Morgunblaðið - 06.04.2005, Side 43
Nýr og betriHverfisgötu ☎ 551 9000
553 2075
- BARA LÚXUS
☎
J.H.H. kvikmyndir.com
SV mbl
Will Smith er
Sýnd kl. 8 og 10.30
S.V. Mbl.
Sýnd kl. 6 m. íslensku tali
400 kr. í bíó!*
Kvikmyndir.is.
HÆTTULEGASTA GAMANMYND ÁRSINS I
R E E S E W I T H E R S P O O N
Stjarnan úr Legally Blonde
og Sweet Home Alabama
í yndislegri mynd.
VANITY
THE SUMPTUOUS NEW FILM FROM MIRA NAIR
Sýnd kl. 8 og 10.30
S.V. MBL.
K&F X-FM
Sýnd kl. 8 og 10.30 B.i. 16
Eileen Atkins, Jim Broadbent, Gabriel Byrne,
Romola Garai, Bob Hoskins, Rhys Ifans, James
Purefoy, Jonathan Rhys Meyers
FRAMHALDIÐ AF GET SHORTY
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30 B.i. 14 ára.
ÓÖH DV
SK DV
JET LI MORGAN FREEMAN BOB HOSKINS
A FILM BY LOIS LETERRIER
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.10 B.I 16 ÁRA
HÖRKU SPENNUMYND FRÁ
SÖMU OG GERÐU LÉON OG LA
FEMME NIKITA
Hann var alinn upp sem
skepna og þjálfaður til að
berjast. Nú þarf hann
að berjast fyrir lífi sínu!
HÖRKU SPENNUMYND FRÁ
SÖMU OG GERÐU LÉON OG LA
FEMME NIKITA
Hann var alinn upp sem
skepna og þjálfaður til að
berjast. Nú þarf hann
að berjast fyrir lífi sínu!
Sýnd kl. 6 m. íslensku taliSýnd kl. 8 og 10.10
400 kr. í bíó!* * Gildir á allar sýningarmerktar með rauðu
JET LI MORGAN FREEMAN BOB HOSKINS
A FILM BY LOIS LETERRIER
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20 B.i. 14 ára.
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. APRÍL 2005 43
FYRSTI meistari Alþjóðlegu kvikmyndahá-
tíðarinnar á Íslandi IIFF 2005 er handritshöf-
undurinn og kennarinn Mogens Rukov frá
Danmörku. Rukov, sem er fæddur árið 1943,
hefur lengst af kennt handritsgerð við Danska
kvikmyndaskólann. Er hann af mörgum talinn
eiga stóran þátt í þeirri velgengni sem dansk-
ar kvikmyndir hafa notið síðustu ár auk þess
að vera einn af upphafsmönnum dogma-
stefnunnar. Hann hefur skrifað þónokkur
handrit sjálfur, m.a. Festen ásamt Tomasi
Vinterberg.
Rukov heldur þriggja daga námskeið fyrir
kvikmyndagerðarfólk og áhugamenn á vegum
Kvikmyndamiðstöðvar. Námskeiðið verður í
fyrirlestraformi á milli kl. 13 og 17 dagana
14.–16. apríl á Kaffi Reykjavík. Rukov vísar á
námskeiðinu sérstaklega til Festen, Taxi Driv-
er og Mulholland Drive en myndirnar verða
allar á dagskrá hátíðarinnar fyrir námskeiðið.
Ennfremur er búið að tilkynna um fleiri
myndir er frumsýndar verða á hátíðinni. Á
dagskrána er komin nýjasta mynd Woodys
Allen, Melinda og Melinda, sem skartar m.a.
Will Ferrell og Chloë Sevigny í helstu hlut-
verkum.
Þrjár nýjar myndir frá Noregi hafa bæst við
í Norðurlandaflokkinn. Myndinar eru ólíkar
en hafa vakið athygli en þær eru Uno eftir
Aksel Hennie og Jon Andreas Andersen, Min
misunderlige frisör eftir Annette Sjursen og
Monstertorsdag eftir Arild Østin Ommund-
sen. Þar með er fjöldi mynda á hátíðinni kom-
inn í 65.
Miðasala hefst í dag
Miðasala á hátíðina hefst í Háskólabíói og
Regnboganum kl. 16 í dag. Venjulegt miða-
verð er á sýningarnar, 800 kr., en einnig er
hægt að kaupa tíu miða kort á 5 þúsund kr.
Einnig hefst sala á miðum á allar sérsýningar,
svo sem opnunarsýninguna, lokasýninguna og
spurt & svarað-sýningarnar og er nauðsynlegt
að kaupa miða á þær í bíóinu sem hýsir við-
komandi sýningu.
Kvikmyndir | Alþjóðlega kvikmyndahátíðin á Íslandi IIFF 2005
Meistari Mogens Rukov
Hinn þekkti danski handritshöfundur og
kennari, Mogens Rukov, verður með þriggja
daga námskeið á meðan á hátíðinni stendur.
www.icelandfilmfestival.is
þættirnir m.a. bresku grínverð-
launin (The British Comedy
Award) árið 2003 sem besti nýi
grínþátturinn og í fyrra voru
Matt og David valdir bestu leik-
ararnir og þátturinn besti grín-
þátturinn á sömu hátíð.
Þættirnir voru upphaflega
sýndir á BBC THREE í Bretlandi
(endursýndir á BBC ONE) en bú-
ið er að sýna tvær þáttaraðir.
Þeir hófu hinsvegar göngu sína í
útvarpi á Radio 4. Höfundarnir
segja að takmarkið hafi alltaf
verið að koma þáttunum í sjón-
varp. Þeir gerðu sér þó grein fyr-
ir því að fyrst þyrftu þeir að
sanna að þættirnir virkuðu í út-
varpi. David segir í viðtali við
BBC að útvarpið hafi verið góð
leið til að komast að því hvaða
sketsar virkuðu og hverjir ekki.
Persónunar sem David og Matthafa skapað eru fjölbreyti-
legar og eiga að endurspegla nú-
tíma Bretland. Bretar eru meist-
arar í því að gera grín að sjálfum
sér á meðan bandarískt grín
gengur yfirleitt ekki eins langt. Í
Litla-Bretlandi kynnast áhorf-
endur mörgum yfirgengilegum
persónum eins og Daffyd, eina
hommanum í þorpinu sínu (og
hann vill ekki hafa það öðruvísi).
Marjorie Dawes er rosaleg kona
sem leiðir hóp fólks í baráttunni
við aukakílóin og Emily Howard
er sérstaklega ósannfærandi
klæðskiptingur. Þarna kemur
líka við sögu Bernard Chumley,
eldri leikari sem hefur sérstaka
Bretar eru miklir meistarargamanþátta en nýjastadæmið um það er Litla-
Bretland (Little Britain). Þátta-
röðin hefur göngu sína í Sjón-
varpinu í kvöld en hún er höfund-
arverk grínistanna Matt Lucas
(George Dawes úr Shooting
Stars) og David Walliams. Þeir
„bregða sér í ýmissa kvikinda líki
og kynna áhorfendum furður
Bretlandseyja í stuttum grín-
atriðum. Í þáttunum er drepið
niður fæti í skosku hálöndunum,
farið um Wales og friðsælar
enskar sveitir og í bæjarblokkir
stórborganna þar sem friðsældin
er ekki alveg eins mikil. Sögu-
maður tengir saman atriðin með
fróðlegum athugasemdum um
það sem fyrir augu ber,“ segir í
kynningu frá Sjónvarpinu.
Þetta eru sem sagt sketsa-
þættir þar sem sömu persónunar
koma aftur og aftur við sögu.
Bretar eru meistarar þessa forms
og má nefna hinn frábæra þátt
The Fast Show (Johnny Depp er
mikill aðdáandi og lék í lokaþætt-
inum) og The Sketch Show, sem
Stöð 2 hefur verið að sýna.
Litla-Bretland hefur unnið tilfjölda verðlauna. Hlutu
þörf fyrir að losa sig við Kitty,
systur sína. Dame Sally er rithöf-
undur rómantískra ástarsagna,
sem minnir nokkuð á Barböru
Cartland, nema hvað hún fær alls
ekki nógu góðar hugmyndir.
Höfundarnir segja að hug-
myndirnar að persónum komi að
mestu leyti úr þeirra eigin kolli
þótt margar séu byggðar á fólki
sem þeir þekki eða hafi verið
sagt frá.
Þættirnir eru teknir bæði ávöldum tökustöðum og fyrir
framan áhorfendur í myndveri.
Hláturinn sem heyrist í þáttunum
er því ekta hlátur en enginn
dósahlátur. Matt segir þá vera
svo fyndna að stundum hafi þeir
þurft að lækka aðeins í hlátrinum
svo hann verði ekki yfirgnæf-
andi. David segir að húmorinn í
þáttunum höfði til það breiðs
hóps og því virki hann fyrir fram-
an áhorfendur.
Leikstjóri Litla-Bretlands er
Steve Bendelack en hann hefur
leikstýrt öðrum breskum gam-
anþætti, sem hefur getið sér gott
orð, The League of Gentlemen.
Er það áreiðanlega ákveðinn
gæðastimpill fyrir þá sem til
þekkja.
Svo virðist sem Bretar þurfi
ekki að lifa lengur á fornri frægð
Monty Python, Black Adder og
Fawlty Towers hvað varðar góða
gamanþætti því margir þessara
nýju þátta hafa náð til áhorf-
endahópa utan Bretlandseyja.
Skrifstofan (The Office) er þar
fremst í flokki og verður gaman
að sjá hvort íslenskir áhorfendur
eigi eftir að heillast af stór-
skemmtilegu gríninu í Litla-
Bretlandi.
Stórskemmtilegt Litla-Bretland
’Bretar eru meistararí því að gera grín að
sjálfum sér á meðan
bandarískt grín geng-
ur yfirleitt ekki eins
langt.‘
AF LISTUM
Inga Rún Sigurðardóttir
Matt Lucas og David Walliams
eru handritshöfundar og tveir
helstu leikarar Litla-Bretlands
en fyrsti þátturinn er í Sjónvarp-
inu í kvöld.
ingarun@mbl.is
FORSALA miða á tónleika rokkfreskunnar
Alice Cooper 13. ágúst í Kaplakrika hefst í dag.
Um er að ræða sérstaka forsölu þar sem
handhöfum Mastercard gefst kostur á að
tryggja sér miða áður en almenn miðasala hefst
á morgun. Miðasala fer fram í verslunum Skíf-
unnar og BT um land allt og á concert.is.
Cooper mætir að sögn með veglega sýningu, í
ætt við þá sem hefur skapað honum sérstöðu í
heimi rokksins sem brautryðjandi í leikrænu
sjokkrokki sem sumir segja að hafi haft bein
áhrif á hljómsveitir á borð við Kiss, Misfits,
King Diamond, GWAR, Slipknot og Marilyn
Manson.
Ný plata í júní
Cooper gefur út nýja plötu í júní sem heitir
Dirty Diamonds. Hér verður ekki um konsept
plötu að ræða eins og hans síðustu, Brutal Plan-
et og Dragontown, heldur segist hann í samtali
við Rolling Stone-tímaritið á dögunum, hafa
tekið mark á ábendingu frá vini sínum, upp-
tökustjóranum Bob Ezrin sem stýrði upptökum
á frægasta lagi Coopers: „School’s Out“.
„Eitt af því sem hann sagði við mig var að ef
ég ætlaði bara að gera 12 laga plötu þá væri
ekki úr vegi að hafa öll lögin frábær og engar
uppfyllingar.“ Upptökustjórinn á nýju plötunni
er Steve Lindsey, sem tók upp dúett Cooper og
Xzibit „Stand“ sem var á plötu sem gefin var út
í tilefni af Ólympíuleikunum 2004. Tónleikar
Cooper hér á landi verða liður í tónleikaferð
hans um Evrópu og Ástralíu í sumar og verður
trommari Kiss Eric Singer í hljómsveit Coopers
á túrnum.
Í Rolling Stone-viðtalinu, segist Cooper ætla
að bjóða upp á „marga klassíska smelli, nokkrar
ansi góðar sviðsbrellur og heljarinnar sýningu“.
Tónleikar | Miðasala á
Cooper að hefjast
Klassískir
smellir og
brellur
Hann er þekktur fyrir sín „þrumusjóv“. Alice
Cooper lætur eflaust eitthvað loga í Kapla-
krikanum í ágúst.
Mastercard-forsala hefst í Skífunni, BT og á
concert.is í dag, almenn miðasala hefst á
morgun. Miðaverð er 5.500 kr.