Morgunblaðið - 06.04.2005, Side 48
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MIÐVIKUDAGUR 6. APRÍL 2005 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
Í dag er
mi›vikudagur
ÁRNI Mathiesen sjávarútvegsráðherra tilkynnti á
fundi í Vestmannaeyjum í gær að opnað yrði útibú
Fiskistofu í Vestmannaeyjum strax á næsta ári.
Um er að ræða fimm störf og fjögur af þeim eru ný
störf innan stofnunarinnar.
Í ræðu sem Árni hélt á fundi um eflingu Rann-
sóknastofnunar fiskiðnaðarins sagði hann meðal
annars að í fundahrinu Sjálfstæðisflokksins fyrir
skömmu hefðu atvinnumál mikið verið í um-
ræðunni, meðal annars í Vestmannaeyjum. Í kjöl-
farið hefði hann óskað eftir því við Fiskistofu að
unnin yrði úttekt um hvernig mætti færa eftirlits-
störf Fiskistofu með markvissum hætti út á land
enda teldi hann eðlilegt að störf Fiskistofu tengd-
ust landsbyggðinni frekar. Þetta verður ekki eini
flutningurinn því flytja á eftirlitsstörfin í áföngum
út á land og verða opnuð fjögur ný útibú.
Opna útibú á Höfn
Auk útibúsins í Vestmannaeyjum er stefnt á að
opna strax á næsta ári útibú á Höfn í Hornafirði
þar sem ráðnir verða tveir starfsmenn auk yfir-
manns. Þjónustusvæðið er frá Höfn að Vopnafirði.
Á árinu 2007 yrðu svo ráðnir tveir eftirlitsmenn til
viðbótar á Höfn. Sama ár verður nýtt útibú opnað í
Stykkishólmi með þremur eftirlitsmönnum auk yf-
irmanns en þjónustusvæði yrði Snæfellsnes og
Vestfirðir. Árið 2008 verða svo þrír eftirlitsmenn
til viðbótar ráðnir í Stykkishólm. Heildarfjöldi
starfsmanna þar verður því sjö manns, þar af yrðu
einn til tveir á Vestfjörðum.
Einnig verður á árinu 2008 opnað nýtt útibú í
Grindavík með þremur eftirlitsmönnum auk yfir-
manns sem sæi um eftirlit á Suðurnesjum og aust-
ur fyrir fjall. Síðasta árið í þessu átaki, árið 2009,
verða svo ráðnir þrír eftirlitsmenn til Grindavíkur
til viðbótar og verða þeir því sjö talsins. Starfs-
mönnum veiðieftirlitsins mun því fjölga um fjóra
sem allir verða í Eyjum en önnur störf verða flutt
af höfuðborgarsvæðinu út á land.
Fjögur ný útibú
Fiskistofu á
landsbyggðinni
Morgunblaðið/Sigurgeir
Árni Mathiesen sjávarútvegsráðherra kynnti
tillögur sínar á fundi í Vestmannaeyjum í gær.
Vestmannaeyjum. Morgunblaðið.
LÍKLEGA munu strengir og harð-
sperrur eitthvað sækja á þá Guð-
brand Einarsson og Bjarka Birg-
isson í sumar en þá ætla þeir að
ganga hringinn í kringum landið til
að vekja athygli á mikilvægum mál-
um. Guðbrandur er nærri því blind-
ur og Bjarki er hreyfihamlaður og
er yfirskrift göngunnar í samræmi
við það: Haltur leiðir blindan.
Frá því Guðbrandur, sem er
nuddari, kennari og bóndi, fékk
mislinga þegar hann var 11 ára
gamall hefur sjón hans smám saman
versnað og er hann nú næstum
blindur. Bjarki Birgisson er sund-
þjálfari og afreksmaður í sundi en
hefur auk þess stundað margar aðr-
ar íþróttir. Þó að þeir séu því í ágæt-
isformi hafa þeir nú þegar byrjað
stífar æfingar fyrir sumarið. Jafn-
framt eru þeir byrjaðir að safna
styrkjum vegna fararinnar en ýmis
félög og fyrirtæki hafa þegar heitið
stuðningi.
Gangan umhverfis landið hefst
20. júní og lýkur 5. ágúst. Tilgang-
urinn með henni er annars vegar að
vekja athygli á málefnum fatlaðra
barna og barna sem eiga við erfið
og langvarandi veikindi að stríða.
Hins vegar ætla þeir að sýna fram á
það að flest sé fötluðum fært.
Einnig er ætlunin að nota ferðina
til að hvetja til aukinnar hreyfingar.
„Það geta flestir hreyft sig og þeir
sem eiga bágt með það geta fengið
hjálp til þess,“ sagði Bjarki./4
Bjarki Birgisson og Guðbrandur
Einarsson ætla að ganga hringinn.
Haltur leiðir
blindan
hringinn
um landið
Morgunblaðið/ÞÖK
VÍMUEFNANEYSLA hefur rokið
upp undanfarin misseri en um leið
hefur dregið úr meðferðarstarfi á
Vogi vegna rekstrarfjárskorts. Þór-
arinn Tyrfingsson, yfirlæknir á
Sjúkrahúsinu Vogi, segir ástandið
óviðunandi.
Þórarinn kveðst hafa sérstakar
áhyggjur af stöðugri fjölgun ópíum-
fíkla, eða neytenda svonefnds
„læknadóps“, en fíkn í lyf sem ávísað
er af læknum er nú orðinn aðalvandi
tæpra tíu prósenta þeirra sem koma
á Vog. Þar er um að ræða róandi og
örvandi ávanalyf og sterk verkjalyf,
ópíumefni eða morfínefni, en Þór-
arinn segir nýgengi hjá ópíumfíklum
aldrei hafa verið meira.
Morfínfaraldur hófst hérlendis ár-
ið 1999 að sögn Þórarins. Þá hefur
kannabisneysla aldrei verið hlut-
fallslega meiri. Einnig nefnir Þór-
arinn dæmi þess að fólk leggist inn á
Vog vegna óhóflegrar neyslu á
verkjalyfjum á borð við Parkódín,
sem hægt er að kaupa í lausasölu í
apótekum./24
Vímuefna-
faraldur á
landinu
KOSTNAÐUR vegna heimilissíma
hefur hækkað um 17% á síðustu
þremur árum, frá því í marsmánuði
árið 2002, og á undanförnum 4–5
mánuðum hafa útgjöld vegna heim-
ilissíma hækkað í tvígang saman-
lagt um 6,65% samkvæmt mælingu
vísitölu neysluverðs.
Kostnaður vegna heimilissímans
hækkaði um 3% í desember síðast-
liðnum samkvæmt mælingum vísi-
tölu neysluverðs. Önnur hækkun
varð í mars og þá um 3,6%. Undir
kostnað vegna heimilissíma falla
upphafsgjöld og mínútugjöld úr
kemur í ljós að meðalhækkunin á
síðustu þremur árum er 10,5%. Á
sama tímabili hefur vísitala neyslu-
verðs án húsnæðis hækkað um
3,7%.
Það er einnig athyglisvert í þessu
sambandi að skoða hlutdeild síma-
kostnaðar í heildarútgjöldum vísi-
tölufjölskyldunnar nú og hvernig
hann hefur breyst með mikilli út-
breiðslu farsímans. Í ljós kemur að
útgjöld vegna síma hafa þrefaldast
á undanförnum árum. Þau voru
0,9% fyrir sjö árum en eru nú 2,8%.
Það jafngildir því að útgjöld vísi-
tölufjölskyldunnar vegna síma séu
nálægt 10 þúsund kr. í hverjum
mánuði.
staðið í stað. Þegar símaþjónustan
er tekin saman, þ.e. kostnaður
vegna heimilisíma og farsíma, auk
ýmissar sérþjónustu án nettenginga
heimasíma hvort sem hringt er inn-
anlands eða til útlanda.
Ýmis sérþjónusta símafyrirtækja,
en þar á meðal er tekin t.a.m. stofn-
gjald, símtalsflutningur og upplýs-
inganúmer, hefur einnig hækkað
talsvert síðustu árin eða um 14,4%
á síðustu þremur árum. Þessi þjón-
usta hækkaði einnig í mars um
2,8%.
Lítilsháttar lækkun
Verð á farsímaþjónustu hefur
hins vegar staðið í stað á síðustu
þremur árum og meira að segja
lækkað lítillega eða um innan við
1% á þessu tímabili. Sama gildir um
verð á nettengingum að það hefur
17% hækkun útgjalda
heimilissíma frá 2002
Eftir Hjálmar Jónsson
hjalmar@mbl.is
%& '(#$
P&' 5 " &$; "$
1 " 1 3$ 1 "'G 3# % "&'
Þjónusta heimilissíma hefur hækkað í tvígang á síðustu fimm mánuðum
ÚRSLITAKEPPNIN í úrvalsdeild karla í
handknattleik, DHL-deildinni, hófst í gær-
kvöldi með þremur leikjum í átta liða úrslit-
um. Allir þrír leikirnir unnust á heimavelli,
Haukar unnu FH 29:22, Valsmenn höfðu bet-
ur, 26:25 á Hlíðarenda og í Austurbergi vann
ÍR lið KA 29:26. Það lið sem fyrr sigrar í
tveimur leikjum kemst í undanúrslit. Á
myndinni er FH-ingurinn Heiðar Arnarsson í
baráttunni við varnarmenn Hauka og Þórir
Ólafsson tekur hann ekki neinum vett-
lingatökum./Íþróttir
Fyrstu leikirnir
unnust á heimavelli
Morgunblaðið/Árni Torfason