Morgunblaðið - 28.04.2005, Side 2

Morgunblaðið - 28.04.2005, Side 2
2 FIMMTUDAGUR 28. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Við leikum út ýmsum trompum og bjóðum í heimsókn. Mikið úrval stórra og smárra heimilistækja ásamt lömpum, þráðlausum símum og farsímum á sann- kölluðum Vorbúhnykks- kostakjörum. Komið og gerið frábær kaup. GH - SN 05 04 00 2 PÚTÍN TIL ÍSRAELS Vladímír Pútín, forseti Rússlands, kom til Ísraels í gærkvöldi og er þetta í fyrsta skipti í sögu Ísraels- ríkis sem rússneskur eða sovéskur leiðtogi sækir það heim. Pútín kvaðst í gær leggja til að haldin yrði ráð- stefna í Rússlandi í haust um friðar- umleitanir í Mið-Austurlöndum. Ný stjórn í Írak? Ibrahim Jaafari, verðandi for- sætisráðherra Íraks, tilkynnti í gær að hann hefði myndað ríkisstjórn. Þingið þarf að samþykkja stjórnina með meirihluta atkvæða. Fá ekki bætur Íslensku friðagæsluliðarnir, sem særðust í sprengjuárás í Kabúl í Afg- anistan í fyrrahaust, hafa ekki fengið bætur frá Tryggingastofnun ríkisins, þar sem stofnunin telur að mennirnir þrír hafi ekki slasast í vinnuslysi heldur í frítíma sínum. Óska eftir umboði Stjórn Almennings ehf. hefur ósk- að eftir því við alla skráða félaga sem hafa hug á að taka þátt í kaupum á Símanum að þeir veiti félaginu um- boð til að fara fram á að ráðgjaf- arfyrirtækið Morgan Stanley og einkavæðingarnefnd afhendi Al- menningi útboðsgögn vegna sölu Símans. Y f i r l i t Í dag Sigmund 8 Viðhorf 28 Fréttaskýring 8 Umræðan 28/32 Úr verinu 12 Bréf 32 Erlent 14/15 Minningar 33/36 Minn staður 16 Brids 39 Höfuðborgin 17 Myndasögur 40 Suðurnes 17 Dagbók 40/43 Akureyri 18 Víkverji 40 Austurland 18 Staður og stund 42 Landið 19 Leikhús 44 Daglegt líf 20 Bíó 46/49 Neytendur 21/23 Ljósvakamiðlar 50 Menning 24/25 Veður 51 Forystugrein 26 Staksteinar 51 * * * Kynningar – Morgunblaðinu fylgir kynningarblaðið Iðnneminn frá Iðnnemasambandi Íslands. Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri, asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi, orri@mbl.is Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkju- starf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is                                 ! " #         $         %&' ( )***                    RÚMLEGA fimmtug kona lést þegar bíll sem hún ók fór út af Upphéraðsvegi skammt frá Egilsstöðum á tíunda tímanum í fyrrakvöld. Hin látna hét Guð- rún Sigurðardóttir, til heimilis að Möðrufelli 11 í Reykjavík. Hún var fædd 22. nóvember 1952 og lætur eftir sig unnusta, þrjú börn og sex barnabörn. Hin látna var ein í bílnum og er talið að hún hafi látist sam- stundis, en bíllinn fór eina eða tvær veltur og hafnaði á hjól- unum. Lést í umferð- arslysi BÆJARRÁÐ Vestmannaeyjabæjar hefur falið bæjarstjóra að undirrita samning bæjarstjórnar og eftirlits- nefndar með fjármálum sveitarfélaga um fjárhagslegar aðgerðir og eftirlit með rekstri bæjarins. Skuldir bæj- arins hafa aukist árlega frá árinu 1991. Sambærileg samningsdrög eru til umfjöllunar í níu öðrum sveitar- félögum. Húnbogi Þorsteinsson, fráfarandi formaður eftirlitsnefndar með fjár- málum sveitarfélaga, segir að ákveð- ið hafi verið að veita 200 milljónir úr Jöfnunarsjóði til 10 sveitarfélaga til að bæta fjárhagsstöðu og snúa við hallarekstri. Ekki hefur áður verið boðinn sambærilegur samningur um aðstoð. Samningsdrög voru send til sveitarfélaganna og eiga viðbrögð við þeim að hafa borist fyrir næstu mán- aðamót. Sveitarfélögin sem um ræðir eru auk Vestmannaeyjabæjar, Snæfells- bær, Blönduósbær, Ólafsfjarðarbær, Aðaldælahreppur, Húsavíkurbær, Seyðisfjarðarkaupstaður, sveitarfé- lagið Hornafjörður, Siglufjarðar- kaupstaður og Dalvíkurbyggð. Margvíslegar ástæður fyrir hallarekstri Að sögn Bergs E. Ágústssonar, bæjarstjóra Vestmannaeyja, var rekstrarniðurstaða neikvæð af sam- stæðu bæjarins á síðasta ári, en árs- reikningur verður lagður fyrir bæj- arstjórn eftir hálfan mánuð. Áætlanir geri ráð fyrir að rekstur samstæð- unnar verði neikvæður um 180 millj- ónir króna. Þess má geta að lífeyr- isskuldbindingar jukust á síðasta ári um rúmar 150 milljónir króna. Að sögn Bergs eru ástæður fyrir hallarekstri bæjarins margvíslegar. Rekstur grunnskóla hafi reynst bænum verulega þungur seinustu ár og sama megi segja um félags- þjónustuna sem hafi aukist með nýj- um kröfum og skuldbindingum. Þá njóti Vestmannaeyjar ekki samlegð- aráhrifa með öðrum sveitarfélögum hvað ýmsa þætti varðar, s.s. rekstur slökkviliðs og félagsþjónustu. Samningurinn við eftirlitsnefndina gildir til eins árs í senn og er meg- inmarkmiðið að stöðva skuldasöfnun og hallarekstur með margvíslegum aðgerðum, s.s. niðurgreiðslu lána og hagræðingu í rekstri. Þá verður sér- stöku framlagi ráðstafað úr Jöfnun- arsjóði sveitarfélaga. Bergur segir engar sérstakar að- haldsaðgerðir áformaðar að þessu sinni eða niðurskurður á þjónustu. Bærinn hafi skyldum að gegna hvað varðar lögbundna þjónustu en „allt sem er umfram lögbundna þjónustu verðum við að vega og meta í þessu samhengi“. Bærinn seldi í fyrra eignir til Eignarhaldsfélagsins Fasteignar og nýtti fjármunina til að greiða niður skuldir og óhagstæð lán. Tæplega helmingur eigna bæjarins er þegar seldur. 200 milljónum varið til að bæta stöðu tíu sveitarfélaga Eftirlitsnefnd semur við Vestmanna- eyjabæ um aðgerðir til að stöðva skuldasöfnun og hallarekstur MIKIL mildi þykir að þessi fólksbíll, á planinu við Glæsibæ, var mannlaus um miðjan dag í gær þegar stór- eflis stykki úr væntanlegu þaki nýrrar viðbyggingar við verslunarhúsnæðið féll ofan á bifreiðina og skemmdi hana töluvert. „Við vorum að hífa upp þakhluta og vorum komin með hann í u.þ.b. fimm metra hæð þegar ein stroffan [spotti frá krana og niður í hífið] gaf sig með þeim afleiðingum að hluti af hífinu hrundi,“ segir Guðmundur Jóhannesson, byggingarstjóri hjá ÍAV. Aðspurður sagði hann skemmdir á stálvirkinu sjálfu óverulegar þótt rífa þurfi allt í sundur til að rétta og laga, en ljóst er að aðaltjónið var á bílnum. „Það er alltaf erfitt og leiðinlegt þegar svona gerist, en fyrir mestu er þó að ekki varð manntjón.“ Ljósmynd/Bergþór Sigurðsson Þakhluti féll á bíl við Glæsibæ ÁR hefur liðið hjá Alcan í Straums- vík án þess að komið hafi til fjar- veru starfsmanns vegna slyss og segir Rannveig Rist, forstjóri fé- lagsins, að árang- ur í öryggis- málum álversins í Straumsvík sé með því besta sem þekkist í heiminum. Hún segir eitt slys hafa orðið á síð- asta ári þegar starfsmaður brenndist á fæti en rétt notkun á persónuhlífum hafi tryggt að meiðsli hans urðu miklu minni en annars hefði orðið og starfsmaðurinn hafi jafnað sig að fullu. „Í alþjóðlegum samanburði milli álvera er reiknuð slysatíðni á hverjar 200 þúsund vinnustundir og þegar gögn frá öðrum álverum eru skoðuð kemur í ljós að okkar árangur er með því allra besta. Á síðasta ári var tíðnin 0,24 slys á hverjar 200 þúsund vinnu- stundir sem jafngilti einu slysi.“ Þetta segir hún vera gríðarlega breytingu á stuttum tíma því ekki séu nema sjö ár frá því tíðni fjarveruslysa var 12,51 á hverjar 200 þúsund vinnu- stundir sem jafngilti um 50 slysum,“ segir Rannveig en þessi árangur er talinn endurspegla þá þróun sem hófst með mikilli öryggisvakningu hjá fyrirtækinu seint á síðasta ára- tug. „Öryggismál eru stórmál í okkar augum, enda ekkert mikilvægara en að starfsmenn komist heilir heim í lok vinnudags,“ segir Rannveig. Slysum fækkaði úr 50 í eitt á sjö árum  Mikilvægast/B2 Rannveig Rist

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.