Morgunblaðið - 28.04.2005, Side 1

Morgunblaðið - 28.04.2005, Side 1
STOFNAÐ 1913 113. TBL. 93. ÁRG. FIMMTUDAGUR 28. APRÍL 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is Ný lög á leiðinni Ragnheiður Gröndal undirbýr plötu með eigin efni | Menning Viðskipti | Misferli í Skandia Hefur aldrei leiðst í vinnunni  Eruð þið að vinna fyrir Actavis? Íþróttir | Jafnt hjá Eiði og félögum Jón Arnór í úrslitaleikinn  Silja með besta tímann ÍSLENSKU friðagæsluliðarnir, sem særðust í sprengjuárás í Kabúl í Afganistan í fyrrahaust, hafa ekki fengið bætur frá Tryggingastofnun ríkisins (TR), þar sem stofnunin telur að menn- irnir þrír hafi ekki slasast í vinnuslysi heldur í frítíma sínum. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins má búast við að málinu verði skotið til úrskurð- arnefndar almannatrygginga. Eins og kunnugt er urðu friðargæsluliðarnir fyrir árás þegar þeir stóðu vörð fyrir utan teppabúð við Kjúklingastræti, fjölfarna versl- unargötu í miðborg Kabúl. Í árásinni lést afg- önsk stúlka og ung bandarísk kona lést af sár- um sínum daginn eftir. Tengdist ekki vinnu sem þeim eru greidd laun fyrir Ragna Haraldsdóttir, lögfræðingur á sjúkra- tryggingasviði á slysadeild TR, segir að sam- kvæmt ákvæðum almannatryggingalaga séu einungis atvik sem verði í vinnutíma bætt. Í kjölfar þess að mennirnir þrír sendu stofnun- inni tilkynningu um atvikið hafi stofnunin óskað eftir upplýsingum frá utanríkisráðuneytinu, vinnuveitanda mannanna, og í svörum ráðu- neytisins hafi komið fram að ferð mannanna í Kjúklingastræti hafi ekki tengst vinnu þeirra. Á grundvelli þess sé málinu synjað. „Málið snýst um það að þessi ákveðna ferð tengdist ekki vinnu þeirra sem þeim eru greidd laun fyrir og tryggingagjald er greitt vegna,“ segir Ragna. Hún bendir þó á að í gangi sé mál þessu óskylt þar sem íslenskur starfsmaður slökkvi- liðsins á Kabúl-flugvelli hafi slasast við vinnu sína, og er reiknað með að það slys verði bætt þegar allar upplýsingar vegna málsins hafa bor- ist. Friðargæsluliðum sem slösuðust í sprengjuárás í Kabúl synjað um bætur Ekki taldir vera í vinn- unni í Kjúklingastræti Eftir Rúnar Pálmason og Brján Jónasson Washington. AFP. | 25 ára leigumóðir í Bandaríkjunum ól fimmbura fyrir hjón sem höfðu reynt án árangurs í tíu ár að eignast barn upp á eigin spýtur. Fimmburarnir voru teknir með keisaraskurði á fimm mínútum á sjúkrahúsi í Phoenix í Arizona í fyrrakvöld. Minnsta barnið vó rúm- ar sex merkur. Fimm fósturvísum hafði verið komið fyrir í legi leigumóðurinnar, Teresu Anderson, til að auka lík- urnar á því að barn fæddist. And- erson átti að fá 15.000 dollara, sem samsvarar tæpri milljón króna, fyr- ir að ala hjónunum barn en þegar í ljós kom að börnin yrðu fimm ákvað hún að þiggja ekki pen- ingana vegna fjárhagsbyrðarinnar sem hjónin standa nú frammi fyrir. Þau voru himinlifandi yfir fimm- burunum en faðirinn kvaðst ætla að biðja Guð að hjálpa sér. AP Bandaríska leigumóðirin Teresa Anderson (t.v.) horfir á eitt af börnunum fimm sem hún ól í fyrradag. Leigumóðir ól fimmbura – án greiðslu VERKSMIÐJUR Alcoa framleiddu stóran hluta þess áls sem fer í nýju risaþotuna frá Airbus sem fór í sitt fyrsta flug í gær. Sam- kvæmt tilkynningu frá Alcoa hefur fyrir- tækið haft náið samstarf við Airbus um þróun ákveðinna hluta vélarinnar á yfir 20 stöðum á skrokknum. Er þetta mesta hlut- deild sem Alcoa hefur átt í einni flug- vélategund í sögu þessa álfyrirtækis. Spurður hvort Alcoa-Fjarðaál í Reyð- arfirði komi til með að framleiða ál í þessa risaþotu Airbus segir Tómas Már Sigurðs- son, forstjóri fyrirtækisins, allar líkur á því. Ljóst sé að framleiðslan í Reyðarfirði, sem hefjast á eftir rúm tvö ár, muni að verulegu leyti fara í flugvélaiðnaðinn í Evrópu. Alcoa hafi jafnan átt stóra hlut- deild á þeim markaði./14 Reuters Álið í Airbus- vélinni að mestu frá Alcoa Bagdad. AFP. | Ibrahim Jaafari, sem hefur verið tilnefndur forsætisráðherra Íraks, til- kynnti í gær að hann hefði myndað ríkis- stjórn, tæpum þremur mánuðum eftir þingkosn- ingar. Jaafari sagði að ráð- herralistinn yrði lagður fyrir íraska forsætisráðið og síðan þingið sem þarf að samþykkja stjórnina með meirihluta atkvæða. Hann nafngreindi ekki þá sem eru á listanum, sagði aðeins að á meðal þeirra væru að minnsta kosti sjö konur og að súnní-arabi yrði varnarmálaráðherra. Leiðtogar íraskra sjíta og Kúrda hafa kappkostað að fá atkvæðamikla súnní-araba í stjórnina til að tryggja henni sem mestan stuðning meðal þjóðarinnar. „Ég hef unnið nótt og dag að því að mynda ríkisstjórn sem á að láta verkin tala og endurspegla þjóð- ernislegan og trúarlegan fjölbreytileika íraska samfélagsins,“ sagði hann. Stjórnin á að vera við völd fram yfir þing- kosningar sem ráðgerðar eru 15. desember. Þingkona myrt Írösk þingkona var myrt á heimili sínu í Bagdad í gær. Hún er fyrsti þingmaðurinn sem myrtur er í Írak frá því að kosning- arnar fóru fram 30. janúar. Konan hét Lamiya Abed Khadawi og var í janúar kjörin til setu á þingi af lista Iyads Allawis, fyrrverandi forsætisráðherra bráðabirgðastjórnarinnar í Írak. Þrír menn börðu að dyrum á heimili Khadawi og skutu hana til bana er hún kom til dyra. Kveðst hafa myndað stjórn í Írak Ibrahim Jaafari Jerúsalem. AFP, AP. | Vladímír Pútín Rúss- landsforseti kom til Ísraels í gærkvöldi. Þetta er í fyrsta skipti í sögu Ísraelsríkis sem rúss- neskur eða sovéskur leiðtogi sækir það heim. Heimsóknin endurspeglar batnandi sam- skipti Rússlands og Ísraels síðustu árin. Sov- étríkin og Ísrael voru óvinir í kalda stríðinu og stjórnin í Moskvu sleit stjórnmálasambandi ríkjanna árið 1967. Pútín fór til Ísraels eftir tveggja daga heim- sókn til Egyptalands. Forsetinn sagði eftir viðræður við þarlenda ráðamenn að hann legði til að haldin yrði ráðstefna í Rússlandi í haust um friðarumleitanir í Mið-Austurlöndum. Stjórnvöld í Bandaríkjunum og Ísrael tóku þeirri tillögu heldur fálega í gær og sögðu að ekki væri tímabært að ræða slíka friðarráð- stefnu. Palestínumenn fögnuðu hins vegar til- lögunni. Pútín hyggst ræða við Ariel Sharon, for- sætisráðherra Ísraels, í Jerúsalem í dag. Búist er við að tillagan um friðarráðstefnu, áhyggjur Ísraela af samstarfi Rússa við Írana í kjarn- orkumálum og fyrirhuguð sala á rússneskum eldflaugum til Sýrlands verði efst á baugi. Pútín ræðir einnig við Mahmoud Abbas, leiðtoga Palestínumanna, í Ramallah á Vest- urbakkanum á morgun. Forsetinn er sagður vona að ferðin verði til þess að áhrif Rússa aukist í Mið-Austurlöndum. Þau hafa minnkað jafnt og þétt frá hruni Sovétríkjanna. Söguleg ferð Pútíns til Ísraels Tillögu um friðar- ráðstefnu tekið heldur fálega Reuters Pútín Rússlandsforseti (t.v.) og Ehud Olmert, aðstoðarforsætisráðherra Ísraels, í bíl á Ben Gurion-flugvelli nálægt Tel Aviv í gærkvöldi. ♦♦♦ Viðskipti og Íþróttir í dag

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.