Morgunblaðið - 28.04.2005, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 28.04.2005, Blaðsíða 42
42 FIMMTUDAGUR 28. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ DAGBÓK Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Hrúturinn gerir hugsanlega eitthvað í dag sem óvart vekur athygli annarra. Vera kann að um sé að ræða eitthvað sem tengist einkahögum hrútsins, gáðu að því. Naut (20. apríl - 20. maí)  Nautið er fullt eirðarleysis. Það langar til þess að læra eitthvað nýtt og upplifa æv- intýri. Lagaðu þennan kláða með því að fara á stað sem þú hefur aldrei komið til áður. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Notaðu daginn til þess að fara yfir reikn- inga, skuldir, skatta og sameiginlegar eignir. Hnýttu lausa enda þar sem við á. Allir eru með einhverja lausa enda á þessu sviði. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Tunglið er beint á móti krabbamerkinu og leiðir hugsanlega til þess að krabbinn laðast að einhverjum. Hann beinir í það minnsta athygli sinni að vinum og öðru fólki. Nú er lag að vera einlægur. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Notaðu daginn til þess að bretta upp erm- ar og koma einhverju í verk. Þú ferð létt með að neita þér um skemmtanir og ein- beita þér að skyldum þínum og skuld- bindingum. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Nú væri ekki vitlaust að ræða sameig- inlega ábyrgð á barnauppeldi, þar sem það á við. Einnig ætti meyjan að nota tím- ann til þess að ræða verkaskiptingu á heimilinu við maka sinn. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Alvarlegar samræður við foreldra og fjöl- skyldumeðlimi gætu átt sér stað í dag. Svartsýni er ráðandi meðan tungl (tilfinn- ingar) er í steingeit. Hafðu það í huga ef aðrir draga úr þér kjark. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Skrifaðu lista yfir það sem þú átt eftir ógert svo þér finnist þú betur skipulagð- ur. Flokkaðu niður það sem viðkemur vinnunni, félagsstörfum og þér prívat svo þú fáir heildarmyndina. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Bogmaðurinn einbeitir sér að fjármunum og peningamálum í dag og finnur til tals- verðrar íhaldssemi. Nú langar hann til þess að leggja fyrir til mögru áranna. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Tunglið er í þínu merki í dag, sem veitir þér visst forskot á þá sem eru í öðrum stjörnumerkjum hvað heppni varðar. Þú ert líka tilfinningasamari en ella. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberinn þarf á ró og næði að halda. Reyndu að vinna í einrúmi ef þú mögu- lega getur. Hvers kyns einvera leiðir til hvíldar og endurnæringar. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Djúpar samræður við einhvern þér eldri koma þér hugsanlega að gagni í dag. Því ekki að nýta sér reynslu annarra? Það sparar þér tíma og peninga. Stjörnuspá Frances Drake Naut Afmælisbarn dagsins: Þú ert staðföst og trygg manneskja, fólk veit að það getur treyst á þig. Þú ert ein- staklega einbeitt og leggur metnað þinn í að vera vel til fara. Þá ertu góður vinur og gott foreldri. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. Staðurogstund http://www.mbl.is/sos 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 Krossgáta Lárétt | 1 dynk, 4 svína- kjöt, 7 heift, 8 náms- tímabilið, 9 þegar, 11 pen- inga, 13 bylur, 14 kveif, 15 þyrnir, 17 taugaáfall, 20 blóm, 22 hæfileikinn, 23 greftrun, 24 deila, 25 skyldmennisins. Lóðrétt | 1 ræskja sig, 2 grefur, 3 ögn, 4 líf, 5 stak- ir, 6 ættin, 10 kindurnar, 12 beita, 13 mann, 15 hlýðinn, 16 rándýrum, 18 fórna, 19 nauts, 20 elska, 21 munn. Lausn síðustu krossgátu Lárétt |1 kóngafólk, 8 svart, 9 nefna, 10 ann, 11 aftan, 13 apann, 15 hjall, 18 stefs, 21 íla, 22 óvirt, 23 terta, 24 kiðlingur. Lóðrétt | 2 ósatt, 3 gátan, 4 finna, 5 lyfta, 6 Esja, 7 hann, 12 afl, 14 pat, 15 hrós, 16 aðili, 17 lítil, 18 satan, 19 eirðu, 20 skap.  Tónlist Broadway | Tónleikar verða í kvöld kl. 21.30 til styrktar félagi MS sjúklinga. Fram koma Geir Ólafsson, Páll Rósin- kranz og fleiri ásamt stórhljómsveit undir stjórn Ólafs Gauks. Nemendur úr elsta flokk listdansskóla Íslands sýna dans. Miðaverð er 1500 krónur og allur ágóði rennur til MS félagsins. Laugarneskirkja | Karlakór Kjalnesinga heldur tónleika í Laugarneskirkju í kvöld kl. 20.30. Á efnisskránni eru sígild karlakórslög auk fágætra sönglaga frá fyrri tíð. Einsöngvari er Jóhannes Freyr Baldursson tenór. Undirleik annast Lára Rafnsdóttir og stjórnandi er Páll Helga- son. Saurbæjarkirkja á Hvalfjarðarströnd | Freyjukórinn úr Borgarfirði heldur tón- leika í Saurbæjarkirkju Hvalfjarðarströnd fimmtudaginn 28. apríl kl. 21:00. Á söngskránni er fjölbreytt tónlist úr söngleikjum og kvikmyndum. Kórstjóri er Zsuzsanna Budai. Myndlist 101 gallery | Helgi Þorgils Friðjónsson – Skáhalli tilverunnar (Theo van Doesburg, Goya og aðrir). Bananananas | Davíð Örn sýnir málverk og veggmyndir undir heitinu húsverk. Café Karólína | Myndlistarsýning Bald- vins Ringsted. Eden, Hveragerði | Málverkasýning Dav- íðs Art Sigurðssonar – Milli mín og þín. Energia | Málverkasýning aprílmánaðar. Ólöf Björg. Gallerí Gangur | Haraldur Jónsson Af- gangar. Gallerí i8 | Hrafnkell Sigurðsson. Gallerí Sævars Karls | Kristján Jónsson sýnir myndir unnar með blandaðri tækni. Gallerí Terpentine | Odd Nerdrum og Stefán Boulter. Gel Gallerí | Ólafur grafari sýnir verk sín. Grafíksafn Íslands | Sýning á vatns- litamyndum eftir Daða Guðbjörnsson. Grensáskirkja | Guðbjörg Hákonardóttir (Gugga) sýnir málverk í forsal. Hafnarborg | Sýning Jóhannesar Dags- sonar „Endurheimt“, Á sýningunni eru verk unnin með blandaðri tækni. Sýningin „List og náttúra með augum Norðurlandabúans“. Hallgrímskirkja | Vignir Jóhannsson – Sólstafir. Hrafnista Hafnarfirði | Stefán T. Hjalta- lín sýnir akrílmyndir og fleiri listmuni í Menningarsalnum á fyrstu hæð. Kaffi Mílanó | Jón Arnar Sigurjónsson sýnir olíumyndir á striga. Myndefnið er borgarlíf, tónlist og árstíðirnar. Listasafnið á Akureyri | Erró. Listasafn ASÍ | Helgi Þorgils Frið- jónsson sýnir olíumálverk og skúlptúra unna í leir og málaða með olíulitum. Kaffi Sólon | Birgir Breiðdal eitt verk, ekkert upphaf né endir. Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn | Fjór- ar glerlistasýningar. Listasafn Reykjavíkur, Ásmundarsafn | Maðurinn og efnið. Yfirlitssýning. Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir og Hafnarhús | Lokað. Ljósmyndasafn Reykjavíkur | Bára ljós- myndari – Heitir reitir. Salurinn | Andi Manns er heiti á sýningu Leifs Breiðfjörðs. Sýningin stendur til 1. maí. Smáralind | Sýning Amnesty Int- ernational „Dropar af regni“ stendur yfir í Smáralind. Þjóðminjasafn Íslands | Ljósmyndasýn- ingarnar Í Vesturheimi 1955 – ljósmyndir Guðna Þórðarsonar og Íslendingar í Ric- cione – ljósmyndir úr fórum Man- fronibræðra. Suðsuðvestur | Birta Guðjónsdóttir. Bækur Súfistinn | Vorbókahátíð Bjarts á Súfist- anum, Laugavegi 18, fimmtudaginn 28. apríl, kl. 20.30. Tilefnið er útgáfa bók- anna Útgönguleiðir eftir Steinar Braga, Steinsteypa eftir Thomas Bernhard og Stríðsmenn Salamis eftir Javier Cercas. Lesið verður úr bókunum og huldusveit- in Yellow Monkey Flower treður upp. Fréttir Aðalþjónustuskrifstofa Al-Anon | Að- alþjónustuskrifstofa Al-Anon er opin þrið. og fim. kl. 13–16. Al-Anon er fé- lagsskapur karla, kvenna og unglinga sem hafa orðið fyrir áhrifum af drykkju ættingja eða vinar. Alateen er fé- lagsskapur unglinga sem hafa orðið fyrir áhrifum vegna drykkju annara. ITC samtökin á Íslandi | Landsþing ITC á Íslandi verður haldið dagana 29.–30. apríl, í Oddfellowhúsinu Vonarstræti 10, í Reykjavík og er öllum opið. M.a verður ræðukeppni á föstudagskvöldið og fræðsludagsskrá á laugard. Auk annarra aðalfundastarfa. Uppl.fást:www.sim- net.is/itc, eða s: 698–7204/897–4439. Söfn Gljúfrasteinn – Hús skáldsins | Gljúfra- steinn – hús skáldsins er opið frá kl. 10 – 17. Þjóðmenningarhúsið | Hallgrímur Pét- ursson (1614–1674) er skáld mánaðarins í Þjóðmenningarhúsinu. Þjóðminjasafn Íslands | Grunnsýning Þjóðminjasafnsins, Þjóð verður til– menning og samfélag í 1200 ár. Ómur Landið og þjóðin í íslenskri hönnun. Ljósmyndasýningarnar Í vesturheimi 1955 ljósmyndir Guðna Þórðarsonar og Íslendingar í Riccione ljósmyndir úr fór- um Manfroni bræðra. Opið kl 11–17. Skemmtanir Hótel Borg | Fimmtudagskvöldið 28. apríl kl. 21 mun kvintettinn AutoReverse spila á síðustu Múlatónleikum vetrarins. Á efnisskránni er jazz úr ýmsum áttum. Klúbburinn við Gullinbrú | Föstudags- kvöld Sólon með dansleik, frítt inn. Laugardagskvöld Brimkló með dansleik opið til kl 04. Mannfagnaður Alþjóðahúsið | Alþjóðahúsið og Skák- samband Íslands standa fyrir fjöltefli í dag kl. 20 í Alþjóðahúsinu, Hverfisgötu 18. Lenka Ptacnikova, stórmeistari og fyrirliði íslenska kvennalandsliðsins, tefl- ir við gesti. Öllum er velkomið að vera með. Skráning í síma 530 9300, eða hjá gerdur@ahus.is. Fundir Félagsheimilið Heimaland | Aðalfundur Verkalýðsfélags Suðurlands verður í kvöld kl. 20–23. Kaffiveitingar í boði fé- lagsins. GSA á Íslandi | GSA fundir eru haldnir öll fimmtudagskvöld kl. 20.30 í Tjarn- argötu 20. GSA samtökin eru hópur fólks sem hefur leyst vandamál sín tengd mat. Nánari upplýsingar á www.gsa.is. ReykjavíkurAkademían | Aðalfundur Náttúruvaktarinnar verður haldinn í ReykjavíkurAkademíunni í dag kl. 17.00. Á dagskrá eru hefðbundin aðalfund- arstörf. Undir liðnum önnur mál verður fjallað um dagskrána í sumar og stöðu náttúrurverndamála á Íslandi. Fyrirlestrar Byggðasafn Hafnarfjarðar | Í Pakkhúsi Byggðasafns Hafnarfjarðar,Vesturgötu 8 verður fjallað um menningarútivist. Fyr- irlesarar eru Jónatan Garðarsson og Ómar Smári Ármannsson. „Fróðleiks- molarnir“ hefjast kl. 20 og er aðgangur ókeypis. Grand Hótel Reykjavík | Þrír fé- lagsvísindamenn, Gyða Pétursdóttir, Gísli Atlason og Hildur Friðriksdóttir, kynna niðurstöður rannsókna um sam- þættingu fjölskyldulífs og atvinnu á opn- um morgunverðarfundi Félagsfræðinga- félags Íslands í dag, kl. 8.15–9.50. Verð kr. 1.500 með morgunverði. Tilkynnið þátttöku til harpan@hi.is. Háskóli Íslands | Rektor Háskóla Íslands og Sendiráð Frakklands á Íslandi efna til opins fyrirlestrar Frédéric Baleine Du Laurens um þátt Frakklands öryggis– og varnarmálastefnu Evrópu. Hann verður haldinn í Háskóla Íslands, Lögbergi, stofu 101, í dag, kl. 17.15– 18.15. Námskeið Mímir – símenntun ehf | Kristinn R. Ólafsson útvarpsmaður í Madríd, mun sjá um tveggja kvölda námskeið um höf- uðborg Spánar dagana 26. og 28. apríl kl. 20–22 hjá Mími – símenntun. Stiklað verður á stóru í máli og myndum um sögu, listir og menningu í Madrid. Skrán- ing hjá Mími – símenntun, s. 5801800 eða á www.mimir.is. MS-félag Íslands | Helgarnámskeið fyrir landsbyggðarfólk um MS sjúkdóminn verður haldið 29.–30. apríl, fyrir fólk með nýlega greiningu MS, upp að 2–3 árum. Taugasérfræðingur, félagsráðgjafi, hjúkrunarfræðingur, iðjuþjálfi og sjúkra- þjálfari veita fræðslu. Námskeiðið verður í húsi MS félags Íslands að Sléttuvegi 5, Reykjavík. Uppl. veitir Margrét, félags- ráðgjafi í síma 568 8620, 897 0923. www.ljosmyndari.is | Fjarnám hentar ágætlega þeim sem búa úti á landi. Nemendur fá eigin vefsíðu og eru í tengslum við sinn leiðbeinanda í gegn- um tölvupóst. Þeir fá ljósmyndverkefni og krossapróf auk mikils fróðleik um ljósmyndun, allt á íslensku. Skráning á námskeiðið í gangi allt árið á vefsíðunni www.ljosmyndari.is. Ráðstefnur Askja – Náttúrufræðihús Háskóla Ís- lands | Opnun þekkingarseturs í fræði- legri tölvunarfræði, Þekkingarsetrið ICE– TCS er samvinnuverkefni tölv- unarfræðisviðs Verkfræðistofnunar Háskóla Íslands og Tækni– og verk- fræðid. Hásk. í Rvík. Tími: Föstud. 29.4. kl. 15:30 í Öskju. http://www.hi.is/̃mmh/ centre/ fyrir frekari upplýsingar. Verkfræðideild Háskóla Íslands | Ráð- stefna um áhrif sjóflóða og hækkunar sjávarstöðu á skipulag verður í dag 13.05–17.15, í húsi verkfrd. HÍ, VR–2, Hjarðarhaga 6, st. 157. Fundarboðendur eru umhverfis– og byggingarverk- fræðiskor HÍ, Skipulagsstofnun og Sigl- ingastofnun. Heimasíða ráðstefnunnar er http://www.hi.is/page/flod Frekari upplýsingar: Trausti Valsson, s. 8631339, tv@hi.is. Börn Tónabær | Í dag kl. 16–18 verður opið hús frístundaheimilum eftirtalinna skóla: Álftamýrarskóla, Breiðagerðisskóla, Fossvogsskóla, Háteigsskóla, Hlíðaskóla, Hvassaleitisskóla, Laugarnesskóla, Lang- holtsskóla og Vogaskóla. Boðið verður upp á léttar veitingar og starf vetrarins kynnt. Útivist Ferðafélagið Útivist | Á fimmtudögum er farið kl. 18 frá bílastæði við austur- enda göngubrúarinnar yfir Kringlumýr- arbraut í Fossvogi og gengið vestur með Öskjuhlíð, um Nauthólsvík og út í Skerja- fjörð. Farið er sömu leið til baka og gönguferðin tekur rúma klukkustund. Allir velkomnir ekkert þátttökugjald. Stafganga í Laugardal | Stafganga í Laugardalnum á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 17.30–18.30 gengið er frá Laugardalslauginni, tímar fyrir byrj- endur og lengra komna. Nánari upplýs- ingar á www.stafganga.is og gsm: 616 8595 eða 69 43571. 1. e4 g6 2. d4 Bg7 3. Rf3 d6 4. Bc4 e6 5. Bb3 a6 6. Rbd2 Re7 7. Rf1 h6 8. Rg3 Rd7 9. Bf4 b6 10. De2 Bb7 11. 0–0–0 b5 12. h4 Rb6 13. d5 e5 14. Be3 Rd7 15. h5 Rf6 16. hxg6 fxg6 17. a4 Bc8 18. a5 Bg4 19. Dd2 g5 20. Hdg1 Dc8 21. Re1 Rg6 22. f3 Bd7 23. Rd3 Rf4 24. Rb4 0–0 25. Hh2 Hf7 26. Hgh1 Rh7 27. c3 Df8 28. Bc2 g4 29. Rf5 gxf3 30. Bxf4 Bxf5 31. Bxh6 Bg6 32. gxf3 Hxf3 33. Bxg7 Dxg7 34. Hg1 Haf8 35. Bd1 Hf1 Staðan kom upp á meistaramóti Evrópusambandsins sem lauk fyrir skömmu í Cork í Englandi. Annar sig- urvegara mótsins, pólski stórmeist- arinn Mateusz Bartel (2.487), hafði hvítt gegn Klaus Bischoff (2.555). 36. Hxg6! og svartur gafst upp enda tapar hann óumflýjanlega liði eftir 36. … Dxg6 37. Hg2. SKÁK Hvítur á leik. Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is Stórhöfða 21, við Gullinbrú, s. 545 5500. www.flis.is ● netfang: flis@flis.is lím og fúguefni Staður og stund á mbl.is. Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að finna á Staður og stund undir Fólkið á mbl.is Meira á mbl.is Fréttasíminn 904 1100

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.