Morgunblaðið - 08.04.2005, Qupperneq 22
22 FÖSTUDAGUR 8. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ
DAGLEGT LÍF
VEGNA fréttar um varasamt barna-
glas á neytendasíðu í gær vill Herdís
Storgaard, verkefnastjóri Árvekni hjá
Lýðheilsustöð, koma því á framfæri að
það er ekki glasið sem er varasamt
heldur aðferðin við að hita mjólkina.
„Það sem gerist þegar glasið er sett
í örbylgjuofn með mjólk í til að hita
hana upp þá er lokið
þétt skrúfað á
glasið. Í lok-
inu er ventill
(skammtari)
og við það
að mjólkin
hitnar
myndast
þensla
þannig að
mjólkin sogast upp í
skammt- arahólfið og mjólkin
sem er þar verður miklu heitari en
restin af mjólkinni í glasinu.“
Herdís segir að þegar verið sé að
hita innihald pela upp í örbylgjuofni
eigi aldrei að hafa lokið á ílátinu held-
ur á að skrúfa túttuna eða lokið á eftir
að búið er að hita mjólkina.
Að þessu loknu á að hrista vökvann
og síðan að prófa á handarbakinu
hvort vökvinn sé of heitur fyrir barn-
ið.
Herdís bendir á að alvarleg bruna-
slys í munni og hálsi verði þegar pel-
inn er hitaður með túttunni á og fólk
tekur hann beint úr ofninum og gefur
barninu að drekka.
BÖRN
Má alls ekki
hita mjólkina
í lokuðu
barnaglasi
Morgunblaðið/Kristján
„SEGÐU bara nei“, er ekki nógu gott ráð til
unglinga sem t.d. leiðast út í þjófnað, að því er
bandarísk könnun leiðir í ljós. Aðrar aðferðir
gefa betri árangur, að því er fram kemur á
norska vefnum forskning.no.
Könnunin fór þannig fram að 66 strákar og
63 stelpur í New York á aldrinum 12-13 ára
tóku þátt í hlutverkaleik þar sem þrýst var á
þau að prófa að reykja og taka þátt í búð-
arhnupli. Þau sem stóðust þrýstinginn best
voru þau sem neituðu ekki beint heldur stungu
upp á öðru eða svöruðu fullum hálsi með kald-
hæðni. Julia Graber, bandarískur sálfræð-
ingur og prófessor við Háskólann í Flórída,
segir að e.t.v. vanmeti hinir fullorðnu þær að-
stæður sem börn lenda í og þá tækni sem þau
þurfa að hafa á valdi sínu til að ráða við mis-
munandi aðstæður. Við upphaf unglings-
áranna lenda börn í nýjum félagslegum að-
stæðum þar sem þau eru án hinna fullorðnu og
þurfa viðurkenningu náinna vina. Foreldrar
verði að gera sér grein fyrir að það er ekki
hægt að ráða við allar aðstæður bara með því
að segja nei.
KÖNNUN
Segðu bara nei er ekki nógu gott ráð
Ó
hætt er að fullyrða að ekkert
áhugamál hafi komist í hálfkvisti
við skíðagöngu hjá Sigurði Jóns-
syni á Ísafirði, en hann er nú orð-
inn 85 ára og stundar áhugamál
sitt enn af kappi. „Það er svo sem engin áætlun
uppi um það hvenær ég kem til með að leggja
skíðin á hilluna því ég hef nefnilega haldið því
statt og stöðugt fram að á meðan maðurinn get-
ur gengið, geti hann allt eins gengið á skíðum,“
segir Sigurður í spjalli við Daglegt líf.
Sigurður ætlar ekki að láta sig vanta í Fossa-
vatnsgönguna, eitt helsta skíðagöngumót Ís-
firðinga, þetta árið frekar en endranær enda
hefur hann tekið þátt í flestum Fossavatns-
göngum frá upphafi, þeirri fyrstu árið 1938, þá
nítján ára gamall. Fossavatnsgangan á Ísafirði
er elsta og fjölmennasta skíðamót, sem enn er
við lýði á Íslandi. Fyrsta gangan var haldin árið
1935, en hlé varð á keppninni á árunum frá 1940
til 1955. Engu að síður ætla Ísfirðingar að halda
Fossvatnsgöngu með pomp og prakt laug-
ardaginn 30. apríl nk. í tilefni af 70 ára afmæli
göngunnar. Búast má við tvö hundruð þátttak-
endum að þessu sinni. Lengst af var aðeins boð-
ið upp á eina vegalengd, 20 kílómetra leið, en í
gegnum árin hefur verið bætt við tíu km, 7 km
og í fyrra bættist við 50 km vegalengd.
Ætlar í tíu kílómetrana
Sigurður segist stefna á tíu kílómetrana að
þessu sinni líkt og í fyrra, en þar áður hafi hann
alltaf gengið alla leið, eða 20 km, eins og hann
orðar það.
– Er eitthvað hæft í þeim sögusögnum að þú
farir á skíði á hverjum degi?
„Nei, það eru verulegar ýkjur, en ég fer allt
að fjórum sinnum í viku eftir veðrum og vind-
um. Þessi skíðaáhugi minn hefur einvörðungu
snúist um gönguskíði undanfarin fjörtíu ár, en
fram að fertugsaldri iðkaði ég allar skíðagrein-
ar. Þetta áhugamál hefur fylgt mér frá tólf ára
aldri. Þá kom til Ísafjarðar norskur skíðaþjálf-
ari, sem bauð upp á námskeið. Ég tók þátt og
eftir það hef ég ekkert sleppt skíðastöfunum.“
Sigurður er prentari að mennt og rak prent-
stofuna Ísrúnu á Ísafirði fram til ársins 1989 og
starfaði síðan í íshúsi til áttræðisaldurs eða
fram til ársins 2000 að hann hætti að vinna.
Hann hefur því nú rúman tíma í heilsuræktina
og þegar hann er ekki á skíðum, segist hann
vera býsna duglegur við hjólreiðarnar. „Maður
telur sér gjarnan trú um að það, sem skemmti
manni, hljóti að vera hollt. Ég hef bæði gaman
af þessu og trúi því staðfastlega að þessi hreyf-
ing sé mér holl.“
Fjallaferðir með hækkandi sól
– Hvernig sinnir þú skíðagöngunni árið um
kring?
„Úthaldið getur orðið býsna gott hér fyrir
vestan og er Seljalandsdalurinn auðvitað að-
alsvæðið. Ég elti svo snjóinn upp um fjöll og
firnindi, hvar sem hann er að finna. Í fyrra til
dæmis fór ég síðast í júlí á skíðin og gat svo
byrjað aftur í október uppi á Botns- og Breiða-
dalsheiðum,“ segir Sigurður, sem er aldurs-
forsetinn í laustengdum hópi heldri skíðagöngu-
manna.
„Við höfum undanfarin þrjátíu ár farið saman
í tveggja til þriggja daga skíðagönguferðir á
hverju vori þegar sól er farin að hækka á lofti.
Þá siglum við gjarnan frá Ísafirði norður í Jök-
ulfirðina, höldum svo upp úr einhverjum firð-
inum og göngum yfir á Strandirnar.“
Sigurður segist hafa á sínum yngri árum tek-
ið þátt í nokkrum keppnum, státa af nokkrum
verðlaunapeningum í sveitakeppnum, en ekki
hafa náð í neina verðlaunapeninga svo um geti í
einstaklingskeppnum. „Ég var mátulega fljótur
til þess að vera ekki öfundaður og ekki það lengi
að gert væri grín að mér. Eiginkonan Martha
Árnadóttir varð hinsvegar Íslandsmeistari í
svigi á Skíðamóti Íslands á Ísafirði árið 1938 og
elsti sonurinn Árni Sigurðsson hefur bæði orðið
Íslandsmeistari í svigi og tekið þátt í Ólympíu-
leikum.“
– Hvað færðu svo út úr þessu áhugamáli og
hvernig eru kjöraðstæður?
„Þetta er náttúrulega orðið eins og hver önn-
ur fíkn. Maður getur ekki án skíðagöngunnar
lifað. Bestu aðstæður finnst mér vera vel þjapp-
aður og troðinn snjór og ekki skemmir sólin fyr-
ir.“
ÁHUGAMÁLIÐ | Sigurður Jónsson á Ísafirði stundar skíðagöngu af kappi
„Eins og hver önnur fíkn“
Sigurður Jónsson í miðið ásamt félögum sín-
um, Gunnari og Oddi Péturssonum, á Skíða-
móti Íslands á Ísafirði.
Sigurður Jónsson skíðagöngukappi.
Engan bilbug er að finna á Ís-
firðingnum Sigurði Jónssyni,
sem stefnir nú að enn einni
Fossavatnsgöngunni, 85 ára
að aldri.
TENGLAR
...........................................................
www.fossavatn.com
join@mbl.is