Morgunblaðið - 08.04.2005, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. APRÍL 2005 41
Atvinnuauglýsingar
Byrjunarlaun 200 þ.
Verktakafyrirtæki óskar að ráða 2 hrausta menn
á aldrinum 25-35 ára. Byrjunarlaun 200 þús.
Umsóknir er greini aldur og fyrri störf sendist
til augldeildar Mbl. merktar: „Hraustur 05“.
Yfirvélstjóri
Yfirvélstjóra vantar á Heimaey VE 1 sem stund-
ar togveiðar. Vélarstærð 995 kW.
Umsóknir með hefðbundnum upplýsingum
sendast á netfang: eh@isfelag.is eða í síma
861 2287.
Ísfélag Vestmannaeyja hf.
Víramaður óskast!
Tben ehf. óskar eftir að ráða starfsmann sem
er vanur víravinnu og hefur góða þekkingu á
veiðarfærum, helst vanan netagerðarmann.
Vinsamlega sendið umsókn í pósti til Tben ehf.,
Hvaleyrarbraut 39, 220 Hafnarfjörður, eða með
tölvupósti steini@tben.is merkt „Víramaður“.
Nánari upplýsingar veitir Þorsteinn Benedikts-
son, s. 544 2245.
1. vélstjóra
vantar á Antares VE 18 sem er uppsjávarskip.
Vélarstærð 1920 kW.
Umsóknir með hefðbundnum upplýsingum
sendast á netfang : eh@isfelag.is eða í síma
861 2287.
Ísfélag Vestmannaeyja hf.
Raðauglýsingar 569 1111
Tilkynningar
Auglýsing um afgreiðslu
bæjarráðs Kópavogs
á auglýstum tillögum að deiliskipulagi
Í samræmi við 1. mgr. 25. gr. skipulags- og
byggingarlaga nr. 73/1997, með síðari breyting-
um, er hér með auglýst afgreiðsla bæjarráðs
Kópavogs á eftirfarandi deiliskipulagstillögum:
Dimmuhvarf 14. Breytt deiliskipulag.
Þann 20. janúar 2005 samþykkti bæjarráð
Kópavogs tillögu að breyttu deiliskipulagi lóð-
arinnar nr. 14 við Dimmuhvarf. Í breytingunni
felst að norðvestan núverandi íbúðarhúss er
bætt við byggingarreit fyrir vinnustofu á 1.
hæð, að hámarki 112,5 fm að flatarmáli. Tillag-
an var auglýst frá 26. nóvember til 27. des-
ember 2004 með athugasemdafresti til 11. jan-
úar 2005. Engar athugasemdir eða ábendingar
bárust. Skipulagsstofnun hefur yfirfarið máls-
gögnin og gerir ekki athugasemd við að birt
verði auglýsing um samþykkt deiliskipulagsins
sbr. ofangreind lög. Auglýsing um gildistöku
deiliskipulagsins mun birtast í B-deild Stjórnar-
tíðinda 11. apríl 2005.
Funahvarf 2. Grunnskóli í Vatnsenda.
Breytt deiliskipulag.
Þann 21. október 2004 samþykkti bæjarráð
Kópavogs tillögu að breyttu deiliskipulagi lóð-
arinnar nr. 2 við Funahvarf. Í breytingunni felst
að lóð stækkar nokkuð, fyrirkomulag bílastæða
breytist og þeim fjölgar og afmörkun bygging-
arreitar breytist. Tillagan var auglýst frá 3. sept-
ember til 1. október 2004 með athugasemda-
fresti til 18. október 2004. Engar athugasemdir
eða ábendingar bárust. Skipulagsstofnun hefur
yfirfarið málsgögnin og gerir ekki athugasemd
við að birt verði auglýsing um samþykkt deili-
skipulagsins sbr. ofangreind lög. Auglýsing
um gildistöku deiliskipulagsins mun birtast
í B-deild Stjórnartíðinda 11. apríl 2005.
Bláfjöll. Skíðasvæði. Deiliskipulag.
Þann 3. febrúar 2005 samþykkti bæjarráð Kópa-
vogs tillögu að deiliskipulagi skíðasvæðisins
í Bláfjöllum. Í tillögunni felst afmörkun skíða-
svæðis, skíðabrekkna og svæðis fyrir skíða-
göngu. Þar eru jafnframt skilgreindir bygging-
arreitir fyrir skíðalyftur, þjónustuhús, skála-
byggingar og viðbyggingar við núverandi skála
og skemmur. Gert er ráð fyrir stækkun núver-
andi bílastæða sem og nýjum bílastæðum í
tengslum við nýbyggingar. Tillagan var auglýst
frá 2. apríl til 7. maí 2004 með athugasemda-
fresti til 24. maí 2004. Athugasemdir eða
ábendingar bárust. Skipulagsstofnun hefur
yfirfarið málsgögnin og gerir ekki athugasemd
við að birt verði auglýsing um samþykkt deili-
skipulagsins sbr. ofangreind lög. Auglýsing
um gildistöku deiliskipulagsins mun birtast
í B-deild Stjórnartíðinda 11. apríl 2005.
Nánari upplýsingar eða gögn um ofangreindar
deiliskipulagsáætlanir og afgreiðslu þeirra er
hægt að nálgast á Bæjarskipulagi Kópavogs,
Fannborg 6, 200 Kópavogi, milli kl. 8:00 og
16:00 mánudaga til fimmtudaga og á föstudög-
um frá 8:00 til 14:00.
Skipulagsstjóri Kópavogs.
BORGARTÚN 3 • 105 REYKJAVÍK • SÍMI 563 2600 • MYNDSENDIR 562 3219
Reykjavíkurborg
Skipulags- og byggingarsvið
Auglýsing um breytingu á
deiliskipulagi í Reykjavík
Í samræmi við 25. gr. skipulags- og
byggingarlaga nr. 73/1997, með síðari
breytingum, er hér með auglýst til kynningar
tillaga að breytingu á deiliskipulagi í Reykjavík.
Borgartún 23, 29, 31 og 33.
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi fyrir
lóðirnar Borgartún 23, 29, 31 og 33.
Tillagan gerir m.a. ráð fyrir að gerður er
byggingarreitur fyrir inndregna fjórðu hæð,
hámarksnýtingarhlutfalli er breytt og veitt er
heimild fyrir þakgörðum og viðbyggingum á
framhlið.
Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.
Tillagan liggur frammi í upplýsingaskála
skipulags- og byggingarsviðs Reykjavíkur-
borgar í Borgartúni 3, 1. hæð, virka daga kl.
8:20 – 16:15, frá 8. apríl til og með 20. maí
2005. Einnig má sjá tillögurnar á heimasíðu
sviðsins, skipbygg.is. Eru þeir sem telja sig
eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér
tillöguna. Ábendingum og athugasemdum við
þær skal skila skriflega eða á netfangið
skipulag@rvk.is, til skipulags- og byggingar-
sviðs (merkt skipulagsfulltrúa) eigi síðar en 20.
maí 2005.
Þeir sem eigi gera athugasemdir innan
tilskilins frests, teljast samþykkja tillöguna.
Reykjavík, 8. apríl 2005
Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur
Tillaga að sérstöku
svæðisskipulagi fyrir
Norðurlandsskóga
Skipulagsstofnun auglýsir hér með tillögu að
sérstöku svæðisskipulagi fyrir Norðurlands-
skóga samkvæmt 15. gr. skipulags- og bygg-
ingarlaga. Í skipulagstillögunni er sett fram
stefna Norðurlandsskóga um skógrækt á þeirra
vegum. Skilgreind er málsmeðferð við af-
greiðslu umsókna og gerð skógræktaráætlana
fyrir einstakar jarðir, s.s. hvernig staðið verður
að gagnaöflun og –greiningu og til hverra verð-
ur leitað varðandi gögn og greiningu. Settar
eru fram áherslur um útfærslu skógræktar, s.s.
varðandi tegund skógræktar, trjátegundir, jarð-
vinnslu, áburðargjöf, náttúruvernd og minja-
vernd.
Skipulagstillagan liggur frammi til kynningar
frá 8. apríl til 20. maí 2005 á eftirtöldum stöð-
um:
Skrifstofu Öxarfjarðarhrepps, Bakkagötu 10,
Kópaskeri.
Stjórnsýsluhúsi Húsavíkurbæjar, Ketilsbraut
7-9, Húsavík.
Skrifstofu Akureyrarbæjar, Geislagötu 9,
Akureyri.
Ráðhúsi Skagafjarðar, Skagfirðingabraut 21,
Sauðárkróki.
Skrifstofu Blönduósbæjar, Húnabraut 6,
Blönduósi.
Skrifstofu Húnaþings vestra, Klapparstíg 4,
Hvammstanga.
Skrifstofu Norðurlandsskóga, Gömlu gróðrar-
stöðinni Krókeyri, Akureyri.
Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, Reykjavík.
Tillagan er einnig birt á heimasíðu Norður-
landsskóga www.nls.is og heimasíðu Skipu-
lagsstofnunar www.skipulag.is.
Þeim, sem telja sig eiga hagsmuna að gæta,
er hér með gefinn kostur á að gera athuga-
semdir við tillöguna. Frestur til þess að skila
inn athugasemdum er til 20. maí 2005. Athuga-
semdir skulu vera skriflegar og berast til Skipu-
lagsstofnunar, Laugavegi 166, 150 Reykjavík.
Skipulagsstofnun.
Mat á umhverfisáhrifum
Ákvörðun Skipulagsstofnunar um
matsskyldu framkvæmda
Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að
eftirtalin framkvæmd skuli ekki háð mati á um-
hverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000
um mat á umhverfisáhrifum.
Lenging Þingeyrarflugvallar og vegagerð
í Dýrafirði, Ísafjarðabæ.
Ákvarðanirnar liggja frammi hjá Skipulags-
stofnun, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Þær
er einnig að finna á heimasíðu Skipulagsstofn-
unar: www.skipulag.is.
Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til um-
hverfisráðherra og er kærufrestur til 6. maí
2005.
Skipulagsstofnun.
Atvinnuauglýsingar
augl@mbl.is