Morgunblaðið - 28.04.2005, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 28.04.2005, Blaðsíða 40
Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes OG NÚ HELDUR NÁTTÚRULÍFSÞÁTTURINN OKKAR ÁFRAM... HÁKARLAR SEM BORÐA TÆR HVAÐ ERTU AÐ GERA HÉR?! AF HVERJU VARSTU BUNDINN? HVAÐ GERÐIST? ÉG HÉLT AÐ ÞÚ HEFÐIR FARIÐ SUÐUR... EN ÞÚ VARST 2 GÖTUM FRÁ... 2 GÖTUR? VIÐ LÖBBUÐUM Í VIKU OG KOMUMST TVÆR GÖTUR? VIÐ VERÐUM LÍKA AÐ LÍTA Á BJÖRTU HLIÐARNAR... EF VIÐ HEFÐUM FARIÐ SUÐUR ÞÁ HEFÐUM VIÐ EKKI GETAÐ SPILAÐ ÍSHOKKÍ... GEIMFARINN, SPIFF, NÁLGAST ÓVINASKIPIÐ VERANDI ÓNÁTTÚRULEGA HEIMSK, ÞÁ VEIT VERAN EKKERT AF KOMU HANS HANN RÆSIR BYSSURNAR OG MIÐAR Á ÓVIÐBÚINN ANDSTÆÐINGINN... FRÚ ORMSSON? VARÚÐ! RISAVAXIÐ ÓVINASKIP NÁLGAST Svínið mitt © DARGAUD GÓÐAN DAG... HÆ, HVAÐ VILTU ÞÚ? ÉG ER NÝJA BARNFÓSTRAN OG ÞÚ ERT EKKERT SMÁ SKÍTUGUR. HVAR ER MAMMA ÞÍN? HÚN FÓR VEGNA ÞESS AÐ VIÐ VILDUM EKKI ÞVO OKKUR. ÞAÐ ERU 2 MÁNUÐIR SÍÐAN VIÐ ERUM ÖLL ÚTÖTUÐ Í FLÓM OG SKÍT OG ÉG ER MEÐ LÝS ÉG LÆT ÞETTA SKO EKKI VIÐGANGAST LITLA SYSTIR MÍN PISSAR ÚT UM ALLT LITLI ÓÞVERRI. ÉG SKAL SKO SEGJA ÞÉR AÐ ÉG HEF TAMIÐ VERRI KRAKKAORMA EN ÞIG! SÍÐAST TÓK ÉG AÐ MÉR AÐ ALA UPP HERMENN Í ÚTLENDINGA- HERSVEITINNI. ÞEIR VORU VIÐBJÓÐSLEGIR EN EFTIR VIKU VAR ALLT ORÐIÐ HREINT! ÞETTA TÓKST MÉR MEÐ HÖRKU OG OFBELDI! ALLT Í LAGI FRÚ ! ÞETTA ERU EKKI BARA SMÁBÖRN SEM... GROIN! HVA... SVÍN!! ÉG VERÐ EKKI MÍNÚTU LENGUR! OG Í SÓFANUM Í ÞOKKABÓT! ÓGEÐSLEGT! VIÐBJÓÐUR! ? TAKK RÚNAR! ÞAÐ MUNAÐI LITLU AÐ ÞESSI ENDIST GROIN ÁN ÞÍN VÆRUM VIÐ BÚIN AÐ VERA Dagbók Í dag er fimmtudagur 28. apríl, 118. dagur ársins 2005 Hið vinsæla útivist-arsvæði Akurey á Kollafirði, eins og Katrín Jakobsdóttir borgarfulltrúi kallar eyjuna í nýlegri blaða- grein, dró Víkverja til sín um síðustu helgi í frábæru veðri. Það er með ólíkindum að þessi litla eyja skuli hafa lúrt þarna úti á firðinum án þess að Víkverji hafi nokkurn tíma heimsótt hana. Eins og hún er nú vin- sæl útivistarperla. En hvað um það. Þarna er best að koma á fjörunni því eystri helmingur eyjarinnar fer meira eða minna á kaf á flóðinu og þá missir maður af geysifallegu gulu sandrifi sem tengir saman eystri og vestari hluta eyjarinnar. Á þeim vestari er graskollur og gamlar vegghleðslur, líklega skjól fyrir rollur fyrr á tíð. Á fjórtándu öld var Akurey hlunn- indajörð kirkjunnar og er frá því sagt í Sögu Reykjavíkur eftir Klem- ens Jónsson að kirkjan hafi átt sæld- ing í Akurey. Þar segir að ákvæði um sælding í máldaga kirkjunnar sýni að kornyrkja hafi verið nokkur í eynni og en þar er átt við land sem tekur eina sálds sáð af korni. Ís- lenskt sáld var þá talið 1,053 korntunna, segir í Sögu Reykjavíkur. Auðvitað blasir það við að það var korn- akur í Akurey í gamla daga, svona þegar maður leiðir hugann að nafngiftinni. Í næsta nágrenni er Akranes og svo auðvit- að Akrar enn vestar og þannig mætti áfram telja. Allt merki um fyrri tíðar búskap- arhætti til forna og um leið þess tíma veð- urfar. x x x Víkverji sem hefur staðið í breyt-ingum á heimili sínu í vor, verð- ur að hrósa aðeins afgreiðslufólkinu í Verkfæralagernum í Skeifunni. Hann var þar á ferð fyrir nokkrum dögum og vantaði teppahníf og eitt- hvað fleira dót. Allt fékk hann á góðu verði og þjónustan var með þeim hætti að það hlýtur að vera metn- aður starfsfólksins að fá kúnnann til að koma aftur. Hugtakið þjón- ustulipurð er greinilega í hávegum haft á þessum stað. Víkverja finnst alveg sjálfsagt að geta þess sem vel er gert. Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is        Gallerí Sævars Karls | Kristján Jónsson myndlistarmaður sýnir verk sín þessa dagana í Galleríi Sævars Karls, Bankastræti. „Myndirnar eru málaðar á þessu ári en í grunninn eru ljósmyndir sem ég hef tekið vítt og breitt um landið á síðustu fimmtán árum. Þær eru nánast allar af sömu stærð, 100 x 120 cm og unnar með blandaðri tækni á pvc-segldúk. Ég hef ekki séð ástæðu til að nefna myndirnar sérstaklega,“ segir Kristján. „Minningarnar, forgengileiki náttúrunnar og mörkin á veru og óveru eru rauður þráður í verkum mínum,“ heldur hann áfram. „Einnig leyni ég því ekki að mér verður hugsað til stöðu mannsins í náttúrunni í dag en það á ekki við mig að hrópa skoðanir mínar í þeim efnum en vonandi er það ljóst þeim er á horfa að í myndunum hverfast tveir heimar hvor um annan. Náttúran og hið manngerða. Og slíkt fær ekki alltaf farsælan endi – eins og dæmin sanna.“ Morgunblaðið/Árni Sæberg Náttúran og hið manngerða MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Aug- lýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.400 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr. Varðveit mig, Guð, því að hjá þér leita ég hælis. (Sálm. 16, 1.)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.