Morgunblaðið - 06.04.2005, Qupperneq 42
42 MIÐVIKUDAGUR 6. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Miðasala opnar kl. 15.00
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINSI I I
HÆTTULEGASTA GAMANMYND ÁRSINS I
Sýnd kl. 8 og 10.20. B.i. 14 ára.
HÆTTULEGASTA
GAMANMYND ÁRSINS Sýnd kl. 6 m. ísl. tali,
Sýnd kl. 6 m. ensku tali
K&F X-FM
ÓÖH DV
WWW.BORGARBIO.IS
Ó.H.T Rás 2
FRAMHALDIÐ AF GET SHORTY
FRAMHALDIÐ AF GET SHORTY
ÓÖH DV ÓÖH DV
Sýnd kl. 8 og 10.30. B.i. 14 ára.
Í fjölskyldu þar
sem enginn skilur
neinn mun hún
smellpassa í hópinn
Every family could use a little translation
Sýnd kl. 5, 8 og 10.45.
kl. 5, 8 og 10.45.
F R Á L E I K S T J Ó R A AS GOOD AS IT GETS
Sýnd kl. 4 og 6. m. ísl tali
Sýnd kl. 4 og 6. m. ensku tali
Sýnd kl. 3.30 m. ísl tali
J.H.H. kvikmyndir.com
SV mbl
Will Smith er
Sýnd kl. 5.30 og 10.30.
K&F X-FM
Sýnd kl. 10.30. B.i. 16 ára.
S.V. MBL.
SIDEWAYS
Þ.Þ. FBl
Sýnd kl. 10.20 Sýnd kl. 8
Framleiðendursjónvarps-
þáttanna Að-
þrengdar eig-
inkonur, sem nú
njóta mikilla vin-
sælda, afþökkuðu
tilboð söngkon-
unnar Britney
Spears um að
koma fram í gestahlutverki í þátt-
unum. Kváðust þeir telja að ef Britn-
ey birtist í þáttunum myndu þeir
missa aðdráttarafl sitt.
Gestahlutverk í vinsælum sjón-
varpsþáttum á borð við Friends og
Frasier hafa oft vakið athygli. Þannig
hafa Brad Pitt, George Clooney,
Bruce Willis, Reese Witherspoon og
Charlie Sheen öll leikið lítil hlutverk í
Friends.
Ananova.com hefur það eftir
Female First að Britney hafi mikinn
áhuga á að fá að vera með í Að-
þrengdum eiginkonum. Haft er eftir
James Denton, sem leikur píparann
Mike Delfino í þáttunum, að fjöldinn
allur af kvikmyndastjörnum hafi fal-
ast eftir gestahlutverkum, en öllum
hafi verið vísað frá.
„Mér fannst best að Britney
Spears skyldi hafa áhuga. Umboðs-
mennirnir hennar hafa verið að reyna
að koma henni í þættina, en ég get
lofað ykkur því, að það mun aldrei
verða,“ sagði Denton.
Íslandsvinurinn Mutya Bueana úrSugababes hefur eignast sitt
fyrsta barn. Átti hún stúlkubarn með
kærasta sínum Jay.
Sagan endalausa um hver verðurnæsti Bond, heldur áfram, og
verður æ undarlegri. Nýjustu fregnir
herma að stjórnendur hjá Sony, sem
eiga MGM, framleiðslufyrirtæki
myndanna, vilji eftir allt saman ekki
missa Pierce Brosnan. Þeir hafi eftir
miklar vangavelt-
ur komist að
þeirri niðurstöð
að í því sé fólgin
meiri áhætta að fá
nýjan, e.t.v. lítt
þekktan leikara, í
staðin fyrir að
tjalda Brosnan
áfram en mynd-
irnar með honum hafa aukið mjög á
vinsældir Bond-myndanna í Banda-
ríkjunum. Segir sagan að stjórarnir
hjá Sony vilji að Brosnan leiki Bond í
næstu mynd, sem verður gerð eftir
Casino Royal, og þeirri næstu á eftir.
Eru reyndar sumir erlendir fjöl-
miðlar farnir að gera því skóna að
þetta hafi allt saman verið ein stór og
lævís markaðs-
brella; að aldrei
hefði verið mein-
ingin að finna ein-
hvern í staðinn
fyrir Brosnan,
þótt yfirlýsing
hefði verið gefin
út þess efnis. Við
nánari grennslan
þá kemur reyndar á daginn að Cubby
Broccoli, fyrrum aðalframleiðandi
Bond-myndanna, var vanur að
stunda einmitt þennan sama leik,
bæði með Sean Connery og Roger
Moore – en alltaf sneru þeir aftur og
léku í fleiri myndum.
Tilfinning þeirra hjá Sony er því sú
að Brosnan snúi aftur.
Fólk folk@mbl.is
Eyþór Guðjónsson sló í gegn yfir páskanameðal meðleikenda og annarra sam-starfsfélaga sem vinna með honum að
gerð Hollywood-myndarinnar Hostel með því
að bjóða þeim í þjóðlega íslenska matarveislu á
íslenska veitingastaðnum Restaurant Reykja-
vík, sem er í miðborg Prag. Eyþór leikur eitt að-
alhlutverkanna í þessari hrollvekju eftir Eli
Roth og segist hafa langað að gera eitthvað sér-
stakt og íslenskt fyrir þessa nýju vini sína enda
Ísland og íslenskir siðir gjarnan til umræðu á
tökustað hjá Eyþóri og Roth.
„Ég bauð því aðalfólkinu sem að myndinni
stendur í íslenska veislu hér úti í Prag sem ég
skipulagði í samvinnu við Þóri Gunnarsson ræð-
ismann Íslands í Tékklandi en hann á og rekur
veitingastað sem heitir Restaurant Reykjavík í
miðborg Prag. Ég kom með allan matinn frá Ís-
landi þegar ég skrapp heim í 2 daga fyrir
páska.“
Í forrétt bauð Eyþór uppá grafinn lax, reykt-
an lax og smásíld. „Flest sögðu að þetta væri
langbesti fiskur sem þau hefðu nokkurntíman
fengið.“
Þegar aðalrétturinn kom segist Eyþór hafa
beðið þjónana að bera alla diskana á borð í einu
svo enginn sæi kræsingarnar á diskunum.
„Á hverjum diski var bara einn hlutur og það
var svartur sviðahaus á hvítum diski! Þú hefðir
átt að sjá svipinn á fólkinu! „Hvað í fjandanum
er þetta?“ heyrðist. Ég sagði þeim að fyrst þau
hefðu valið að hafa Íslending í þessari mynd
skyldu þau fá að kynnast íslenskum mat-
arvenjum og siðum og svo útskýrði ég fyrir
þeim afhverju og hvenær við borðuðum svið.
Síðan tók ég þau í kennslustund, reif skinnið af
fyrsta kjammanum og stakk upp í mig við mikil
ógeðsöskur, þá tók ég hnífinn og sagði þeim að
svona sæju þau ekki einu sinni í hrollvekjum –
stakk svo hnífnum á kaf í augað, skar það úr og
borðaði við enn meiri öskur. Að lokum fékk ég
alla til að smakka sviðin og flestum fannst þau
mjög góð. Það upphófust auðvitað alls konar
leikir með sviðakjammana á meðan á því stóð
enda um skapandi fólk að ræða. Eftir það færði
ég þeim þunnar sneiðar af annars konar kjöti á
hvern disk og sagði þeim að þetta væri súrsuð
lifur og það yrðu þau að smakka. Þau gerðu það
öll nema einn … og þegar þau voru búin að
smakka og kyngja bitunum sínum þá óskaði ég
þeim til hamingju með að vera búin í fyrsta
skiptið á ævinni að borða eistu! Þá fyrst varð
allt vitlaust. Þetta voru súrir hrútspungar.“
Skyrkaka og páskaegg frá Nóa
En svo sagðist Eyþór ekki ætla að hrekkja
þau meira og lét bera fram dýrindis lambasteik
sem gestunum þótti að sögn óviðjafnanlega góð.
„Eftir það gaf ég öllum hákarl og íslenskt
brennivín á milli rétta við mismunandi viðbrögð
að sjálfsögðu og svo í eftirrétt var skyrkaka sem
Þórir útbjó með miklum tilþrifum. Með kaffinu
var borið fram konfekt og súkkulaði frá Nóa
Síríus og svo endað með því að allir fengu
páskaegg frá Nóa Síríus. Þau sögðust aldrei
munu gleyma þessum kvöldverði en vonuðu
samt að þau fengju ekki eintóman þorramat ef
þau kæmu til Íslands til að vera viðstödd frum-
sýningu myndarinnar.“
Eyþór segir magnað hversu Íslendingar eru
alltaf til í að standa saman og taka þátt í svona
uppátækjum.
„Jói í Múlakaffi var snöggur að redda þorra-
matnum og kjötinu, Trausti hjá Nóa Síríus hljóp
til á skírdag og opnaði fyrir mig hjá sér og Þórir
ræðismaður Íslands hér í Prag lagði aldeilis sitt
af mörkum í framkvæmdinni með mér. Enda
hafði þessi veisla þau áhrif að það er ekki talað
um annað en þessa íslensku veislu á tökustað –
og nú langar alla hina til þess að smakka bæði
þessa sérkennilegu rétti og hið ljúffenga ís-
lenska súkkulaði.“
Spenntir fyrir að koma til Íslands
Eli Roth, leikstjóri Hostel, var hæstánægður
með þennan páskaglaðning íslenska leikarans
síns og segir hann enn hafa bætt álit sitt á Ís-
landi:
„Eyþór bauð okkur upp á íslenska menningu
fyrir byrjendur. Ég hafði áður fengið að kynn-
ast sviðunum en restin af tökuliðinu fékk laglegt
sjokk. Eyþór sýndi okkur hvernig við ættum að
plokka húðina af, borða tunguna og jafnvel líka
augun. Þeir sem ekki féllu í yfirlið fengu dýr-
indis máltíð. Ein stelpan í hópnum sagði: „Ég
ætla aldrei aftur að borða eistu.“ Svo fengum
við líka hákarl.“
Roth segir þetta hafa verið páskamáltíð sem
ekkert þeirra mun gleyma.
„Ég hef áður notað Ísland sem innblástur í
myndir mínar en þessi máltíð reyndist upp-
spretta hugmynda að einum 10 myndum. Allir –
stjörnur myndarinnar og framleiðendurnir –
eru mjög spenntir fyrir að koma til Íslands.“
Það má því ljóst vera að stjörnufans verði á
Íslandi í kringum frumsýningu myndarinnar
sem áætluð er í árslok.
Kvikmyndir | Eyþór bauð samstarfsfólki sínu upp á ógleymanlega páskamáltíð
Stjörnur Hostel snæddu svið og hákarl
Ljósmynd/Eyþór Guðjónsson
Eli Roth og Gabriel bróðir hans knúsa kjammann.
Eyþór og Þórir ræðismaður fremstir á myndinni ásamt öðrum
matargestum í íslensku þorraveislunni í Prag.
Eli Roth og Mike Fleiss, einn af framleið-
endum Hostel. Hann er hvað þekktastur fyrir
að vera einn umsvifamesti framleiðandi veru-
leikasjónvarpsþátta heims og er eigandi
þátta eins og Bachelor og Bachelorette. Hann
var sá eini sem ekki fékkst til að smakka
hrútspungana.
Eftir Skarphéðin Guðmundsson
skarpi@mbl.is