Morgunblaðið - 28.04.2005, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 28.04.2005, Blaðsíða 48
48 FIMMTUDAGUR 28. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ Frábær ævintýrahasarmynd sem líkt hefur verið við Indiana Jones og James Bond myndirnar.  Toppmyndin í USA Toppmyndin á Bretlandi - Toppmyndin á Íslandi Byggð á metsölubók Clive Cussler H.L. MBL  Ó.H.T Rás 2 Kvikmyndir.is The Motorcycle Diaries kl. 8 og 10.30. 9 Songs kl. 10,30 b.i. 16 ára Garden State kl. 5.45 - 8 b.i. 16 ára Beautiful Boxer kl. 5.30 Beyond the Sea kl. 8 Vera Drake kl. 5.30 Hole in my Heart kl. 10,15 b.i. 16 ára Maria Full of Grace kl. 8 b.i. 14 ára Napoleon Dynamite kl. 6 og 10.05 3 ÓSKARSTILNEFNINGAR MBL Ó.H.T Rás 2 Sennilega ein hispurslausasta kvikmynd sem gerður hefur verið, eftir snillinginn Michael Winterbottom, um ást, kynlíf og tónlist. Stranglega bönnuð innan 16 ára og alls ekki fyrir viðkvæma. Aðsóknamesta óháða myndin í USA í fyrra. Ein vinsælasta kvikmyndin á Sundance kvikmyndahátíðinni.  S.V. MBL A Hole in my Heart ALLS EKKIFYRIRVIÐKVÆMA!  DV TILTÖLULEGA lítið hefur borið á söngvar- anum dagfarsprúða Geiri Ólafssyni síðustu mánuði. Hann hefur þó hreint ekki setið auðum höndum heldur hefur hann verið að semja lög fyrir væntanlega plötu og undirbúa ný útspil, eins og t.d. veglega stórsveitartónleika til styrktar MS-félaginu. Nú er svo loksins komið að tónleikunum. Þeir verða haldnir í kvöld á Broadway og mun Geir Ólafsson troða þar upp í góðgerðarskyni, studd- ur 20 manna stórsveit sem skipið er einvala liði hljóðfæraleikara, undir stjórn Ólafs Gauks. Fleiri söngvarar en Geir munu þar koma við sögu og nægir að nefna stórsöngvarann Pál Rósinkranz. Þeir Geir sungu einmitt í metn- aðarfullri sýningu sem helguð var tónlist Rottu- gengisins ekki alls fyrir löngu og má því búast við að lögin á góðgerðartónleikunum í kvöld verði á svipuðum nótum, að lög gömlu raularar- anna Frank Sinatra, Dean Martin og Sammy Davis yngri verði í hávegum höfð. Þar að auki munu koma fram dansarar úr Listdansskóla Ástrósar Gunnarsdóttur en kynnir verður, að sögn Geirs, Þorfinnur Ómarsson. Upptakan send til Las Vegas Geir segir að tónleikarnir hafi tvíþættan til- gang; að safna fé handa góðum málstað en einn- ig verði tónleikarnir teknir upp og þeim komið á framfæri í Bandaríkjunum. Geir segist hafa skynjað áhuga í Las Vegas á þessum stór- sveitasýningum sem hann hefur staðið fyrir og hann hafi verið hvattur til að senda út upptökur. „Á Rottugengissýningunni var staddur áhrifamaður í tónlistarsenunni í Las Vegas, Michael O’Hara að nafni, sem hreifst mjög af því hversu mikil fagmennska einkenndi sýn- inguna. Hann sagði mér meira að segja að sér hefði fundist íslenska sýningin betri en sam- bærileg bresk sýning sem sýnd hefur verið í London við miklar vinsældir. Hann vildi því endilega kanna möguleikana á því að setja upp íslenska sýningu í Las Vegas og bað þess vegna um upptöku.“ Geir segir svona stórsveitatónleika afar kostnaðarsama og því hafi þeir ekki borið sig fjárhagslega hér, þrátt fyrir að hafa fengið góð- ar viðtökur. Hann sjái því ekki fyrir sér að þær verði margar slíkar sýningarnar sem hægt verði að bjóða upp á hér í framtíðinni og því sé sýningin í kvöld þeim mun mikilvægari. „Þetta gæti hæglega orðið síðasta sýningin af þessu tagi hér á landi í einhvern tíma. Og það var einungis vegna stuðnings velviljaðra aðila sem okkur er kleift að setja hana upp. World Class og Svefn og heilsa hafa stutt mig fjár- hagslega, svo ég geti greitt sveitinni æfing- arlaun, en sjálfur tek ég ekki krónu fyrir við- vikið. Ekki einu sinni fyrir bensínkostnaði.“ Vegna stuðningsins segist Geir hafa gefið hljómsveit sinni nafnið Iceland World Class og þannig verði hún kynnt erlendis. Geir segist hafa valið að styrkja MS-félagið með þessum hætti en mörg sambærileg félög þurfi á slíkum stuðningi að halda. „Þessi félög þyrftu reyndar að stofna sameig- inlegan sjóð svo maður gæti látið féð renna af hendi í hann og það myndi síðan skiptast jafnt á milli allra félaganna.“ Plata á íslensku og ensku Hvað framtíðina áhrærir segist Geir langt kominn með plötuna. Á henni verða eingöngu frumsamin lög, eftir Geir sjálfan. „Þetta eru mikið til ballöður, svolítið ólíkar gömlu sveiflunni sem ég hef verið að syngja, en auðvitað held ég samt stílnum mínum.“ Við útsetningar og upptökur segist Geir njóta aðtoðar ekki ómerkari músíkmanna en Ólafs Gauks og Þóris Baldurssonar en um undirleik sjái 8-10 manna sveit. Hann segist bæði taka plötuna upp á íslensku og ensku, enda vilji hann halda öllum möguleikum opnum í þeim efnum. Tónlist | Geir Ólafsson er kominn aftur á stjá og hugsar stórt Góðgerðarsveifla á Broadway Morgunblaðið/Árni Sæberg Geir og stórsveitin voru í syngjandi sveiflu á æfingu á þriðjudagskvöldið. Góðgerðartónleikarnir í kvöld eru á Broadway. Miðaverð er 1.500 kr. og rennur óskipt til MS-félagsins. ÞAÐ er sérlega ánægjulegt að sjá svona góða mynd frá Noregi. Fyrir nokkrum árum byrj- uðu þessir frændur okkar að gera hinar fín- ustu stuttmyndir, og nú er það farið að skila sér yfir í kvikmyndirnar. Kvikmyndin Buddy fékk góðar móttökur í fyrra, en svo skemmti- lega vill til að tveir aðalleikarar þeirrar mynd- ar eru þeir sömu og í Uno. Og annar þeirra, Aksel Hennie, er einnig leikstjóri, handrits- höfundur og framleiðandi myndarinnar. Í fyrra var hann tilnefndur sem leikari sem „Shooting Star 2004“ á Berlínarhátíðinni, og sannar hér að hann er hæfileikamaður á fleiri sviðum, því Uno er úrvalsmynd. Uno er um David sem er 25 ára skynsem- isdrengur sem vinnur á líkamsræktarstöð. Hann býr heima hjá mömmu, pabba sem ligg- ur á dánarbeðinum og vangefnum bróður sín- um. Sama kvöld og farið er með pabba hans í flýti á sjúkrahúsið, finnur lögreglan stera og byssu í ræktinni og allir starfsmennirnir eru færðir á lögreglustöðina til yfirheyrslu. David veit að óábyrgur sonur eigandans á sterana og langar ekki til að kjafta frá. En um leið er pabbi hans að deyja og hann langar að kveðja hann, svo eftir endalausar yfirheyrslur sem miðar ekkert, kjaftar hann frá. Kannski er tilvistardrama ungs manns sem er kastað út úr vaxtarræktarvinahópnum sín- um, ekki heillandi saga fyrir suma. En Uno er mikið og mannlegt drama sem á erindi við alla, ekki síst karlmenn. Handritið er þrusu- vel skrifað. Það er marglaga og raunsætt. Hennie gefur góða mynd af samskiptum karl- mannanna í þessum heimi vöðva og töff- araskapar og deilir hart á hvað er að vera kalrmaður. Hvað er að vera hreinskilinn, kjarkaður og sannur vinur? Hér takast á strákurinn sem gerir það sem gera þarf, vin- urinn sem alltaf heldur með sigurliðinu, glæpamaðurinn sem lemur systur sína og lúskrar á öðrum, sjálfhverfi pabbinn sem læt- ur allt eftir syninum og sonurinn sem er bleyða. Persónusköpunin er bæði trúverður og áhrifarík, og leikararnir eru mjög góðir. Ekki síst Hennie, Nicolai Cleve Broch og Björn Floberg. Stígandinn í handritinu er einnig góður, myndin er bæði spennandi og átakanleg. Það fjallar einnig að hluta til um undirheima Osló-borgar, og sum atriðin er býsna óhugguleg. Myndin er skemmtilega tekin og öll hljóðvinnslan, og ekki síst notk- unin á tónlistinni, er bæði frumleg og áhrifa- rík. „Norway, 12 points.“ Hvað er karl- mennska? KVIKMYNDIR Háskólabíó-IFF Leikstjórn: Aksel Hennie og John Andreas Andersen. Handrit: Aksel Hennie. Kvikmyndataka: John Andr- eas Andersen. Aðalhlutverk: Aksel Hennie, Nicolai Cleve Broch, Björn Floberg, Espen Juul Kristiansen, Amed Zeyan og Martin Skaug. 103 mín. Noregur 2004. Uno  Hildur Loftsdóttir NOKKUÐ er um liðið síðan hljómsveitin Úlpa sendi frá sér plötu en úr því verður bætt í sum- ar, því þá hyggst sveitin gefa út breiðskífu sem hljóðrituð var seint á síðasta ári. Forsmekkur af þeirri plötu, sem heita mun Attempted Flight by Winged Men, verður smá- skífan „Attempted Flight“ sem kemur út á föstudag. Útgáfutónleikar smáskífunnar verða á Nasa á föstudagskvöld. Aðgangseyrir er 500 kr. og fylgir smáskífan þá í kaupbæti. Til upphitunar verða Frank Murder, Sofandi og Unsound. Tónlist | Úlpa á Nasa Morgunblaðið/Þorkell Hafnfirska hljómsveitin Úlpa er með breiðskífu í burðarliðnum. Forsmekknum fagnað

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.