Morgunblaðið - 28.04.2005, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 28.04.2005, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. APRÍL 2005 35 MINNINGAR með toppeinkunnir í skóla, sama hvernig ástandið var. Minningarnar um samveru okkar eru svo ótrúlega margar að það tæki marga daga að skrifa um þær. Hún var alger prakkari þegar við vorum yngri og hún tók upp á mörgu, til dæmis því að senda strákum úr gamla bekknum umslag í gegnum lúguna með pítusósu og sprauta vatni á þá í gegnum eldhúsgluggann. Ég skil enn ekki hvernig Guð getur tekið svona yndislega, frábæra og hæfileikaríka stelpu frá okkur og á ef- laust aldrei eftir að skilja það. Ég get ekki lýst því hve vænt mér þykir um Ernu og hvað það er erfitt að sætta sig við að hún sé farin frá okkur. Ég þakka af heilum hug fyrir að fá að kynnast henni enda gerði hún mig að betri manneskju. Hún er hetja í augum okkar allra sem þekktum hana vel og ólýsanlegt er hversu sterk hún var í veikindum sínum. Ég lít svo sannarlega upp til hennar. Ég hugga mig við það að Ernu minni líði nú betur og hún sé hvíldinni fegin. Við eigum öll eftir að sakna hennar óendanlega mikið og minning hennar gleymist aldrei og verður ætíð í hjörtum okkar. Ég vil að lokum senda mömmu hennar og pabba, systur og öðrum ættingjum mínar innilegustu samúð- arkveðjur á erfiðum tímum. Birta Sigmundsdóttir. Það er nú ekki erfitt að segja frá Ernu því Erna var og er ein frábær- asta manneskja sem maður getur kynnst. Og þakka ég guði fyrir að hafa fengið að kynnast henni. Ég veit ekki hvar maður á að byrja að segja frá henni Ernu Maríu. Hún var engin smá hetja. Held að engin önnur manneskja gæti þraukað það sem hún þraukaði. Hún var ekkert smá sterk. Sama hve veik hún var þegar maður kom í heimsókn, þá var hún alltaf brosandi og spennt að heyra slúður úr skólanum. Alltaf hress. Ég byrjaði með henni í bekk í 1. bekk en við urð- um ekki almennilegar vinkonur fyrr en svona nokkrum árum áður en hún greindist. Þegar ég hugsa um tímann okkar saman er ekkert annað hægt en að hlæja. Vitleysan sem okkur datt í hug! Á tímabilinu þegar við hötuðum stráka vorum eitthvað níu til tíu ára, þá vorum við (ég, Inga, Erna) alltaf í stríði við strákana sem búa í götunni hennar Ernu og vorum alltaf í vatns- blöðruslag, sendandi hótunarbréf, uppnefna og endalaust svona rugl. Því á ég aldrei eftir að gleyma, öllum þessum minningum sem ég gæti verið lengi að telja upp. Um daginn vorum við vinkonurnar að rifja upp allar minningar um Ernu og við hlógum stanslaust í tvo tíma held ég, ekkert nema góðar minningar. Aldrei á ég eftir að sjá eftir að hafa kynnst henni. Alltaf þegar einhver minnist á Ernu Maríu þá hugsar maður alltaf um hvað hún var alltaf brosandi, lífsglöð og ánægð hvað sem gekk á. Hún var svo góð við allt og alla. Gerði ekki flugu mein. Talandi um að hún gerði aldrei flugu mein. Einu sinni vorum við að prófa að drepa flugu með svona fluguspreyi en Erna gat ekki spreyað á fluguna því hún vorkenndi henni svo. Það sýnir bara að hún Erna var með hjarta úr gulli. Skil samt ekki af hverju svona yndisleg manneskja er tekin frá manni, hún átti allt lífið framundan. Erna var alltaf mikill námsmaður og elskaði fótbolta og jazzballett. Hún skoraði af miðju og var ekkert smá góð í fótbolta. Svo var hún alltaf dansandi og að sýna okkur dansa úr jazzballettinum og þannig fékk ég áhuga á að æfa jazzballett. Þökk sé Ernu Maríu þá lærði ég að meta lífið og vera ekki að taka óþarfa áhættur, að hugsa sér hvað þurfti samt mikið að gerast til að maður átt- aði sig á hvað lífið er mikilvægt. Alveg fáránlegt hvað maður lék sér að lífinu og tók endalausar áhættur, á meðan Erna María var að berjast fyrir því. Maður veit aldrei hvað maður á fyrr en maður er búinn að tapa því. En ég verð að viðurkenna að ég var ekki sú duglegasta að heimsækja Ernu og mun sjá eftir því. Ég ætla ekki að fara að búa til neina afsökun vegna þess. Staðreyndin er bara að ég hugsaði ekkert um neitt nema sjálfa mig og hef ég lært af þeirri reynslu. Ég veit að Erna er komin á betri stað þar sem henni líður miklu betur. Það er samt svo erfitt að trúa að hún sé allt í einu farin. Er ekki almenni- lega búin að átta mig á því, mér líður alltaf eins og hún muni koma aftur. Skil samt ekki og mun aldrei skilja af hverju Erna var tekin frá okkur. En núna er hún á betri stað og er pottþétt að spila fótbolta með flottustu gaur- unum. En þetta er einhvern veginn svo óraunverulegt að hún sé farin. Ég var búin að vita það í einhvern tíma að hún ætti ekki langt eftir en trúði því aldrei, vildi bara ekki trúa því. Skil ekki að af öllum þá var Erna tekin! Hvað sem ég geri þá get ég ekkert gert til að breyta því sem búið er. Aðeins gert framtíðina betri. Það er svo ótrúlegt að trúa þessu, ég var hjá henni tvisvar í vikunni áður en hún dó. Þá var hún frekar hress. Hún var að segja okkur frá því að hún ætl- aði til Írlands í sumarbúðir fyrir krabbameinssjúk börn eins og hún fór í fyrrasumar. Þetta sýnir bara hvað hún var viljasterk og lífsglöð. Daginn sem hún lést fengum við nokkrar vinkonurnar að fara að kveðja hana og sjá hvernig hún lá friðsæl. Því á ég aldrei eftir að gleyma. Ég vil votta fjölskyldu Ernu Maríu og aðstandendum hennar alla mína samúð. Þakka þér fyrir alla samveruna í gegnum árin, ég gleymi þér aldrei, Erna mín. Elska þig óend- anlega mikið. Og það verður alltaf hluti af þér í hjarta mínu. Guð gefi mér æðruleysi til að sætta mig við það sem ég get ekki breytt, kjark til að breyta því sem ég get breytt og vit til að greina þar á milli. (Æðruleysisbænin) Þín vinkona Linda Björnsdóttir. Elsku Erna. En hvað það verður tómlegt að fá þig ekki oftar í heim- sókn í Vesturfoldina, heyra hlátur þinn innan um hina krakkana, sjá þig brosa. En nú ertu farin eftir erfiða baráttu við krabbamein, baráttu sem við heyrðum þig aldrei kvarta yfir, þú virtist bara bíta á jaxlinn og ætla að vinna þetta, en meinið tók þig að lok- um frá okkur. En við eigum minning- ar eftir, góðar minningar sem koma í hugann þegar við hugsum til baka. Þrátt fyrir hæglátt fas, leyndist lítill prakkari í þér. Eins og þegar þú og Karen komust ekki í skólann vegna snjóalaga að eigin sögn, en voruð sennilega þær einu sem ekki komust í Foldaskóla þennan dag. Þið voruð bara úti að leika og rústuðuð kulda- göllunum ykkar, eða þegar þið stelp- urnar klædduð ykkur upp í allt of stór föt og löbbuðuð síðan um hálft Folda- hverfið með dúkkukerru, komuð síð- an aftur í Vesturfoldina og bönkuðuð uppá þegar var orðið hálfrökkvað. Þarna stóðuð þið í alltof stórum fötum og sumar búnar að troða inn á ykkur einhverju til að sýnast stærri. Það var náttúrlega smellt af mynd og mikið hlegið. Allir hafa misst mikið sem hafa kynnst þér. Foreldrum þínum Gerðu og Gumma og systur þinni Sigrúnu sendum við okkar innilegustu samúð- arkveðjur en minning þín lifir um ókomna tíð. Elsku Erna, það er við hæfi að ljúka þessari grein með orðum Vil- hjálms Vilhjálmssonar: Mér finnst ég varla heill né hálfur maður og heldur ósjálfbjarga því er verr. Ef værir þú hjá mér vildi ég glaður verða betri en ég er. Steinunn, Helgi og Vilberg Víðir. Lífið er undarlegt ferðalag og stundum afar ósanngjarnt. Í dag kveðjum við Ernu Maríu Guðmunds- dóttur, góðan nágranna og vinkonu sem lést eftir erfið veikindi aðeins 14 ára gömul. Erna María var glæsileg stúlka og einstaklega ljúf í samskiptum. Hún var dugleg í íþróttum og áberandi í útileikjum á vorin og sumrin. Ekkert er líflegra en börn úti að leika með til- heyrandi hrópum og köllum. Erna María var stór hluti af mannlífinu í götunni og er sárt saknað af okkur öll- um. Kæru Gerða, Guðmundur, Sigrún og aðrir aðstandendur. Guð gefi ykk- ur styrk á þessum erfiðu tímum. Minning um góða stúlku lifir. Björg, Gunnar, Sigrún og Sigurður. Elsku Erna María, músin mín, ég vil byrja á því að þakka þér fyrir að hafa fengið að kynnast þér og fengið að eyða með þér tíma þó stuttur væri, það voru forréttindi. Ég hef aldrei heyrt um aðra eins hetju og þú varst, hugleiddi mikilmenni bókmenntanna sem svo oft er vitnað í en fann þar engan sem mér finnst jafnast á við þig. Mér finnst ég tóm núna en veit að þegar frá líður mun ég ylja mér við allar minningarnar um þig. Ég gæti sagt endalausa fallega hluti um þig en eftirfarandi ljóð lýsir mínum tilfinn- ingum: Skrifuð á blað verður hún væmin bænin sem ég bið þér en geymd í hugskoti slípast hún eins og perla í skel við hverja hugsun, sem hvarflar til þín. (Hrafn A. Harðarson.) Elsku Sigrún Huld, Gerða, Gummi og aðrir ástvinir, hugur minn er hjá ykkur og ég bið góðan Guð að senda ykkur styrk á þessum erfiðu tímum. Halldóra Æsa. Skemmuvegi 48, Kópavogi. Simi 5576677 www.steinsmidjan.is Helluhrauni 10, 220 Hfj. Sími 565 2566 www.englasteinar.is Fallegir legsteinar á góðu verði Englasteinar Fallegir steinar á verði Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÞÓRARINN (DÚDDI) GUÐLAUGSSON húsasmíðameistari, Aðalgötu 5, Keflavík, sem lést á Landspítalanum þriðjudaginn 19. apríl sl., verður jarðsunginn frá Grafarvogs- kirkju föstudaginn 29. apríl kl. 13:00. Sæbjörg Brynja Þórarinsdóttir, Pétur Stefánsson, Sigrún Þórarinsdóttir, Ólafur Þorri Gunnarsson, Guðlaugur Valgarð Þórarinsson, Kristín Elfa Ingólfsdóttir, Birna Sólveig Lúkasdóttir, Ellert Karl Guðmundsson, Bogi Ingvar Traustason, Gerður Guðnadóttir, barnabörn og langafabörn. Móðir okkar, UNNUR GUÐMUNDSDÓTTIR, Stað, Reykhólasveit, lést á Landspítala Hringbraut þriðjudaginn 26. apríl. Jarðarförin verður auglýst síðar. Sigurvin Ólafsson, Árni Snæbjörnsson, Friðgeir Snæbjörnsson, Eiríkur Snæbjörnsson. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi HALLDÓR HÖSKULDSSON, Réttarheiði 25, Hveragerði, lést á Landspítalanum við Hringbraut þriðju- daginn 26. apríl. Útförin fer fram frá Hveragerðiskirkju miðviku- daginn 4. maí kl. 15.00. Guðrún Kristjánsdóttir, Höskuldur Halldórsson, Aldís Eyjólfsdóttir, Erna Harðardóttir og barnabörn. Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, HALLDÓR GUÐJÓNSSON vélstjóri, Bræðratungu 28, Kópavogi, lést á heimili sínu þriðjudaginn 26. apríl. Jarðarförin auglýst síðar. Sigríður Björnsdóttir, Sigurður Halldórsson, Björn Halldórsson, Guðjón Halldórsson, Margrét Helgadóttir, Sindri Guðjónsson, Petra Hólmgrímsdóttir, Logi Guðjónsson. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGURLAUG ARNÓRSDÓTTIR, Smárahvammi 16, Hafnarfirði, lést á gjörgæsludeild Borgarspítalans sunnu- daginn 24. apríl. Jarðarförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju föstudaginn 29. apríl kl. 13.00. Guðrún Axelsdóttir, Solveig Axelsdóttir, Svavar Haraldsson, Hrönn Axelsdóttir, Guillermo Rito, Axel Kristján Axelsson, Anna Eiríksdóttir, barnabörn og barnabarnabarn. Eiginmaður minn, SIGURÐUR ARNÞÓR PÁLSSON, Melgerði 29, Reykjavík, lést á Landspítalanum við Hringbraut mánu- daginn 18. apríl. Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Kristín Bernburg Anna Lára Lárusdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.