Morgunblaðið - 06.04.2005, Blaðsíða 40
40 MIÐVIKUDAGUR 6. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Stóra svið
Miðasalan er opin: Mánud. og þriðjud.:10:00-18:00, mið-, fim- og föstudaga: 10:00-20:00, laugar- og sunnudaga: 12:00-20:00
Miðasölusími 568 8000 - miðasala á netinu: www.borgarleikhus.is
HÉRI HÉRASON
e. Coline Serreau
Lau 23/4 kl 20,
Fö 29/4 kl 20
AUSA eftir Lee Hall - Í samstarfi við LA
Fi 21/4 kl 20 - Síðasta sýning
Ath: Miðaverð kr 1.500
SEGÐU MÉR ALLT -
Taumlausir draumórar?
SVIK eftir Harold Pinter
Samstarf: Á SENUNNI,
Sögn ehf og LA.
Lau 9/4 kl 20 - Síðasta sýning
SEGÐU MÉR ALLT
e. Kristínu Ómarsdóttur
Lau 9/4 kl 20, Su 17/4 kl 20
LEIKHÚSVEISLA FYRIR HÓPA - UPPSKRIFT AÐ SKEMMTILEGU KVÖLDI
NÆRING FYRIR SÁL OG LÍKAMA - BÓKIÐ Í TÍMA
Kl 18:00 Gleðistund í forsal - veitingasalan opin
Kl 18:30 Kynnisferð um leikhúsið - kynning á verki kvöldsins
Kl 19:00 Matseðill kvöldsins Kl 20:00 Leiksýning kvöldsins
BÖRN 12 ÁRA OG YNGRI FÁ FRÍTT Í BORGARLEIKHÚSIÐ Í FYLGD FULLORÐINNA
- gildir ekki á barnasýningar!
Nýja svið, Litla svið og Þriðja hæðin ALVEG BRILLJANT SKILNAÐUR
Einleikur Eddu Björgvinsdóttur
Fi 14/4 kl 20 - UPPSELT, Fö 15/4 kl 20 - UPPSELT,
Lau 16/4 kl 20 - UPPSELT, Su 17/4 kl 20 - UPPSELT,
Mi 20/4 kl 20 - UPPSELT, Fi 21/4 kl 20,
Fö 22/4 kl 20 - UPPSELT, Lau 23/4 kl 20 - UPPSELT,
Fö 29/4 kl 20 - UPPSELT, Lau 30/4 kl 20
HÍBÝLI VINDANNA leikgerð Bjarna Jónssonar
eftir vesturfarasögu
Böðvars Guðmundssonar
Fi 7/4 kl 20,
Fö 8/4 kl 20,
Lau 16/4 kl 20,
Su 17/4 kl 20,
Fi 21/4 kl 20,
Fö 22/4 kl 20,
Lau 30/4 kl 20
Fáar sýningar eftir
DRAUMLEIKUR eftir Strindberg
Samstarf: Leiklistardeild LHÍ
Lau 9/4 kl 20,
Su 10/4 kl 20,
Fi 14/4 kl 20
Su 24/4 kl 20
Fi 28/4 kl 20 - UPPSELT
Síðustu sýningar
RIÐIÐ INN Í SÓLARLAGIÐ
e. Önnu Reynolds
Í samstarfi við Leikhópinn KLÁUS
Aðalæfing fi 7/4 kl 20 - kr. 1.000,
Frumsýning fö 8/4 kl 20 - UPPSELT,
Fö 15/4 kl 20, Lau 16/4 kl 20
TERRORISMI e. Presnyakov bræður
Aðalæfing fi 14/4 kl 20,
Frumsýning fö 15/4 kl 20 - UPPSELT,
Mi 20/4 kl 20, Fi 28/4 kl 20
15:15 TÓNLEIKAR
Lau 9/4 kl 15:15 - FERÐALÖG
Óperustúdíó: Apótekarinn eftir Haydn
29. apríl kl. 20 - Frumsýning
1. maí kl. 20 - 2. sýn - 3. maí kl. 20 - 3. sýn
8. maí kl. 20 - 4. sýn - 10. maí kl. 20 - 5. sýn - Lokasýning
www.opera.is opera@opera.is Sími: 511 4200
Íslenska óperan v/Ingólfsstræti Pósthólf 1416 - 121 Reykjavík Sími: 511 6400
Ath. Aðgangur ókeypis
DVD sýning Vinafélags Íslensku óperunnar
Ariadne auf Naxos eftir Richard Strauss
Laugardaginn 9. apríl kl.14.00-17.00. Sýningin er á hliðarsvölum Íslensku óperunnar
(gengið er inn um aðalinngang). Allir velkomnir - Aðgangur ókeypis
Vengerov
Háskólabíó vi› Hagatorg I Sími 545 2500 I sinfonia@sinfonia.is I www.sinfonia.is
Einleikari ::: Maxim Vengerov
Hljómsveitarstjóri ::: Benjamín Júsúpov
Modest Mússorgskíj ::: Dögun við Moskvufljót
Benjamín Júsúpov ::: Víólukonsert
Pjotr Tsjajkovskíj ::: Sinfónía nr. 6 „Pathétique“
Rauð tónleikaröð #5
HÁSKÓLABÍÓI, FIMMTUDAGINN 7. APRÍL KL. 19.30
AUKATÓNLEIKAR LAUGARDAGINN 9. APRÍL KL. 17.00
ÖRFÁ SÆTI LAUS
LAUS SÆTI
Það ætti enginn að láta tónleika
fiðlusnillingsins Maxim Vengerov
fram hjá sér fara enda er verkefnið
spennandi: Glænýr víólukonsert eftir
Júsúpov þar sem Vengerov leikur bæði
á víólu og raffiðlu auk þess að sýna
hæfni sína í argentínskum tangó!
ALÞJÓÐLEG ráðstefna um glerlist
með þátttöku fjölda þekktra gler-
listamanna og fræðimanna um gler-
list hófst í gær í Gerðarsafni í Kópa-
vogi . Meðal gesta er Serge
Lemoine, safnstjóri Orsay-safnsins í
París, en hann flytur erindi um Par-
ísarskólann í abstraktlist, og skoðar
sérstaklega hlut Gerðar Helgadótt-
ur í honum, en hún var brautryðj-
andi í íslenskri glerlist og eftir henni
er Gerðarsafn nefnt.
„Í erindi mínu set ég verk Gerðar
Helgadóttur í samhengi við franska
list. Ég tala um franska og al-
þjóðlega listamenn sem störfuðu í
París á sama tíma og hún. Gerður
kynntist mörgum þessara lista-
manna, sá verk þeirra og þekkti
vel,“ segir Lemoine, aðspurður um
hlut Gerðar í franskri myndlist-
armenningu á árunum eftir stríð.
„Ég hef áhuga á því listræna um-
hverfi sem var í París á þessum ár-
um og ber það saman við önnur slík
tímabil í listasögunni; til dæmis við
Róm um árið 1600 þegar Caravaggio
var í fararbroddi myndlistarmanna
þar. Á báða staði komu listamenn
hvaðanæva að, á báðum stöðum
safnaðist fólk saman til að skapa
eitthvað nýtt og merkilegt. Markmið
listamannanna sem sóttu París á 6.
áratugnum og þeirra sem komu til
Rómar á dögum Caravaggios, var að
mörgu leyti það sama, að komast úr
þröngu andrúmslofti heimafyrir, en
líka að geta starfað þar sem alþjóð-
legar hræringar og gerjun áttu sér
stað. Myndlistarmaður sá sem hafði
mest áhrif í París var Herbin, sem
hafði unnið að geómetrískri list al-
veg frá því um 1914, og var enn að
um miðja öld. Hann varð eins konar
forystumaður þeirra sem höfðu
áhuga á geómetrískri abstraktlist.
Hann hafði áhrif sem listamaður, en
ekki síður sem fræðimaður, – því
hann skrifaði mikið um geómetríska
list. Í París var norræn nýlenda á
þessum árum, og Íslendingar áttu
þar sína fulltrúa. En fólk kom líka
víðar að. Herbin var leiðtogi þessa
alþjóðlega listamannasamfélags líkt
og Caravaggio hafði verið í Róm
þremur og hálfri öld fyrr.“
Áhrif frá Jacobsen og Gonzalez
Gerður Helgadóttir þreifst vel í
þessu skapandi andrúmslofti, og fór
meðal annars að smíða í járn og log-
sjóða, sem Lemoine segir að hafi þá
þótt mjög nýstárlegt. Hún hafi líka
orðið fyrir áhrifum frá danska lista-
manninum Robert Jacobsen sem
var kominn vel áleiðis á þeirri braut.
Þá hafi Gerður séð sýningu á verk-
um eins af frumkvöðlum þess að
nota járn í myndlist, Spánverjans
Julio Gonzales. Í fyrirlestrinum
benti Lemoine á margt fleira í störf-
um Gerðar sem sýnir fram á kynni
hennar af frönskum straumum í
myndlistinni og áhrif þeirra á list
hennar.
„Það voru margar stefnur í gangi
innan abstraktlistarinnar, bæði geó-
metrísk abstraksjón og ljóðræn,
með sínum losaralegu formum og
beinni tjáningu pensilsins. Þá var
líka í gangi abstraksjón sem tengd-
ist mjög landslagi – og var þannig að
maður gat séð vel tengsl hennar við
náttúruna, þótt verkin væru ab-
strakt. Þetta voru þeir þrír straum-
ar sem voru sterkastir innan ab-
straktlistarinnar á þessum tíma í
París.“
Hvað glerlistina snertir segir
Lemoine að á nítjándu öldinni hafi
verið farið að gæta mikillar stöðn-
unar í henni. Þá hafi það gerst eftir
stríðið, að franskir munkar, sem
þekktu vel til listamanna samtíma
síns, hafi farið að fá þá til að skapa
ný listaverk í kirkjur landsins, –
verk byggð á nútímalegum straum-
um. „Margir listamenn af Par-
ísarskólanum, eins og Gerður, fóru
að vinna í gömlu glerlistinni – en í
takti við samtímalistina. Þannig
endurnýjaðist glerlistin á nýjan leik.
Þú spyrð hvort abstraktlistin í gler-
verkum í kirkjunum hafi átt þátt í að
auka veg abstraktlistarinnar al-
mennt, og því er ekki auðvelt að
svara. Spurningin er samt áhuga-
verð. Það getur vel verið að fólk hafi
verið hrifnara af glerinu en annarri
list en um það er erfitt að fullyrða.“
Serge Lemoine segir erfitt að sjá
bein tengsl Parísarskólans við
myndlist í dag, enda hálf öld liðin.
Þó megi greina anga af svipuðum
meiði í samtímalistinni. „Ólafur
Elíasson er kannski einhvers konar
framhald af kínetísku listinni – eða
hreyfilistinni, sem átti mjög upp á
pallborðið hjá Parísarskólanum.
Hans list er kannski einhvers konar
framhald af því sem verið var að
gera í París um miðja síðustu öld,
þótt hún sé ekki tengd henni eða
undir áhrifum frá henni.“
Serge Lemoine hefur nýlokið við
að setja upp nýja sýningu í Orsay-
safninu í París með verkum ný-
impressjónistanna frönsku, þar sem
sýnt er fram á áhrif þeirra á aðra
evrópska listamenn í byrjun 20. ald-
ar, einkum í Belgíu, Hollandi, Sviss,
Ítalíu og Þýskalandi. Sýningin
stendur fram í júlímánuð, en
glerlistaráðstefnunni í Gerðarsafni
lýkur hins vegar á morgun.
Myndlist | Serge Lemoine á glerlistarþingi í Gerðarsafni
Gerður þekkti frumkvöðlana
Eftir Bergþóru Jónsdóttur
begga@mbl.is
Morgunblaðið/ÞÖK
Serge Lemoine, safnstjóri Orsay-safnsins í París: „Ólafur Elíasson er kannski einhvers konar framhald af kínet-
ísku listinni – eða hreyfilistinni, sem átti mjög upp á pallborðið hjá Parísarskólanum.“
TEKIST hafa samn-
ingar milli JPV út-
gáfu og Forlaget
Vandkunsten í Dan-
mörku um útgáfu á
bók Halldórs Guð-
mundssonar, Hall-
dór Laxness – ævi-
saga, á dönsku. Er
það þriðja erlenda
forlagið sem tekur
bókina til útgáfu, en
áður hafði verið
samið við Leopard
förlag í Svíþjóð og
btb/Random House í
Þýskalandi um út-
gáfu á ævisögu Lax-
ness.
„Vandkunsten er ungt forlag,
undir forystu gamalreynds útgef-
anda, sem leggur áherslu á út-
gáfu vandaðra fræðirita og sögu-
legra verka. Það vakti sérstaka
athygli fyrir endurútgáfu sína á
sígildu dönsku verki, ferðasögu
Carsten Niebuhr frá arabíu-
löndum, sem hefur fengið afar
góðar umsagnir og
selst vel. Fleiri dönsk
forlög sýndu bók
Halldórs Guðmunds-
sonar áhuga, en
Vandkunsten vildi
gefa það út óstytt og
réð það úrslitum,“
segir Jóhann Páll
Valdimarsson hjá
JPV. Kim Lembek
mun þýða verkið, en
hann hefur meðal
annars þýtt skáld-
verk eftir Hallgrím
Helgason og Einar
Kárason.
Halldór Laxness –
ævisaga kom út hjá JPV útgáfu
fyrir síðustu jól, og í janúar á
þessu ári hlaut höfundurinn Ís-
lensku bókmenntaverðlaunin fyr-
ir hana. Stefnt er að því að selja
verkið til útgáfu víðar og unnu
höfundurinn og útgáfan meðal
annars að því á alþjóðlegu bóka-
stefnunni í London í mars síðast-
liðnum.
Ævisaga Laxness
kemur út í Danmörku
Halldór Guðmundsson