Morgunblaðið - 08.04.2005, Side 50
50 FÖSTUDAGUR 8. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Miðasala opnar kl. 15.00
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINSI I I
HÆTTULEGASTA GAMANMYND ÁRSINS I
Sýnd kl. 10. B.i. 14 ára.
HÆTTULEGASTA
GAMANMYND ÁRSINS
Sýnd kl. 6 m. ísl. tali,
Sýnd kl. 6 m. ensku tali
K&F X-FM
ÓÖH DV
WWW.BORGARBIO.IS
FRAMHALDIÐ AF GET SHORTY
FRAMHALDIÐ AF GET SHORTY
ÓÖH DV
ÓÖH DV
Sýnd kl. 8 og 10.30. B.i. 14 ára.
Í fjölskyldu þar
sem enginn skilur
neinn mun hún
smellpassa í hópinn
Every family could use a little translation
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30.
Sýnd kl. 8 og 10.45.
kl. 5.30, 8 og 10.30.
F R Á L E I K S T J Ó R A AS GOOD AS IT GETS
Sýnd kl. 4 og 6. m. ísl tali
Sýnd kl. 4 og 6. m. ensku tali
J.H.H. kvikmyndir.com
SV mbl
Will Smith er
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30.
Sýnd kl. 8 og 10.
Sýnd kl. 8.
Frá leikstjóra American Pie & About a
Boy kemur frábær ný gamanmynd.
Frá leikstjóra American Pie & About a
Boy kemur frábær ný gamanmynd.
Hann fær nýjan yfirmann, óreyndan strák sem
dóttir hans fellur auk þess fyrir
Hann fær nýjan yfirmann óreyndan strák sem
dóttir hans fellur auk þess fyrir
Með Dennis Quaid í fantaformi
ásamt Topher Grace (That´s 70s
Show) og Scarlett Johnsson (Lost in
Translation).
Með Dennis Quaid í
fantaformi ásamt Topher
Grace (That´s 70s Show)
og Scarlett Johnsson (Lost
in Translation).
B.B. Sjáðu Popptíví
S.K. DV
B.B. Sjáðu Popptíví
ótextuð
NORSK-ÍSLENSKA
skjallbandalagið
Inc., sem saman-
stendur af Ásgerði
Eyþórsdóttur og
Monicu Haug, stend-
ur fyrir tónleikum í
Hveragerðiskirkju í
kvöld. Aðalnúmer
kvöldsins er Valgeir
Guðjónsson, en auk
hans koma fram
systurnar Hildur og
Rakel Magnúsdætur
frá Hveragerði, en Hildur var á
meðal keppenda í Idol-Stjörnuleit.
Tónleikarnir eru liður í tónleika-
röðinni Kvöld í Hveró, en 18. mars
reið Halli Reynis á vaðið með fyrstu
tónleikum raðarinnar.
Ásgerður, sem býr í Hveragerði,
segir að hugmyndin að Kvöldi í
Hveró hafi kviknað í kjölfar þess að
hún og Monica skipulögðu tónleika
með Jóni Ólafssyni í kirkjunni í
nóvember. „Þeir heppnuðust mjög
vel; mætingin var fín og stemningin
góð. Eftir þetta uppátæki langaði
okkur að endurtaka leikinn og
skipulögðum því þessa tónleikaröð,
enda ekki oft sem tónleikar af
þessu tagi eru haldnir utan höfuð-
borgarsvæðisins. Við vitum líka að
það er bullandi gróska í tónlistarlíf-
inu hérna á Suðurlandi,“ segir hún.
Hún segir að kirkjan sé afskaplega
vel fallin til tónlistarflutnings;
hljómurinn sé afar góður.
Sækja fólk úr borginni
Ásgerður segir að þeim stöllum
hafi þótt tími til kominn að fólk
sækti tónleika úr borginni til
Suðurlands, frekar en að Sunnlend-
ingar færu í bæinn til að sækja
menningarviðburði. „Við stöndum
að þessu í samstarfi við menningar-
málanefndina í Hveragerði, auk
þess sem við fengum Hótel Örk í
samstarf, en þar er boðið upp á til-
boð sem felur í sér gistingu, tón-
leikamiða og morgunverð, fyrir
4.900 krónur,“ segir hún.
Tónleikaröðin heldur áfram 22.
apríl, þegar Fabúla kemur fram, en
6. maí spila systkinin KK og Ellen.
Hinn 20. maí verða tónleikar Stef-
áns og Eyfa í Selfosskirkju, í sam-
vinnu við menningarhátíðina Vor í
Árborg. Reggísveitin Hjálmar bind-
ur svo endahnútinn á Kvöld í Hveró
3. júní með tónleikum í Hvera-
gerðiskirkju.
Valgeir Guðjónsson spilar á Kvöldi
í Hveró í Hveragerðiskirkju í kvöld.
Rakel og Hildur Magnúsdætur
syngja einnig, en tónleikarnir hefj-
ast kl. 21.00.
Tónlist | Valgeir Guðjónsson spilar
í Hveragerðiskirkju í kvöld
Annað Kvöldið
í Hveró
Morgunblaðið/Jim Smart
Valgeir Guðjónsson ætlar að spila á Kvöldi í Hveró.
Eftir Ívar Pál Jónsson
ivarpall@mbl.is
KVIKMYNDIN Boogeyman er ný hrollvekja frá þeim
sömu og færðu okkur The Grudge en Sam Raimi veit
hvað hann syngur þegar kemur að framleiðslu hryllings-
mynda.
Myndin gerist í Chicago samtímans og fjallar um ung-
an mann sem á slæmar bernskuminningar og er í raun
enn að berjast við hræðilegar martraðir sem sækja á
hann hvert einasta
kvöld. Eina leiðin sem
hann hefur til að losa sig
við martraðirnar er að
fara á gamla bernsku-
heimili þar sem hryll-
ingurinn á upptök sín.
Frumsýning |
Boogeyman
Hræðslan tekur völdin í Boogeyman.
Margt býr í myrkrinu
ERLENDIR DÓMAR
Metacritic.com 32/100
Hollywood Reporter 60/100
New York Times 30/100
Variety 70/100 (metacritic)
GAMANDRAMAÐ In Good Company skartar prýðis-
leikurum en í helstu hlutverkum eru Scarlett Johans-
son, Dennis Quaid og Topher Grace úr That ’70s
Show sem er ný rísandi stjarna í Hollywood.
Myndin fjallar í stuttu máli um auglýsinga-
sölustjóra sem er kominn á sextugsaldur en fær nýj-
an yfirmann sem er
helmingi yngri en
hann.
Nýi og gamli tíminn
mætast á skemmti-
legan hátt í mynd,
sem hefur hlotið fína
dóma.
Frumsýning |
In Good Company
Scarlett Johansson og Dennis Quaid í hlutverkum sínum.
Góður félagsskapur
ERLENDIR DÓMAR
Metacritic.com 66/100
Roger Ebert Hollywood Reporter 70/100
New York Times 70/100
Variety 70/100 (metacritic)
ÞÆTTIRNIR um Svamp Sveinsson hafa notið vinsælda
en nú er verið að frumsýna kvikmynd um kappann.
Myndin gekk vel í bandaríska bíógesti en hér er hún tal-
sett á íslensku auk þess að vera sýnd með ensku tali.
Þessi teiknimynd þykir fyndin og frumleg og ætti öll fjöl-
skyldan að geta skemmt sér yfir henni. Fylgst er með
skringilegum ævintýrum neðansjávar, ævintýrum sem
eiga sér stað á Bikinibotni. Svampur Sveinsson og félagar
fá það verkefni að hafa uppi á kórónu Neptúns konungs.
Í ensku útgáfunni eru
það David Hasselhoff,
Scarlett Johansson,
Alec Baldwin og Jeffrey
Tambor, sem ásamt
fleirum ljá teikni-
myndapersónunum
rödd sína.
Frumsýning |
Svampur Sveinsson
Svampur Sveinsson er hress!
Ævintýri neðansjávar
ERLENDIR DÓMAR
Metacritic.com 66/100
Roger Ebert Hollywood Reporter 90/100
New York Times 80/100
Variety 70/100 (metacritic)