Morgunblaðið - 08.04.2005, Síða 6
6 FÖSTUDAGUR 8. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
HÓPUR fólks mun hittast á Arn-
arhóli kl. 14 á morgun, laugardag, til
að sýna samstöðu með þolendum of-
beldis. Munu viðstaddir, sem hafa
upplifað, eða þekkja einhvern sem
hefur lifað af ofbeldi, hengja boli á
snúrur og munu margir bolanna bera
á sér skilaboð um ofbeldi hvers kon-
ar. Þá eru viðstaddir hvattir til að lesa
ljóð og stuttar sögur eða jafnvel segja
nöfn sín til þess að rjúfa þögnina.
Það eru samtökin Styrkur – úr
hlekkjum til frelsis og verkefnið Blátt
áfram sem skipuleggja samkomuna,
en framtakið er stutt af Stígamótum,
Samtökum um Kvennaathvarf,
Kjarki á Akureyri, Feministum, Uni-
fem, Íslandsdeild Amnesty Int-
ernational, V-deginum og fleiri að-
ilum.
Svava Björnsdóttir, verkefnisstjóri
Blátt áfram, segir aðstandendur vilja
með þessu sýna fram á fjölda þeirra
sem ofbeldi hefur snert. „Við viljum
hvetja þá sem ekki hafa enn tekist á
við þetta ofbeldi til að leita sér hjálpar
og leiðin til að leita sér hjálpar er ein-
mitt sú að segja frá, að tala um of-
beldið,“ segir Svava. „Á bak við hvern
bol er barn, kona eða maður og við er-
um líka á vissan hátt að lofta út
óhreinindum sem geta skemmt út frá
sér ef ekki er hreinsað til.
Fólk þarf að gera hreint fyrir sín-
um dyrum. Fyrir marga er það svo
stórt skref að finna sér leið til að
segja frá, þó það sé ekki nema bara
með því að koma og hengja upp bol,
það þarf ekki að segja neitt. Bara það
getur verið skref í rétta átt.“
Svava hvetur þá sem aldrei hafa
sagt frá og eru jafnvel komnir á
fimmtugs- eða sextugsaldurinn að
koma fram. „Það er betra að finna sér
leið til að segja frá, heldur en að lifa
með ofbeldi í þögninni. Það er ótrú-
legur léttir að geta sagt frá þessu og
þá leysir maður um skömmina sem
maður tekur á sig og ábyrgðina fyrir
ofbeldinu. Það er verra að geta ekki
sagt frá heldur en ofbeldið sjálft.“
Samtök gegn ofbeldi rjúfa þögnina á Arnarhóli á morgun
Bolir á snúru – gegn ofbeldi
Morgunblaðið/Árni Torfason
Sigríður og Svava Björnsdætur vinna að því að rjúfa þögnina um ofbeldi.
LITLAR breytingar mældust á
hlustun á útvarpsstöðvar í nýrri
könnun IMG Gallup, Bylgjan er
sem fyrr með mesta uppsafnaða
hlustun yfir vikuna, 62%, og Rás 2
er með næstmesta hlustun, 59,8%
yfir vikuna.
Talsvert aukin hlustun mælist á
Rás 1, uppsöfnuð hlustun yfir vik-
una reyndist 53,4%, en í síðustu
könnun í október 2004 var hlustu-
nin 43,2%, og hækkar því um rúm
10 prósentustig. Hlustun á aðrar
stöðvar reyndist mun minni. Alls
höfðu 26,2% hlustað eitthvað á FM
95,7 yfir vikuna og 23,9% höfðu
hlustað á Létt. Ný útvarpsstöð,
XFM, hefur bæst við og höfðu
16,2% hlustað á stöðina yfir þá viku
sem könnunin stóð yfir.
Talstöðin með 15,7% hlustun
Uppsöfnuð hlustun á Útvarp
Sögu fellur úr 19,9% í október 2004
í 15% í nýju könnuninni. Hlustun á
nýja talmálsstöð, Talstöðina, reynd-
ist á svipuðu róli, eða 15,7%. Minnst
hlustun reyndist vera á Kiss FM af
þeim stöðvum sem voru með í könn-
uninni, 12,9%.
Um var að ræða dagbókarkönnun
sem gerð var dagana 9.-15. mars
2005. Í úrtakinu var 1.251 Íslend-
ingur á aldrinum 12-80 ára. Valið
var með tilviljunaraðferð úr þjóð-
skrá. Svarhlutfallið var 51%.
!"#$
%
&
'
%()#)((
Litlar breytingar
á útvarpshlustun
ALVARLEG umferðarslys og al-
varlega slasaðir vegfarendur
voru í sögulegu lágmarki árið
2004 en um er að ræða um 20%
fækkun í þessum flokkum frá
fyrra ári. Alvarlegum slysum
fækkaði úr 120 í 97 og alvarlega
slösuðum úr 145 í 115. Kemur
þetta fram í skýrslu um umferð-
arslys á Íslandi árið 2004 sem
Umferðarstofa kynnti í gær.
Í skýrslunni kemur fram að
árið 2004 hafi bæði verið verra
og betra í umferðinni en árið
2003. Fjöldi látinna og fjöldi
banaslysa var sá sami milli ára.
Eignatjón jókst hins vegar úr
7.145 í 7.848 eða um 10%. Fjöldi
slasaðra minnkaði örlítið milli
ára, úr 1.076 í 1.041 en hins veg-
ar fjölgaði minniháttar slysum úr
667 í 693.
Í skýrslunni segir að við sam-
anburð á hinum Norðurlöndun-
um komi í ljós að hérlendis séu
flest dauðsföll í umferðinni miðað
við höfðatölu árið 2004. Á öllum
Norðurlöndunum hafi banaslys-
um miðað við höfðatölu fækkað
en hér nánast staðið í stað.
23 einstaklingar létu lífið í um-
ferðinni í fyrra. Þar af 16 karl-
menn og 7 konur. Flestir voru á
aldrinum 25 til 64 ára, eða 11
manns.
Ef skoðaðar eru tölur um
heildarfjölda slasaðra í umferð-
inni árin 2003 og 2004 kemur í
ljós að slysum fækkaði um rúm
5% eða úr 1.221 í 1.156. Þá fækk-
aði fjölda slasaðra á hver 100
þúsund ökutæki á sama tímabili
um rúm 10% eða úr 547 í 430. Þá
minnkaði fjöldi slasaðra á hver
100 þúsund ökutæki um 52% ef
miðað er við síðastliðinn áratug,
eða 1.032 í 490 milli 1995 og
2004.
Fræðsla og áróður
mögulegir áhrifavaldar
Að mati Einars Magnúsar
Magnússonar hjá Umferðarstofu
eru mögulegir áhrifavaldir þess-
arar jákvæðu þróunar betri um-
ferðarmannvirki, þróun öryggis-
búnaðar ökutækja, áróður og
fræðsla og betri ökukennsla og
auknar kröfur um hæfni öku-
manna. „Það er stöðugt verið að
þróa og byggja upp betri um-
ferðarmannvirki og á áætlun eru
margar og miklar framkvæmdir í
þeim efnum,“ sagði Einar. „Þró-
un öryggisbúnaðar ökutækja
vegur mjög þungt, því í að
grunni til erum við að keyra á
eldgamalli uppfinningu, sem ein-
hvern tíma kallaðist sjálfrenni-
reið. En það sem hefur mest
breyst er öryggisbúnaður bif-
reiða og kröfur í þeim efnum. Þá
hefur áróður og fræðsla verið
efld og aukin hjá Umferðarstofu
og fleiri aðilum, bæði með aug-
lýsingum og beinum áróðri til
ökumanna.“
Í skýrslunni kemur fram að
ekki hafi eins fá börn slasast í
umferðinni á undanförnum árum
líkt og 2004. Þannig slösuðust 40
börn árið 2003 en 28 í fyrra.
Meðaltal slasaðra barna undan-
farin tíu ár er 49 börn.
Hvað varðar slys af völdum
ölvunaraksturs mátti rekja 52
slys í fyrra til þeirrar ástæðu þar
af þrjúbanaslys og 12 alvarleg
slys.
Ef borin eru saman árin 1995
og 2004 sést að alvarlega slös-
uðum miðað við 100 þúsund íbúa
fækkaði úr 89 í 39. Þá hafa nær
engin slys orðið þar sem 30 km
hámarkshraði gildir.
Skýrsla Umferðarstofu vitnar um jákvæða þróun í umferðaröryggismálum
Alvarleg umferðarslys í
sögulegu lágmarki í fyrra
!"
# !
$
%%&
'
%
%%& %%& '
Morgunblaðið/RAX
Að grunni til erum við að keyra á eldgamalli uppfinningu,“ sagði Einar Magnús Magnússon hjá Umferðarstofu.
STURLA Böðvarsson samgönguráðherra
sagði á blaðamannafundi í gær í tilefni
af skýrslu Umferðarstofu að miklu máli
skipti að stofnanir sem vinna að umferð-
aröryggismálum næðu árangri í sínum
störfum.
„Við Íslendingar höfum verið að ná
miklum árangri á sviði umferðarörygg-
ismála,“ sagði Sturla. „Og hvernig gerist
það? Það gerist í fyrsta lagi með end-
urbótum á vega- og gatnakerfinu en
fyrst og fremst gerist það með því að
beina áróðri og fræðslu að ökumönnum
og öllum þeim sem eru í umferðinni.“
Sturla rifjaði upp að samgöngu-
ráðuneytið hefði í ársbyrjun 2004 tekið
við því verkefni að sinna umferðarörygg-
ismálum en fram að því var það á hendi
dómsmálaráðuneytisins. Talið hefði verið
eðlilegt að vænta árangurs á sviði um-
ferðaröryggismála með því að tengja
saman Vegagerðina og Umferðarstofu. Í
samgönguáætlun til næstu fjögurra ára
sem nú liggur fyrir Alþingi er gert ráð
fyrir að til sérstakra umferðarörygg-
isaðgerða, þ.e. annarra en beinna fram-
kvæmda, verði lagðar 400 milljónir
króna á ári næstu fjögur ár til að ná ár-
angri í umferðaröryggismálum, „til við-
bótar við þá fjármuni sem Umferðarstofa
hefur til kynningar og áróðurs,“ sagði
Sturla.
400 milljónir kr.
árlega til sérstakra
öryggisaðgerða
ÞAÐ gæti verið hvað hættulegast að vera
í umferðinni á milli kl. 15 og 19 á föstu-
dögum en á þeim tíma verða flest slysin
samkvæmt skýrslu Umferðarstofu. Slysin
eru greind niður eftir vikudögum og
tíma sólarhringsins og sést að þetta eru
einu klukkutímarnir þar sem fjöldi slysa
er á bilinu 150–175 á síðasta ári. Virka
daga er eftirmiðdagurinn varasamastur
ef tekið er mið af fjölda slysa en milli
miðnættis til 6 að morgni er hvað örugg-
ast að vera á ferli út frá þessum tölulegu
upplýsingum.
Ef skoðuð er samtala banaslysa, alvar-
legra slysa, minniháttar slysa og eigna-
tjóna eingöngu sést að tíminn frá 15 til
16 er langverstur hvað þetta varðar. Í
fyrra urðu 824 atvik á þessum tíma þar
af 50 minniháttar slys og langflest bana-
slys, eða fjögur talsins. Langflest alvar-
legu slysin í fyrra urðu milli kl. 17 og 18,
eða 13 talsins.
Föstudagseftirmið-
dagar varasamir