Morgunblaðið - 28.04.2005, Blaðsíða 8
8 FIMMTUDAGUR 28. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Eitt stk. mótorhjól, næsti gjöri svo vel.
Námsmönnum geng-ur betur að verðasér úti um sumar-
vinnu í ár en í fyrra en þá
var ástandið jafnframt
betra en árið þar áður. Mikil
hreyfing er á störfum sem
Stúdentamiðlun hefur milli-
göngu um en umsóknum í
Nýsköpunarsjóð náms-
manna hefur fækkað tölu-
vert frá því í fyrra.
Hugrún Jóhannesdóttir,
forstöðumaður Vinnumiðl-
unar höfuðborgarsvæðisins,
segir að mun meira framboð
sé á störfum nú en á sama
tíma í fyrra. Atvinnuleysi
hafi minnkað og það sé töluverður
uppgangur í samfélaginu. „Það
vantar mjög víða fólk. Við sjáum
það þegar við berum saman tölur
milli mánaða og ára,“ segir Hug-
rún og bendir á að í mars í fyrra
hafi 855 manns á aldrinum 16–24
ára verið á atvinnuleysisskrá en að
í ár sé þessi tala 527. Að sögn Hug-
rúnar fá ungmenni undir 18 ára
aldri helst vinnu við afgreiðslu en
svo virðist sem sumarvinnuhefðin
sé að breytast í þessum yngri hópi.
„Þau fá síður vinnu og atvinnurek-
endur vilja frekar fá eldri krakka,“
segir Hugrún.
2.300 umsóknir um
þúsund störf
Selma Árnadóttir, forstöðumað-
ur Vinnumiðlunar ungs fólks, segir
að þrátt fyrir betra ástand í at-
vinnumálum séu mun fleiri um-
sóknir en laus störf. Ungt fólk, 17
ára og eldra (fætt 1988 og fyrr),
með lögheimili í Reykjavík, getur
skráð sig hjá miðluninni hvort sem
það er í skóla eða ekki. Selma segir
að í fyrra hafi flestir fengið sum-
arvinnu sem vildu eftir að Reykja-
víkurborg veitti fé til þess að skapa
meira en sex hundruð störf til við-
bótar við þau þúsund sem fyrir
voru. Selma segir að nú þegar hafi
stofnunni borist 2.300 umsóknir
um sumarstörf en störfin eru í
kringum þúsund. „Sem betur fer
er fólk duglegt að leita líka á önnur
mið. Það er engin vissa fyrir því að
það verði lausnir fyrir flesta líkt og
í fyrra.“ Að sögn Selmu eru flest
störfin sem um ræðir hjá stofnun-
um Reykjavíkurborgar, s.s. hjá
leikskólum, borgarbókasafni, fé-
lagsþjónustunni og Árbæjarsafni.
„Við fáum líka af og til upphring-
ingar frá fyrirtækjum sem óska
eftir ungu fólki til að leysa ákveðin
verkefni,“ segir Selma sem jafn-
framt vill minna á að umsóknar-
frestur um sumarstörf rennur út
30. apríl nk.
Fimm umsóknir
á 10 mínútum
Námsmenn í leit að sumarvinnu
geta skráð sig hjá Stúdentamiðlun
en Rósa Þórsdóttir segir að mikil
hreyfing sé á störfum þar. „Sem
dæmi má nefna að í gær setti fyr-
irtæki auglýsingu inn á vefinn okk-
ar og eftir tíu mínútur voru komn-
ar fimm umsóknir um starfið.
Þetta getur því gengið hratt fyrir
sig og það eru allt upp í hundrað
umsóknir um hvert starf.“ Íslensk-
ir námsmenn og erlendir náms-
menn á Íslandi geta skráð sig á vef
Stúdentamiðlunar en að sögn Rósu
eru mörg fyrirtæki sem leita í
gagnagrunninum frekar en að
setja inn auglýsingu. Rósa segir að
flestar skráningar og eftirspurnir
frá fyrirtækjum séu vegna sumar-
starfa eða hlutastarfa. „Vefurinn
okkar er þannig settur upp að hver
umsókn lifir í þrjátíu daga en þá
þarf að endurnýja hana. Nú eru
um tvö hundruð virk á skrá hjá
okkur,“ segir Rósa. „Það er meiri
spurn eftir vinnuafli núna en á
sama tíma í fyrra. En sprengjan
kemur alltaf í maí. Þá leita fyrir-
tæki mest til okkar.“ Rósa segir að
framhaldsskólanemar skrái sig
einnig hjá Stúdentamiðlun og að
reglulega komi fyrirspurnir um
starfskrafta á framhaldsskólaaldri.
„Menntskælingar eiga þó kannski
erfitt uppdráttar í samkeppni við
háskólastúdentana sem eru í meiri
hluta,“ segir Rósa.
Umsóknum í Nýsköpunar-
sjóð hefur fækkað
Úthlutun á styrkjum úr Ný-
sköpunarsjóði námsmanna fer
fram í næstu viku en að sögn
Hönnu Maríu Jónsdóttur
bárust 272 umsóknir í ár. Það
eru heldur færri en í fyrra þegar
þær voru 365. „Þetta gefur vís-
bendingar um að það sé betra
ástand á atvinnumarkaði fyrir há-
skólanema í ár en það var í fyrra.“
Að sögn Hönnu var Nýsköpunar-
sjóðnum upphaflega komið á fót
sem atvinnubótaúrræði en að í dag
hafi hann sannað hlutverk sitt sem
rannsóknarsjóður. „Atvinnulífið
hefur einnig komið til móts við
þessar rannsóknir og greitt hluta
af starfstímanum. Það er algengast
að verkefnin taki þrjá mánuði í
heildina en misjafnt hversu stóran
hluta af þeim tíma sjóðurinn greið-
ir,“ segir Hanna.
Í ár hefur sjóðurinn sama fjár-
magn og í fyrra og getur því veitt
styrki upp á 32 milljónir. „Þar sem
141 verkefni var styrkt í fyrra er
ekki óeðlilegt að þau verði einhvers
staðar á bilinu 120–150 í ár og að
um 180 háskólanemar fái vinnu,“
segir Hanna.
Fréttaskýring | Meira framboð á sumar-
störfum fyrir námsmenn
„Það vantar
mjög víða fólk“
Atvinnuleysi ungs fólks þónokkuð
minna en á sama tíma í fyrra
Brátt verða skólabekkir auðir og sumar-
vinnan tekur við.
Getur verið erfitt fyrir
16—17 ára að fá vinnu
Ungmenni á aldrinum 16–17
ára eiga hvað erfiðast með að fá
vinnu þar sem þau eru undir lög-
aldri en fara ekki í unglingavinn-
una. Steinar Harðarson, um-
dæmisstjóri Vinnueftirlitsins í
Reykjavík, segir að æ sjaldnar
þurfi að hafa afskipti af atvinnu-
rekendum sem hafa of ungt fólk í
vinnu. „Það er ekki verið að
koma í veg fyrir að ungmenni
vinni heldur aðeins verið að sjá
til þess að börn vinni ekki störf
sem eru þeim ofviða, líkamlega
eða andlega.“
Eftir Höllu Gunnarsdóttur
hallag@mbl.is