröfu til
stjórnvalda að þau hafi hemil á efna-
hagsástandinu og geri þegar í stað
ráðstafanir til að ná niður vaxandi
verðbólgu.
Kjarasamningarnir byggðu einnig
á því að sú launastefna og þær kostn-
aðarhækkanir sem í samningnum
fælust yrðu almennt stefnumarkandi
fyrir aðra samningagerð á vinnu-
markaði. Heildarkostnaðaráhrif
samningsins á samningstímanum til
ársloka 2007 voru metin á 15,8%.
Þessar forsendur eru einnig brostn-
ar þar sem ýmsir hópar launafólks
hafa fengið umtalsvert meiri hækk-
anir en fólk á almenna vinnumark-
aðinum. Verkalýðsfélag Húsavíkur
varaði þegar við undirskrift samn-
inganna við að svona gæti farið. Fé-
lagið telur því borðliggjandi að
kjarasamningum verði sagt upp í
haust eða gengið verði frá samkomu-
lagi við Samtök atvinnulífsins um
leiðréttingu á kjörum verkafólks í
takt við aðra hópa í þjóðfélaginu. Við
annað verður ekki unað.“
Kjarasamningum verði sagt upp
BÖRNIN okkar – samtök foreldra-
félaga leikskólanna í Reykjavík, hafa
samþykkt ályktun þar sem fagnað er
þeim áformum borgaryfirvalda að
bjóða upp á gjaldfrjálsan leikskóla í
Reykjavík. Jafnframt er skorað á
yfirvöld að stytta verulega þann tíma
sem áformað er að það taki að koma
á gjaldfrjálsum leikskóla og stefna
að því að taka næsta skref strax nú í
haust.
„Leikskólagjöld eru í dag þungur
baggi í útgjöldum foreldra leikskóla-
barna, eða rúm 28.000 á mánuði fyrir
8 stunda vistun eins barns og 47.200
ef börnin eru tvö (42.160 ef eldra
barnið er 5 ára). Þarna er um háar
upphæðir að ræða og hlýtur að telj-
ast fagnaðarefni fyrir foreldra ungra
barna og þess unga fólks í Reykjavík
sem hyggur á barneignir að sjá fram
á lækkun. Leikskólastigið er skil-
greint sem fyrsta menntastigið og
auk þess er um þessar mundir verið
að sameina leikskóla og grunnskóla-
stigið undir Menntaráð. Það hlýtur
því að teljast eðlilegt að leikskóla-
ganga verði að mestu gjaldfrjáls eins
og önnur skólaganga barna.
Samtökin hafa áður mótmælt
þeim mun sem er á gjaldskrá ein-
stæðra og giftra foreldra og vakið
þannig athygli á því óréttlæti sem
felst í ótekjutengdum niður-
greiðslum.“
Fagna gjald-
frjálsum
leikskóla
GÓÐIR hálsar, stuðningshópur um
krabbamein í blöðruhálskirtli,
verða með mánaðarlegan fund sinn
í húsi Krabbameinsfélagsins í Skóg-
arhlíð 8 í Reykjavík, í dag, miðviku-
dag kl. 17.
Á fundinum verður myndbandið
„Krabbamein í blöðruhálskirtli“
frumsýnt. Myndbandið er danskt en
þýtt og staðfært. Á fundinn verða
fulltrúar frá AstraZeneca sem kost-
aði þýðingu og framleiðslu mynd-
bandsins, þvagfæraskurðlæknar
o.fl.
Fundurinn er einkum ætlaður
þeim sem greinst hafa með krabba-
mein í blöðruhálskirtli og aðstand-
endum þeirra. Kaffi verður á könn-
unni.
Kynna mynd-
band um
krabbamein
LÍKNAR- og vinafélagið Bergmál
býður, eins og gert hefur verið
undanfarin ár, langveikum, blind-
um og krabbameinssjúkum til
einnar viku dvalar í sumar að Sól-
heimum í Grímsnesi, þeim að
kostnaðarlausu.
Fyrri vikan verður 19.–26. maí
nk. og síðari vikan 19.–26. ágúst
nk. Fjölbreytt dagskrá verður, þar
á meðal kvöldvökur þar sem lista-
fólk kemur fram.
Skráning er hafin í fyrri vikuna.
Umsóknir þurfa að berast stjórn
félagsins fyrir 1. maí nk. Nánari
upplýsingar eru veittar í síma
587 5566 og 552 1567.
Skráning í
orlofsvikur
Bergmáls
ÍÞRÓTTA- og ólympíusamband
Íslands í samstarfi við mennta-
málaráðuneytið, Landlæknisemb-
ættið og Lýðheilsustöð standa fyr-
ir ráðstefnu um áhrif hreyfingar á
andlega líðan sem ber yfirskriftina
„Heilbrigð sál í hraustum líkama“.
Markmiðið með ráðstefnunni er
m.a. að kynna rannsóknir sem
gerðar hafa verið á áhrifum hreyf-
ingar á andlega líðan og skoða
ýmsa þætti sem gætu hvatt og
stutt fólk til að hreyfa sig meira
s.s. mögulega ávísun lækna á
hreyfingu í forvarnar- og meðferð-
arskyni.
Meðal fyrirlesara er Rod Dish-
man, prófessor við University of
Georgia í Bandaríkjunum og Sune
Krarup-Pedersen frá Danmörku.
Ráðstefnan fer fram á Hótel
Loftleiðum á morgun, fimmtudag
kl. 9–17. Þátttökugjald er 1.500 kr.
(ókeypis fyrir öryrkja og eldri
borgara). Skráning: Hjá ÍSÍ, s:
5144000, netfang: skraning@isi-
sport.is.
Nánari upplýsingar er að finna á
www.isisport.is
Ráðstefna
um áhrif
hreyfingar á
andlega líðan
SIGURÐUR Kári Kristjánsson,
þingmaður Sjálfstæðisflokks, mælti
nýlega fyrir því á Alþingi að opinber
birting álagningar- og skattskráa
yrði lögð af. Í athugasemdum frum-
varps sem þingmaðurinn hefur lagt
fram á Alþingi segir að núgildandi
löggjöf leggi þá skyldu á skattstjóra
landsins að leggja álagningar- og
skattskrár fram til birtingar. Þeim
sé og gert að auglýsa rækilega hvar
og hvenær skrárnar liggi frammi.
Sigurður Kári sagði m.a., er hann
mælti fyrir frumvarpinu, að ekki
yrði séð að framlagning álagningar-
og skattskráa, samkvæmt núgild-
andi löggjöf, fæli í sér annan tilgang
en að gefa almenningi kost á að
kynna sér fjárhagsleg málefni
náungans. „Veigamestu rökin að
baki frumvarpinu eru þau að telja
verði að birting álagningar- og skatt-
skráa samkvæmt ákvæðum núgild-
andi laga brjóti gegn rétti einstak-
linga til friðhelgi einkalífs.“
Þingmaðurinn sagði að þróunin
hefði orðið sú, á síðustu árum, að
framlagning álagningar- og skatt-
skráa hefði orðið uppspretta frétta
um fjárhagsleg málefni einstaklinga.
„Það er orðinn árlegur viðburður að
fjölmiðlar vinni upplýsingar upp úr
álagningar- og skattskrám um
tekjur manna. Birtir eru listar yfir
tekjuhæstu einstaklingana í hverri
starfsgrein, gjarnan með saman-
burði frá ári til árs. Leiða má líkur að
því að fjölmiðlaumræða af slíku tagi
feli í sér hættu á að einstaklingar
verði fyrir óverðskuldaðri áreitni
vegna tekna sinna, ýmist vegna þess
að þær þyki of háar eða of lágar.“
Opinber birting álagningar- og skattskráa verði aflögð
Brjóti gegn rétti einstak-
linga til friðhelgi einkalífs