Morgunblaðið - 28.04.2005, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 28.04.2005, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. APRÍL 2005 39 AFMÆLI Einn mesti Íslands- vinur sem ég hef nokkurn tíma kynnst er Pamela Brement, fyrrverandi sendi- herrafrú Bandaríkj- anna hér á Íslandi, eiginkona Marshall Brement, sem var hér sendiherra á árunum 1982 til 1985. Í dag, 28. apríl, stendur þessi síunga, glettna kona á sjötugu og það finnst mér sannast sagna ótrúlegt og vera enn ein sönnun þess að aldur er afstæður. Þú ert jafn- gamall og þér finnst þú vera er lífs- mottó Pamelu og þið sem ekki þekkið þessa glaðværu, glæsilegu og gáfuðu konu megið alveg hafa orð mín fyrir því að Pamelu finnst hún vera ung og er þar af leiðandi ung. Ég kynntist þeim hjónum Marshall og Pamelu aðeins lítillega þegar þau voru hér á landi; ég þá til þess að gera nýbyrjuð í blaða- mennsku en hitti þau þónokkrum sinnum og fannst mikið til um hversu opin, einlæg og tilgerðar- laus þau voru, auk þess sem það heillaði mig að sendiherra Banda- ríkjanna og frú skyldu fara ótroðn- ar slóðir í því að velja sér vini og þá sem þau umgengust mest. Þau löðuðu að sér listamenn úr flestum geirum menningarlífsins, úr tónlistinni, myndlistinni, skáld- skapnum, leiklistinni, svo fátt eitt sé upptalið og ekki var laust við að einhverjir á hægri væng stjórnmál- anna, bæði á Íslandi og í Banda- ríkjunum, litu hjónin hornauga fyr- ir fjölbreytnina í vinavalinu því svo var að skilja að þeir sem voru lengst til hægri teldu að þeir ættu einhvern einkarétt á hinum ágæta félagsskap þeirra hjóna. Auðvitað áttu þau einnig góða vini úr pólitík- inni, bæði til hægri, vinstri og af miðjunni; vini sem þau hafa haldið tryggð við allar götur síðan. Ekki fleiri orð um það því þetta tilheyrir allt löngu liðinni tíð. Aftur til vinskapar míns við þau hjón. Þegar ég fór til framhaldsnáms við Harvard-háskóla árið 1987 bjuggu þau Marshall og Pamela í grennd við Newport á Rhode Is- land, í einu af fimm fylkjum Nýja Englands. Til þeirra, á hið sögu- fræga setur Prescott Farm, var að- eins hálfs annars tíma akstur frá Boston. Þau buðu mér fljótlega að koma og dvelja hjá sér eina helgi sumarið 1987 og segja má að eftir fyrstu helgardvöl mína hafi þau meira og minna ættleitt mig um helgar, þegar ég átti heimangengt frá Cambridge, á meðan ég var við nám við Harvard. Frá þessum dýrlegu helgum á ég margar góðar minningar. Við átt- um stórkostlegar stundir saman, HEILL ÞÉR, PAMELA! sátum löngum stund- um og ræddum lífsins gagn og nauðsynjar, íslenska pólitík, bandarísk stjórnmál, fórum í langa göngu- túra eftir ströndinni, skoðuðum sögufrægar byggingar og eltumst við sýningar og menn- ingarlegar uppákom- ur. Þau héldu upptekn- um hætti og löðuðu að sér menningar- og listafólk í röðum, af ýmsum þjóðernum og ávallt fannst mér sem Íslendingar væru í mestu uppáhaldi hjá þeim hjónum. Þau sýndu það bæði í orði og verki. Ég fékk að kynnast aragrúa vina þeirra og kunningja, Orest og Kaju, Virginiu, uppeldisbróður Jackie Kennedy, sem ég man því miður ekki hvað heitir, Sonju Zorilla, Haraldi Sigurðssyni og ótal mörgum öðrum, sem ég kann því miður ekki enn að nefna. Pamela og Marshall eru ótrúlegir gest- gjafar, rausnarleg í veitingum, glæsileg í móttökum, leiftrandi skemmtileg, upplýst og fróð. Alltaf, hvar sem ég hef verið með þeim, sem var til að byrja með á Rhode Island, en hefur síðan verið á heimili þeirra til skamms tíma í Virginia, á heimili þeirra í Gar- misch-Partenkirchen í Bayern í Þýskalandi, í allnokkur skipti, þar sem þau bjuggu um nokkurra ára skeið og hér á Íslandi, hefur Ís- land, íslensk saga, íslensk menn- ing, íslensk náttúra verið í for- grunni í okkar samskiptum þar sem þau hafa verið gefandinn en ég þiggjandinn. Nú hef ég það á stefnuskrá að heimsækja þessa vini mína á heimili þeirra í Arizona í Bandaríkjunum en þangað fluttu þau frá Virginia nýverið. Haustið 1988 kom Pamela hing- að til Íslands að heimsækja mig og fórum við saman í hestaferð með Íshestum, þ.e.a.s. við riðum Fjalla- baksleið syðri sem varð ógleym- anleg og dýrleg reynsla sem við báðar búum enn að. Við höfum iðulega símleiðis og í tölvupósti í flimtingum, allan þann aragrúa brandara og stráksskap sem við stóðum fyrir í hestaferð- inni og gengum jafnvel fram af heldur settlegri ferðafélögum. Ég, af skepnuskap mínum, hafði t.d. kennt Pamelu, sem var eins og sífellt upphrópunarmerki vegna náttúrufegurðar, að þegar maður vildi gefa einhverju náttúrufyrir- bærinu sérstaka úrvalseinkunn hrópaði maður miður smekklega setningu sem ég ætla að stilla mig um að setja á prent hér í Morg- unblaðinu. Þetta lét ég vinkonu mína hrópa upp hvað eftir annað Íslendingum í hópnum til mikillar hrellingar en mér náttúrlega til mikils hláturs áður en ég skýrði fyrir henni merkingu upphrópun- arinnar og leiðrétti orðaforða hennar þannig að eftir þetta hróp- aði Pamela: Dýrlegt! Dásamleg! Stórkostlegt! til skiptis og hló dátt að barnslegum hrekk mínum. Við Pamela eigum okkur að minnsta kosti eitt uppáhaldsleikrit sameiginlegt sem er The Import- ance of Being Earnest eftir Oscar Wilde. Eitt allra fyndnasta leikrit sem ég nokkurn tíma lesið og séð með ótrúlegum fjölda orðaleikja, tvíræðni, háði og beittri ádeilu. Eitt sinn er ég var í Garmisch að vetri til, ég held 1997, hjá þeim Marshall og Pamelu, ákváðum við að aka til München til þess að sjá þýska uppfærslu á leikritinu en þau hjón voru þá bæði í þýskunámi meðfram öðrum störfum sínum. Við fórum sem sé að sjá Die Ge- wichtigkeit Earnest zu sein. Og þvílíkur voði! Ekkert komst til skila, enginn húmor, engin tví- ræðni, engin ádeila, bara algjör lit- laus flatneskja og við Pamela vor- um eiginlega í kúltúrsjokki á eftir. Ekki nóg með það, eftir leiksýn- ingu voru sendiherrahjónin fyrr- verandi heiðruð með því að vera boðin til hófs með leikstjóranum og aðalleikurum til þess að geta rætt sýninguna við „stjörnurnar“ og auðvitað tóku þau gest sinn Agnesi með sér til hófsins. Ekki er að orðlengja það að um- ræður um uppfærsluna hófust, leikstjórinn og leikararnir augsýni- lega mjög ánægð með sína túlkun á Wilde en mér fannst auðvitað nauðsyn á því að láta í ljós van- þóknun mína á klúðri þýsku lista- mannanna við afar takmarkaðar undirtektir. Pamela vissi hvað klukkan sló og hóf þegar í stað að sparka með mjög svo reglubundn- um hætti í sköflung mér undir borði þar til ég sá að mér og ákvað að þagna. Með marinn og bláan sköflung, en til þess að gera heilt mannorð, haltraði ég á vit skíðalanda Garmisch-Partenkirchen næsta morgun. Þetta er eitt af einkennum Pam- elu, hún kann sig svo vel, þessi heimskona, húmoristi og hestakona og hefur án eftirsjár axlað ábyrgð- ina af því að reyna nú aðeins að tukta hana Agnesi vinkonu sína til, að minnsta kosti að hefla örlítið. Fyrir það og svo margt annað kann ég vinkonu minni Pamelu miklar þakkir og mest þakka ég óbilandi vináttu öll þessi ár. Ég veit ég á að bera henni og Marshall heillaóskir frá fjölda vina hér á landi og annars staðar, svo sem frá Orest og Kaju, prófessor Sigurði Helgasyni og Artie, í Cam- bridge, Massachucettes, Matthíasi Johannessen og Hönnu, Árna Bergmann og Lenu, Kristjönu og Baltasar, Jóni Baldvini og Bryn- dísi, Atla Heimi Sveinssyni og örugglega öllum sem á annað borð þekkja þessi heiðurshjón. Heill þér sjötugri, Pamela! Agnes Bragadóttir. Frá bridsdeild FEBK Gjábakka Föstudaginn 22/4 var spilaður tví- menningur á 9 borðum. Meðalskor 216 . Úrslit urðu þessi: N/S Albert Þorsteinss. – Sæmundur Björnss.282 Björn Hermannss. – Gústaf Björnsson 269 Rafn Kristjánsson – Oliver Kristófersson 237 A/V Einar Einarsson – Jóhann Lúthersson 261 Helga Helgadóttir – Sigrún Pálsdóttir 252 Magnús Oddsson – Ragnar Björnsson 252 Firmakeppni Brids- sambandsins endurvakin Laugardaginn 21. maí nk. verður Firmakeppni BSÍ haldin, en þetta skemmtilega mót hefur legið niðri um nokkurra ára skeið. Spiluð verður sveitakeppni, stutt- ir leikir, spilatími frá 11:00 til 17:30. Þátttökugjald er kr 25 þús. á sveit og eru veglegar veitingar innifaldar allan daginn. Spilað er um gullstig og eru óreyndir keppnisspilarar sérstak- lega velkomnir. Spilalok hjá Hreppamönnum, enda sauðburður að hefjast Nú er lokið bridskeppni á Flúðum hjá okk- ur Hreppamönn- um þennan vetur- inn enda sauð- burður senn að hefjast og reynd- ar mörgu öðru að sinna í sveitinni þegar fer að vora. Á síðasta brids- kvöldinu var spil- aður tvímenningur. Úrslit urðu þessi: Viðar Gunngeirss. og Gunnar Marteinss. 79 Magnús Gunnl.s. og Pétur Skarphéðinss. 77 Sigurður Sigmss. og Ingibj. Steindórsd. 64 Karl Gunnl.s. og Jóhannes Sigmundss. 64 Ásgeir Gestsson og Guðm. Böðvarsson 59 Ólafur Guðjónsson og Helgi Guðmss. 55 Karl Gunnlaugsson varð brids- maður ársins árið 2004 hjá Hreppa- mönnum og var hann verðlaunaður af því tilefni. Karl hefur verið spila- stjóri marga vetur og á þakkir skild- ar fyrir gott starf. Gullsmárabrids Bridsdeild FEBK í Gullsmára spilaði tvímenning á 13 borðum mánudaginn 25. apríl. Miðlung 264. Beztum árangri náðu í NS: Páll Ólason – Elís Kristánsson 339 Kristinn Guðmundss. – Guðm. Pálsson 318 Dóra Friðleifsd. – Jón Stefánsson 308 AV Guðm. Guðveigsson – Guðjón Ottóssson 332 Steindór Árnason – Tómas Sigurðsson 294 Ásta Erlingsdóttir – Heiður Gestsdóttir 282 Bridsfélag Borgarfjarðar Mánudaginn 25. apríl lauk spila- mennsku vetrarins með eins kvölds tvímenningi með þátttöku 16 para. Í tilefni þess að stjórnin var að losna við okkur spilarana í sumarfrí hélt hún okkur veislu mikla þar sem veit- ingar voru á við meðal fermingar- hóf, slík var gleði hennar að vera laus við okkur. Spilamennskan var venju sam- kvæmt skemmtileg og gekk á ýmsu. Athyglisverðast var þó spilið þar sem leiknir voru 6 tíglar á fimm borðum. Á einu borði hafði austur sig ekki í að dobla þó hann héldi á ás og kóng í tígli en aðrir spilarar létu sig hafa það. Kokhraustastur var þó suðurspilarinn sem redoblaði. Svona eiga „síðustu“ kvöld að vera. Þá var skemmtilegt að sjá að unga parið okkar þau Fjölnir í Deildartungu og Lára á Hvanneyri voru með rúmt meðalskor á meðan eldri bræður Fjölnis sáust ekki þeim megin frekar en pabbi Láru. Að endingu þakkar „fréttaritari“ fyrir gott samstarf vetrarins og kann Morgunblaðinu þakkir fyrir að birta þetta bull okkar úr Borgarfirðinum. Úrslit kvöldsins urðu annars sem hér segir: Örn Einarsson – Kristján Axelsson 214 Jón H. Einarsson – Anna Einarsdóttir 204 Stefán Kalmanss. – Hörður Gunnarss. 191 Guðmundur Þorst. – Flemming Jessen 189 Frá eldri borgurum í Hafnarfirði Föstudaginn 22. apríl var spilað á 8 borðum og var meðalskor 168. Úr- slit urðu þessi í N/S: Ásgeir Sölvason – Guðni Ólafsson 192 Jón Pálmason – Sverrir Jónsson 176 Friðrik Hermanns. – Bragi V. Björnss. 171 A/V Sverrir Gunnarss. – Einar Markússon 190 Jón R. Guðmundss. – Kristín Jóhannsd. 179 Jón Gunnarsson – Sigurður Jóhannss. 173 Þriðjudaginn 26. apríl var spilað á 9 borðum og var meðalskor 216. Úr- slit urðu þessi í N/S: Sverrir Gunnarss. – Sigurb. Elentínuss. 256 Albert Þorsteinss. – Sæmundur Björnss. 242 Oddur Jónsson – Þorvaldur Þorgrímss. 240 A/V Kristrún Stefánsd. – Anna Hauksdóttir 255 Friðrik Hermannss. – Jón Sævaldsson 241 Jón Ó. Bjarnas. – Sigurður Hallgrímss. 228 BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson Karl Gunnlaugsson bridsmaður ársins 2004 hjá Hreppa- mönnum. FRÉTTIR BJÖRGÓLFUR Thorsteinsson rekstrarhagfræðingur var valinn nýr formaður Landverndar til næstu tveggja ára á aðalfundi samtakanna, sem haldinn var á Hellissandi um helgina sem leið. Björgólfur tekur við af Ólöfu Guð- nýju Valdimarsdóttur sem hefur gegnt starfinu undanfarin fjögur ár. Björgólfur, sem hefur starfað um árabil í fjárfestingabönkum í London og Reykjavík starfar nú sem sjálfstæður ráðgjafi. Hann segist vilja leggja áherslu á vernd- un hálendisins, fræðslu og umræðu um umhverfismál og umfjöllun um erfðabreyttar lífverur og hugsan- leg skaðleg áhrif þeirra á umhverf- ið. Á aðalfundi Landverndar var m.a. fjallað um náttúruvernd á höf- uðborgarsvæðinu. Þar var m.a. samþykkt ályktun um það að víða á höfuðborgarsvæðinu og innan landnáms Ingólfs sé að finna verð- mætar náttúruminjar og því verði að sýna fyrirhyggju og gát við skipulag á landnýtingu í útjaðri bæjarfélaganna, í aðliggjandi hraunum, á fjallasvæði Esju, Hengli og Bláfjöllum. Þannig hafi mörg svæði afar hátt útivistargildi vegna nálægðar við þéttbýlasta svæði landsins og hafi þau þannig bein áhrif á velferð íbúa á svæðinu og möguleika ferðaþjónustu. Fráfarandi formaður Land- verndar, Ólöf Guðný Valdimars- dóttir, sagði í skýrslu sinni heims- byggðina hafa orðið vitni að hægri og bítandi hrörnun vistkerfa og í skýrslu frá Sameinuðu þjóðunum sé varað við fyrirsjáanlegri hraðari hnignun sem ekki yrði hægt að stöðva. Þá skýrði Ólöf frá öflugu fræðslustarfi sem landvernd stend- ur fyrir undir merkjum Grænfán- ans, Bláfánans, fræðslusetursins í Alviðru og Vistverndar í verki. Landvernd velur nýjan formann STJÓRN INTER, samtaka aðila í Internetþjónustu, hefur sent inn kvörtun til Samkeppnisstofnunar vegna nýrra tilboða á netþjónustu hjá Og Vodafone og Símanum. Telja samtökin að tilboðin feli í sér ólöglega samtvinnun þjónustu milli óskyldra markaða og jafnframt undirverðlagningu. Þar sem bæði fyrirtækin hafi verið skilgreind í markaðsráðandi stöðu á netmarkaði þurfi þau sér- staklega að gæta að því að raska ekki samkeppni með aðgerðum sínum. „Augljóst virðist af tilboðinu að bæði Og Vodafone og Landssíminn gera þá kröfu að keypt sé farsíma- þjónusta til að hægt sé að kaupa ADSL-þjónustu á þessum kjörum. Slíkt er að mati stjórnar Inter samtvinnun (e. bundling) á milli skýrt skilgreindra markaða.“ Segir stjórn Inter að í ljósi þess að Samkeppnisstofnun hafi und- anfarin misseri tekið sér langan tíma til að úrskurða um kvartanir sem þangað berast hafi verið lögð fram krafa um að Samkeppnis- stofnun taki málið til bráðabirgða- úrskurðar. Enn séu reyndar tvær kvartanir frá Inter til stofnunarinnar óaf- greiddar. Kvarta til Sam- keppnisstofnunar HNÍFJAFNT og æsispennandi Ís- landsmeistaramót grunnskólasveita í skák fór fram um síðustu helgi, og í úrslitaeinvígi milli Norðurlanda- meistara Rimaskóla og Reykjavík- urmeistara Laugalækjarskóla hafði sá síðarnefndi sigur. Þar með vann Laugalækjarskóli sér rétt til þess að keppa fyrir Ís- lands hönd á Norðurlandamóti grunnskóla sem fram fer í haust. Samhliða úrslitaeinvíginu fór fram Íslandsmót grunnskólasveita í stúlknaflokki. Þar sigruðu Íslands- meistararnir frá því í fyrra, sveit Rimaskóla, með miklum yfirburðum, fékk alls 26 vinninga. Í öðru sæti varð Hamraskóli með 191⁄2 vinning, og Mýrarhúsaskóli varð í þriðja sæti með 181⁄2 vinning. Sveit Laugalækj- arskóla Íslands- meistarar í skák

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.