Morgunblaðið - 06.04.2005, Blaðsíða 45
Laugardagskvöldið 23. apríl verð-ur sýndur fyrsti þáttur af fjór-
um þar sem kynnt eru lögin sem
keppa í Söngva-
keppni evrópskra
sjónvarpsstöðva í
Kiev í Úkraínu,
bæði í forkeppninni
fimmtudaginn 19.
maí og í sjálfri að-
alkeppninni laug-
ardaginn 21. maí.
Hvert Norður-
landanna sendi einn fulltrúa til
Stokkhólms til að spá í lögin og
gengi þeirra í keppninni. Fulltrúi Ís-
lands er Eiríkur Hauksson söngvari
sem tvisvar hefur sungið í keppn-
inni, „Gleðibankann“ fyrir Íslands
hönd og seinna söng hann svo fyrir
Noreg. Þáttunum stjórnar Annika
Jankell og auk Eiríks dæma lögin
þau Kjell Heick frá Danmörku, hin
sænska Charlotte Perrelli, áður
Nilsson, sem söng sigurlagið árið
1999 þegar Selma Björnsdóttir varð
í öðru sæti, Finnlands-Svíinn Thom-
as Lundin og Jostein Pedersen frá
Noregi. Þættirnir verða end-
ursýndir síðdegis á sunnudögum,
klukkan fjögur á miðvikudag og
seint á fimmtudagskvöldum.
Hollywood-parið Penelope Cruzog Matthew McConaughey er
sagt ætla að gifta sig í Madríd á
Spáni, heimalandi
Cruz, síðar á þessu
ári. Er McConaughey
sagður vera farinn að
æfa sig í spænsku til
þess að geta ávarpað
heimamenn í brúð-
kaupinu á móðurmáli
þeirra.
Cruz, sem áður átti
í þriggja ára ástarsambandi við
kvikmyndastjörnuna Tom Cruise,
hefur lítið viljað tjá sig um samband
sitt við McConaughey enda segir
hún reynslu sína vera þá að hlutirnir
fari úrskeiðis þegar um þá sé rætt.
Á fréttasíðu breska Vogue ergreint frá því að Kate Moss
ætli að syngja dúett með kær-
astanum Pete
Doherty úr
Babyshambles
(og þar áður
Libertines). Talið
er að Katehafi
heimsótt
Doherty í
upptökuver í
Wales til að
verða gestasöngvari á fyrstu plötu
Babyshambles. Orðrómur er jafn-
framt á kreiki um að parið sé búið
að trúlofa sig.
Kate hefur áður sungið inn á
plötu fyrir vin sinn Bobby Gillespie
úr Primal Scream. Mick Jones úr
The Clash er upptökustjóri þessarar
væntanlegu plötu. Talið er að Kate
eigi eftir að syngja í lagi sem ber
nafnið „F**k Forever“.
Fólk folk@mbl.is
Megas verður sex-tugur á morgun
og haldnir verða veg-
legir afmælistónleikar
annað kvöld, undir yf-
irskriftinni „Megas
LX“. Valgeir Guð-
jónsson, sem spilaði
með Megasi á plötunni
Á bleikum náttkjólum
árið 1977 ásamt fé-
lögum sínum í Spilverki
þjóðanna, er meðal listamanna sem
heiðra Megas með spilamennsku á
sextugsafmælinu.
Hann kemur fram ásamt hljóm-
sveit hússins, „sem er skipuð ein-
valaliði. Ég ætla að flytja lag af
Bleikum náttkjólum, „Orfeus og
Evridís“, sem er eitt af uppáhalds-
lögum mínum með Megasi,“ segir
Valgeir. „Ég flutti þetta lag einmitt
með meistaranum fyrir ein-
hverjum árum á tónleikum þar sem
hann fékk ýmsa á svið með sér. Nú
verður meistarinn ekki á sviðinu.“
Er ekki svolítið skrítin tilfinning
að Megas sé orðinn sextugur?
„Jú, mér hefur alltaf fundist
hann vera aldurslaus. Ég held
reyndar að það sé ekki alltaf skyn-
samlegt að mæla aldur okkar í ár-
um og mér hefur alltaf fundist
Megas samur við sig.“
Hefur hann haft mikil áhrif á
þig, sem textasmið og tónlistar-
mann?
„Já, ég held ég geti alveg sagt
það. Við unnum náttúrlega með
honum árið 1977 og það var
kannski ekki síst textahliðin sem
veitti mér innblástur, þótt margir
geri sér ekki grein fyrir hversu
góður tónlistarmaður hann er. En
upp úr þessu fór ég að hugsa meira
en áður um að fylgja reglum um
stuðla í textasmíð, en það er nátt-
úrlega svipað því að synda með
stein um hálsinn. Þá gerir maður
þær kröfur til sjálfs sín að
maður ráði við formið og að
það ráði ekki yfir manni; að
óbrjáluð hugsun komist til
skila þrátt fyrir þessar tak-
markanir sem maður setur
sér.“
Var Megas ekki hálfpart-
inn orðinn „heldri maður“ í
augum ykkar árið 1977?
„Jú, hann hefur eiginlega
verið það alveg frá sinni
fyrstu plötu. Hann sló nýjan tón og
hefur eiginlega verið ósnertan-
legur alla tíð síðan, því enginn hef-
ur verið á svipuðu róli og hann.“
Hann hefur verið eins konar ut-
angarðsmaður.
„Já, hann er það í eðli sínu. Það
hentar honum ekki að vera miðju-
maður. Hann er kantmaður.“
Hann er sér á parti.
„Já. Ég hef reyndar ekki alltaf
verið sammála því sem hann hefur
gert; til að mynda hafa mér fundist
textarnir á köflum hálf tyrfnir, auk
þess sem mér hefur fundist hann á
stundum leita á tónlistarlegar
brautir sem eru honum ekki eðl-
islægar. Hann hefur mikla
rokkþrá, en mér finnst hann ekki
vera rokkari í eðli sínu. Hann er
meiri trúbador og rætur hans
liggja í amerískri „folk“-tónlist.
Þar finnst mér hans raunverulegi
heimavöllur vera. Fyrir utan að
maðurinn hefur gríðarlega sterka
lýríska taug og er rómantískari en
alþýða manna gerir sér grein fyr-
ir.“
Hann hefur verið töluvert mis-
skilinn í gegnum tíðina, en er fólk
ekki að taka hann í sátt núna?
„Jú, en ég veit ekki hvort hann
er mikið fyrir það. Ég held það
henti honum ágætlega að vera mis-
skilinn.“
Aldurslaus og sex-
tugur kantmaður
Valgeir
Guðjónsson
ivarpall@mbl.is
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. APRÍL 2005 45
KRINGLAN
AKUREYRI KEFLAVÍK
Sandra Bullock mætt
aftur vopnuð og glæsileg
í frábæru framhaldi sem er drekkhlaðin
af spennu og gríni!
Óskarsverðlaunahafinn, Geoffrey Rush er frábær sem Peter Sellers
myndin fjallar um feril og stormasamt einkalíf eins besta gamanleikara heims.
THE PACIFIER KL. 4 - 6 - 8 - 10
THE PACIFIER Lúxus VIP KL. 4 - 6 - 8 - 10
LIFE AND DEATH
OF PETER SELLERS KL. 5.40 - 8 - 10.20
MRS. CONGENIAL. 2 KL. 3.30 - 5.40 - 8 -10.20
RING TWO KL. 5.40 - 8 - 10.20 B.I. 16
LIFE AQUATIC KL. 5.40 - 8
CONSTANTINE KL. 10.20 B.I. 16. ÁRA
BANGSÍMON OG FRÍLLINN M/ÍSL.TALI. KL. 4
ÁLFABAKKI
THE PACIFIER KL. 6 - 8 - 10
MRS. CONGENIAL. 2 KL. 6 - 8.15 - 10.30
RING TWO KL. 10.30 B.I. 16
COACH CARTER KL. 5.30 - 8
THE PACIFIER KL 8 - 10
MRS. CONGENIAL.2 KL. 8
RING TWO KL. 10 B.I. 16
THE PACIFIER KL. 8 - 10
MISS CONGENIAL 2 KL. 8 - 10
Globe verðlaun
ta
ynd ársins.
y Rush
ti leikari.
EINN af örfáum mönnum sem hlotið hafa
„meistaratitil“ auk Þórbergs, Megas, verður sex-
tugur á morgun. Í tilefni af því er sérstök dag-
skrá á Súfistanum í kvöld, þar sem Páll Valsson
útgáfustjóri heldur m.a. óformlegt erindi undir
yfirskriftinni „Jónas okkar tíma?“ Þar ætlar
hann að velta fyrir sér hliðstæðum í ferli Magn-
úsar Þórs Jónssonar og Jónasar Hallgrímssonar.
„Það er nú kannski dálítið orðum aukið að tala um er-
indi í þessu sambandi,“ segir Páll, „ætli orðið rabb sé
ekki meira viðeigandi. Ég ætla að bera þá aðeins saman,
Megas og Jónas, velta fyrir mér hliðstæðum og and-
stæðum,“ segir hann.
Líf og list
Páll segir að samanburðurinn nái til lífs og listar þess-
ara listamanna. „Svo maður noti hátíðlegt orðalag. Lífs,
listar og stöðu í samfélaginu. Þar eru ýmsar skemmti-
legar hliðstæður sem gaman er að leika sér að. Þeir eru
báðir byltingarmenn innan ákveðins forms og þenja sig í
allar áttir innan þessa þrælbundna forms sem margir
töldu að væri komið að ákveðnum endimörkum. Báðir
sprengja þeir það upp,“ segir hann.
Eru þeir ekki báðir trúir þjóðlegum arfi og um leið
samtímastraumum?
„Jú, það er einmitt mjög skemmtilegt. Þótt
þeir noti eldra form og byggi á þúsund ára
gamalli hefð eru þeir að bregðast við samtím-
anum. Þeir standa traustum fótum í gamla
forminu, kunna það aftur á bak og áfram og
geta þess vegna víkkað það.“
Sýndu að hægt væri að yrkja á íslensku
Páll segir að umfjöllunarefni þeirra í skáld-
skap sé um margt svipað. „Þar eru ýmsar hlið-
stæður, bæði í formi og efni. Jónas er ættjarð-
arskáld og Megas er ákaflega íslenskur í alla staði. Eins
og Jónas sýndi Megas okkur fram á að hægt væri að
yrkja á íslensku, en áður en Jónas kom fram héldu menn
að íslenskur kveðskapur væri fastur í rímnahelsi. Jónas
sprengdi það helsi,“ segir Páll.
Páll segir að ýmsar samsvaranir í lífshlaupi mannanna
tveggja blasi við, „og staða þeirra í samfélaginu er að
ýmsu leyti svipuð, án þess að ég vilji fara of ítarlega í
efni spjallsins annað kvöld [í kvöld].“
Tónlist | Dagskrá helguð Megasi á Súfistanum í kvöld
Byltingarmaður innan
ákveðins forms
Páll Valsson
Dagskrá til heiðurs Megasi er á Súfistanum í kvöld kl. 20.
Páll Valsson spjallar undir yfirskriftinni Jónas okkar tíma?,
Þórunn Hrefna Sigurjónsdóttir fjallar um rómantíkina í
verkum Megasar, Freyr Eyjólfsson fjallar um tónlist hans,
Hrólfur Sæmundsson barítón flytur lög meistarans við eig-
in undirleik og Magga Stína söngkona mun syngja Megas
eftir sínu eyra með aðstoð Harðar Bragasonar orgelleikara.
Eftir Ívar Pál Jónsson
ivarpall@mbl.is