Morgunblaðið - 06.04.2005, Side 38
38 MIÐVIKUDAGUR 6. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ
DAGBÓK
Íslandsmótið.
Norður
♠4
♥Á864 A/AV
♦ÁK94
♣KD109
Vestur Austur
♠K97 ♠D6
♥KG10 ♥D97532
♦D107 ♦53
♣G874 ♣Á52
Suður
♠ÁG108532
♥--
♦G862
♣63
Alltaf annað slagið rifjast upp fyrir
umsjónarmanni fleyg orð Galtarins
grimma: „Vandaðar sagnir, herra
minn, ala af sér dauflegan brids.“ Spil-
ið að ofan er frá annarri umferð loka-
úrslita Íslandsmótsins og það er óhætt
að slá því föstu að sagnir séu allt annað
en vandaðar.
AV eru liðsmenn Eyktar, Sverrir
Ármannsson og Aðalsteinn Jörgensen,
en NS Oddur Hjaltason og Eiríkur
Hjaltason í sveit Grants Thorntons.
Vestur Norður Austur Suður
Sverrir Oddur Aðalst. Eiríkur
-- -- 2 tíglar * 4 spaðar
Pass 5 lauf Pass 5 hjörtu
Pass 6 spaðar Allir pass
Aðalsteinn gefur tóninn með því að
vekja á hættunni á „multi“ tveimur
tíglum með drottninguna öskusmátt
sjöttu í hjarta. Eiríkur stekkur tvíeggj-
að í fjóra spaða, sem hann meinar sem
„hindrun á hindrun“, en Oddur tekur
sögnina alvarlega og útkoman verður
einhver vonlausasta slemma sem sést
hefur lengi.
Sverrir kom út með hjartagosa og
Eiríkur þakkaði makker blindan. Eftir
skamma skoðun, trompaði hann fyrsta
slaginn og spilaði laufi á kónginn. Að-
alsteinn taldi sennilegt að slemman
réðist af íferð í laufið og dúkkaði fum-
laust. Eiríkur henti þá hinu laufinu í
hjartaás og spilaði spaða á gosann og
kóng Sverris. Hann trompaði hjartað
sem kom til baka og lagði niður spaða-
ás og drottningin skilaði sér. Þá var
bara tígullinn eftir og Eiríki leist best á
að tvísvína fyrir D10 í vestur. Hann fór
af stað með gosann, drap drottninguna,
spilaði sér heim og svínaði fyrir tíuna.
Tólf slagir.
Hvað hefði Gölturinn sagt um þessa
slemmu? Kannski þetta: „Allir geta
tekið ellefu slagi í fjórum spöðum og
Hérinn hryggi myndi hugsanlega
sleppa einn niður, en aðeins ...“
Hver veit svo sem hvað Gölturinn
hugsar.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Hrúturinn nær árangri í samskiptum í
dag því hann áttar sig á því hvað aðrir
eru að fara. Nú er engu líkara en að
hrúturinn geti lesið hugsanir.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Öllum tíma sem þú nærð að verja í ein-
rúmi í dag er svo sannarlega vel varið.
Þú færð tækifæri til þess að átta þig á
þínum leyndustu tilfinningum. Aukin
sjálfsþekking er bara til bóta.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Hugsjónaeldurinn brennur innra með
þér í dag. Þú þráir að gera heiminn að
betri dvalarstað, til dæmis með skipu-
lagningu og þátttöku í félagsstarfi.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Fólk dáist að þér núna. Það skynjar
samúð þína og umhyggju fyrir öðrum,
hvorttveggja göfugir eiginleikar sem
kalla á virðingu samferðamanna.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Samræður um heimspeki, trúmál og
pólitík virðast dálítið óraunsæjar í dag.
Ljónið talar um hvernig það vill að hlut-
irnir séu, ekki hvernig þeir eru í raun.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Notaðu daginn í dag til þess að deila með
öðrum eða skipta einhverju. Þú vilt að
komið sé fram við fólk af sanngirni, líka
þig.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Samskiptahæfileikar þínir eru frábærir
þessa dagana. Þú ert full samúðar og
gæsku í garð náungans, en jafnframt
skapandi og léttlynd.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Treystu innsæinu í dag. Þú virðist
skynja allt sem ekki er sagt um þessar
mundir og átta þig á því hvað fólk vill
innst inni. Fyrir vikið gleður þú náung-
ann.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Sköpunarkraftur þinn er mikill þessa
dagana. Einnig áttu gott með að fást við
börn og unglinga. Nú væri gott að vera í
fríi eða listsköpun af einhverju tagi.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þig langar til þess að kaupa glæsilega
muni fyrir heimilið eða fjölskyldu-
meðlimi. Þú ert rausnarleg, jafnvel
eyðslusöm og mikill fagurkeri núna.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Samræður við systkini og fjölskyldu-
meðlimi eru gagnlegar í dag og allir
bæði til í að tala og hlusta. Þú finnur
hvað það er sem aðrir vilja.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Viðskipti, verslun og innkaupaferðir
ættu að ganga vel í dag. Fiskurinn hefur
yndi af skóm, hvernig væri að líta í
kringum sig. Fegurðin heillar núna.
Stjörnuspá
Frances Drake
Hrútur
Afmælisbarn dagsins:
Þú ert forvitin persóna og nýtur þess að
prófa nýja hluti. Þú ert líka frumleg og
hefur ánægju af því að gaumgæfa og rýna
í ýmsar hliðar tilverunnar.
Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár
af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
1. e4 c6 2. d4 d5 3. e5 Bf5 4. Be3 Db6
5. Dc1 e6 6. c4 dxc4 7. Bxc4 Re7 8.
Re2 Dd8 9. O-O Rd7 10. Rg3 Bg6 11.
Rc3 Rf5 12. Bg5 Db6 13. Rxf5 Bxf5
14. Hd1 h6 15. Bh4 Db4 16. Be2 g5
17. Bg3 h5 18. h4 gxh4 19. Bxh4 Bh6
20. f4 Rxe5 21. a3 Db6 22. Ra4 Da5
23. dxe5 Dxa4 24. Dc5 Bf8 25. Df2
Da5 26. b4 Db6 27. Hd4 Bc2 28. Ha2
Bb3 29. Had2 Bd5 30. f5 Dc7 31. Bf6
Hh6
Staðan kom upp á Ambermótinu
sem lauk fyrir skömmu í Mónakó.
Alexey Shirov (2713), hvítt, hafði
fengið töluvert rýmra tafl í atskák
sinni gegn Viswanathan Anand
(2786) eftir að hafa fórnað peði. Hefði
hvítur leikið 32. Df2-h4 í síðasta leik
hefði hann haldið áfram að þjarma að
svörtum en þess í stað lék hann 32.
Dg3??. Indverjinn nýtti sér það að
bragði og eftir 32... Hxf6! gafst hvítur
upp enda er hrókurinn friðhelgur þar
eð eftir 33. exf6 Dxg3 verður svartur
drottningu yfir.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Svartur á leik.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Krossgáta
Lárétt | 1 vesæll, 4 loð-
skinns, 7 spjalds, 8 ófag-
urt, 9 andi, 11 vitlaus,
13 lykkja, 14 upptekið,
15 hæð, 17 óhapp, 20 ótta,
22 bælir niður, 23 snúið,
24 glerið, 25 bik.
Lóðrétt | 1 tryggingafé,
2 rolan, 3 þvaður, 4 minni,
5 skímu, 6 miðlaði málum,
10 frek, 12 aðgæsla,
13 eldstæði, 15 vesældar-
búskapur, 16 heitbundin,
18 vesalmenni, 19 illfygli,
20 eydd, 21 næðing.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt | 1 gamlingja, 8 útveg, 9 gætni, 10 Níl, 11 tegli,
13 auðum, 15 hængs, 18 strút, 21 tek, 22 lotni,
23 innan, 24 griðungur.
Lóðrétt | 2 alveg, 3 lagni, 4 negla, 5 játað, 6 búnt, 7 fimm,
12 leg, 14 urt, 15 hólf, 16 nótur, 17 stirð, 18 skinn,
19 rennu, 20 tonn.
Tónlist
Hafnarborg | Hádegistónleikar í Hafn-
arborg miðvikudaginn 6. apríl kl. 12. Ólaf-
ur Kjartan Sigurðarson baríton og Ant-
onía Hevesi píanóleikari. Enginn
aðgangseyrir.
Myndlist
Bananananas | Metorðstiginn – Tinna
Kvaran sýnir.
Energia | Málverkasýning aprílmánaðar.
Ólöf Björg.
FUGL | Anna Hallin, Hugarfóstur – kort
af samtali.
Gallerí Gangur | Haraldur Jónsson, af-
gangar.
Gallerí Sævars Karls | Regína Lofts-
dóttir sýnir olíumálverk máluð á striga.
Gerðarsafn | Fjórar glerlistasýningar.
Gerðuberg | Ljósberahópurinn – Hratt og
hömlulaust.
Gerðuberg | María Jónsdóttir – Gull-
þræðir. Klippimyndir, verk úr muldu grjóti,
olíumálverk og fleira í Boganum.
Grensáskirkja | Guðbjörg Hákonardóttir
(Gugga) sýnir málverk í forsal.
Hallgrímskirkja | Vignir Jóhannsson –
Sólstafir.
Hrafnista Hafnarfirði | Gerða Kristín
Hammer sýnir akrílmyndir og fleiri list-
muni í Menningarsal á fyrstu hæð.
Íslensk grafík | Nikulás Sigfússon, vatns-
litamyndir.
Kaffi Sólon | Birgir Breiðdal – eitt verk,
ekkert upphaf né endir.
Listasafn Íslands | Íslensk myndlist
1930-45. Rúrí, Archive Endangered
Waters.
Listasafn Akureyrar | Erró, verk í eigu
Listasafns Reykjavíkur.
Listasafn Reykjanesbæjar | Erlingur
Jónsson og samtímamenn.
Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús | Nían
– Myndasögumessa. Brynhildur Þorgeirs-
dóttir – Myndheimur/Visual World.
Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir |
Markmið XI og Hörður Ágústsson, yf-
irlitssýning.
Listasafn Reykjavíkur, Ásmundarsafn |
Maðurinn og efnið, yfirlitssýning á verk-
um Ásmundar.
Listasafn Reykjanesbæjar | Erlingur
Jónsson og samtímamenn.
Ljósmyndasafn Reykjavíkur | Bára ljós-
myndari – Heitir reitir.
Norræna húsið | Farfuglarnir, sýning sex
norrænna myndarlistarmanna frá Finn-
landi, Danmörku og Íslandi.
Nýlistasafnið | Egill Sæbjörnsson og
Magnús Sigurðarson, Skitsófrenía,
Skyssa og Frenía, Skits og Frenja. Leen
Voet, Limbo.
Safn, Laugavegi 37 | Ingólfur Arnarsson
og listamenn frá Pierogi-galleríiinu.
Suð-Suðvestur, Keflavík | Ásmundur
Ásmundsson.
Dans
Þjóðdansafélag Reykjavíkur | Opið hús
verður miðvikudaginn 6. apríl í sal félags-
ins að Álfabakka 14A R. kl. 20.30. Gömlu
dansarnir. Allir velkomnir.
Söfn
Gljúfrasteinn – Hús skáldsins | Gljúfra-
steinn – hús skáldsins er opið frá kl. 10 –
17. Skemmtileg og fræðandi hljóðleiðsögn
um húsið, margmiðlunarsýning um ævi
skáldsins og fallegt umhverfi. Sími
586 8066 netfang: gljufrateinn@gljufra-
steinn.is.
Þjóðmenningarhúsið | Hallgrímur Pét-
ursson (1614–1674) er skáld mánaðarins í
Þjóðmenningarhúsinu.
Þjóðminjasafn Íslands | Grunnsýning
Þjóðminjasafnsins, Þjóð verður til–
menning og samfélag í 1200 ár. Ómur
Landið og þjóðin í íslenskri hönnun. Ljós-
myndasýningarnar Í vesturheimi 1955
ljósmyndir Guðna Þórðarsonar og Íslend-
ingar í Riccione ljósmyndir úr fórum Man-
froni-bræðra. Opið kl. 11–17.
Fréttir
Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur | Matar–
og fataúthlutun í dag kl. 14–17. Svarað í
síma þri.–fim. kl. 11–16. Tekið við fatnaði
og öðrum gjöfum þri. og mið. kl. 11–16.
Netf. mnefnd@mi.is.
Rökrás ehf | Kynning á íslenskum hátöl-
urum ásamt vínkælakynningu verður hjá
Rökás ehf Kirkjulundi 19 í Garðabær, laug-
ardaginn 9. og sunnudaginn 10. apríl kl.
14–18, báða dagana. Nánari upplýsingar í
síma 5659393, gsm 8498442, heima-
síða www.rak.is. Um er að ræða íslenska
hönnun, smíði og hugvit. Allir velkomnir.
Fundir
Grikklandsvinafélagið Hellas | Fræðslu-
fundar í Kornhlöðunni við Bankastræti á
morgun, 7. apríl kl. 20. Eyjólfur Kjalar
Emilsson prófessor við Oslóarháskóla
heldur erindi sem hann nefnir „Frumspeki
fegurðarinnar. Um fagurfræði Platons,
Plótínosar og Michelangelos“. Allir vel-
komnir.
GSA á Íslandi | GSA fundir eru haldnir öll
fimmtudagskvöld kl. 20.30 í Tjarnargötu
20. GSA samtökin eru hópur fólks sem
hefur leyst vandamál sín tengd mat. Nán-
ari upplýsingar á www.gsa.is.
Héðinshús | Al–Anon fundur alla miðviku-
daga kl. 21. Al–Anon fjölskyldudeildirnar
hafa aðeins einn tilgang: Að hjálpa fjöl-
skyldum og vinum alkóhólista. Til þess að
gerast félagi þarf aðeins eitt, að ættingi
eða vinur hafi átt eða eigi í vanda vegna
alkóhólisma.
ITC–Fífa | Í tilefni af 50 ára afmæli
Kópavogs mun ITC deildin Fífa tileinka
Kópavogsbæ fundinn í dag, kl 20.15 í fé-
lagsmiðstöðinni Gjábakka, Fannborg 8.
Gestur fundar er Hansína Björgvinsdóttir
bæjartjóri. Allir velkomnir. Uppl. gefur
Guðrún í síma 6980144 gudrunsv-
@simnet.is.
Krabbameinsfélagið | Góðir hálsar verða
með mánaðarlegan fund sinn í húsi
Krabbameinsfélagsins að Skógarhlíð 8 í
Reykjavík í dag, kl. 17. Á fundinum verður
myndbandið „Krabbamein í blöðruháls-
kirtli frumsýnt. Myndbandið er danskt en
er þýtt og staðfært.
Fyrirlestrar
Félag íslenskra fræða | Rannsóknarkvöld
verður í húsi Sögufélagsins, Fischersundi
3, kl. 20, í kvöld. Höskuldur Þráinsson:
Stafsetning – handa hverjum? Fyrsti mál-
fræðingurinn og færeysk stafsetning.
Háskólinn á Akureyri | Félagsvísindatorg
í dag, kl. 12, í stofu L103. Elín Þorgeirs-
dóttir kynnir Mentorverkefnið sem byggir
á hugmyndafræði um að samskipti barns
og mentors séu jákvætt innlegg í líf
barnsins. Orðið mentor er alþjóðlegt og
er notað um leiðbeinanda sem aðstoðar
yngri, óreyndari aðila við að víkka sjón-
deildarhringinn.
Náttúrufræðistofnun Íslands | Ása L.
Aradóttir, sviðsstjóri á Landgræðslu rík-
isins, flytur erindið: Uppgræðsla – hvað
svo?; kl. 12.15, í dag, í sal Möguleikhúss-
ins á Hlemmi. Hrafnaþing eru öllum opin,
nánari upplýsingar á www.ni.is.
Skipulagsstofnun | Jim Mackinnon
skipulagsstjóri Skotlands flytur erindi á
vegum Skipulagsstofnunar 7. apríl kl.
15.30–17, á Grand Hóteli, Sigtúni 3,
Reykjavík. Hann mun m.a. fjalla um
landsskipulagsstefnu fyrir Skotland (Nat-
ional Planning Framework for Scotland).
Kynning
Hrafnista, Reykjavík | Dagmar Huld
Matthíasdóttir, fræðslustjóri á Hrafnistu
verður með kynningu fyrir ættingja og
vini heimilisfólks, í dag kl. 20 í Helgafelli,
4. hæð. Kaffiveitingar og konfekt. Eftir
kynninguna er aðalfundur Ætt-
ingjabandsins. Dagskrá: Venjuleg aðal-
fundarstörf.
Viðskipta- og hagfræðideild HÍ | Kynn-
ingarfundur um meistara– og dokt-
orsnám í viðskipta– og hagfræðideild Há-
skóla Íslands verður haldinn í dag kl. 16, í
Odda v/Sturlugötu stofu 101. Umsjón-
armenn einstakra sérsviða kynna skipu-
lag námsins en hægt er að velja á milli
10 námslína í framhaldsnámi. Allir vel-
komnir. www.vidskipti.hi.is.
Málstofur
Lögberg, stofa 101 | Málstofa um Sval-
barðamálið verður haldin í Lögbergi í dag
kl. 12.15–13.45. Erindi halda: Tómas H.
Heiðar, þjóðréttarfræðingur í utanrík-
isráðuneytinu og forstöðumaður Hafrétt-
arstofnunar Íslands og Robin Churchill
prófessor við Cardiff Law School, Bret-
landi. Þá verða fyrirspurnir og umræður.
Námskeið
Kópavogsdeild RKÍ | Námskeið í al-
mennri skyndihjálp í dag kl. 18–22, í
Hamraborg 11, 2. hæð. Námskeiðsgjald er
4.900 kr. Skráning í síma 5546626 eða
á kopavogur@redcross.is.
Krabbameinsfélagið | Reykbindind-
isnámskeið Krabbameinsfélags Reykja-
víku hefst hefst í dag. Fjallað verður m.a.
um fíkn, nikótínlyf, langvarandi afleið-
ingar tóbaksneyslu, og matarræði. Þátt-
takendur hittast sex sinnum á fimm
vikna tímabili, að námskeiði loknu er
þátttakendum fylgt eftir í eitt ár. Leið-
beinandi er Halla Grétarsdóttir, hjúkr-
unarfræðingur og fræðslufulltúi hjá
Krabbameinsfélagi Reykjavíkur. Skráning
á hallag@krabb.is eða í síma 5401900.
Útivist
Ferðafélagið Útivist | Farið verður kl. 18
frá bílastæði við austurenda göngu-
brúarinnar yfir Kringlumýrarbraut í Foss-
vogi og gengið vestur með Öskjuhlíð, um
Nauthólsvík og út í Skerjafjörð. Allir vel-
komnir, ekkert þátttökugjald!.
Staður og stund á mbl.is.
Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að
finna á Staður og stund undir Fólkið á mbl.is
Meira á mbl.is
VOR 2005
Sölustaðir: sjá www.bergis.is