Morgunblaðið - 08.04.2005, Page 56
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FÖSTUDAGUR 8. APRÍL 2005 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
Endurlokanlegar
umbúðir
Sneiddur brauðostur
í flægilegum umbú›um
sem tryggja a› osturinn er
alltaf eins og n‡skorinn.
Nú fáanlegur í sneiðum
Opið 8-24 alla daga
í Lágmúla og Smáratorgi
MYND Gríms Hákonarsonar, Slav-
ek the Shit, hefur verið valin til að
taka þátt í keppni stuttmynda á
Kvikmyndahátíðinni í Cannes, sem
fer fram 11.–22. maí næstkomandi.
Myndin fjallar um salernisvörðinn
Slavek. „Þetta er ástarsaga; Slavek
verður hrifinn af kvenklósettverði
sem vinnur hinum megin og verður
að beita ýmsum brögðum til að ná í
hana, enda má hann ekki koma inn
á kvennaklósettið,“ segir Grím-
ur./52
Íslensk
stuttmynd
á Cannes-
hátíðinni
OFBELDI gegn öldruðum er vel falið og þrátt
fyrir að engar rannsóknir liggi fyrir um ofbeldi
gegn öldruðum á Íslandi er ljóst að það á sér
stað í nokkrum mæli hér á landi.
Á námstefnu um ofbeldi og aldraða sem efnt
var til á Akureyri í gær kom m.a. fram að léleg
heilsa og skert líkamleg geta hins aldraða væri
áhættuþáttur varðandi ofbeldi. Fólk gæti ekki
varið sig eða leitað hjálpar.
Ólafur Þór Gunnarsson, lyf- og öldrunar-
læknir við LSH, nefndi nokkur dæmi um of-
beldi gegn öldruðu fólki, m.a. um 90 ára gamlan
karl sem bjó heima hjá dóttur sinni sem van-
rækti hann illilega. Þá nefndi Ólafur dæmi um
aldrað fólk með heilabilun sem varð fórnarlömb
mikillar vanrækslu, ofbeldis og eineltis, bæði af
hendi fjölskyldu og umönnunarstarfsfólks. „Ég
get ekki sagt að ég hafi verið barinn, en það er
hægt að meiða með fleiru en barsmíðum,“ sagði
einn viðmælandi Ólafs um ofbeldið gagnvart
sér, en hann hafði verið illa vanræktur og lagð-
ur í einelti af starfsfólki.
Þorsteinn Pétursson rannsóknarlögreglu-
maður sagði ofbeldi gegn öldruðum yfirleitt
framið af ættingjum eða nákomnum og því
sjaldan kært.
Skortir rannsóknir
Margrét Margeirsdóttir, félagsráðgjafi og
formaður Félags eldri borgara í Reykjavík,
segist ekki geta sagt hversu umfangsmikið of-
beldi gegn öldruðum sé. Mikill skortur sé á fé-
lagslegum rannsóknum á stöðu aldraðra. „Ég
sat ráðstefnu á vegum Endurmenntunarstofn-
unar HÍ síðastliðinn vetur þar sem fjöldi aðila
úr ýmsum fagstéttum flutti fyrirlestra um
þetta vandamál. Þar kom fram að ofbeldið væri
nokkuð algengt, bæði inni á stofnunum og eins
á heimilum,“ segir Margrét. „Þetta vandamál
er mjög falið og þetta er mjög flókið og marg-
þætt mál. Ef ekki liggja fyrir ítarlegar rann-
sóknir á þessu er erfitt að fullyrða, en gamalt
fólk er miklu varnarlausara gagnvart ofbeldi en
aðrir. Það hafa þó komið upp mál sem hafa orð-
ið opinber.“
Margrét segir ofbeldi hafa verið skilgreint
mjög víðtækt á ráðstefnunni, jafnt líkamlegt,
andlegt, félagslegt og jafnvel fjárhagslegt. „Það
er til dæmis spurning hvort það sé ekki ofbeldi
af hálfu löggjafans þegar fólk missir fjárræði
þegar það fer inn á hjúkrunar- og dvalarheim-
ili.“
Ofbeldi gegn öldruðum
dulið og erfitt viðureignar
Eftir Svavar Knút Kristinsson
og Margréti Þóru Þórsdóttur
Léleg heilsa/4
Á FIMMTA hundrað framhaldsskólanema kom sam-
an á Austurvelli í gær til að mótmæla styttingu náms
í framhaldsskólum. Telja framhaldsskólanemar mun
vænlegra að stytta grunnskólann en framhaldsskól-
ann. „Þetta er gengisfelling á námi, einungis gert í
sparnaðarskyni,“ segir Steindór Grétar Jónsson, for-
maður Framtíðarinnar í MR.
Hagsmunaráð íslenskra framhaldsskólanema stóð
fyrir mótmælafundinum en það er skipað fulltrúum
sex af stærstu framhaldsskólum landsins. Á
heimasíðu sinni, hagsmunir.is, bendir hagsmunaráðið
m.a. á að háskólar í Svíþjóð hafi þurft að skikka
nemendur sína í aukakúrsa í vissum fögum þar sem
þeir telja þá ekki nægilega vel undirbúna eftir fram-
haldsskólanám. Þá skerðist sumarfrí nemenda sem
hingað til hafa farið í að afla skotsilfurs fyrir vet-
urinn samfara auknum kostnaði vegna námsbóka og
fleira./10
Morgunblaðið/Þorkell
Styttingu framhalds-
skólanáms mótmælt
LEIKARINN
Gael García
Bernal kemur til
landsins í kvöld
vegna Al-
þjóðlegu kvik-
myndahátíð-
arinnar á
Íslandi, IIFF
2005. Bernal fer
með aðal-
hlutverkið í opn-
unarmynd hátíðarinnar, Mót-
orhjóladagbækurnar, sem sýnd
var í gær en fer og með hlutverk í
myndinni Léleg menntun (Bad
Education) sem einnig er sýnd á
hátíðinni og er eftir Pedro Almo-
dovar.
Bernal staldrar stutt við, fer af
landi brott á sunnudaginn, en
verður viðstaddur sýningu á Mót-
orhjóladagbókunum sem fram fer
á laugardaginn í Háskólabíói
klukkan 20.00. Mun hann sitja fyr-
ir svörum í lok myndarinnar.
Að sögn Ísleifs B. Þórhallssonar,
framkvæmdastjóra hátíðarinnar,
kom þetta óvænt upp.
„Við vorum búin að reyna að fá
hann og töluðum við Walter Salles
leikstjóra. Þetta kom svo upp í
gær, en Salles segir Bernal vera
mann skyndiákvarðana. Hann og
Björn Hlynur Haraldsson eru að
æfa saman í London fyrir leikritið
Blóðbrullaup eftir Federico
García Lorca og eru orðnir ágætir
kunningjar og verða þeir í slag-
togi saman hér á landi.“
Gael García
Bernal
á kvik-
myndahátíð
Gael García
Bernal
SÍÐDEGIS í gær ákvað stjórn Som-
erfield að opna bækur sínar fyrir til-
boðsgjöfum í fyrirtækið. Tilboðs-
gjafar eru eins og fram hefur komið í
Morgunblaðinu írönsku bræðurnir
Robert og Vincent Tchenguiz og
ensku bræðurnir Ian og Richard
Livingstone og Baugur Group. Bæk-
ur fyrirtækisins verða opnaðar til-
boðsgjöfum í dag en ekki liggur ljóst
fyrir hversu lengi þær verða opnar.
Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri
Baugs Group, sagði í samtali við
Morgunblaðið í gærkvöldi: „Málið er
enn á svo viðkvæmu stigi að ég vil
ekki tjá mig frekar um það en málin
hljóta að skýrast á næstu dögum.“
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins ríkir mikil tortryggni meðal
stjórnenda og eigenda Somerfield í
garð tilboðsgjafa og því munu þeir
hafa ákveðið að hafa bókhald sitt fyr-
ir tilboðsgjafa opið um skamma hríð,
eða að hámarki þrjár vikur.
Slagurinn um Somerfield harðnar
enn ef marka má Financial Times í
gær en þar kemur fram að milljarða-
mæringurinn Sol Zakay, sem á fast-
eignafélagið Topland, sé að íhuga til-
boð í Somerfield með það í huga að
eignast fasteignir þess sem taldar
eru vera að verðmæti rúmlega einn
milljarður punda.
Somerfield opnar bókhaldið
Er á viðkvæmu
stigi, segir Jón
Ásgeir Jóhannesson
„FRAMVINDAN
á íbúðalánamark-
aði vekur spurn-
ingar um eðlilega
verkaskiptingu
milli hins ríkis-
rekna Íbúðalána-
sjóðs og bank-
anna.“ Þetta
sagði Geir H.
Haarde fjármála-
ráðherra á ráðstefnu Samtaka banka
og verðbréfafyrirtækja (SBV) í gær.
Hann sagði að Íbúðalánasjóður
mundi vissulega áfram hafa mikil-
vægu hlutverki að gegna. Hann teldi
hins vegar eðlilegt að hlutverk sjóðs-
ins beindist í framtíðinni í meira
mæli að félagslegum þáttum og
ákveðnum landshlutum.
Eðlileg framþróun
Íbúðalán bankanna eru að mati
Geirs eðlileg framþróun á lánamark-
aði. „Það er ekki vafi á því að einka-
væðing bankanna, aukin stærð
þeirra og styrkur í kjölfarið, á stóran
þátt í því að þeir töldu sér óhætt að
leggja út á þessa nýju braut,“ sagði
Geir. „Með þeirri vaxtalækkun á
langtímalánum til fasteignaviðskipta
sem þessari þróun hefur fylgt má
segja að einkavæðingin hafi með
beinum hætti og kannski skjótvirk-
ari hætti en fyrirséð varð bætt lífs-
kjörin í landinu.“
Þá sagði hann að breyting á hlut-
verki Íbúðalánasjóðs væri úrlausn-
arefni á hinum pólitíska vettvangi.
Fara þyrfti vandlega yfir alla þætti
þess máls, m.a. með hliðsjón af
ábyrgðum sem hvíldu á ríkissjóði.
ÍLS beini
sér að
félagsleg-
um þáttum
Íbúðalán/13
Geir H. Haarde
♦♦♦