Morgunblaðið - 06.04.2005, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. APRÍL 2005 37
DAGBÓK
80 ÁRA afmæli. Í dag, 6. apríl, eráttræð frú Baldvina Gunn-
laugsdóttir á Akureyri. Baldvina mun
fagna stóráfanganum með fjölskyldu
og vinum á heimili sínu laugardaginn 9.
apríl kl. 15.
Árnaðheilla
dagbók@mbl.is
Vika bókarinnar verður haldin dagana19.–25. apríl í sjötta sinn. BenediktKristjánsson er framkvæmdastjóri Fé-lags íslenskra bókaútgefenda sem ber
hitann og þungann af undirbúningi vikunnar.
„Árið 1995 samþykkti menningarmálastofnun
Sameinuðu þjóðanna, UNESCO, að 23. apríl yrði
framvegis alþjóðlegur dagur bóka og höfund-
arréttar og var hann fyrst haldinn árið 1996. 23.
apríl er dánardægur tveggja heimsþekktra rithöf-
unda, Cervantes og Shakespeares sem báðir lét-
ust 1616 en svo vill til að þetta er einnig fæðing-
ardagur nóbelskáldsins, Halldórs Laxness,“ segir
Benedikt.
„Félag íslenskra bókaútgefenda hefur haft for-
göngu um Viku bókarinnar frá árinu 1999. Fram
að þeim tíma, frá árinu 1996, var haldið upp á al-
þjóðadag bókarinnar og höfundarréttar. Frá upp-
hafi hafði Bókasamband Íslands forgöngu um Dag
bókarinnar en Félag íslenskra bókaútgefenda er
aðili að því sambandi. Félag okkar ákvað haustið
1998 að gera „daginn“ að „viku“ frá og með 1999.“
Að Bókasambandi Íslands standa auk Félags
íslenskra bókaútgefenda, Rithöfundasamband Ís-
lands, Hagþenkir, Upplýsing, Félag bókagerð-
armanna, Samtök gagnrýnenda, Samtök iðnarins
og óformleg samtök bóksala.
Hver er ávinningurinn af Viku bókarinnar?
„Í hugum útgefenda er ávinningurinn aug-
ljóslega sá að í þessari viku gefst kærkomið tæki-
færi til að kynna nýjar eða nýlegar bækur. Þema
Viku bókarinnar hefur ávallt verið „Börn & bæk-
ur“ því allir vita gildi þess fyrir börn að lesa. Börn-
um sem alast upp við lestur frá blautu barnsbeini
gengur betur í skóla og almennt í lífinu skv. könn-
unum sem gerðar hafa verið. Því viljum við m.a.
endurvekja þann gamla góða sið að gefa börnum
bók í sumargjöf. Í því tilefni munu ýmsir bókaút-
gefendur vera með margvísleg tilboð á bókum í
Viku bókarinnar, sérstaklega barnabókum.“
Að sögn Benedikts er dagskrá vikunnar óðum
að taka á sig endanlega mynd um þessar mundir.
„Félag okkar sem slíkt stendur ekki fyrir neinum
sérstökum uppákomum öðrum en að gefa út
„gjafabók“ vikunnar, sem að þessu sinni er Árbók
bókmenntanna í ritstjórn Njarðar P. Njarðvík, og
að fá rithöfund til að semja ávarp í tilefni dagsins.
Nýbakaður verðlaunahafi Norðurlandaráðs, Sjón,
mun semja ávarpið í ár. Við hvetjum líka fé-
lagsmenn okkar til að stíla vorútgáfu sína inn á
þessa viku, vera með góð tilboð á bókum, standa
að upplestri og hvers konar öðrum uppákomum er
tengjast höfundum og bókum þeirra og síðast en
ekki síst lestri. Við hvetjum líka alla þá aðila sem
tengjast menningu hvers konar að láta okkur vita
og við munum koma því á framfæri með aðstoð
fjölmiðla.“
Bækur | Vika bókarinnar haldin hátíðleg í sjötta sinn í mánuðinum
Blindur er bóklaus maður
Benedikt Krist-
jánsson er fæddur í
Reykjavík 1953. Hóf
störf hjá Eymundsson
strax að loknu lands-
prófi og hefur starfað
við bóksölu og útgáfu
óslitið síðan. M.a. hjá
Pennanum, Bókaversl-
un Snæbjarnar, Máli og
menningu og Skjald-
borg. Rak Íslend-
ingasagnaútgáfuna frá árinu 1995 þar til hann
tók við starfi framkvæmdastjóra Félags ís-
lenskra bókaútgefenda haustið 2003. Bene-
dikt er kvæntur Rósu Kristjánsdóttur djákna
og eiga þau þrjú börn.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 kl. 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Reykjavíkurflugvöllur
MIKIL umræða hefur að undan-
förnu farið fram um framtíð Reykja-
víkurflugvallar.
Innan tíðar munum við verða að
taka við rekstri Keflavíkurflug-
vallar. Rekstur tveggja, í raun milli-
landaflugvalla, sem eru svo stutt
hvor frá öðrum tel ég vera allsendis
fáránlegan. Það er því e.t.v. rétt að
flytja innanlandsflugið frá Reykja-
vík til Keflavíkur. Þegar þau rök
hafa bæst við að innan tíðar verður
Keflavíkurvegurinn tvöföld hrað-
braut er það kannski skynsamlegast.
Ég hef hins vegar taugar til
Reykjavíkurflugvallar, en þá yrði
hann að mínu mati að vera ein braut.
Ég sá í sjónvarpinu fyrir nokkru
hugmynd um Reykjavíkurflugvöll
með einni braut, sem lá frá norðri til
suðurs. Þessi hugmynd hugnast mér
vel. Auðvitað yrði einhvern tímann
að aflýsa flugi frá Reykjavík en þá
yrði Keflavíkurflugvöllur til vara.
Það væri reyndar fróðlegt að gerð
verði rannsókn á því hversu oft af-
lýsa hefði þurf flugi frá Reykjavík-
urflugvelli með norður-suðurbraut
t.d. síðustu þrjú ár. Miða þyrfti við
að fært hefði verið á aðra flugvelli.
Með norður-suðurbraut mundi
Vatnsmýrin verða eitt heildstætt
skipulagssvæði. Austur-vesturbraut
klýfur svæðið hins vegar í tvennt og
ég sé ekki að þá væri hægt að skipu-
leggja það af nokkru viti utan um
slíkt mannvirki.
Ég tel að þeir sem hafna Reykja-
víkurflugvelli með einni braut séu að
hafna Reykjavíkurflugvelli alfarið
og séu því í raun liðsmenn þeirra
sem engan flugvöll vilja. Slíkir eru
hagsmunir höfuðborgarsvæðisins og
reyndar þjóðfélagsins alls af því að
styrkja miðborg Reykjavíkur og
þétta byggð.
Þið sem viljið Reykjavíkurflugvöll
skuluð ekki gleyma þeirri einföldu
staðreynd að það besta er versti
óvinur þess góða. Sættumst því á að
Reykjavíkurflugvöllur verði áfram
sem ein norður-suðurbraut.
Kristinn Ó. Magnússon,
Hjallabraut 43, Hafnarfirði.
Karakter?
NÚ ER alltaf talað um karakter í
fjölmiðlum, meira segja þegar verið
er að fjalla um íslensku hænuna.
Þetta tröllríður öllu núna. Ég lýsi
eftir íslensku orði yfir karakter sem
nota mætti frekar.
Fyrrverandi bóndi.
Morgunblaðið/Þorkell
Vorum að fá í sölu raðhús auk bílskúrs, sam-
tals 153,2 fm, á frábærum stað við Hraunbæ.
Húsið hefur verið einangrað og klætt að utan.
Fallegur afgirtur gróinn garður við húsið. Gólf-
efni parket. Eign sem vert er að skoða. Getur
verið laus fljótlega. Nánari uppl. á skrifstofu
FM í síma 550 3000. 6608
HRAUNBÆR - RAÐHÚS
6. apríl
Nú sé ég aftur sömu fjöll og dali
og sá ég fyrr um bernsku minnar skeið.
Um ennið heita leikur sami svali
og sama gullið skín á jökulbreið.
Mér er sem við mig bernskuhreimar hjali,
verð hugsi við, en úti á þekju um leið.
að mál er seiði minninganna blandað.
Að mér það streymir, svo ég vart fæ andað.
Aasmund Olavsson Vinje, Noregi (f. 1818):
úr Nú sé ég aftur – (ísl. Magnús Ásgeirsson).
Önnur afmælisbörn dagsins:
Dan Andersson 1888 (Svíþjóð).
Árbók bókmenntanna
Í tilefni af viku bókarinnar 19.–25. apríl mun Félag íslenskra bóka-
útgefenda gefa út bók sem bóksalar munu afhenda viðskiptavinum
sínum að gjöf þessa daga. Bókin nefnist Árbók bókmenntanna og er
skipt niður á alla daga ársins og er birt ljóð eða tilvitnun í einn eða
fleiri höfunda sem afmæli eiga þann dag. Ritstjóri bókarinnar er
Njörður P. Njarðvík. Morgunblaðið mun birta tilvitnun dagsins til
loka viku bókarinnar.
BRYNDÍS Halla Gylfadóttir sellóleikari og Edda Er-
lendsdóttir píanóleikari munu halda tónleika á
Hvammstanga annað kvöld.
Nýútkomin plata þeirra með verkum eftir Kodaly,
Martinu, Enescu og Janacek hlaut nýlega íslensku tón-
listarverðlaunin sem plata ársins og munu þær spila
sömu verk á þessum tónleikum. Platan er gefin út í
París en 12 Tónar sjá um dreifingu hér á landi.
Þær Edda og Bryndís Halla eiga langt og farsælt
samstarf að baki og hafa leikið saman m.a. á Listahátíð
í Reykjavík, á kammertónleikum á Kirkjubæj-
arklaustri, í Salnum, í Iðnó, í París og víðar í Frakk-
landi.
Tónleikarnir eru samstarfsverkefni Félags íslenskra
tónlistarmanna og Tónlistarfélags V-Húnavatnssýslu
með styrk frá menntamálaráðuneytinu.
Bryndís Halla og Edda halda einnig tónleika í Saln-
um í Kópavogi á sunnudag.
Morgunblaðið/Kristinn
Bryndís Halla og Edda
leika á Hvammstanga
KVARTETTINN M& M heldur tón-
leika á Jazzklúbbnum Múlanum sem
staðsettur er á Hótel Borg á fimmtu-
dagskvöldið kl. 21.
Kvartettinn skipa þeir: Ásgeir Ás-
geirsson gítar, Kjartan Valdemars-
son píanó, Róbert Þórhallsson bassi
og Ólafur Hólm trommur. Sérstakir
gestir verða Kristjana Stefánsdóttir
og Gísli Magnason söngvarar og
Kjartan Guðnason á slagverk.
Leikin verður tónlist eftir þá Lyle
Mays og Pat Metheny, en á tónleik-
unum verður rakinn rúmlega þrjátíu
ára ferill Pat Metheny sem hefur verið farsæll frá því hann braust fram á
sjónarsviðið árið 1974 í hljómsveit Gary Burtons.
1975 kemur svo út platan Bright size life sem er af mörgum talin besta
djassgítarplata allra tíma. Pat Metheny group leidd af þeim Pat Metheny og
Lyle Mays hefur verið starfrækt í yfir 20 ár og hefur samstarfi þeirra verið
líkt við Ellington/Strayhorn og Lennon/McCartney af gagnrýnendum, en
þeir hafa afrekað að vinna Grammyverðlaunin sjö ár í röð. Pat Metheny
heldur á bilinu 120-240 tónleika á ári og hefur gert síðan 1974 auk þess að
semja og leika inn á ótal plötur á hverju ári, nokkrir tónlistarmenn sem hann
hefur hljóðritað með eru meðal annars: Jim Hall, Ornette Coleman, Herbie
Hancock, Steve Reich, Joni Mitchel, Jaco Pastorius og David Bowie.
Pat Metheny
heiðraður