Morgunblaðið - 28.04.2005, Page 4

Morgunblaðið - 28.04.2005, Page 4
4 FIMMTUDAGUR 28. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR GERT er ráð fyrir minni samdrætti í starfsemi Landspítala – háskóla- sjúkrahúss í sumar en undanfarin ár, eða 13% af mögulegum legudögum. Samkvæmt upplýsingum LSH var samdrátturinn 15% árið 2004 og 16% árið 2003. Þegar litið er á einstök svið kemur í ljóst að gert er ráð fyrir minni sam- drætti á öldrunarsviði, hann er nú áætlaður 15% en var 26% sumarið 2004. Einnig er minni samdráttur á skurðlækningasviði, hann er áætlað- ur 21% í sumar en var 28% í fyrra- sumar. Á lyflækningasviði I, sem m.a. gigtarlækningadeild B7, lungnadeild A6 heyra undir, er áætl- aður meiri samdráttur í ár en und- anfarin sumur eða 14% en var 5% sumarið 2004. Hins vegar hefur verið ákveðið að fjölga dagdeildarrýmum á sviðinu til að mæta, að hluta, meiri samdrætti í starfseminni í sumar. Skortur á sérhæfðu starfsfólki Eydís Sveinbjarnardóttir, starf- andi hjúkrunarforstjóri Landspítal- ans, segir að sem fyrr séu sérhæfðir starfsmenn ekki til staðar til að leysa af á sumrin. Skortur sé á bæði hjúkr- unarfræðingum og læknum. Eydís er alla jafna sviðsstjóri hjúkrunar á geðsviði spítalans. Þar er minni samdráttur í sumar en verið hefur. Hún bendir á að síðustu ár hafi umtalsverð hagræðing átt sér stað á geðsviðinu og ekki sé svigrúm til meiri samdráttar en orðið er. Þar sem á öðrum sviðum þurfi að halda uppi ákveðinni lágmarksþjónustu. Varðandi lyflækningasvið I, þar sem lokanir verða mestar í sumar, segir Eydís að þar hafi verið tekin sú ákvörðun að endurnýja gigtarlækn- ingadeildina í Fossvogi, B7. Sumarlokanirnar og samdráttur í starfsemi LSH stendur yfir á tíma- bilinu frá 1. maí til 30. september. Lokanir og samdráttur er mestur í júlí, svo ágúst og því næst júní. Á mörgum sviðum er aðeins um samdrátt starfseminnar að ræða auk þess sem gert er ráð fyrir að aðrar deildir taki við sjúklingum sem undir öðrum kringumstæðum hefðu lagst inn á deild sem er lokuð. Gerð er ít- arleg grein fyrir starfsemi einstakra deilda Landspítalans í sumar á vef- síðu spítalans, www.lsh.is. Þar sést m.a. að á skurðlækningasviði er gert ráð fyrir að almennar skurðdeildir, 12G og 13G, dragi saman starfsemi sína frá 4. júlí til 15. ágúst. Á tíma- bilinu frá miðjum júní fram í miðjan ágúst verða aðeins átta af fjórtán skurðstofum LSH starfræktar. Hjartaaðgerðum fækkar í sumar úr sex á viku í fjórar. Á gjörgæslu- deildum og vöktun í Fossvogi og á Hringbraut er gert ráð fyrir sam- drætti í júní til ágúst. Af þeim sökum gæti komið til forgangsröðunar varð- andi innlagnir. Minni samdráttur á Landspítalanum í sumar Komið gæti til forgangsröðunar varðandi innlagnir Eftir Björn Jóhann Björnsson og Silju Björk Huldudóttur ÁSÝND Laugardalshallarsvæðisins tekur örum breyt- ingum um þessar mundir. Að sögn Jónasar Krist- inssonar, forstöðumanns Hallarinnar, er verið að búa til aðkeyrslu aftan við Höllina auk þess sem ráðgert er að koma þar upp bílaplani, enda kallar stærra hús eðli- lega á fleiri bílastæði. Nýja viðbyggingin er um 7 þús- und fermetrar til samanburðar við gömlu Höllina sem er rúmlega 6 þúsund fermetrar. Morgunblaðið/Árni Sæberg Höllin gamla sett í andlitslyftingu SNÚA þurfti flugvél Icelandair á leið til Stokkhólms við eftir tæp- lega klukkustundar flug í gær- morgun þegar brunalykt fannst í farþegarýminu. Vélin lenti heilu á höldnu í Keflavík um kl. 10 og fóru farþegarnir til Stokkhólms með annarri flugvél Icelandair um há- degi. Brunalyktin fannst framarlega í farþegarýminu og var þegar tekin ákvörðun um að snúa þotunni við, segir Guðjón Arngrímsson, upplýs- ingafulltrúi Icelandair. Til álita kom að lenda þotunni á Egilsstaða- flugvelli sem var mun nær en Keflavík þegar atvikið kom upp en þegar málið var skoðað nánar var hætt við það þar sem ástandið um borð gaf ekki tilefni til þess. Vélin, sem var af gerðinni Boeing-757, var því sem næst full og um 180 farþegar um borð. Þegar vélin var lent var kannað hvað olli brunalyktinni og kom í ljós að straumbreytir sem er fram- arlega í gólfi vélarinnar hafði of- hitnað. „Þetta reyndist vera mjög smávægilegt og hættulaust,“ segir Guðjón. Skipt var um straumbreyt- inn og vélin var komin aftur í áætl- unarflug seinnipartinn í gær. Guðjón segir að hópur sér- fræðinga í áfalla- hjálp hafi verið kallaður út, eins og alltaf sé gert í tilvikum sem þessum, en ekki hafi reynst þörf fyrir áfallahjálp eftir þetta atvik. Hópur alþingismanna var um borð Hópur alþingismanna var um borð í flugvélinni á leið á fund Norðurlandaráðs í Pärnu í Eist- landi. Jónína Bjartmarz, formaður Ís- landsdeildar Norðurlandaráðs, seg- ir að farþegar hafi haldið ró sinni og starfsfólk um borð í vélinni hafi sýnt afar fagmannleg vinnubrögð þegar þetta ástand kom upp. „Ég held að til lengri tíma litið flokki ég þetta ekki undir helstu atburðina í lífi mínu,“ segir Jónína. Hún segist vissulega hafa fundið brunalyktina, en hún hafi ekki átt- að sig á því að hún væri óeðlileg fyrr en flugstjórinn ákvað að snúa vélinni við. Flugvél Icelandair snúið við Brunalykt í farþegarýminu Jónína Bjartmarz RÍKISKAUP opnuðu í gær tilboð í síma- og netþjónustu fyrir þær ríkisstofnanir sem eru aðilar að rammasamningi. Fjögur fyrirtæki sendu inn tilboð sem Ríkiskaup munu fara yfir á næstu vikum. Síminn og Og Vodafone buðu í alla þrjá útboðsflokkana; talsímaþjón- ustu, farsímaþjónustu og netþjón- ustu, en EJS hf. og Skyggnir buðu í netþjónustuna. Markar tímamót Að sögn Péturs Péturssonar, verkefnastjóra hjá Ríkiskaupum, markar þetta útboð ákveðin tíma- mót þar sem fjarskiptaþjónusta fyrir ríkið hafi ekki áður verið boð- in út með þessum hætti. Um næstu áramót er reiknað með að þjónustan verði útboðsskyld. Flestar ríkisstofnanir hafa verið í viðskiptum við Símann til þessa en einstaka stofnanir hafa gert samninga við Og Vodafone, t.d. Landspítalinn og Íslandspóstur. Um 230 stofnanir og ríkisfyrirtæki eru tilgreind sem áskrifendur að rammasamningi þannig að hér er um stór viðskipti að ræða. Pétur segir það ekki liggja fyrir hvaða tilboð hafi verið hagstæðust. Verða þau metin út frá annars vegar afslætti frá gjaldskrám og hins vegar gæðum þjónustunnar. Ríkiskaup hafa heimild til að taka hagstæðustu tilboðum eða hafna öllum. Hægt er að semja við einn eða fleiri aðila í hverjum fjarskipta- flokki. Samningur er til tveggja ára, með möguleika á ársframleng- ingu í tvígang. Því getur samn- ingstími aldrei orðið lengri en fjögur ár við sama fjarskiptafyr- irtæki. Að sögn Péturs er reiknað með að mati á tilboðunum verði lokið í lok maí næstkomandi. Fjórir buðu í fjar- skipti fyrir ríkið LAUMUFARÞEGI fannst um borð í Arnarfellinu, flutninga- skipi Samskipa, þegar skipið var á siglingu frá Rotterdam til Reykjavíkur. Maðurinn, sem er 25 ára, var afhentur lögreglu við komuna til Reykjavíkur í fyrra- dag, en hann hefur óskað eftir pólitísku hæli hér á landi. Maðurinn segist vera rúss- neskur ríkisborgari, en var skil- ríkjalaus við komuna hingað, segir Jónas Hallsson, aðstoðar- yfirlögregluþjónn hjá leyfa- og útlendingaeftirliti Lögreglunn- ar í Reykjavík. Í ljós hafi komið að maðurinn hafi þegar sótt um hæli í Svíþjóð, og því sé líklegt að hann verði sendur þangað. Málið verður sent Útlendinga- stofnun þegar lögreglurannsókn er lokið og úrskurðar stofnunin um það hvort maðurinn verður sendur af landi brott. Laumufar- þegi fannst í Arnarfellinu

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.