Morgunblaðið - 28.04.2005, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 28.04.2005, Blaðsíða 52
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FIMMTUDAGUR 28. APRÍL 2005 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK. Opið 8-24 alla daga í Lágmúla og Smáratorgi Á TILTÖLULEGA fáum árum hefur fast- eignafélögum á Íslandi fjölgað umtalsvert og eignasöfn þeirra hafa þanist út um tugi eða hundruð pró- senta. Fyrir liðlega þremur árum var verðmæti fast- eigna stærstu fé- laganna 30–40 milljarðar en nú nema eignir sex þeirra stærstu lið- lega 80 milljörðum króna og fyrirsjáanlegt er að þær aukist umtalsvert á næstu miss- erum og fari yfir 100 milljarða. Stjórnendur félaganna draga ekki dul á að þeir stefni að því að stækka þau enn frekar og telja enn vera tækifæri fyrir hendi á markaðinum. Bankarnir eru með ítök í flestum fast- eignafélaganna, Landsbankinn á Landsafl, Kaupþing banki á fasteignafélagið Eik sem á miklar eignir í miðborg Reykjavíkur og Íslandsbanki á meðal annars stóran hlut í Fasteign hf./B8 Styttist í 100 milljarða múrinn NÁMSMÖNNUM gengur betur að verða sér úti um sumarvinnu í ár en í fyrra. Mikil aðsókn er í sumarstörf um þessar mundir og dæmi eru um að fyrirtæki hafi bor- ist fimm umsóknir um starf á tíu mínútum hjá Stúdentamiðlun sem hefur milligöngu um sumarstörf fyrir námsmenn. Hugrún Jóhann- esdóttir, forstöðumaður Vinnu- miðlunar höfuðborgarsvæðisins, segir að mun meira framboð sé á störfum nú en á sama tíma í fyrra. Mikil hreyfing er hjá Stúdenta- miðlun en þar hafa komið allt upp í hundrað umsóknir um eitt starf. Rósa Þórsdóttir verkefnisstjóri segir að meira sé spurt eftir vinnu- afli núna en á sama tíma í fyrra. Hún segist jafnframt eiga von á sprengingu í maí en venjulega leita flest fyrirtæki til miðlunarinnar í þeim mánuði. Mega ekki vinna erfið störf Ungmennum undir átján ára aldri reynist oft erfiðast að fá vinnu en það er m.a. vegna þess að árið 1997 voru reglur Evrópusam- bandsins um vinnu barna og ung- menna settar í lög hér á landi. Það þýðir að ungmenni á þessum aldri mega ekki vinna störf sem geta á einhvern hátt verið hættuleg eða reynst þeim erfið, líkamlega eða andlega. Þau sem Morgunblaðið leitaði álits hjá bentu m.a. á að þetta hafi áhrif á störf í bygging- ariðnaði, fiskvinnslu og sjó- mennsku. Steinar Harðarson, hjá Vinnu- eftirlitinu, segir að reglulega berist fyrirspurnir um hvaða störfum ungmenni megi sinna en að þeim fari þó fækkandi ár frá ári. Steinar segir að hljóti ungmenni skaða í starfi sem það má ekki sinna sam- kvæmt lögum geti atvinnurekandi þurft að greiða skaðabætur. Meira framboð á sumar- störfum fyrir námsmenn  Það vantar mjög víða/8 HAGNAÐUR Avion Group á síðasta ári nam tæplega 2,5 milljörðum króna eftir skatta. Árið áður var saman- lagður hagnaður þeirra fyrirtækja sem eru nú í samstæðunni tæplega 317 milljónir króna. Hagnaðurinn nærri áttfaldaðist því á milli ára. Af þeim fyrir- tækjum sem tilheyra Avion Group var mestur hagnaður hjá leiguflugfélag- inu Excel Airways, eða tæplega 1,8 milljarðar króna. Magnús Þorsteinsson, stjórnar- formaður og aðaleigandi Avion Group, segist vera mjög sáttur við út- komuna. „Flugiðnaðurinn er að rísa úr öskustó sem hann hefur verið í síð- an 2002 og við sjáum góða stígandi í honum,“ segir Magnús. „Árið var strembið vegna hækkunar eldsneyt- isverðs og það verður þetta ár einnig en við erum mjög bjartsýnir.“ Hann segir enn stefnt að því að skrá Avion Group á íslenskan hluta- bréfamarkað undir lok þessa árs. Mikil hagn- aðaraukning Avion Group  Hagnaður/B1 DANSKI tónlistarmað- urinn Kim Larsen held- ur tvenna tónleika á Nasa við Austurvöll 26. og 27. ágúst ásamt hljómveit sinni Kjukk- en. Larsen hefur verið einn allra farsælasti dægurlagasöngvari Dana í meira en þrjá áratugi og á þar enn söluhæstu plötu allra tíma, Midt om natten. Eftir að hafa verið lítið áberandi á síðasta áratug hefur hann nú endurheimt fyrri vinsældir og hafa síð- ustu plötur hans og Kjukken selst í met- upplögum í Skandinavíu. Larsen kom til Íslands 1988 og lék þá á fernum tónleikum á Broadway, sem þá hét Hótel Ísland, við góðar undirtektir. Miðasala á tónleikana hefst 13. maí en það er fyrirtækið Austur-Þýskaland sem stendur fyrir komu Larsens. Kim Larsen til Íslands Kim Larsen STJÓRN Almennings ehf. hefur óskað eftir því við alla skráða félaga sem hafa hug á að taka þátt í kaupum á Símanum að þeir veiti félaginu umboð til að fara fram á að ráðgjafarfyrirtækið Morgan Stanley og einkavæðingarnefnd af- hendi Almenningi útboðsgögn vegna sölu Símans. Í tölvupósti til skráðra félaga segir að Fjármálaeftirlitið hafi bent á að skv. 21. gr. laga um verð- bréfaviðskipti sé kveðið á um að upplýsingar sem nauðsynlegar eru fjárfestum til að þeir geti metið eignir og skuldir, fjárhagsstöðu, afkomu og framtíðarhorfur, verði að koma fram í útboðslýsingu. Ráðgjafarfyrirtækið Morgan Stanley og einkavæðingarnefnd hafi neitað að láta Almenningi í té útboðsgögn svo unnt sé að uppfylla skilyrði Fjármálaeftirlitsins, nema forsvarsmenn Almennings riti undir trúnaðarsamning, sem aftur komi í veg fyrir að stjórn félagsins geti veitt þátttakendum í fyrirhug- uðu útboði nauðsynlegar upplýs- ingar. Í tölvubréfi frá stjórn Almenn- ings segir að forsvarsmenn félags- ins hafi ekki treyst sér til þess að undirrita trúnaðarsamning gegn afhendingu útboðsgagnanna enda væri stjórnin þar með að afsala sér réttinum til að upplýsa væntanlega hluthafa í Almenningi um gang mála. Bjartsýn á jákvæð viðbrögð Agnes Bragadóttir, formaður Almennings ehf., segir að niður- staðan eftir fund með Fjármálaeft- irlitinu í gær hafi verið sú að leita til allra verðandi hluthafa um um- boð til að fá útboðsgögnin afhent. Óskað er eftir að fólk veiti um- boð sitt með upplýsingum um nafn, heimilisfang og kennitölu. Bréf hefur verið sent á öll netföng skráðra félaga en Agnes segir að fjölmargir hafi skráð sig símleiðis og er vonast til að þeir sendi skrif- legt umboð til: Almennings ehf., Skipholti 35, 105 Reykjavík. Að sögn Agnesar ræddi hún við Halldór Ásgrímsson forsætisráð- herra í gærmorgun sem kvaðst myndu beita sér fyrir að einkavæð- ingarnefnd svaraði erindi Almenn- ings. Hún kveðst bjartsýn á já- kvæð viðbrögð frá skráðum félögum um að veita umboð sitt, einkum í ljósi þeirra viðbragða sem hugmyndin hafi fengið fram að þessu. „Ég tel enga ástæðu til að efast um að stuðningur fjölda manna við þetta framtak okkar haldi áfram og þetta er okkar að- ferð til að komast í gegnum þetta ferli,“ segir Agnes. Þess má geta að fjöldi tölvupóstsskeyta var þeg- ar tekinn að berast í gær við beiðni stjórnar Almennings. Alls hafa 8– 10 þúsund manns skráð sig fyrir hlut í Símanum. Stjórn Almennings ehf. í bréfi til skráðra félaga vegna kaupa á Símanum Óskað eftir umboði frá þúsundum einstaklinga Kynningarmynd Almennings ehf. Eftir Kristján Geir Pétursson kristjan@mbl.is STRAUMUR fjárfestingarbanki skilaði 4,6 milljarða króna hagnaði á fyrstu þremur mánuðum ársins og er það ríflega tvöföldun hagn- aðar frá sama fjórðungi ársins á undan. Þetta þýðir að félagið hagn- aðist um 51 milljón hvern dag vik- unnar. Þess má geta til samanburðar að hagnaður félagsins á öllu árinu 2004 nam 6,7 milljörðum króna samkvæmt nýrri uppgjörsaðferð. Að meðaltali spáðu greiningar- deildir bankanna Straumi 4,3 millj- arða hagnaði af ársfjórðungnum en breitt bil var á milli spánna. Arðstekjur námu tæpum 1,4 milljörðum króna Arðstekjur Straums voru nú í fyrsta sinn allverulegar, eða tæp- lega 1,4 milljarðar. Þá námu hrein- ar tekjur af veltufjáreignum 1,7 milljörðum og hreinar tekjur af öðrum fjármunum á gangvirði námu 2,2 milljörðum. Hreinar rekstrartekjur voru því samtals 5,5 milljarðar króna og hafa aldrei ver- ið hærri á einum ársfjórðungi. Er þetta rösk tvöföldun frá sama tímabili í fyrra. Arðsemi eigin fjár var 14,5% á tímabilinu en það þýðir 72% arð- semi á ársgrundvelli. Útlán námu 31,8 milljörðum króna í marslok og höfðu aukist um 25% frá áramótum. Hlutafjáraukn- ing á tímabilinu skilaði félaginu 7 milljörðum króna og söluandvirði víkjandi skuldabréfa nam 5 millj- örðum. Morgunblaðið/Golli Straumur hagnaðist um 4,6 millj- arða króna MIKIÐ var um dýrðir þegar nemendur Fjölbrauta- skólans við Ármúla blésu til sumarhátíðar í gær í til- efni af kennslulokum en á morgun hefjast vorprófin. Flestir framhaldsskólanemar eru að sigla inn í mikla prófatörn og því síðastu forvöð að njóta blíðviðrisins áður en strembinn próflestur tekur við. Morgunblaðið/ÞÖK Fjörkálfar í Fjölbraut við Ármúla ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.