Morgunblaðið - 28.04.2005, Blaðsíða 16
Vestmannaeyjar | Blómabörnin
lögðu Vestmannaeyjar undir sig
um helgina þegar þar var haldin
fjórða Hippahátíðin. Listahátíð
hippans var haldin á föstudags-
kvöldið og hippaballið á laugar-
dagskvöldinu.
Listahátíðin var í Vélasalnum
þar sem mátti sjá gömul plaköt
frá hippatímanum. Sérstaka at-
hygli vakti herbergi hippans þar
sem hvert smáatriði var út-
hugsað. Um kvöldið var síðan
þjóðlagakvöld með hugljúfum
hippasöngvum. Á Hippaballinu í
Höllinni lék og skemmti Hippa-
bandið og var nánast hver ein-
asti gestur í hippafötum. Ást og
friður sveif yfir vötnunum og
var fólk hið ánægðasta með
hvernig til tókst.
Morgunblaðið/Sigurgeir
Blómabörn í Eyjum
Lífsstíll
Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Austurland | Landið
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi
Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Margrét Þóra Þórsdóttir,
maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís
Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, aust-
urland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is,
sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Tillaga felld | Fjallað var um leikskóla-
mál á fundi bæjarstjórnar Akraness í
vikunni, en þar flutti Gunnar Sigurðsson
tillögu þess efnis að bæjarstjórn Akra-
ness myndi samþykkja að lækka frá og
með 1. maí 2005 leikskólagjöld á leik-
skólum Akraneskaupstaðar um 10%. Til-
lagan var felld með fimm atkvæðum
gegn fjórum.
Úr
bæjarlífinu
HÉÐAN OG ÞAÐAN
Heitt vatn | Þingeyjarsveit, Grýtu-
bakkahreppur og Norðurorka hafa tekið
höndum saman um að kanna möguleika
og arðsemi þess að heita vatnið á Reykj-
um verði leitt gegnum Fnjóskadal og
Dalsmynni alla leið til Grenivíkur. „Ef
þessi framkvæmd verður talin arðbær
mun hér um að ræða afar dýrmætt hags-
munamál fyrir okkur. Best er þó að slá
hér alla varnagla um verkefnið en samt er
ljóst að Norðurorka hefur tekið vel í er-
indi sveitarstjórnar um að kannað verði
að leiða heitt vatn um Fnjóskadal og
hugsanlega víðar, s.s. inn í Ljósavatns-
skarðið, frá Reykjum,“ segir Jóhann
Guðni Reynisson sveitarstjóri Þingeyj-
arsveitar í pistli sem hann skrifar á vef
sveitarfélagsins.
Staðarhaldari | Valdimar J. Halldórsson,
mannfræðingur og kennari við Mennta-
skólann á Ísafirði, hefur verið ráðinn fram-
kvæmdastjóri Hrafnseyrarnefndar. Valdi-
mar var ráðinn úr hópi 23 umsækjenda.
Starfið er hlutastarf og er það fólgið í um-
sjón og uppbyggingu Hrafnseyrar auk
reksturs á safni Jóns Sigurðssonar forseta
og veitingarekstri í burstabænum.
Hallgrímur Sveinsson, sem gegnt hefur
stöðunni áratugum saman, sagði henni
lausri fyrir skömmu.
AðalfundurkjördæmisráðsSamfylkingarinnar
í Norðausturkjördæmi var
haldinn á Seyðisfirði ný-
lega, en þar var í ályktun
fagnað því mikla uppbygg-
ingarstarfi sem nú fer fram
á Mið-Austurlandi, „en
þeirri uppsveiflu þarf að
fylgja eftir svo ekki komi til
bakslags að loknum fram-
kvæmdum,“ segir í álykt-
uninni. Einnig að ríkisvaldið
þurfi að tryggja þjónustu-
og eftirlitsstörfum ríkisins
nauðsynlegt fjármagn til að
fylgja uppbyggingunni eft-
ir. Eyjafjarðarsvæðið hafi
alla burði til að verða eitt
helsta vaxtarsvæði landsins,
en huga þurfi sérstaklega
að jaðarbyggðum kjördæm-
isins t.d. varðandi sam-
göngumál, „og ljóst að jarð-
göng þurfa að koma til svo
þau svæði geti notið þeirra
atvinnumöguleika og þjón-
ustu sem til staðar verður á
Mið-Austurlandi og við
Eyjafjörð“.
Uppbygging
Árlega veitir KB banki 15 bílprófsstyrki til náms-manna í Námsmannalínunni og er hver styrkurað upphæð 15.000 krónur.
Nýlega var dregið um þessa 15 styrki og komu þrír
þeirra til viðskiptavina bankans á Akureyri. Það voru
þau Andri Þór Ólafsson, Jóhann Freyr Egilsson og
Unnur Margrét Unnarsdóttir. Á myndinni eru tveir af
hinum þremur heppnu ásamt Geir Gíslasyni, aðstoðar-
útibússtjóra KB banka á Akureyri, þau Unnur María og
Jóhann Freyr.
Unnur Margrét Unnarsdóttir, Geir Gíslason, aðstoðar-
útibússtjóri KB banka, og Jóhann Freyr Egilsson.
Bílprófsstyrkur KB banka
Um nýjan meirihlutaá Blönduósi, þannþriðja á kjör-
tímabilinu, orti Sigrún
Haraldsdóttir:
Gleymast loforð, trú og tryggð,
tilbreytingin lokkar.
Þrífast hér í Blönduósbyggð,
brókarsóttarflokkar.
Séra Hjálmar Jónsson
sagði Valgarð Hilmarsson
á Fremstagili og Valdimar
Guðmannsson í Bakkakoti
jafnan framarlega í átök-
unum og orti:
Ekki er kyn þótt ýmsu skakki
og örðug reynist leið úr vanda.
Valli fremsti og Valli bakki!
Voðaleg er þessi blanda.
Séra Hjálmar sagði átökin
afturför; þingmenn væru
hættir að beita áhrifum
sínum til góðs:
Áður fyrr þingmenn flest sjónarmið
sættu,
svo tók við ruglið, er mig að gruna,
eftir að Páll og Pálmi hættu
og presturinn fór í Dómkirkjuna.
Friðrik Steingrímsson
rifjaði upp fyrstu minn-
inguna um Blönduós:
Að stoppa hér var mér um megn
en miður gáfulegt,
ég flýtti mér að fara í gegn
og fékk því hraðasekt.
Af Blönduósi
pebl@mbl.is
Hornafjörður | Halldóra Bergljót Jóns-
dóttir lagði fram á fundi bæjarráðs Sveit-
arfélagsins Hornafjarðar nýlega bókun
varðandi flugvöllinn.
„Kannað verði við Flugmálastjórn af
hverju ekki sé leitað álits sveitarstjórnar
áður en farið er í breytingar á flugvellinum
og mannvirki gerð ónothæf eins og gert
var við þverbrautina á Árnanesflugvelli.
Einnig hvaða reglur gilda við útboð verk-
efna á vegum Flugmálastjórnar hér á
svæðinu.
Það er nokkuð ljóst að ekki mun verða
farið út í framkvæmdir við nýja þverbraut
á allra næstu árum og því er það öryggis-
atriði fyrir íbúa svæðisins að hægt sé að
lenda á núverandi þverbraut meðan svo er.
Einnig á það að vera sjálfsögð regla hjá
ríkisstofnun að vinna með heimamönnum
og leita álits þegar breytingar eru á döf-
inni. Því teljum við æskilegt að þverbraut-
in verði gerð nothæf á ný,“ segir í bók-
uninni.
Bæjarráð samþykkti framlagða bókun
og felur bæjarstjóra að fylgja henni eftir.
Á að vera
sjálfsögð regla
að vinna með
heimamönnum
Skagafjörður | Lagðar voru fram tillögur
nefndar um tekjustofna sveitarfélaga á
fundi Sveitarfélagsins Skagafjarðar í vik-
unni. Bjarni Jónsson óskaði eftir að bókað
yrði að hann lýsti miklum
vonbrigðum með að í tillögum nefndar
um tekjustofna sveitarfélaga skuli ekki
koma fram frekari leiðréttingar á tekju-
skiptingu ríkis og sveitarfélaga. „Niður-
staða nefndarinnar er algerlega óviðun-
andi og leysir ekki þann vanda sem
sveitarfélög í landinu eiga við að etja í fjár-
mögnun á rekstri sínum og þjónustu. Við
þessar aðstæður er ljóst að ekki eru for-
sendur fyrir frekari flutningi verkefna frá
ríki til sveitarfélaga. Samband sveitarfé-
laga og fulltrúar þeirra í samningum við
ríkið þurfa að einbeita sér af enn meiri ein-
urð í að ná fram réttlátri og nauðsynlegri
leiðréttingu á tekjuskiptingu ríkisins og
sveitarfélaga í landinu,“ segir í bókun
Bjarna.
Leysir ekki
vanda sveitar-
félaganna
♦♦♦
Söngur
Ólafur Kjartan Sigurðarson syngur
og Jónas Ingimundarson leikur á píanó
Ársreikningar LSH
Anna Lilja Gunnarsdóttir
framkvæmdastjóri fjárreiðna
og upplýsinga
Ávörp
Birna Kr. Svavarsdóttir
formaður stjórnarnefndar LSH
Jón Kristjánsson
heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra
Erindi
Magnús Pétursson forstjóri LSH:
Samfélagslegt gildi heilbrigðisþjónustu
Vi›urkenningar
Afhending verðlauna fyrir vísindastörf
Starfsmenn á LSH heiðraðir fyrir
vel unnin störf
Framtí›arspítalinn
Jóhannes M. Gunnarsson
settur forstjóri LSH:
Nýtt sjúkrahús, ný hugsun
Susan Frampton forseti Planetree
samtakanna í Bandaríkjunum
og einn af höfundum bókarinnar
„Putting Patients First: Designing
and Practicing Patient-Centered Care”
flytur erindi um nýjustu strauma
í hönnun sjúkrahúsa og
sjúklingamiðaða heilbrigðisþjónustu
Allir velkomnir
Ársfundur
Landspítala - háskólasjúkrahúss
29. apríl 2005 í Salnum í Kópavogi
kl. 14:00 - 16:30
Samgöngur | Bæjarráð Húsavíkur
fjallaði um samgönguáætlun á síðasta fundi
sínum og fagnar því að vegtenging þjóð-
garðsins í Jökulsárgljúfrum skuli vera
komin á áætlun, „en mikilvægt er að því
verki verði lokið sem fyrst,“ segir í bókun.
„Hins vegar veldur það vonbrigðum að
sjá að uppbyggingu Kísilvegar verður ekki
lokið á tímabilinu. Margoft hefur verið bent
á mikilvægi vegarins í atvinnu- og byggða-
legu tilliti innan héraðsins, sem er óum-
deilt.“