Morgunblaðið - 06.04.2005, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. APRÍL 2005 39
DAGBÓK
Átt þú réttu græjurnar?
Láttu áhugasama vita!
Glæsilegt vinnuvélablað fylgir Morgunblaðinu
þriðjudaginn 12. apríl og nú er tíminn til
að auglýsa atvinnutæki fyrir sumarið.
Fjallað verður um atvinnubíla,
landbúnaðartæki og vinnuvélar,
stórar og smáar.
Auglýsendur, pantið fyrir kl. 16:00
fimmtudaginn 7. apríl.
Allar nánari upplýsingar veitir
Katrín Theódórsdóttir í síma 569 1105
eða kata@mbl.is
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Ath. verslunarferð í
Hagkaup í dag kl. 10. Rúta frá Granda-
vegi og Aflagranda.
Árskógar 4 | Bað kl. 8–14. Handavinna
kl. 9–16.30. Heilsugæsla kl. 9.30–11.30.
Smíði/útskurður kl. 13–16.30. Spil kl.
13.30. Bridge, kennsla kl. 13.30. Keila
kl. 13.30.
Bólstaðarhlíð 43 | Almenn handa-
vinna, hárgreiðsla, böðun, glerlist, spil-
að bridge/vist, fótaaðgerð.
Dalbraut 18 – 20 | Kl. 9–11 kaffi og
dagblöð, kl. 9–14 baðþjónusta, kl. 9–
16.45 hárgreiðslustofan opin, kl. 10–
10.45 leikfimi, kl. 11.15–12.15 matur, kl.
14–16 félagsvist, kl. 14.30–15.30 kaffi.
Félag eldri borgara í Kópavogi | Skrif-
stofan í Gullsmára 9 er opin í dag kl 10–
11.30. Viðtalstími er Gjábakka kl. 15–16.
Félagsvist er spiluð í Gjábakka kl. 13.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Síð-
degisdans kl. 14.30–16.30. (Húsið opn-
að kl. 14). Lifandi tónlist, Guðmundur
Haukur leikur. Dansstjórar Matthildur
og Jón Freyr. Kaffi og rjómaterta.
Söngfélag FEB kóræfing kl. 17.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Leik-
félagið Snúður og Snælda sýnir leik-
ritið ,,Ástandið í Iðnó kl. 14.00 miðviku-
dag. Ath. síðasta sýning.
Félag kennara á eftirlaunum | Bridge í
KÍ–húsi kl. 13 og Tölvustarf í Ármúla-
skóla – stofu 24 – kl. 16.20.
Félagsstarf aldraðra, Garðabæ |
Kvennaleikfimi kl. 9.15, kl. 10 og 11.
Glerskurður kl. 13. Í Garðabergi er
handavinnuhorn og spilað brids kl. 13.
Opið hús í Holtsbúð kl. 13.
Félagsstarf Gerðubergs | Kl. 8.45
sund og leikfimiæfingar í Breiðholts-
laug. Kl. 9–16.30 vinnustofur opnar. Kl.
10.30 gamlir leikir og dansar. Frá há-
degi, spilasalur opinn. Kl. 14.30 kóræf-
ing. Veitingar í hádegi og kaffitíma í
Kaffi berg.
Furugerði 1 | Í dag kl. 9 aðstoð við
böðun, bókband. Kl. 13 sagan. Kl. 14
leikfimi.
Hraunbær 105 | Kl. 9 almenn handa-
vinna, bútasaumur. Útskurður. Hár-
greiðsla. Kl. 10 fótaaðgerð. Kl. 11 banki.
Kl. 12 hádegismatur. Kl. 13 bridge. Kl.
15 kaffi.
Hraunsel | Moggi, rabb og kaffi frá kl.
9, myndmennt kl. 10, línudans kl. 11,
myndmennt og glerskurður kl. 13, pílu-
kast kl. 13.30 og Gaflarakórinn kl.
16.30.
Hvassaleiti 56–58 | Opin vinnustofa
hjá Sigrúnu kl.9–15 klippimyndir, ker-
amik o.fl. Jóga kl.9–12. Samverustund
kl. 10:30–11:30, lokalestur á Lífsins tré.
Námskeið í myndlist kl. 15–18. Böðun
virka daga fyrir hádegi. Fótaaðgerðir.
Hæðargarður 31 | Félagsstarfið er öll-
um opið. Betri stofa og Listasmiðja kl.
9–6. Handverk, myndlist, leir, gips,
postulínsmálun o.fl. Fótaaðgerðarstofa
879–9801. Námskeið í framsögn og
túlkun, 6 vikur, hefst mánudaginn 11.
apríl. Kennari Soffía Jakobsdóttir.
Skráningu lýkur á föstudag. Skráning í
þæfingu 568 3132.
Korpúlfar Grafarvogi | Keila í Mjódd á
morgun, fimmtudag, kl. 10:00.
Norðurbrún 1, | Kl. 9–16.30 opin vinnu-
stofa, kl. 10.45 bankaþjónusta fyrsta
miðvikudag i mánuði, kl. 14 félagsvist,
kaffi, verðlaun, kl. 9 opin fótaaðgerða-
stofa.
Sjálfsbjörg félag fatlaðra á höfuð-
borgarsvæðinu | Félagsvist í kvöld kl.
19:00 í félagsheimilinu, Hátúni 12.
Vesturgata 7 | Kl 9–16 hárgreiðsla og
fótaaðgerðir, kl 9.15–16 myndmennt, kl.
10–12 sund (Hrafnistulaug), kl. 11.45–
12.45 hádegisverður, kl 12.15–14 versl-
unarferð í Bónus Holtagörðum, kl 13–
14 spurt og spjallað, kl 13–16 tréskurð-
ur, kl. 14.30–15.45 kaffiveitingar.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl.
8.45, bókband kl. 9, handmennt og
hárgreiðsla kl. 9 – 16, morgunstund kl.
10 – 11, kóræfing kl. 13, verslunarferð kl
12.30, lesklúbbur kl. 15.30.
Kirkjustarf
Akureyrarkirkja | Mömmumorgunn kl.
10–12. Allir foreldrar velkomnir með
börn sín. Kirkjuprakkarar (1.–4. bekkur)
kl. 15.30–16.30.
Áskirkja | Samverustund í dag kl. 11 í
neðra safnaðarheimili. Hreyfing og
bæn. Allir velkomnir.
Bessastaðasókn | Foreldramorgnar
eru í Haukshúsum frá kl. 10–12. Opið
hús eldri borgara er í Haukshúsum frá
kl. 13–16. KFUM&K starf fyrir 9–12 ára
börn er frá kl. 17:30–18:30.
Breiðholtskirkja | Kyrrðarstund kl. 12.
Tónlist, hugvekja, fyrirbænastund.
Léttur málsverður eftir stundina.
Kirkjuprakkarar 7–9 ára kl. 16:30, TTT
10–12 ára kl. 17:30. Æskulýðsstarf
KFUM&K og kirkjunnar kl. 20.
Bústaðakirkja | Starf aldraðra. Sam-
verur á miðvikudögum frá kl. 13:00.
Spil, föndur, handavinna. Um klukkan
15:00 er kaffi og þá kemur alltaf ein-
hver gestur með fróðleik eða
skemmtiefni. Öllum er velkomið að
taka þátt í þessu starfi. Nánari uppl.
www.kirkja.is.
Digraneskirkja | Barnastarf 6-9 ára kl.
17:15 –18:00 á neðri hæð (sjá nánar:
www. digraneskirkja.is.).
Fríkirkjan í Reykjavík | Kyrrðar– og
íhugunarstund í Fríkirkjunni í hádeginu.
Hvílist frá annríki hversdagsins og
njótið kyrrðar, Guðs orðs og ljúfrar
tónlistar.
Garðasókn | Foreldramorgnar kl. 10 til
12:30. Fyrirlestur mánaðarlega. Gott
tækifæri fyrir mömmur og börn að
hittast og kynnast. Allir velkomnir.
Alltaf heitt á könnunni.
Grafarvogskirkja | Kyrrðarstund í há-
degi kl. 12. Altarisganga og fyrirbænir.
Boðið er upp á léttan hádegisverð á
vægu verði að lokinni stundinni. Prest-
ar safnaðarins þjóna fyrir altari, org-
elleikari Hörður Bragason Allir vel-
komnir. Æskulýðsfélag í Engjaskóla kl.
20–21, fyrir 8. bekk.
Hafnarfjarðarkirkja | Kyrrðarstund
alla miðvikudaga frá kl. 12–12.30. Létt-
ur hádegisverður eftir kyrrðarstund-
ina. Kyrrð, tónlist, ritningarorð, kær-
leiksmáltíð og fyrirbænir.
Hjallakirkja | Fjölskyldumorgnar kl.
10–12. Tíu til tólf ára krakkar hittast í
Hjallakirkju á miðvikudögum kl. 16.30–
17.30.
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía | Fjöl-
skyldusamveran hefst kl. 18 með léttri
máltíð á vægu verði. Kl. 19:00 er Bibl-
íulestur fyrir alla fjölskylduna. Nem-
endur Biblíuskólans sjá um lesturinn.
Barna– og unglingastarfið er fyrir 1–2
ára, 3–4 ára, 5–7 ára, 8–9 ára, 10–12
ára og 13–17 ára. Allir velkomnir.
KFUM og KFUK | AD KFUM fundur
fimmtudagskvöld kl. 20 á Holtavegi
28. Athugið breytt fundarefni „Upphaf
Píetisma á Íslandi“. Guðmundur Ingi
Leifsson sér um efnið. Hugleiðingu
hefur sr. Ragnar Gunnarsson. Kaffi.
Allir karlmenn velkomnir.
Kristniboðssalurinn | Samkoma í
Kristniboðssalnum, Háaleitisbraut 58
miðvikudagskvöld kl. 20. „Ákalla
Drottin“. Ræðumaður er Jóhannes
Ólafsson. Nýtt frá Eþíópíu. Kaffi. Allir
eru velkomnir.
Langholtskirkja | Hádegisbænagjörð
kl. 12.10, súpa og brauð kl. 12.30 (kr.
300), starf eldri borgara kl. 13–16 með
fjölbreyttri dagskrá. Allir eldri borg-
arar velkomnir. Kl. 19.30–20.15 Bibl-
íulestur í umsjón sóknarprests, allir
velkomnir.
Laugarneskirkja | Kl. 10:00 Mömmu-
morgunn. Allar mömmur og ömmur
velkomnar með börnin sín. Kl. 10:30
Gönguhópurinn Sólarmegin leggur af
stað frá kirkjudyrum alla miðvikudags-
morgna. Kl. 14:10 – 15:30 Kirkjuprakk-
arar. (1. – 4. bekkur). Kl. 20:00 Gleði-
kvöld 7. bekkjar í samvinnu kirkju,
skóla og foreldrafélags.
Neskirkja | Foreldrarmorgnar kl. 10.
Slysavarnir barna. Herdís Storgaard
sér um efnið. Fyrirbænamessa kl.
12.15. Prestur sr. Örn Bárður Jónsson.
Opið hús kl. 13. Hagnýt lögfræði fyrir
eldri borgara. Dögg Pálsdóttir, hæsta-
réttarlögmaður, kemur í heimsókn. 7
ára starf kl. 14.30. Kór Neskirkju, æf-
ing kl. 19.
Selfosskirkja | Foreldramorgnar alla
miðvikudaga kl. 11:00. Kirkjuskóli fyrir
6–10 ára, í dag miðvikudag, 6. apríl kl.
13:30 í Félagsmiðstöðinni. Helgistund
á Ljósheimum kl.15:00 í dag miðviku-
dag.
Seltjarnarneskirkja | Kyrrðarstund kl.
12. Altarisganga og fyrirbænir, léttur
hádegisverður, verið velkomin.
LISTAMAÐUR aprílmánaðar í
Hafnarborg er Þórdís Alda Sig-
urðardóttir. Þórdís er menntuð við
Myndlista- og handíðaskóla Ís-
lands og Akademie der Bildenden
Künste í Munchen. Hún hefur
haldið margar einkasýningar á Ís-
landi og í Þýskalandi og tekið þátt
í samsýningum hér heima, í Dan-
mörku, Póllandi, Ástralíu og á
Tasmaníu.
Sjálf segir listakonan um verkið
í Hafnarborg: „Heiti verksins er
,,Draumfjaðrir“ en það er ein-
hvers konar tilraun mín til að efn-
isgera ,,drauminn“ sem fylgir öll-
um jafnt í svefni sem vöku. Allir
virðast eiga sér drauma einhvern
tíma og einhvers staðar á lífsleið-
inni. Draumar eru óáþreifanlegir
og fara á undan manni eins og
regnboginn en þeir eru þó þess
eðlis að sumir geta ræst.
Ég hef í þessu verki, eins og svo
oft áður, notað bæði þungt og
gróft efni ásamt léttu og fínlegu
efni. Í þessu verki er það m.a.
skírskotun til margbreytileikans
sem felst í draumum manna, hins
kvenlæga og hins karllæga. Verk-
inu er ætlað taka á sig breytta
bakgrunnsmynd eða umhverfi sem
binst því í hvert skipti sem það
verður sýnt. Ég hef hugsað mér
að gaman væri að biðja aðra að
gera umhverfi eða bakgrunn þess.
Stundum getur það líka verið full-
komlega „draumlaust“ þannig að
formin standi ein og sér í einhvers
konar draumatómi.“
Þórdís Alda listamaður
mánaðarins í Hafnarborg
HLJÓMSVEITIRNAR sem
spila á Grand rokki á fimmtu-
daginn verða Campfire back-
tracks og Hanoi Jane.
Campfire Backtracks sam-
anstendur af Markúsi, sem er
söngvari Sofandi og Skáta auk
þess sem hann hefir getið sér
gott orð sem óhefðbundinn
trúbador, og Bjarna sem einn-
ig er í Sofandi. Spila þeir ljúf-
sár kántrískotin lög sem þykja
einkar viðeigandi við varðeld-
inn í útilegum.
Hanoi Jane er áframhald
hljómsveitarinnar Örkuml
eins og hún var er hún spilaði
„alt. country“-skotna hljóma
undir áhrifum sveita og tón-
listarmanna á borð við Wilco,
Son Volt, Neil Young, Nick
Cave, My bloody Valentine og
Calexico. Á fimmtudaginn
mun Sigga úr Brúðarbandinu
verða þeim til fulltingis og
syngja með í nokkrum lögum.
Auk þess mun hún syngja með
sveitinni lag Dolly Parton,
Jolene“.
Ekkert verður rukkað inn
en tónleikarnir hefjast kl.
22:00.
Tvær sveitir
á Grand rokki