Morgunblaðið - 28.04.2005, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 28.04.2005, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. APRÍL 2005 23 NEYTENDUR Spurning: Lesandi spyr hvort Öl- gerðinni Agli Skallagrímssyni ehf. sé heimilt að setja fram fullyrðingar á áföstum merkimiða á umbúðum Kristals plús um að drykkurinn innihaldi B-vítamín. Svar: Að sögn Jóhönnu E. Torfa- dóttur, sérfræðings á Umhverf- isstofnun, má merking ekki vera blekkjandi fyrir kaupanda, einkum er varðar sérkenni matvælanna, einkum er varðar eðli þeirra, eig- inleika, tegund og samsetningu. Ennfremur er ekki heimilt að eigna matvælum áhrif eða eiginleika, sem þau hafa ekki. Fullyrðingar varð- andi innihaldsefni má einungis nota hafi slíkt verið heimilað með reglu- gerðum eða af Umhverfisstofnun, en fullyrðing er merking eða til- vísun, sem gefur til kynna sérstaka eiginleika eða áhrif tengd eðli mat- væla, samsetningu, næringargildi o.s.frv. Á merkimiða, sem fylgir Kristal plús, segir: „B-vítamín hjálpa lík- amanum m.a. að: stuðla að heil- brigði húðar og hárs, styrkja ónæmiskerfið, draga úr kólesteról- myndun.“ „Þessar fullyrðingar eru þess eðl- is að sækja þarf um leyfi fyrir þær hjá Umhverfisstofnun og hefur það ekki verið gert. Þegar lögð er fram umsókn um fullyrðingu eða fullyrð- ingar þarf m.a. að sýna fram á með viðeigandi gögnum, svo sem vís- indagreinum, að fullyrðingin eigi við rök að styðjast og sé ekki blekkj- andi fyrir neytendur. Umhverfisstofnun er ekki kunn- ugt um hvaða gögn liggja að baki ofangreinum fullyrðingum á Kristal plús og undirstrikar að samkvæmt íslenskum reglum er ekki heimilt að setja fullyrðingar á matvælaumbúð- ir nema þær séu beinlínis heim- ilaðar í reglugerð eða með leyfi Um- hverfisstofnunar,“ segir Jóhanna.  SPURT OG SVARAÐ UM NEYTENDAMÁL Fullyrðing má ekki vera blekkjandi á neinn hátt TENGLAR ..................................................... www.ust.is/matvaeli/merkingar/ AVEDA á Íslandi hefur í samstarfi við Skógræktarfélag Reykjavíkur gerst svokallað CO2-hlutlaust fyr- irtæki. Í því felst að trjám er plantað til að vinna á móti þeirri mengun sem fyrirtækið veldur með því koltvísýr- ingsmagni sem það losar út í and- rúmsloftið á ári hverju.  UMHVERFISVERND Planta trjám á móti mengun smáauglýsingar mbl.is VOR 2005 Sölustaðir: sjá www.bergis.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.